Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 47

Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 47
Jón Rögnvaldsson. garðurinn reynt að auka og efla grasasöfn garðsins, og er nú svo komið að meginþorri allra íslenzkra jurtategunda vex í garðinum eða 402 tegundir af rúmum 430, sem talið er að vaxi villt hér á landi. Þá eru einnig um 14 hundruð tegundir erlendra plantna ræktaðar í garðinum. Flest af þessum teg- undum dafnar vel. Eru þær þó ættaðar víðs vegar að úr heiminum, eða frá Grænlandi til Suður- Anreríku og frá Kína og Tíbet til Alaska. Síðastlið- ið sumar fékk garðurinn t. d. rúmar 20 tegundir frá Grænlandi. Er það ætlunin að auka grasasöfn garðsins eftir föngum á næstunni. Gæti garðyrkjan í landinu haft mikið gagn af því að garðyrkjustöðv- arnar notfærðu sér reynslu Lystigarðsins og tækju upp ræktun úrvalstegunda skrautjurta og runna, sem reynzt hafa nægilega harðgerðir fyrir íslenzka staðhætti. Er mikill skortur á að fólk geti fengið skrautrunna og fjölær blóm í skrúðgarða sína. Enda er það eitt af verkefnunr grasagarða erlendis að stuðla að framförum í skrúðgarðarækt almennings. Hefur Lystigarður Akureyrar þegar komizt í sam- band við nokkra grasagarða erlendis og getur feng- ið þaðan ókeypis fræ og ýmsar upplýsingar. Víða erlendis starfrækir hið opinbera plöntuinn- flutningsstöðvar, ýmist sem sjálfstæðar stofnanir, eða í sambandi við grasagarða og er þá bæði lögð áherzla á innflutning skrautjurta fyrir skrúðgarða og nytja plantna fyrir landbúnað, iðnað og jafnvel skógrækt. Þessu hlutverki gegnir raunar Lystigarður Akur- eyrar nú fyrir Island, enda þótt í smáum stíl sé, og vonandi geta allir Akureyringar að minnsta kosti verið sammála um, að gaman væri að Lystigarður- inn gæti haldið áfram að vera í fremstu röð íslenzkra almennins- og grasagarða næsta aldarhelming eins og hann hefur óneitanlega verið til þessa. FEGRUNAR pEGRUNARFÉLAGIÐ á Akureyri, sem stofnað var 1949, er eins konar samvizka bæjarins í fegrunarmálum. Það hefur með hendi ábendingar- störf um fegrun og snyrtingu bæjarins og hefur orð- ið rnikið ágengt. Félagið hefur sagt illgresi og órækt stríð á hendur, einnig ónýtum skúrunr, haugurn af ónýtum hlutum og ljótleika hér og þar í bænum. Það veitir verðlaun fyrir fagra skrúðgarða, hefur gefið bæjarbúunr kost á fjórðungi ódýrari lrúsanrálningu en í verzlun fæst, setur upp jólatré í bænunr fvrir Irver jól, býður hópum af fólki í bílferðir um bæimr til að þroska fegurðarskyn íbúanna. I sumar hefur Fegrunarfélagið, undir forystu Jóns Kristjánssönar, lrafið nýja sókn í þessunr mál- unr, í náinni samvinnu við bæjaryfirvöldin, konrið á sérstakri lireinlætisviku og lraft náið sanrband við fjölda manna um aukinn þrifnað. Árangurinn er ótrúlegur. Heilar götur eru vart þekkjanlegar, stór- lrýsi, sem franr að þessu lrafa verið köld og grá, urðu litfögur, smekkleg og prýði bæjarins. Fyrsti formað- ur Fegrunarfélags Aktireyrar var Finnur Árnason, garðyrkjuráðunautur bæjarins. Jón Kristjánsson. formaður Fegrunarfélagsins. Jón Rögnvaldsson. D A G U R 45

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.