Dagur - 29.08.1962, Síða 42

Dagur - 29.08.1962, Síða 42
Skóla- kærinn AKUREYRI ÆTUNDUM er Akureyri kölluð „Norðlenzki skóla- bærinn“ og er sú nafngift ekki út í hött. í bæn- um búa tæplega 9 iþúsundir manna, og á vetrum er þar nokkuð á þriðja þúsund ungmenna í skólunum. Frá hausti tii vors setur hin fjölmenna skólaæska svip sinn á bæinn, ekki aðeins á götum úti og í bókaverzlunum og skemmtistöðum, heldur einnig á fjölda heimila í bænum, þar sem einn eða fleiri nemendur dvelja og flytja með sér áhrif skólanna. Menntaskólinn á Akureyri, Gagnfræðaskóli Ak- ureyrar, Iðnskólinn, Tónlistarskólinn og þrír barna- skólar og smábarnaskólar eru fullsettar stofnanir, Gagnfrœðaskóli Akureyrar. svo að vægt sé til orða tekið. Húsmæðraskólinn er rekinn með námskeiðsfyrirkomulagi. Menntaskólinn á Akureyri er arftaki Möðruvalla- skólans í Hörgárdal, er tók til starfa haustið 1880 og starfaði til vorsins 1902, er skólahúsið brann og skólinn var fluttur til Akureyrar. Nemendur á Möðruvöllum voru venjulega 30—40 og þar var tek- ið gagnfræðapróf eftir tveggja vetra nám. Árið 1902 var skólinn svo fluttur til Akureyrar, og þá var farið að reisa skólabyggingu þá, sem enn stendur. Einstakt má telja, að hús, sem reist var yfir 30—40 manna sveitaskóla, nægir ennþá sem kennslu- hús fyrir 450 nemendur, auk nokkurra heimavistar- herbergja, sem enn eru notuð í húsinu. Haustið 1927 fékk skólinn réttindi til að braut- skrá stúdenta, og 1930 er hann gerður að mennta- skóla. Skólinn er í tveim deildum, stærðfræðideild og máladeild, og auk þess hefur verið starfrækt við hann miðskóladeild, sem væntanlega verður fljót- lega lögð niður vegna þrengsla. Nýtt heimavistarhús er á skólalóðinni og rúmar um 140 nemendur. I skólanum eru, eins og áður er sagt, um 450 nemendur og á síðasta vori voru braut- skráðir 69 stúdentar. Fastir kennarar við skólann eru 12, auk skólameistara. Stundakennarar 13. Skólameistarar hafa frá upphafi aðeins verið fjór- ir: Jón Hjaltalín, Stefán Stefánsson, Sigurður Guð- mundsson og bórarinn Björnsson. Menntaskólinn á Akureyri er einn af þremur menntaskólum landsins. Gagnfræðaskóli Akureyrar er langfjölmennasti gagnfræðaskóli landsins, utan höfuðstaðarins, með um 550 nemendur í 21 bekkjardeild. Skólinn var stofnaður árið 1930 og var fyrsta ára- tuginn til húsa við Lundargötu á Oddeyri. Laust eftir 1940 flutti skólinn í eigið húsnæði og hefur starfað þar síðan. Sökum mikillar aðsóknar, einnig af utanbæjar- nemendum, er skólinn orðinn í miklum húsnæðis- vandræðum, en ákveðið er að hefja nú í sumar fram- kvæmdir við allmikla viðbyggingu við skólann. Við skólann starfa 24 fastir kennarar og 10 stunda- kennarar. Skólastjórar hafa frá upphafi verið þrír: Sigfús Halldórs frá Höfnum, fyrstu 5 árin, ÍÞorsteinn M. Jónsson, næstu 20 ár, og Jóhann Frímann, núver- andi skólastjóri. Barnaskóli Akureyrar hélt á síðasta ári hátíðlegt 90 ára afmæli sitt. Skólinn hraktist hús úr húsi og milli bæjarhluta framan af árum. Um aldamótin síðustu var byggður barnaskóli sunnan við núver- andi samkomuhús. En 1930 flutti skólinn í nýtt hús uppi á brekku og er þar enn í dag.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.