Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 Istuttar fréttir 13 ára brennuvargur 13 ára drengur var handtek- inn í gær, grunaður um að eiga sök á eldsvoðanum í flugelda- verslun í Ohio í Bandaríkjun- um. Ciller róar konur Fyrrum forsætisráð- herra Tyrk- lands, Tansu | Ciller, vísaði I í gær á bug Igagnrýni kvenrétt- indahópa fyr- ir aö taka þátt í samsteypu- | stjórn með múslímum. „Ég er í ;! þessari baráttu fyrir unga fólk- | ið mitt og konurnar mínar. Ég j er vemdari ykkar,“ sagði Ciller i við sendinefiid kvenna. Ákvörðun frestaö 1 ísraelska stjórnin frestaöi : þar til á sunnudag aö taka ákvöröun um hvort Ariel Shar- ; on eigi að fá ráðherrastól. IApi fékk kúariðu Franskir vísindamenn segja apa í dýragarði, sem var alinn á afurðum úr nautgripum, hafa fengið kúariðu. Það styðji kenn- ingar um að hægt sé að fá veik- ina í gegnum fæðukeðjuna. 560 þúsund byssur Kínversk yfirvöld hafa undir- ritað lög um hert eftirlit með byssueign eftir að lögreglan lagði haid á 560 þúsund byssur á tveimur mánuðum. 1,3 milljónir látnar Að minnsta kosti 1,3 milljón- ir létust úr alnæmi eða tengd- um sjúkdómum á síðasta ári. Búist er við að 3,1 milijón smit- ist á næsta ári. Faldir fjársjóöir Leikmenn i fornleifafræöi, sem grafa upp forna fjársjóði í Bretlandi, geta átt á hættu fang- elsisvist afhendi þeir ekki rík- í inu fund sinn. Læknir dæmdur í Fyrrum | læknir Francois \ Mitt- * errands, | fyrrverandi | Frakklands- j forseta, var í gær dæmdur í fjögurra mánaða skil- orösbundna fangelsisvist fyrir I að skýra frá því að forsetinn J hefði ekki sagt sannleikann um J sjúkdóm sinn í 11 ár. . Astarþríhyrningur Svikin eiginkona i Bretlandi lagði heimili móður sinnar í rúst þegar hún uppgötvaöi að j móöirin hafði átt í ástarsam- bandi við eiginmann hennar. % Reuter Verðá bensíni og olíu hækkar Verð á bensíni og olíu á erlendum mörkuðum hefur hækkað talsvert undanfama viku. 95 oktana bensín hækkaði úr 196 dollurum í 210, 98 oktana bensín hækkaði úr 201 í 214 dollara og hráolía fór úr 19,09 í 19,85 dollara tunnan. Sigurgeir Þorkelsson, starfsmað- ur Esso, segir að bensín og olia hækki oft um sumartímann. „Vafa- laust er aukin eftirspum á þessum árstíma þegar Evrópubúar eru í sumarfríi," segir hann. Viðskipti með hlutabréf i erlend- um kauphöllum hafa verið blómleg að undanfomu. Hlutabréfavísitalan í New York, Lundúnum og Hong Kong hefur hækkað meðan vísital- an í Frankfurt og Tókýó hefur sigið. Reuter Clinton um símtal viö Rússlandsforseta: Virtist hress og sagði brandara Bill Clinton Bandarikjaforseti hringdi í Borís Jeltsín Rússlandsfor- seta í gær til að óska honum til hamingju með sigurinn í forseta- kosningunum. Að sögn Clintons gerði Jeltsín að gamni sínu og virt- ist sæmilega hress. „Ég þurfti ekki að spyrja hann um heilsufarið því hann hljómaði svo hress,“ sagði Clinton á fundi með fréttamönnum. Jeltsín greindi Clinton hins vegar frá því að hann væri þreyttur og hlakkaði til að fara í frí eftir 9. ágúst en þá verður hann settur inn í embættið. Jeltsín óskað Clinton góðs gengis í forsetakosningunum í Bandaríkj- unum í nóvember næstkomandi. Sigur Jeltsíns sviptir bandaríska repúblikana tækifærinu til að nota slagorðiö „Hver tapaði Rússlandi?" Forsetaframbjóðandi repúblikana, Bob Dole, og aðrir repúblikanar hafa gagnrýnt Clinton fyrir að tengja stefnu Bandaríkjanna gagn- vart Rússlandi um of einum aðila. Starfsmaður Hvíta hússins greindi frá því að forsetamir hefðu ræðst við í 25 mínútur. Jeltsin hefði fullvissað Clinton um að hann ætl- aði að halda áfram efnahags- og lýð- ræðisumbótum. En það era erfiðir dagar fram undan. „Það eru engar forsendur fyrir sæluvímu," sagði í fyrirsögn greinar í dagblaðinu Izvestia i gær þar sem fjallað var um efnahags- vandann. Jeltsín lofaði öllu fögru í kosningabaráttunni og fjármálaráð- herra hans, Vladimir Panskov, sagði loforðin vera í samræmi við fjárlögin. Hagfræðingar eru varkár- ari og segja allar tölur óljósar. í gær samþykkti stjórnin aðgerðir til að tryggja skattheimtu. Reuter Flugvél var í fyrsta sinn flogið undir brú í Litháen í gær. Fjölmargir komu til að horfa á atburðinn og skemmtu sér hið besta. Símamynd Reuter Segja martröð að starfa fyrir forsætisráðherrafrú ísraels Barnfóstruvandamál Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra ísra- els, voru efst á baugi í fréttunum í ísrael í gær. Ástæðan var sú að ein barnfóstra til viðbótar sagði það martröð að starfa fyrir eiginkonu Netanyahus, Söm. „Sara hafði einkennilegar reglur sem ég hafði aldrei heyrt um áður. Maður varð að þvo sér um hendum- ar áður en maður fór á milli her- bergja,“ sagði barnfóstran Heidi Ben-Yair sem varð að fara í sál- fræðipróf að beiðni Söru áður en hún hóf störf. Ben-Yair starfaði bara í viku á heimili Netanya- huhjónanna í nóvember 1994. „Éinu sinni öskraði hún á mig í 20 mínútur af því að ég hafði borð- að tómat. Hún sagði við mig að tómatar væru dýrir og að ég ætti ekki að borða fleiri en einn tómat á dag og bara eitt egg annan hvern dag. Ég var svo svöng að ég borðaði að lokum graut bamanna,“ sagði Ben-Yair. Talsmaður forsætisráð- herrahjónanna sagði bamfóstruna hafa verið ráðna til reynslu í nokkra daga en áður en vika hafi verið liðin hafi verið ákveðið að láta hana fara. Fyrr í vikunni sögðu ísraelskir fjölmiðlar frá annarri barnfóstm sem Sara kallaði morðingja og rak eftir að súpa hafði brunnið við hjá henni. Sara hefur nú greint frá sinni hlið á málinu og segir í sambandi við hreinlætismálin að fólk sem er óþrifið segi oft slíkar sögur af þeim sem eru þrifnir. Hún vísaði einnig á bug fréttum um að hún hringdi í mann sinn í tíma og ótíma á meðan hann væri í vinnunni. Reuter — ' Kauphailir og vöruverð erlendis I . Bíða spenntir eftir svari frá Díönu ;• Karl Bretaprins og hans - nánustu í ÍBucking- hamhöll biðu spennt- ir í gær eftir | viðbrögðum Díönu við tilboði prinsins um ; skilnaðarsáttmála. Lögmaður Díönu sagði í gær að hún kynni að samþykkja tilboðið strax í næstu viku en ef til vill í vik- unni þar á eftir. Talsmaður Karls neitaði í gær að tjá sig um málið og sagði að um einka- i mál væri að ræða. Breskir fjöl- miðlar giskuðu á aö svar kynni | að berast á mánudag til að forð- ast að skugga verði varpað á heimsókn Mandela til Bret- lands á þriðjudag. Sígarettustubb- ar komu upp um mafíósa i;; I Lögreglan í Reggio Calabria á Ítalíu handtók í gær dæmdan | mafiósa á flótta eftir að sígarett- ustubbar höfðu leitt hana að ! heimili hans. Mafíósinn, Anton- ino Votano, haföi verið dæmd- ur i lífstíðarfangelsi. Að sögn lögreglunnar kom Votano upp um sig með því að fleygja hundruðum sígarettu- stubba út um lítinn glugga á felustað sínum sem annars hefði verið ósýnilegur frá göt- unni. Lögreglan kannaði hvort stubbarnir væm af sama merki og Votano reykir og réðst síðan til inngöngu. Votano hafði ver- ið á flótta síðan í fyrravor. Leitað að leyniskyttu eftir árás í Atlanta ILögregla hóf leit að meintri leyniskyttu eftir að öryggis- vörður særðist af völdum byssukúlu við inngang aö ólympíusvæðinu í Atlanta á : fimmtudagskvöld. Tveir verðir I sluppu naumlega þegar bifreið Ívar ekið í gegnum öryggishlið á svæðinu i gærmorgun. í biln- um, sem ók á tjald, voru tveir menn og slapp annar þeirra. Mikill viðbúnaður er nú á svæðinu vegna ólympíuleik- anna sem hefjast þann 19. júlí 1 og standa til 4. ágúst. Cruise bjargar j barni frá því að I troðast undir IKvik- myndaleik- arinn Tom Cmise, sem lék hetju í myndinni Mission Impossible, gerðist al- vöru hetja þegar hann bjargaði sjö ára dreng, Laurence Sadler, í London frá því að troðast und- r ir í hópi aðdáenda sem þyrptust að leikaranum á fimmtudags- kvöld. Cruise var í London vegna ffumsýningar á nýjustu mynd sinni. Hann þaut til Laurence þegar hann sá að | drengurinn þrýstist upp að hindmn. Cruise kallaði á að- ; stoð lögreglu og losaði drenginn ■ sem jafhaði sig eftir að hafa rætt í nokkrar mínútur við 1 stjörnuna. Cruise sagði viö blaðamenn að hann heföi séð hvernig drengurinn fólnaði. | „Eftir að ég dró hann út úr þrengslunum og faðmaði hann | virtist hann vera í lagi,“ sagði ; hann. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.