Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 55 tónlist Æstar unglingsstelpur þjöppuðu sér að sviöinu í Laugardalshöll þar sem Pulp hélt tónleika. Jarvis, söngvari Pulp, sýndi góöa takta en þvagan og þrengslin voru svo mikil aö bjarga varö einum og einum upp á sviðiö. DV-mynd PÖK DV-mynd PÖK Gósentíð hefur verið að undanförnu hjá tónlistaráhugamönnum: Ljós og litadýrð Það hefur verið sannkölluð tónlistar- hátíð á íslandi á veg- um Listahátíðar í Reykjavík að undan- fómu þar sem hver stórstjarnan á fætur annarri hefur troðið upp til að gleðja augu og eyra tónleikagesta á öllum aldri. Skemmst er að minn- ast tónleika með bresku sveitinni Pulp í Laugardals- höll. Þar vora 5.000 hljómleikagestir mættir og að sjáif- sögðu höfðu þeir líka unun af að hlusta á heimasveitirnar Funkstrasse, Botn- leðju og SSSól r n hituðu upp. Það voru einkum David Bowie, rokksöngvarinn þekkti, klæddist silfur- ungar stúlkur á aldr- ijtum jakka á tónleikum sínum í Laugardalshöll þar inum 14-16 ára sem sem fólk á miðjum aldri hoppaöi og hrópaöi eins og hylltu hvað ákafast táningar. DV-mynd PÖK goðin í Pulp þegar sú Damon Albarn, söngvari Blur, á fjöldann allan af einlægum aödáendum og hefur sinnt þeim aö undanförnu meö því að gefa eiginhandaráritanir og leyfa myndatökur af sér. DV-mynd ÞÖK hljómsveit byrjaði að spila þó að auðvitað hafi strákamir líka verið hrifnir. Stelpurnar þjöppuðu sér upp að sviðinu, veifuðu handleggj- um og sýndu ákafa sinn eftir öllum mætti og söngvarinn Jarvis Cocker lék við hvern sinn fingur enda var hann húinn að lofa góðum tónleik- um í fjölmiðlum. Stórstjarnan Björk brást ekki að- dáendum sínum frekar en fyrri dag- inn, flutti lögin sín á íslensku og lét litla guttann sinn, hann Sindra, syngja franska barnagælu í töfra- skógi á sviðinu við mikinn fögnuð tónleikagesta. Hún kynnti líka kær- Einar Örn Benediktsson sótti Björk Guömundsdóttur söngkonu þegar hún kom til landsins fyrir tónleika sína. DV-mynd ÆMK astann sinn, Goldie, fyrir aðdáend- um og þyrstir íslendinga nú í að frétta af væntanlegu brúðkaupi þeirra. Kvöldið áður hafði breski snill- ingurinn David Bowie tryllt popp- ara á miðjum aldri, sem hoppuðu og veifuðu eins og táningar þegar Bowie tók sína góðu takta. Bowie var trúr sínu í tötralegum, silfurlit- um jakka og svörtum leðurbuxum og skyrtu innan undir. Hann kann lagið á sviðinu og svipti sig klæðum Björk í töfraskógi í Laugardalshöll. á réttum tíma. DV-mynd ÞÖK Á tónleikum Bjarkar og Bowies var um mikla sviðssýningu að ræða. Björk var með töfraskóginn sinn og þó að ekki væri mikil við- höíh á tónleikum Bowies á sviðinu var þar leikið ljós og litadýrð og greinilega þaulvana menn að ræða hvað varðar. Erlendir popp- arar hafa verið mikið í fréttunum að undanfömu og fólk hefur fengið Pessar pfur voru hressar og ánægöar enda á leiö á tón- að hitta goðin sín. Ieika PuiP ' Höllinni. DV-mynd Hari Dam.on Albam, söngvari Blur, hefur þannig valdið heilmiklu uppþoti meðal ungu kyn- slóðarinnar, til dæmis á röltinu um miðbæ Reykjavíkur með gítar í hendinni eða stökkvandi upp á svið á 17. júni. Hann virðist hafa kunnað vel við sig á íslandi og lofað tónleik- um með Blur í haust. Það hefur greinilega verið gósentíð hjá áhugamönnum um popptónlist að undanfórnu. -GHS rSkemmtilegt á'' skautasvellinu Bjarnar- búningar og vagn IS* J Rafdrifnir og fótstignir bílar Falleg sterk tjöld LEIGJUM ÞETTA OG MARGT FLEIRA í: afmæli, ættarmót, fyrirtækjamót, OG bæjarfélagamót TJALDALEIGAN Skemmtilegt KRÓKHÁLSI 3, SÍMI 587 6777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.