Þjóðviljinn - 22.12.1946, Side 17

Þjóðviljinn - 22.12.1946, Side 17
Jólin 1946 Þ JÖÐVIL JINN 15 Ilerou- breið. — Séð úr hrauninu norðvest- ur af Lindun- um. göng upp í gegnum hengjuna, en það var ekki áhlaupa- verk og auk þess heldur kulsamt. „Himnastiginn" okkar náði aldrei lengra. Með nafnakalli var samþykkt að snúa við. En ekki þýðir að fara sér óðslega. Misstigið spor gæti þýtt, að við færum í loftköstum niður í miðja fjallshlíð, og ekkert okkar langar til að reyna sig á slíku sporti. Við byrjum því ,,stiga“-gönguna á nýjan leik. Göngum aftur ábak og styðjum okkur við hjarnið. Það væri líklega rétt ara að segja1, að við hefðum skriðið, en ekki gengið, niður í skriðurnar. Enda þótt við værum alls ekki ánægð með þessi mála- lok, höfðum við dágóða matarlyst, þar sein við sátum með ögrandi jökulhjálminn yfir okkur, og það efst í liuga að betur skyldi takast næst þegar við kæmum á þessar slóð- ir. (Seinna frétti ég, að Herðubreið væri ekki talin kleif á þessum stað, heldur norðar og vestar. Varð mér það nokkur raunabót!) Nú skildust leiðir. Stúlkan og einn pilturinn, taka stefnu suðvestur í Lindar, þar sem þau ætla að dvelja nokkr- um dögum lengur, en við hinir höldum í stefnu á Grafar- lönd, er nú lágu hálffalin í hrauninu. Til að vera vissir um að fara skemmstu leið þangað tökum við mið frá hraun- hól við fjallsræturnar, þar sem Grafarlönd ber í sunnan- vert Ferjufjall. Fulla þrjá klukkutíma göngum við yfir sprungið og missigið helluhraun. Loks erum við komnir að upptökum Grafarlandaár; hvorutveggju jafnfegnir: að komast í vatn og hafa gras til að ganga á. Nokkru austar á árbakkanum er búið aðTeisa tjöldin. Eftir litla stund er- um við þar. Voru þá liðnir 12 tímar síðan við fórum úr f Herðubreiðarlindum. KVÖLDVAKA OG „KENNIMAÐUR" Eftir ferðaáætluninni áttu Grafarlönd að verða okkar síðasti náttstaður í óbyggð. Um kvöldið var komið saman til að skemmta sér í stóra tjaldinu. Ræður voru fluttar, bæði á íslenzku og dönsku, sagðar gamansögur og sung- ið. Þegar það kvisaðist, einhvern tíma í ferðinni, að í hópn um væru bæði hjúkrunarkona og ljósmóðir, (sem raunar fengust aldrei óyggjandi sannanir fyrir!) þótti sumum öruggara að vera ekki prestlaus. Gekk embættisveitingin greiðlega og án nokkurrar kosningabaráttu. Skal það ját- að, að leitun myndi á skemmtilegri „presti'1 en þessum ör- æfapresti okkar. Var liann hrókur alls fagnaðar í tjald stöðum og fylgdist af kostgæfni með líðan — og líferni! „sóknarbarna" sinna. Voru ræður hans aldrei hjartnæm- ari en þetta kvöld, enda komið að kveðjustund. Lauk kvöldvökunni með því að sungnir voru þjóðsöngvar ís- lands og Danmerkur, en söngmenn stóðu álútir í röðum meðfram tjaldhliðum, svo höfuðin námu næstum saman. Það var komið fram yfir miðnætti, þegar við skriðum í 1 i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.