Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Qupperneq 64
w
> cn CZ3 FRÉTTASKOTIÐ
oc LXJ ' Sl'MINN SEM ALDREI SEFUR
S c=> s: LTD Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
oo *—' h- LTD 1—
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
Ungur Borgfirðingur sem ákærður var fyrir miklar sakargiftir á skömmum tíma:
Dæmdur fýrir að valda
tólf manns líkamstjóni
Héraðsdómur Vesturlands
dæmdi í gær Björgvin Sigursteins-
son, tvítugan Borgfirðing, í 12 mán-
aða fangelsi, þar af 9 mánuði skil-
orðsbundið, fyrir að hafa valdið
samtals tólf manns líkamsmeiðing-
um, fyrir að hafa í félagi við tvo
aðra svipt mann frelsi sínu, ölvun-
arakstur og fleira. Eftirfax-andi lík-
amsmeiðingar áttu sér stað á árun-
um 1995 og 1996:
Björgvin var dæmdur fyrir að
hafa nefbrotið tvo karlmenn - í
annað skiptið með því að skalla og
kýla í andlit 17 ára pilts en í hitt
skiptið með því að kýla tvítugan
mann í andlit.
Hann var einnig dæmdur fyrir
að hafa valdið því að 7 unglingar
slösuðust í bílslysi, flestir alvar-
lega, er hann ók á ofsahraða fram
úr bíl og í veg fyrir þriðju bifreið-
ina í Borgamesi þann 12. maí 1995.
Sex ungmennanna voru flutt á
sjúkrahús í Reykjavík, þar af fjög-
ur með þyrlu. Með þessu telst
Björgvin hafa raskað umferðarör-
yggi og valdið líkamsmeiðingum af
gáleysi.
í öðru máli eru Björgvin og
Borgnesingamir Kjartan Arnar
Hauksson, 21 árs, og Jóhann Hólm
Ragnarsson, 18 ára, allir dæmdir
fyrir frelsissviptingu og líkams-
árás með því að hafa tekið mann
nauðugan frá bensínstöð Shell í
Borgamesi inn í bíl og ekið með
hann suður Boi-garíjarðarbrú. Á
leiðiimi sneru þeir upp á handleggi
hans og eymasnepla og reyndu að
stinga gat á vinstra eymasnepil
með kúlupenna. Bíllirm var stöðv-
aður í malamámu imdir Hafn-
arfjalli og eru þremenningamir
dæmdir fyrir að hafa þá klætt fóm-
arlambið úr fotum aö ofanverðu og
misþyrmt því með hrindingum,
spörkum og höggum og auk þess
úðað yfír manninn málningu, í hár
hans og fatnað. Þremenningamir
em dæmdir til að greiða honum
120 þúsund krónur í bætur.
Björgvin var jafnframt dæmdur
fyrir að hafa hafa ógnað og veitt
tveimur mönnum högg og áverka
með riffilskefti. Dómuriim tók til
þess að brotavilji Björgvins væri
greinilega einbeittur. Hann var
auk þessa dæmdur fyrir ölvun-
arakstur og er sviptur ökuréttind-
um í 4 ár.
Kjartan var dæmdur í 9 mánaða
fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðs-
bundið fyrir framangreint brot auk
annarra brota og rof á reynslu-
lausn. Jóhann fékk hins vegar 5
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Þremenningarnir em dæmdir til
að greiða samtals á aðra milljón
króna í málskostnað.
Varðandi umrædda frelsissvipt-
ingu taldi dómurinn að líta bæri til
þess að árásin hefði verið einstak-
lega ófyrirleitin og alvarleg gagn-
vart persónufrelsi einstaklings og
til þess fallin að valda mikilli
hræðslu og andlegu ójafnvægi.
Auk þess bæri að líta til þess að
þeir vom þrír saman um að fremja
þetta tilefnislausa brot. -Ótt
Barinn
í andlit
Grunur leikur á að hópum úr
tveimur skólum hafi lent saman
eftir skólaball í fyrrakvöld og þaö
endað með því að einn var barinn í
andlit í Giljalandi laust eftir klukk-
an tíu. Tennur losnuðu í munni
hans og fluttu aðstandendur hans
hann á slysadeild. Samkvæmt
heimiidum DV var annar maöur
barinn í Brúnalandi á sama tíma
en lögreglan hafði engar upplýsing-
ar um það. -sv
Kvöld- og
helgarþjónusta
L O K I
Tveir nemendanna á hjólunum í gærmorgun þegar þeir nálguöust Akureyri
eftir um þriggja tíma ferö í snjókomu frá Laugum. Rútubifreiö fylgdi krökk-
unum og þar hvíldu nemendurnir sig milli þess sem þeir hjóiuöu.
DV-mynd gk
Hjóla 500 km
til fundar
við ráðherra
entspróf. För okkar hingað á reið-
hjólum um 500 km veg er táknræn
fyrir þann veruleika sem við okkur
blasir ef okkur verður gert að ljúka
námi við aðra skóla. Við teljum að
framhaldsskólinn að Laugum eigi
að njóta nokkurrar sérstöðu sem
heimavistarskóli utan þéttbýlis.
Vera okkar þar er þroskandi og þar
höfum við alla aðstöðu eins og best
verður á kosið til náms og félags-
lífs,“ segir m.a. í bréfi nemendanna
sem skora á ráðherrann að endur-
skoða afstöðu sína til skólans.
Krakkamir lögðu af stað eld-
snemma í gærmorgun sem fyrr
sagði. Þau hjóluðu tvö í einu og
skiptust á. Sækist þeim ferðin vel
gera þau ráð fyrir að koma til
Reykjavíkur í dag og ganga þá á
fund ráðherrans.
-gk
DV, Akureyri:
„Við emm 15 á ferðinni, ailir
nemendur í 3. bekk skólans nema
ein stúlka sem er veik,“ sagði Birg-
ir Ólafsson, talsmaður nemenda við
Héraðsskólann að Laugum í Reykja-
dal í S-Þingeyjarsýslu, en kl. hálfsex
í gærmorgun lögðu nemendurnir af
stað á hjólum til Reykjavíkur til
fundar við Bjöm Bjamason mennta-
máiaráðherra.
í bréfi sem nemendurnir ætla að
afhenda ráðherranum segir m.a. að
nemendumir mótmæli niðurskurði
á fjármagni til skólans. Þau fara
fram á að fá að ljúka stúdentsprófi
frá skólanum þar sem þau hófu
framhaldsnám sitt. „Á sínum tima
gengu verðandi stúdentar frá
Menntaskólanum á Akureyri til
Reykjavíkur til að þreyta sitt stúd-
Veðrið á morgun:
Austlæg átt og gola
Á morgun verður austlæg átt, kaldi eða stinningskaldi
við suðurströndina en gola annars staðar.
Rigning verður suðaustanlands en víðast þurrt í öðr-
um landshlutum.
Veðrið á mánudag:
Rigning víða um land
Á mánudag verður allhvöss eða hvöss austanátt og rign-
ing víða um land.
Veðrið í dag er á bls. 65.
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i