Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 43 I Iþróttir_________________________________________________________’_______________________________________x>v__________dv Enhenaríkvöid Magnús Scheving þolfimimaður íþróttamaður ársins: Stærsta stundin Árlegt samsæti Einheija- klúbbsins verður haldiö í Naust- kjallaranum í kvöld og hefst klukkan 18 en þar fá allir verð- laun sem farið hafa holu 1 höggi í ár. Incemissirúr Útlit er fyrir aö Paul Ince geti ekki leikiö með Manchester Un- ited í ensku knattspyrnunni næstu vikumar vegna meiðsla. Ásta kosin í Kópavogi Ásta B. Gunnlaugsdóttir, knatt- spyrnukona úr Breiðabliki, var í fyrrakvöld útnefnd iþróttamaður Kópavogs 1994 en íþróttaráð Kópavogs stóð að kjörinu í ellefta skipti. Tap gegn Frakklandi Drengjalandsliö íslands í knatt- spyrnu tapaði fyrir Frökkum, 2-0, á alþjóðlega mótinu sem nú stendur yflr í ísrael. Frakkar skoruðu bæði mörk sín í síðari hálfleik. íslenska höið á frí í dag en leikur á morgun við Tyrki sem unnu Möltu, 4-0, í gær. Sigurpáll bestur nyrðra Sigurpáll Geir Sveinsson, kylf- ingur úr Golfklúbbi Akureyrar, var í gær útnefndur íþróttamað- ur Norðurlands árið 1994, í kjöri dagblaðsins Dags og lesenda j>ess. Vemharð Þorleifsson, júdómað- ur úr KA, varð annar og Jón Amar Magnússon, fxjálsíþrótta- maöur úr UMSS, varð þriðji. Kvennaliðið númer tvö íslenska kvennalandsliðið í handknattleik varð í öðru sæti á sjö liða móti sem lauk í Noregi í fyrradag. Landsliðið tapaði fyrir Toten, 12-10, í úrslitaleik en Tot- en er eitt af efstu liðum norsku 1. deildarinnar. íslenska liðið vann síðan 2. deildar lið Elveram, 3S-20, í æfingaleik. Forteikur að pressuleik Pressuleikurinn í handknatt- leik fer fram í Víkinni í kvöld klukkan 20 en þar mætir landsl- iðið úrvalsliði sem lesendur DV og Morgunblaðsins hafá valið. Nánar er sagt frá því á bls. 39 en rétt er að taka fram að tvö lið, skipuð leikmönnum úr drengja- landsliðinu, leika forleik í Vík- inni og hefst hann klukkan 18.30. ieardsleymeiddur Peter Beardsley, enski landsl- iðsmaöurinn hjá Newcastle, missir af leikjum liðsins viö Norwich og Manchester City í úrvalsdeildinni í knattspymu um áramótin vegna meiðsla. Ball liklega í bann Alan BaJl, framkvæmdastjóri Southampton, á yfir höfði sér leikbann eftir að hafa verið rek- inn af varamannabekk liðsins í leiknum við QPR í fyrrakvöld fyrir að skamma línuvörð. Keflvikingar í báðum liðum Körfuknattleiksdeild Keflavíkur og Brosið í Keflavik standa fyrir stórleik í körfuknattieik i Keflavfk. Þá leika bikarmeistarar Keflavfk- ur gegn Keflvíkingum sem leika með öðrum iiðum í DHL-deildinní. í liði brottlluttra verða Nökkvi Már Jónsson, Guðjón Skúlason og Pétur Guðmundsson, ailir í Grindavík, Falur Harðarson og Brynjar Haröarson í KR, Guöni Hafsteinsson og Jonathan Bow í Vai, Kristinn Friöriksson í Þór og þeir Hjörtur Harðarson og Júlíus Friðriksson sem leika eriendis. Liösstjóri verður Axel Nikulásson, jjálfari KR. Auk leiksins veröa ýmis skemmtiatriöi og keppendur og áhorfendur munu spreyta sig 1 ýmsum þrautum. Magnús Scheving, þolfimikappi úr Ármanni, var í gær kjörinn íþrótta- maður ársins 1994 af Samtökum íþróttafréttamanna í hófi að Hótel Loft- leiðum. Amór Guðjohnsen knatt- spymumaður varð í öðru sæti og Mart- ha Ernstdóttir, hlaupakona úr ÍR, hafnaði í þriðja sæti. Það er óhætt að segja aö Magnús Scheving sé vel að þessari útnefningu kominn. Hann varð íslandsmeistari í þolfimi og sigraði þar með miklum yfir- burðum. Hann varö Evrópumeistari í greininni og lenti í ööru sæti á heims- meistaramótinu sem fram fór í Japan og var þar aðeins 0,04 stigum á eftir heimsmeistaranum. Magnús er góð fyrirmynd, er bindindismaður á vín og tóbak og er í alla staða glæsilegur íþróttamaöur. En átti hann sjálfur von á að hreppa styttuna eftirsóttu sem var nú afhent í 39. sinn? „Ég hélt náttúrlega í vonina þar sem ég var á topp tíu listanum en ég hélt ekki að íþróttafréttamenn, með fullri virðingu fyrir þeim, myndu hreinlega velja þolfimimann. Þeir taka mikla áhættu með því, þetta er ný grein og þeir eiga örugglega eftir að fá skot á sig fyrir þetta val. Ég er þeim hins veg- ar mjög þakklátur. Auðvitað hefur maður stundum verið súr út í frétta- mennina en þegar öllu er á botninn hvolft hafa þeir alltaf tekið manni opn- um örmum,“ sagði Magnús við DV skömmu eftir að kjörinu hafði verið lýst. - Er þetta stærsta stundin í lífi þínu? „Já, ég held aö þaö sé engin spurn- ing. Maður er búinn að horfa á íþrótta- menn taka við styttunni frá því að maður var lítið barn og hefur litið upp til íþróttamanna sem hafa orðið fyrir valinu. Þetta er mesta viðurkenning sem ég hef fengið fyrir það sem ég hef gert. Þetta er mikill heiöur fyrir mig því ég var þarna að berjast við marga íþróttamenn sem hefðu átt þennan titil svo sannarlega skilinn. Ég er að taka við þessum bikar fyrir hönd allra þess- ara íþróttamanna." „Auðvitaö er alltaf matsatriði hvaða íþrótt þykir betri eða erfiðari en önn- ur. Þolfimi er hins vegar sú íþrótt sem sameinar flestar aðrar íþróttagreinar. Þú þarft að hafa snerpu, vera sterkur, vera liðugur, vera músíkalskur, að hafa takt, geta samiö og að geta komið fram og staðiö einn. íþróttafréttamenn hafa séð að þessi íþrótt er erfið og gert sér grein fyrir því og hafa því valið mig sem íþróttamann ársins. Þessi út- nefning er oíboðslega mikill heiður fyr- ir þolfimi á íslandi í dag.“ Hverju breytir þessi útnefning fyrir þig? „Hún breytir kannski engu fyrir mig í sjálfu sér nema bara heiðurinn sem ég á eftir að nærast á um ókomna tíð. Þetta auðveldar mér þegar ég þarf að tala við börn og unglinga í skólum, bæði af því aö ég stend alveg statt og stöðugt við það að þú nærð engum ár- angri með því að reykja og neyta áfeng- is. Þetta mun hins vegar virka eins og vitamínssprauta fyrir þolfimigreinina hér á landi. Það stunda um 8.000 manns þessa íþrótt milli 17 og 19 á daginn svo þetta er ein íjölmennasta íþróttagrein- in hér á landi þó svo að það fari kannski ekki mikið fyrir keppni." - Ekki ætlar þú að hætta keppni þegar þessi eftirsótti titill er nú í höfn? „Ég ætla mér að halda áfram aö æfa og keppa enda hefur þaö auðveldað manni að halda áfram eftir að íþrótta- greinin komst undir hatt ÍSÍ. Núna get ég einbeitt mér að því að keppa og auð- veldara verður að fjármganga allar ferðir. Ég hef sett mér það markmið að verða í betra formi 40 ára gamall heldur en ég er í dag 30 ára gamall," sagði Magnús aö lokum. Sögulegur landsleikur 1 körfu 1 Hveragerði: Enskir fóru í fýlu og gengu af velli - íslenskur sigur 1 þriðja landsleiknum gegn Englendingum Sveinn Helgason, DV, Hveragerðu Þriöji og síðasti vináttuleikur ís- lands og Englands í körfuknattleik sem fram fór í Hveragerði í gær- kvöldi reyndist enginn vináttuleikur í raun. Harkan var gífurleg og þegar 20 sekúndur vora eftir fékk Lazslo Nemeth, þjálfari enska liðsins, tvö tæknivíti og gekk þá af leikvelli með lið sitt. Þá var staðan 105-101 fyrir ísland. Þetta var fyrsti landsleikur- inn sem háður er í Hveragerði og kannski táknrænt fyrir bæinn aö upp úr skyldi sjóða þar! „Við komum til leiks með réttu hugarfari og voram ákveðnir í aö tapa ekki aftur fyrir þeim. Við náð- Lazslo Nemeth er frægur hér á landi fyrir líflega framkomu og í gærkvöldi gekk hann af leikvelli með lið sitt. íslaml - Engtond (55-53) 105-101 6-9, 17-17, 24-19, 26-30, 34-34, 43-48, 47-50, (55-53), 61-56, 68-62, 70-70, 76-77, 86-77, 92-85, 99-99, 105-101. • Stig íslands: Guðmundur 24, Herbert 21, Valur 16, Falur 12, Magnús 11, Brynjar Karl 6, Hinrik 6, Jón Arnar 5, Nökkvi Már 2, Marel 2. • Stíg Englands: Baker 21, Höggins 20, Austin 11, Scaddiebury 8, Whyte 8, Vorulatís 8, Brown 8, Dunkley 5, Nelson 5, Sims 4, Harvey 2, Paine l. 3ja stiga körfur: ísland 3, England 4. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Einar Ólafsson, þokkalegir. Áhorfendur: 300. Maður leiksins: Guðmundur Bragason. um upp góðri baráttu, sérstaklega í síðari hálfleik, og náðum að stíga þá vel út í fráköstunum," sagði Herbert Arnarsson, sem var besti leikmaður íslands í gærkvöldi ásamt Guðmundi Bragasyni. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en hitinn í leikmönnum var mikill og allir virtust yfirspennt- ir. Alls voru dæmdar 70 villur á liðin í leiknum, og þar af ótal tæknivillur, og Nökkvi Már Jónsson var rekinn af leikvelli. „Það var fullheitt í kolunum í kvöld en samt er ég ánægður með margt í leiknum. Hann lofar góðu fyrir Evr- ópukeppnina næsta sumar,“ sagði Torfi Magnússon, landsliðsþjálfari íslands. Lazslo Nemeth, sem íslenskir körfuknattleiksáhugamenn þekkja vel síðan hann þjálfaði KR og lands- liðið, vildi ekki ræða mikið um atvik- ið fáheyrða í lokin en sagði að dómar- amir heföu ekki haft stjórn á leikn- um. „Sigur íslands var sanngjarn og góð hittni liðsins úr vítaköstum á lokakaflanum réö úrslitum. Mínir menn vora í villuvandræðum allan tímann og þaö hafði áhrif á leik þeirra," sagði Lazslo Nemeth. Flugeldasala Víkings í Víkinni Góöir flugeldar frá Hjálparsveit skáta á góöu verði. Opið miövikudag, fimmtudag og föstu- dag kl. 10-23, gamlársdag kl. 10-16. Heildarúrslit í kjörinu á íþróttamanni ársins 1994 1. Magnús Scheving, Ármanni-þolfimimaður............................ 395 2. Amór Guöjohnsen, Örebro - knattspyrnumaður...........................280 3. Martha Ernstdóttir, ÍR - fxjálsíþróttamaður........................ 126 4. PéturGuðmundsson.KR-fijólsíþróttamaður..............................114 5. Siguröur Sveinsson, Selfossi/Víkingi - handknattleiksmaður...........73 6. JónArnarMagnússon.UMSS-fijáisíþróttamaður......................... 69 7. Jóhannes R. Jóhannesson -snókerleikari................................53 8. Ásta B. Gunnlaugsdóttír, Breiðablikí - knattspyrnumaöur...............50 9. Geir Sveinsson, Alzira/Val - handknattleiksmaður......................47 10. Vanda Sigurgeírsdóttir, Breiðabliki - knattspymumaður................41 11. Geir Sverrisson, Ármanni -frjálsíþróttamaður.;.......................37 12. Vernharð Þorleifsson, KA -júdómaður..................................36 13. Ásta S. Halldórsdóttír, ísafirði - skíðamaöur........................34 14. Sigursteinn Gíslason, Akranesi - knattspymumaður.....................28 15. Sigrún Huld Hrafhsdóttir, Ösp - sundmaður............................26 16. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki - hestaíþróttamaður......................23 17. Teitur Örlygsson, Njarðvík - körfuknattleiksmaður....................20 18. Margrét Ólafsdóttir, Breiöabliki - knattspymumaður...................18 19. Þorvaldur Örlygsson, Stoke City - knattspyrnumaður...................17 20. ÓlafurEiríksson.ÍFRogKR-sundmaður....................................16 21. BirkirKristmsson.Fram-knattspyrnumaður...............................10 22. -23. GuðmundurBragason.Grindavík-körfuknattleiksmaður.................9 22.-23. Broddi Kristjánssons TBR - badmintonmaður.........................9 24.-25. Herbert Arnarsson, IR - körfuknattleiksmaður......................7 24.-25. Guðmundur Stephensen, Víkmgi-borðtennismaður......................7 26.-29. Olga Færseth, Breiðabliki/Keflavík - körfukn. og knattspymumaöur.6 26.-29. Patrekur Jóhannesson, Stjömunni/KA - handknattleiksmaður.........6 26.-29. Bergsveinn Bergsveinsson, FH/Aftureldingu - handknattleiksmaður..6 26.-29. Eyjólfúr Sverrisson, VIB Stuttgart/Besiktas - knattspyrnumaður...6 30.-31. Sigurpáll Geir Sveinsson, GA - golfleikari.......................5 30.-31. Guöjón Skúlason, Keflavík/Grindavík - körfuknattleiksmaður........5 32.-36. Ulfar Jónsson.Keili-golfleikari.............................. .4 32.-36. Guðrún Arnardóttir, Armanni - ftjálsíþróttamaðúr..................4 32.-36. SigurðurBergmann, Grindavík-júdómaöur.............................4 32.-36. Elva Rut Jónsdóttír, Björk -flmleikamaður.........................4 32.-36. Guðjón Guömundsson, Ármanni - fimleikamaður.......................4 37.-38. Karen Sævarsdóttír, GS - golfleikari............................ 2 37.-38. Rúnar Jónsson-bifrelðaiþróttamaöur................................2 39.-41. OrríBjömsson.KR-glímumaður........................................1 39.-41. Elsa Nielsen, TBR - badmintonmaður................................1 39.-41. Amar Freyr Ólafsson, HSK, sundmaöur..............................1 Houston slapp Ótrúleg tilþrif hjá Vernon Maxwell forð- uðu meisturum Houston frá tapi gegn Golden State á heimavelli í NBA-deildinni í nótt. Maxwell náði boltanum af miklu harðfylgi eftir slæma sendingu félaga síns og skoraði með 3ja stiga körfu þegar ein sekúnda var eftir, 126-124. Toppliðið Orlando mátti sætta sig við ósigur í Charlotte, 125-123, og það voru Hersey Hawkins og Muggsy Bogues sem gerðu út um leikinn í lokin. Úrslit í NBA-deildinni í nótt: Miami - LA Clippers..............126-83 Rice 35 - Ellis 11. Charlotte - Orlando..............125-123 Hawkins 23, Bogues 18 - Shaq 30/17. Atlanta - San Antonio............127-121 Houston - Golden State...........126-124 Olajuwon 42 - Hardaway 32, Sprewell 25, Gugliotta 18/12. LA Lakers - Seattle.............. 96-95 Ceballos 35, Campbell 28 - Schrempf 26. Portland - Denver................104-93 Robinson 27, Strickland 16 - Abdul-Rauf 18. Tyrone Corbin skoraði átta stig í fram- lengingu þegar Atlanta stöðvaði sigur- göngu San Antonio. Miami vann sinn stærsta sigur í sögunni þegar botnlið Clippers kom í heimsókn. Velgengni LA Lakers heldur áfram og liðið vann sinn fyrsta sigur á Seattle í síöustu sjö viður- eignum félaganna. Stúlkurnar unnu aftur Stúlknalandshðið í körfuknattleik sigraði Eistland, 67-66, á Norðurlandamótinu í Noregi í gær. Þetta var annar sigur íslands, sem haföi ekki áður unnið leik á þessu móti. Júlía Jörgensen var stigahæst með 21 stig. Piltalandsliðið tapaði hins vegar tvíveg- is á NM í Svíþjóð, 71-85 fyrir Eistlandi og 65-88 fyrir Svíþjóð. Páll Vilbergsson var stigæ hæstur í báðum leikjum, með 22 stig í þeim fyrri og 28 í þeim síðari. Iþróttir Magnús Scheving burðum og er afar vel að titlinum og heið þolfimimaður með bikarinn glæsilega eftir útnefninguna i gærkvöldi. Magnús sigraði í kjörinu með miklum yfir- ðrinum kominn enda frábær iþróttamaður og glæsileg fyrirmynd iþróttaæsku landsins. DV-mynd Brynjar Gauti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.