Dagur - 29.08.1962, Síða 38

Dagur - 29.08.1962, Síða 38
Söngur og hljómlist á AKUREYRI Frú Margrét Eiriksdóttir. F'RÚ MARGRÉT EIRÍKSDÓTTIR, kona Þórar- ins Björnssonar skólameistara á Akureyri, var fyrsti skólastjóri Tónlistarskóla Akureyrar. Hún er mjög fær píanóleikari, menntuð á tónlistarsviðinu og liefur haldið sjálfstæða hljómleika. Frú Margrét hefur góðfúslega orðið við þeim til- mælum þessa hátíðablaðs að svara nokkrum spurn- ingum um söng- og tónlistarlíf á Akureyri. Á söngur og hljómlist mikið rúm í hugum Akur- eyringa? Eins og gengur og gerist hér á landi, býst ég við. En ég hef oft haft mjög gaman af að vera hér á hljómleikum. Akureyringar eru góðir hlustendur, svo að stemning verður oft mjög sterk á hljómleik- um. Annars mætti vera meira um hljómleika hér. Það er oft erfitt að fá hingað listafólk til hljómleika- halds. Það er flest bundið við vissar áætlanir, en ferðir hingað norður frá Reykjavík oft ekki öruggar, sérstaklega á vetrum, svo að hinir eftirsóttu lista- menn, sem komnir eru til höfuðborgarinnar um langa vegu, þora ekki að hætta á snögga hljómleika- ferð til Akureyrar. Hver annast það að fá hingað innlenda og erlenda tónlistarmenn? Tónlistarfélag Akureyrar, sem hefur starfað í tvo áratugi hér í bænum, og hefur Stefán Ágúst Krist- jánsson alltaf verið formaður. Aðalstarf þess er að beita sér fyrir tónleikahaldi. Hefur félagið náð í marga ágæta og heimsfræga listamenn, bæði inn- lenda og erlenda. í vetur keypti félagið koncert- flygil, „Petrof", 2.78 m. langan. Er þetta mjög gott hljóðfæri, og var með því bætt úr brýnni þörf. Bæj- arstjórn Akureyrar lagði fram ríflegan skerf til kaupanna. Hvað er að segja um hið nýja pípuorgel, sem kirkjan hefur fengið? Það er ekki aðeins sérstaklega gott hljóðfæri, held- ur fer hljómburður kirkjunnar einstaklega vel sam- an við hljóm orgelsins. Það er mikill fengur fyrir bæjarbúa að hafa fengið þetta vandaða hljóðfæri í sína fallegu kirkju. Mun það eiga eftir að gegna mikilvægu hlutverki í tónlistarlífi bæjarins, eins og þegar hefur komið fram, þar sem fjórir ólíkir organ- istar hafa haldið hér hljómleika, og hefur ekki stað- ið á hljóðfærinu að túlka möguleika hvers lista- manns. Organleikarar hljóta að sækjast eftir að starfa við slíkt hljóðfæri. Hér eru starfandi kórar og söngfélög? Já, bærinn er þekktur fyrir söng. Við vorum að tala um kirkjuna, svo að ég byrja á að minnast á Kirkjukórinn. Kórinn er miðaður við 18 manns, og er stjórnandi Jakob Tryggvason. Aðalstarf kórsins 36 D AGUR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.