Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 34
42
{tyglingaspjall
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
Björgvin Franz Gíslason, öðru nafni dragdrottningin Tanja:
Engin nautn að vera í kvenmannsfötum
-greiði við vinkonu að vera módel - gat ekki sagt nei, segir hann
„Þetta var upphaflega bara greiði
við vinkonu mína sem er
förðunarfræðingur því að
ég er sjálfur ekki
nein sérstök
dragdrottn-
ing. Þessar
dragdrottn-
ingar
starfa við það að fara í sérsaumuð-
um kjólum með rosa make-up og
mæma lög eftir aðra. Ég hef
alltaf gaman af því að
fara í búning og ég lít
á þetta sem búning,
ekki endilega sem
nautn að vera í
kvenmannsfötum,"
segir Björgvin Franz
Gíslason, öðru nafni
dragdrottningin Tanja,
en hann kemur stundum
fram sem töframaður-
inn Venni.
Björgvin er 19 ára
gamall. Hann hefur
leikið í skólaleikrit-
um í mennta-
skóla og
síðustu
misseri
hefur
hann
komið
_________ _______ fram og skemmt sem töframað-
Björgvin Franz Gíslason vinnur nú á leikskóla þar sem hann gætir meðal
annars frænda sins, Fannars Daníels Guðmundssonar. DV-mynd ÞÖK
urinn Venni. Vinkona hans átti
inni greiða hjá honum því að hún
hefur farðað töframanninn Venna
fyrir viðtöl og skemmtanir og þegar
hún bað Björgvin um að vera mód-
el hjá sér gat hann ekki neitað.
„Það átti að fara lítið fyrir þessu
en svo þurfti hún endilega að
vinna. Það var svo sem aflt í lagi af
því að fólk veit hvort sem er að ég
er ofboðslega athyglissjúkur. Svo er
búið að þrýsta á mig frá nokkrum
stöðum að fara af stað með töfra-
sýningu með dragdrottningunni. Ég
ákvað að þetta væri systir Venna
töframanns og það er búið að stinga
því að mér að vera með lítið töfra-
sjó með henni,“ segir hann.
Töframaður
fyrir tilviljun
Björgvin er alinn upp í tengslum
við leikhús og skemmtanir því að
hann er sonur leikaranna og
skemmtikraftanna Eddu Björgvins-
dóttur og Gísla Rúnars Jónssonar.
Hann segist alla tíð hafa haft mjög
gaman af búningum og reyndar ver-
ið áhyggjuefni í leikskóla á sínum
tíma því að hann hafi verið svo
mikið einn að leik og að leika og
r'í-S&M.-,
I Fjörkáifinum í DV á föstudögum
Á Bylgjunni á fimmtudögum kl. 20
og endurfluttur á
laugardögum kl. 16
W r ' pjgg#j ■ i ^Éjjf
'] . w Vvj
Dragdrottningin Tanja, systir Venna töframanns, fer kannski að koma fram
og gera töfrabrögð.
töfra fyrir aðra. Sem unglingur hafi
áhuginn á búningum og förðun
minnkað og tónlistaráhugi komið í
staðinn en svo hafi hann tekið
töfrabrögðin aftur fyrir tilviljun.
„Það vantaði töfrabrögð í
menntaskólaleikrit sem ég var í og
ég ákvað að taka dótið upp úr kass-
anum og kenna töframanninum
nokkur brögð. Vinkona mín spurði
hvort ég gæti skemmt fyrir hana í
MR og ég ákvað að fara út í þetta
aftur,“ segir hann.
Björgvin stundaði nám í MH en
hætti þar og hefur undanfarin miss-
eri unnið við lýsingar og hljóð og
ýmislegt í leikhúsum og síðustu
mánuði hefur hann unnið sem leið-
beinandi á leikskóla. Hann segist
hafa komist að því að það henti sér
best að vera uppi á sviði og ætlar
því að sækja um að komast inn i
leiklistarskóla í Lundúnum næsta
haust. -GHS
Hin hliðin:
Skemmtilegast að æfa
í World Class
Guðjón Sigmundsson leikmynd-
ari, Gaui litli, sem hálf þjóðin
fylgist með í Dagsljósi þessa dag-
ana sýnir á sér hina hliðina.
Áhugamál hans er að grennast og
honum finnst skemmtilegast að
æfa í World Class með Sölva
Fannari kroppaþjálfara.Fullt
nafn: Guðjón Sigmundsson.
Fæðingardagur og ár: 19. maí
1957
Maki: Magnea Guðmundsóttir.
Börn: Tinna Björt og Áslaug Sif.
Bifreiö: Volkswagen transporter.
Starf: Leikmyndari.
Laun: Of lág.
Áhugamál: Að grennast.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Æfa í World Class
með Sölva Fannari kroppaþjálf-
ara.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Fara með strætó'.
Uppáhaldsmatur: Hrásalat.
Uppáhaldsdrykkur: KaSi.
Hver útvarpsrásanna þykir
þér best? 898,5 Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Eva María.
Hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest á? Omega.
Uppáhaldssj ónvarpsmaður:
David Letterman.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Kafflbarinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Þróttur af því að Gunni Bald í
Sjónvarpinu heldur með Þrótti.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Að slá Dav-
id Letterman út.
Hvað gerðir þú í sumarfrí-
inu? Tók ekkert. Ég var að reyna
að vinna fyrir skattinum.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Geir í Ólymp-
íuliði fatlaðra, hann kenndi dóttir
minni að synda.
Uppáhaldstímarit: Nýir tímar.
Hver er fallegasta kona sem
þú hefúr séð, fyrir utan maka?
Jóhanna Jóhannsdóttir fjármála-
strjóri í Sjónvarpinu.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjóminni?
Hvaöa ríkis-
stjóm?
Hvaða
persónu
langar
þig
mest til að hitta? Rósu Ingólfs-
dóttur.
Uppáhaldsleikari: Magnús
Ólafsson.
Uppáhaldsleikkona: María
Ellingsen.
Uppáhaldssöngvari: Strákam-
ir í Sukkat.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Mohandas Karamchand Gandhi.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Homer.
Uppáhaldssjónvarpsefiii: X-
files.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Minn kostur er
Grænn kostur á Skólavöröustíg.