Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 40
52 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 Miimisstæðustu atburðir á árinu 1994 dv Salome Þorkelsdóttir: Þjóðfundur á Þingvöllum „Þjóðfundur- innáÞing- völlumer mérafskap- legaminnis- stæðurog sérstaklega sú góða stemning sem þarríkti. Ekkibarahjá þingmönnum ográðherrum heldur hjá öllum viðstöddum. Há- punkturinn var þegar tíu svanir flugu oddaflug í upphafi fundarins. Það var stórkostlegt. Utan úr heimi eru það hræðilegar stríðshörmungar í Evrópu. Það er slæmt að fólk skuli ekki geta lifað saman í sátt og sam- lyndi,“ segir Salome Þorkelsdóttir, forsetiAlþingis. „Mér líst vel á nýtt ár. Ég held að við náum að komumst meira út úr vandanum í efnahags- og atvinnu- málum sem hefur valdið okkur mest- um áhyggjum." Margrét Björnsdóttir: Eitthvað að gerast í stjómmálum „Árið 1994 er méreinkum mikilvægt fyrirtvennt. Ánnað er kosningabar- áttaogsigur Reykjavíkur- listans sl. vor en þarfannst mérífyrsta skiptiílangan tímaeitthvað vera að gerast í íslenskum stjómmál- um sem verulega skipti mig máli. Hitt atriðið er persónulegt en það er að ég hef allt þetta ár átt kost á mjög lærdómsríku samstarfi við fólk hér í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, að- ila í íslensku athafnalffi og ekki síst iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Sig- hvat Björgvinsson. Við Sighvatur höfum ásamt fólki úr ráðuneytinu ferðast til allra landsfjórðunga, heimsótt á annað hundrað fyrirtæki og átt fundi með sveitarstjórnum og heimamönnum á hveijum stað. Þetta hefur verið mér, sem er annars for- faUinn Reykvíkingur, ómetanlegt og dýpkað áður takmarkaöan skilning minn á aðstæðum þeirra sem búa á landsbyggðinni. Árið 1995? - Ég hlakka til.“ Jóhannes Gunnarsson: Einhliða álögurfrá bönkunum „Mér er minnisstæð- astaðásíð- asta ári eign- aðistégtvö fyrstu barna- börnin mín. Þáermérað sjálfsögðu of- arlegaíhuga þær miklu álögursem bankarog sparisjóðir ákváðu einhliða að leggja á neytendur. Hver stjórnmálaflokk- urinn á fætur öðrum hefur tekið undir þriggja ára baráttumál Neyt- endasamtakanna um að gerðar verði raunhæfar úrbætur í fjármálum heimilanna,“ segir Jóhannes Gunn- ársson, formaður Neytendasamtak- anna. „Ég vænti þess að stjómmálamenn standi við loforð um úrbætur í mál- efnum neytenda og heimila landsins og að stjórnvöld standi við EES- samninginn og stuðli aö öflugra neyt- endastarfi hér á landi,“ segir hann. Sævar Gunnarsson: Kvótalögin mikilvægust „Lagasetn- inginívor, semáttiað takaákvóta- vandamáli sjómanna, er mér minnis- stæðust því aðviðbind- um vonir við að lögin komi ívegfyrirað sjómenn séu knúnir til þátttöku í kvótakaupum. Lögin gilda til loka árs 1995 þannig að tíminn er skammur en við viljum einmitt að það sé tekið á þessu á skömmum tíma og málið leyst,“ seg- ir Sævar Gunnarsson, nýr formaður Sjómannasambands íslands. „Ég vænti þess að sjómönnum og útvegsmönnum takist að gera nýjan heildarkjarasamning sem nær yfir aUar veiði- og verkunaraðferðir sem sjómenn starfa við á nýju ári. Við verðum að gera samninga um þau atriði sem ekki hefur verið samið um áður,“ segirhann. Guðmundur J. Guðmundsson: Niðurlæging á síðasta ári „Méreru minnisstæð- ust ömurleg- heitinvið uppgjör samninga Al- þýðusam- bandsíslands síðastliðinn vetur. Mér fannstalgjör uppgjöfog vonleysihel- taka menn. Ég er ekki enn búinn að ná mér. Þetta var mannleg niðurlæg- ing,“ segir Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður verkamannafé- lagsinsDagsbrúnar. „Það verður ekki lifað við þetta at- vinnuleysi eins og verið hefur og er að skella á af fullum þunga aftur. Það verður ömurlegt ef svo heldur áfram. Samningar veröa lausir um áramót og ég vænti þess að það rætist úr hjá fólki. Það verður erfitt því ég held að þetta verði ár mikillar hörku í kjarabaráttunni,“ segir hann. Benedikt Sveinsson: Gottár í sjávarútvegi „Mérfmnst þaö merkileg- ast, í lok þessa árs, hvað sjávarútveg- urinn hefur baristtilsig- ursáalveg feiknarlega erfiöumtíma. Að mörgu leytivarþað óvæntensýn- ir hvílíkur rosakraftur býr í þessum útvegi þegar hann ætlar sér eitthvað. Ég tel að sjávarútvegurinn sé að skila einu af sínum betri árum,“ segir Benedikt Sveinsson, forsijóri ís- lenskra sjávarafurða. „Á næsta ári vil ég að menn haldi áfram af sama krafti. Hins vegar spái ég því að á brattann verði að sækja fyrir sjávarútveginn. Það þarf mikla útsjónarsemi til að komast áfram því ákveðin óvissa ríkir vegna kvóta- mála, úreldingar og úthafs veiða. “ Davíð Scheving Thorsteinsson: Vona að ég finni framtíðarstarf „Mérer minnisstæð- astaðþað tókstaðljúka þeimvanda- málum, sem fyrirtækið Smjörlíki-Sól hafði verið í, farsællega fyriralla starfsmenn- ina. Ég vona síðan að mér takist að finna eitthvert framtíðarstarf handa mér á nýjuári." Dagur Sigurðsson: Titillinn með Val og opnum kaffihússins „Þaðereigin- legatvennt sem stendur uppúrhjá mér á árinu. Annars vegar erþaðís- landsmeist- aratitillinn semviðVals- menn unnum og hinsvegar opnun kaffi- hússins Kofi Tómasar frænda sem ég rek ásamt bróður mínum,“ sagði Dagur Sigurðsson, handknattleiks- maður með Val og landsliðinu. „Það er stórt ár framundan í hand- boltanum og markmiðið er að reyna að standa sig vel með Val og landsliö- inu og að ná þeim takmörkum sem maður er búinn að setja sér,“ sagði DagurSigurðsson. Hörður Sigurgestsson: Ár staðfestu ogjafnvægis „í atvinnu- rekstriog efnahagslífiá íslandi hefur þettaverið ár staðfestu og jafnvægis. Það hafafáár verið betrií því tilllti um langatíð. Þá er mér mjög minnisstæð hátiðin á Þingvöllum í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins," segir Hörð- ur Sigurgestsson, forstjóri Eimskips. „Á næsta ári er það ósk mín að okk- ur takist að halda hér starfseminni og lffinu í þessu landi í böndum. Það má ekki gerast að hér verði farið í kollsteypu sem taki kannski áratugi aðjafnaútaftur.“ Elín Hirst: Framboð R-listans „Aðtakavið nýjustarfiá árinuerauð- vitaö mjög eftirminni- legt. írafárið í kringum Stöð tvöogfrétta- stofunaer eins oggreypt inníminnið en ein gleöi- legastastund- in var þegar við Eggert Skúlason náðum sáttum á ný og sátum saman í 19:19 á Sauðárkróki. Ferðalag fréttastofunnar um landið var þörf lexía fyrir svona Stór-Reykjavík- urbúa eins og mig en mér hefur lengi fundist mig vanta betra jarösamband við áhorfendur úti á landi,“ segir Elín Hirst, fréttastjóri Stöðvar tvö og Bylgjunnar. „Svona almennt talað held ég að framboð Ingibjargar Sólrúnar og R- listans, sem náði að fella rótgróinn meirihluta Sjálfstæðismanna í borg- inni, sé það sem mér er minnisstæð- ast á árinu sem er að líða. Á nýju ári vænti ég þess að farið verði betur með peninga almennings." Halldóra Bjamadóttir: Ferðaðistum landið „Áþvíári sem er að líða ermérminn- isstæðast reyklausbíó 1. desember enþaðgekk mjögvel ogég væntiþessað ánýjuári komist nýju tóbaksvarn- arlögin í gegn á Alþingi og um leið verði bann við innflutningi og sölu á fínkornuðu munn- og neftóbaki. í einkalffinu var þetta yndislegt ár. Ég notaði lýðveldisafmælisárið til að ferðast um landið mitt, fór á lúðra- sveitamót í Stykkishólmi og Polla- mót í Vestmannaeyjum. Einnig keyrði ég yfir Kjöl og upp í Kerlingar- fjöll og gisti þar, auk þess sem ég ferðaðist um Austfirðina í fyrsta skipti og var eina helgi á Höfn í Hornafirði. Þar dvöldum við í póst- kortaveðri og ég upplifði það að fara á snjósleða um Vatnajökul sem er það æðislegasta sem ég hef gert.“ Margrét Skúladóttir Sigurz: Keppnin stendur upp úr „Ætliþaðsé ekki bara keppnin. Hún stenduralla- vega upp úr hjámér. Ferðintil Tyrklands er líkaminnis- stæðenann- arserþetta barabúiðað verarólegt hjámér,“segirMargrétSkúladóttir * Sigurz, fegurðardrottning íslands. „Á næsta ári ætla ég að lifa lffinu, klára Fósturskólann og vona að mér gangi allt í haginn. Ég fer í keppnina Ungfrú alheimur á næsta ári en ekki er búið að ákveða hvar hún verður haldin. Vegna keppninnar frestast prófin hjá mér fram á sumar.“ Björn Grétar Sveinsson: Biðumeftir3. bamabaminu „Viðeignuð- umstokkar þriðjabarna- bamogeydd- umsumarfrí- inumeðal annarsíbið eftirþvíaust- uráEskifirði ísumar. Svo ermérmjög minnisstæð þróuniní kaupgjaldsmálunum í landinu. Lau- naumhverfið er mgl. Það kemur bet- ur og betur í ljós,“ segir Björn Grétar Sveinsson.formaðurVerkamanna- - sambandsins. „Ég vænti þess að umhverfið batni í efnahagsmálum þó að það hangi á Rússafiskiríi, Smuguveiðum og fleiru sem ekki er tryggt í hendi. Ég fer bjartsýnn inn í nýtt ár og vænti þess að þjóðin sé loksins tilbúin til þessarar margumtöluðu tekjujöfn- unar,“segirhann. Kristín Á. Guðmundsdóttir: Vænti árs kjarajöfnunar „Kjaradeúa sjúkraliða, '' '• sem stendur yfirídag,er Bí'x mérefstí W hugaatburða ■ , ) j| á líðandi ári. Hún endur- speglar að i það er ætlun \ w ríkisvaldsins \ w að breyta svo launamunstri þjóðfélaginu og sýnir að það er ekki ætlunin að semja við okkur á þeim nótum sem samið hefur verið á ár- inu,“ segir Kristín Á. Guðmundsdótt- ir, formaður Sjúkraliðafélags ís- lands. „Gagnvart komandi ári vænti ég helst að þessu ljúki og þá sem allra fyrst. Jafnframt vona ég að þetta eigi eftir að verða ár kjarajöfnunar. Samningar eru lausir í upphafi árs hjá flestum félögum og ég vona að fólk fái að lifa á þeim launum sem því er ætlað að lifa á.“ Kristján Sveinsson: Missti skip og tengdason „Mérer auð- vitað minni- stæðastþegar égmissti skip ogtengdason í sjóslysinu í Vöðlavík 10. janúar. Þaö hverfurmér aldreiúr minni. Af nýjuári væntiég þess að ég og fjölskylda mín hafi það sem best, ég held mínu lffi áfram eins og þaðerídag." Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Friðarsamn- ingurinn „Markverð- astafréttsíð- astaársvar að mínu mati ffiðarsamn- ingurísraels- manna ogPa- lestínu- manna. Þar með var stórt skrefstigiðí áttaðfriðií Miðaustur- löndum og í heiminum,“ segir Vil- hjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifa- fræðingur. „Ég vænti þess að árið 1995, sem UNESCO hefur útnefnt sem ár um- burðarlyndisins, verði gott ár þar sem ögn minna verði hamrað á ótak- mörkuðu ágæti íslendinga og ís- lenskrar tungu en gert var á 50 ára afmæli lýðveldisins. Að kjör lág- launafólks á íslandi batni og að afli verði góður. Að stjórnvöld og íslend- ingar allir vinni átak í að framfylgja samþykkt sinni á Vínarsamningi Evrópuráðsins frá 1993 sem stuðla á að baráttu gegn kynþáttafordómuin ogmikillifátækt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.