Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 I>‘V Ég vaknaði um áttaleytið á mánudegi eftir kosningar en naut þess að þurfa ekki fram úr strax og blundaði áfram. Fékk mér svo morgunverð í önnunum í eldhús- inu. Fjölskyldan er skemmtilega stór núna og húsið fullt af fólki, auk okkar sem erum hér vanalega. Eldri sonurinn, kona hans og drengur eru komin heim í sína íbúð á neðri hæðinni til sumar- dvalar frá námi í Englandi og dótt- ir okkar hefur verið hér í nokkrar vikur með mann sinn og tvö böm til að aðstoða við kosningabarátt- una. í dag á einmitt að skira litlu dóttur þeirra sem fæddist eftir langa bið á hlaupársdag. Hún er kankvís og athugul manneskja sem trónir rólynd í sínum litla barnastól ofan á borðstofuborðinu og fylgist með bróður sínum og frænda hlaupa til og frá. Við tygjum okkur svo niður á kosningamiðstöð til að laga til og þrífa því að þar verður skírnar- veislan haldin. Kosningamiðstöðin að Ingólfsstræti 5 er stór, björt og mjög vistleg og þar er allt blómum skreytt. Þegar við komum þangað upp úr klukkan ellefu eru þegar mættir Guðrún Agnarsdóttir hefur staöið í ströngu þó forsetakosningarnar séu aö baki, var sunginn við útför hennar: „Ég er hamingjubarn," segir í fyrstu hendingu. Skírnarveislan var skemmtileg og bættust stöðugt fleiri í hana sem voru komnir til að vinna við að ganga frá ýmsum málum eftir kosningarnar eða gengu fram hjá og sáu að þarna var enn mann- fundur og fjör. Sumir komu inn og spurðu: „Hvaða fundur er þetta, af hverju var ég ekki boðuð/boðað- ur?“ Um kvöldmatarleytið héldu allir heim sælir og ánægðir og við tók- um með okkur mest af blómunum því ætlunin er að þeir sem báru hita og þunga kosningabaráttunn- ar hittist heima hjá okkur Helga á miðvikudagskvöldið. Tengdasonur okkar er enskur og bróðir hans og eiginkona komu til að vera viðstödd, svo og vinafólk þeirra sem eru guðfaðir hans og móðir Lilju Guðrúnar Filippíu. Þau fóru öll í sund í kvöldsólinni og áttu ekki orð til að dásama þessa auðlind okkar nógu mikið. Síðan sofnuðu börnin þreytt og ánægð og við fullorðna fólkið borð- uðum glóðarsteiktar kosningamið- stöðvarpylsur sem voru afgangs og Dagur í lífi Guðrúnar Agnarsdóttur: Skírnarveisla a vinnufúsir sjálfboðaliðar til að vinna að happdrættinu og hjálpa til að þrífa. Teppið ber þess sann- arlega merki að hér gengu þúsund- ir manna um á kosningadaginn. Þá var svo ótrúlega mikið streymi af fólki allan daginn, gestir og gangandi og sjálfboðaliðar að leggja fram vinnu sína. Kökur og kræsingar bárust frá ótal mörgum sem aldrei verður þakkað sem skyldi því að þeir létu ekki nafns síns getið. Það var mjög góður andi í kosningastarfinu, mikil eft- irvænting og spenna siðustu dag- ana, ekki síst vegna þeirrár miklu uppsveiflu sem var á fylgi okkar síðustu vikur og daga fyrir kosn- ingar. Allir eru sammála um það að niðurstöður kosninganna kynnu að hafa orðið aðrar ef við hefðum haft eina til tvær vikur i viðbót. Þó megum við vel við una að öll þessi mikla og góða vinna bar sannarlega árangur. Margar hendur vinna létt verk og brátt er allt komið í viðunandi horf óg við flýtum okkur heim til að skipta um föt og klæða litla skírnarbamið. kosningaskrifstofunni Athöfnin hefst um fjögurleytið í Dómkirkjunni. Prestur er séra Sig- urður Ámi Þórðarson á Þingvöll- um en hann og Helgi, afi litlu stúlkunnar, eru systrasynir og hann hefur einnig skírt litiu drengina tvo. Þarna er nánasta fjölskylda og vinir og presturinn kallar okkur upp í kórinn þannig að við stöndum öll umhverfis skírnarfontinn og litlu börnin fá að standa næst. Síðan fer athöfnin fram, falleg og látlaus, og litla stúlkan fær hvorki meira né minna en þrjú nöfn: Lilja Guðrún Filippía. Dóttir okkar segist ekki vilja eiga neitt á hættu, það fæðist svo sjaldan stúlkur í fjölskyldu föð- ur hennar að betra sé að koma nöfnúm frá báðum ömmum og langömmu áfram þegar færi gefst. Við erum öll fegin að skírt var nafni ömmu hennar, Filippíu Kristjánsdóttur, Hugrúnar, en hún lést nýlega háöldruð en ern og verður einmitt greftruð á morgrrn. Sjálf vissi hún um nafnið áður en hún dó. Sálmurinn sem dóttir okk- ar valdi til að syngja við skímina er einmitt eftir ömmu hennar og spánska sumarsúpu úr tómötum og agúrkum sem tengdasonur okk- ar bjó til. Svo var spjállað og spil- að fram á nótt en þau fara til Eng- lands á morgun. Góður dagur var genginn, dagur gleði og gefandi mannlegra samskipta. Ég er þegar farin að sakna dálít- ið barnabarnanna sem fara á morgun en næg verkefni blasa við fram undan, enda mörgu verið ýtt til hliðar í þessu mikla ævintýri á gönguför sem þátttakan í forseta- kosningunum var. Finnur þú fimm breytingar? 366 Nafn: Heimili:- Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sextugustu og fjórðu getraun reyndust vera: 1. Daníel Þór Kjarrhólma 32 200 Kópavogur 2. Bjarni Þór Svavarsson Hilmisgötu 1 900 Vestmannaeyjar Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt naíni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birttun við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi að verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif- unni 7, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr. 1.790. Annars vegai- James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fín og rík og liðin lík. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú finun breytingar? 366 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.