Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 21 Fréttir 21 árs Kópavogsbúi vann tölvuna í jólagetraun DV: Regína Jóhannsdóttir með önnur verðlaun; Panasonic NV-HD90 myndbandstæki frá Japis að verð- mæti 73.800 krónur. Guðrún Jóna Guðfinnsdóttir við þriðju verðlaun, Panasonic hljóm- tækjasamstæðu og hátalara frá Jap- is að verðmæti 69.450 krónur. Hjá Guðrúnu eru börnin, Dagný Ósk og Róbert Kjaran Ragnarsbörn. Fíkniefnasali handtekinn á hlaupum Fíkniefnadeild lögreglunnar hand- tók í fyrrakvöld þekktan fíkniefna- sala á hlaupum og lagði hald á 10 grömm af amfetamíni sem fundust í fórum hans. Lögreglumenn urðu varir við manninn þar sem hann var á bíl og gáfu honum merki um að stöðva bíl- inn. Hann hlýddi ekki merkinu og eltu lögreglumenn hann og handtóku hann fyrir utan heimili hans þar sem hann var á hlaupum. Með honum var annar maður sem einnig hefur kom- ið áður við sögu lögreglu. Mennimir voru báðir settir í hald lögreglu. Nicorette forðaplásturinn inniheldur nikótín er losnar úr plástrinum. Tilgangurinn er að draga úr fráhvarfseinkennum eftir að reykingum er hætt. Forðaplásturinn er settur á að morgni og tekinn af fyrir svefn þar með er minni hætta á aukaverkunum eins og svefntruflunum og áhrifum á drauma. Einnig dregur úr líkum á þolmyndun. Nikótínið úr plástrinum getur valdið kláða og útbrotum. Meðferðarlengd er einstakl- ingsbundin en æskilegt er að nota einn plástur á dag. Nicorette forðaplástur er til í 3 styrkleikum 5, 10 og 15 mg/16 klst. og er mælt með notkun sterkasta plástursins í upphafi meðferðar. Síðan er styrkleikinn minnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf viðkomandi á hverjum tíma . getur þú losnað við óþægilega líðan sem er oft einkennandi þegar líkamann vantar nikótín eftir að reykingum er hætt. Nikótínlyf auðvelda þér að yfir- stíga ávanann. Nicorette sér líkama þínum fyrir nikótíni en á sama tíma ert þú laus við tjöru, kolsýrling og aðrar skaðlegar lofttegundir sem fylgja reykingum. Reykingavenjur eru einstaklings- bundnar. Þess vegna er gott að geta valið á milli mismunandi Nicorette lyfjaforma og styrkleika sem sjá líkamanum fyrir nikótíni. Möguleikar þínir á að standast reykbindindið aukast ef þú velur það lyfjaform sem best fellur að þínum þörfum. Ef þú ákveður að hætta að reykja og nota þess í stað Nicorette til að hjálpa þér yfir erfiðasta hjallann fyrstu mánuðina Nicorette tyggigúmmí inniheldur nikótín sem losnar smám saman úr tyggigúmmíinu þegar tuggið er og dregur úr fráhvarfseinkennum eftir að reykingum er hætt. Æskilegur dagskammtur er 8 t 16 stk. Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið aukaverkunum eins og ertingu í munni, koki, vélinda og meltingaróþægindum ef túggið er of hratt. Ráðlagt er því að sjúga tyggigúmmíið meira en tyggja eða tyggja hægt. Nicorette nikótíntyggigúmmí er til í 2 og 4 mg styrkleika með eða án mintubragðs. Styrkleiki og meðferðarlengd er einsaklingsbundin.Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá börnum. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta og æðasjúkdóma’ Ófrískar konur og konur með bam á brjósti eiga ekki að nota nikótínlyf. Alveg æðislegt „Mamma vakti mig í morgun og sagði mér að ég hefði unnið fyrsta vinning í jólagetraun DV. Ég vissi hreinlega ekki hvað ég átti að gera, ég trúði þessu varla. Þetta er alveg æðislegt," sgði Carl Johan Carlsson, 21 árs Kópavogsbúi, þegar hann sótti fyrsta vinning í jólagetraun DV í Apple-umboðið í gær. Carl hlaut Macintosh Performa 475 einkatölvu og Style Writer prentara frá Apple-umboðinu, samtals að verðmæti 158 þúsund krónur. Hann segist aldrei hafa tekið þátt í jólaget- raun. DV áður en það hefðu móðir hans og systir oft gert en ekki unnið. Carl hefur verið atvinnulaus en var síðast í byggingarvinnu. Hann ætlar að taka sér smátíma til að spá í hvað hann eigi að gera við tölvuna en hann hefur aldrei átt tölvu áður. Óraði ekki fyrir þessu „Ég sendi inn lausnir í öllum jóla- getraunum sem ég komst yfír fyrir þessi jól en óraði ekki fyrir að ég mundi vinna í þessari getraun, það senda svo margir inn,“ sagði Regína Jóhannsdóttir, húsmóðir úr Kópa- vogi, þegar hún sótti verðlaunin sín. Hún hlaut önnur verðlaun, Pana- sonic NV-HD90 myndbandstæki með víðóm frá Japis að verðmæti 73.800 krónur. Regína sagðist eiga von á að áramótaskaupið yrði frumraun þessa vandaða myndbandstækis á heimilinu og hlakkaði til að nota það. Leysir gömlu græj- urnaraf hólmi „Ég á bara eldgamlar og hálfónýtar græjur heima svo það er stórkostlegt að fá svona fín tæki upp í hendurn- ar. Ég hef aldrei unnið neitt áður en einhvern tíma verður allt fyrst. Það er nú aðallega maðurinn minn sem hefur ýtt á eftir mér að taka þátt í þessari getraun,“ sagði Guðrún Jóna Guðfinnsdóttir, húsmóðir í Hóla- hverfi í Reykjavík, þegar hún kom að sækja vinninginn sinn á ritstjórn DV. Guðrún hlaut þriðju verðlaun, Panasonic SC-CH hljómtækjasam- stæðu með geislaspilara og hátölur- um frá Japis að verðmæti 69.450 krónur. Guðrún hefur ekki átt geisla- spilara áður og sagðist eiga eftir að kaupa sér geislaplötur til að spila í nýju tækjunum. Árni Jónsson, framkvæmdastjóri Apple-umboðsins, afhendir Carli Johani Carlssyni fyrstu verðlaun í jólagetraun DV; Macintosh Performa 475 einka- töivu og Style Writer prentara, samtals að verðmæti 158 þúsund krónur. DV-myndir ÞÖK HefUvþú dkveðið að hœtta að reylqa? Núna er vétti tíminnl NICORETTEi Hjálparþér yfir erfíÖasta hjallann Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir hverri pakknmgu lyfsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.