Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Side 64
w > cn CZ3 FRÉTTASKOTIÐ oc LXJ ' Sl'MINN SEM ALDREI SEFUR S c=> s: LTD Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. oo *—' h- LTD 1— 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 Ungur Borgfirðingur sem ákærður var fyrir miklar sakargiftir á skömmum tíma: Dæmdur fýrir að valda tólf manns líkamstjóni Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær Björgvin Sigursteins- son, tvítugan Borgfirðing, í 12 mán- aða fangelsi, þar af 9 mánuði skil- orðsbundið, fyrir að hafa valdið samtals tólf manns líkamsmeiðing- um, fyrir að hafa í félagi við tvo aðra svipt mann frelsi sínu, ölvun- arakstur og fleira. Eftirfax-andi lík- amsmeiðingar áttu sér stað á árun- um 1995 og 1996: Björgvin var dæmdur fyrir að hafa nefbrotið tvo karlmenn - í annað skiptið með því að skalla og kýla í andlit 17 ára pilts en í hitt skiptið með því að kýla tvítugan mann í andlit. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa valdið því að 7 unglingar slösuðust í bílslysi, flestir alvar- lega, er hann ók á ofsahraða fram úr bíl og í veg fyrir þriðju bifreið- ina í Borgamesi þann 12. maí 1995. Sex ungmennanna voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík, þar af fjög- ur með þyrlu. Með þessu telst Björgvin hafa raskað umferðarör- yggi og valdið líkamsmeiðingum af gáleysi. í öðru máli eru Björgvin og Borgnesingamir Kjartan Arnar Hauksson, 21 árs, og Jóhann Hólm Ragnarsson, 18 ára, allir dæmdir fyrir frelsissviptingu og líkams- árás með því að hafa tekið mann nauðugan frá bensínstöð Shell í Borgamesi inn í bíl og ekið með hann suður Boi-garíjarðarbrú. Á leiðiimi sneru þeir upp á handleggi hans og eymasnepla og reyndu að stinga gat á vinstra eymasnepil með kúlupenna. Bíllirm var stöðv- aður í malamámu imdir Hafn- arfjalli og eru þremenningamir dæmdir fyrir að hafa þá klætt fóm- arlambið úr fotum aö ofanverðu og misþyrmt því með hrindingum, spörkum og höggum og auk þess úðað yfír manninn málningu, í hár hans og fatnað. Þremenningamir em dæmdir til að greiða honum 120 þúsund krónur í bætur. Björgvin var jafnframt dæmdur fyrir að hafa hafa ógnað og veitt tveimur mönnum högg og áverka með riffilskefti. Dómuriim tók til þess að brotavilji Björgvins væri greinilega einbeittur. Hann var auk þessa dæmdur fyrir ölvun- arakstur og er sviptur ökuréttind- um í 4 ár. Kjartan var dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðs- bundið fyrir framangreint brot auk annarra brota og rof á reynslu- lausn. Jóhann fékk hins vegar 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þremenningarnir em dæmdir til að greiða samtals á aðra milljón króna í málskostnað. Varðandi umrædda frelsissvipt- ingu taldi dómurinn að líta bæri til þess að árásin hefði verið einstak- lega ófyrirleitin og alvarleg gagn- vart persónufrelsi einstaklings og til þess fallin að valda mikilli hræðslu og andlegu ójafnvægi. Auk þess bæri að líta til þess að þeir vom þrír saman um að fremja þetta tilefnislausa brot. -Ótt Barinn í andlit Grunur leikur á að hópum úr tveimur skólum hafi lent saman eftir skólaball í fyrrakvöld og þaö endað með því að einn var barinn í andlit í Giljalandi laust eftir klukk- an tíu. Tennur losnuðu í munni hans og fluttu aðstandendur hans hann á slysadeild. Samkvæmt heimiidum DV var annar maöur barinn í Brúnalandi á sama tíma en lögreglan hafði engar upplýsing- ar um það. -sv Kvöld- og helgarþjónusta L O K I Tveir nemendanna á hjólunum í gærmorgun þegar þeir nálguöust Akureyri eftir um þriggja tíma ferö í snjókomu frá Laugum. Rútubifreiö fylgdi krökk- unum og þar hvíldu nemendurnir sig milli þess sem þeir hjóiuöu. DV-mynd gk Hjóla 500 km til fundar við ráðherra entspróf. För okkar hingað á reið- hjólum um 500 km veg er táknræn fyrir þann veruleika sem við okkur blasir ef okkur verður gert að ljúka námi við aðra skóla. Við teljum að framhaldsskólinn að Laugum eigi að njóta nokkurrar sérstöðu sem heimavistarskóli utan þéttbýlis. Vera okkar þar er þroskandi og þar höfum við alla aðstöðu eins og best verður á kosið til náms og félags- lífs,“ segir m.a. í bréfi nemendanna sem skora á ráðherrann að endur- skoða afstöðu sína til skólans. Krakkamir lögðu af stað eld- snemma í gærmorgun sem fyrr sagði. Þau hjóluðu tvö í einu og skiptust á. Sækist þeim ferðin vel gera þau ráð fyrir að koma til Reykjavíkur í dag og ganga þá á fund ráðherrans. -gk DV, Akureyri: „Við emm 15 á ferðinni, ailir nemendur í 3. bekk skólans nema ein stúlka sem er veik,“ sagði Birg- ir Ólafsson, talsmaður nemenda við Héraðsskólann að Laugum í Reykja- dal í S-Þingeyjarsýslu, en kl. hálfsex í gærmorgun lögðu nemendurnir af stað á hjólum til Reykjavíkur til fundar við Bjöm Bjamason mennta- máiaráðherra. í bréfi sem nemendurnir ætla að afhenda ráðherranum segir m.a. að nemendumir mótmæli niðurskurði á fjármagni til skólans. Þau fara fram á að fá að ljúka stúdentsprófi frá skólanum þar sem þau hófu framhaldsnám sitt. „Á sínum tima gengu verðandi stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri til Reykjavíkur til að þreyta sitt stúd- Veðrið á morgun: Austlæg átt og gola Á morgun verður austlæg átt, kaldi eða stinningskaldi við suðurströndina en gola annars staðar. Rigning verður suðaustanlands en víðast þurrt í öðr- um landshlutum. Veðrið á mánudag: Rigning víða um land Á mánudag verður allhvöss eða hvöss austanátt og rign- ing víða um land. Veðrið í dag er á bls. 65. í i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.