Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 '%éttir ★ ★ Þungaskattur af dísilbílum 400 milljónir komnar í ríkiskassann unvfram áætlun - miklu betri innheimta en áður var, segir Qármálaráðuneytið Samkvæmt áætlunum um inn- heimtu þungaskatts af dísilbílum var gert ráð fyrir því að frá júní- mánuði til ársloka innheimtust 575 milljónir vegna þungaskatts en heildarinnheimta ársins er sam- kvæmt áætlun 2,3 milljarðar. Frá því í júní sl., þegar nýtt fyrirkomu- lag innheimtunnar gekk í gildi, hef- ur raunin hins vegar orðið allt önn- ur. Áætlunin hefur ekki staðist en á þann óvenjulega hátt að miklu meira hefur innheimst og stefnir í aö innheimtur þungaskattur verði upp undir helmingi meiri á tímabil- inu en gert var ráð fyrir. Fyrirkomulagi á innheimtu þungaskatts af dísilbílum var breytt í júní sl. á þann veg að Vegagerð- inni var faliö áð annast eftirlit með ökumælum og álestur en innheimta skattsins var flutt frá sýslumanns- embættum landsins til ríkisskatt- stjóra og er skatturinn nú innheimt- ur með svipuðum hætti og virðis- aukaskatturinn. Þetta hefur haft það í for með sér að síðan í júní sl. hafa heimtur skattsins verið miklu betri en á sama tíma í fyrra og sam- kvæmt heimildum DV hafa þegar innheimst um 400 milljónir umfram áætlanir fjárlagavaldsins. Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjár- málaráöuneytinu, vfll ekki staðfesta að um 400 mflljónir sé að ræða en segir við DV: „Það er um að ræða þriggja stafa milljónatölu." „Það hefur orðið gjörbreyting á þessum málum og það er fagnaðar- efni fyrir okkur sem fyrir tæpu ári kröfðumst sanngjamrar innheimtu og aö allir nytu jafnræðis gagnvart þungaskattslögunum," segir Jón Pálsson, formaður vörubílstjórafé- lagsins Þróttar í Reykjavík. Jón benti snemma á árinu á verulegt misræmi í innheimtu skattsins eftir því hvaða sýslumannsembætti áttu í hlut. Hann segir við DV að hið gríðar- lega fjárstreymi inn í ríkissjóð nú sýni að innheimta skattsins hafi verið i þvílíkum ólestri að með ólík- indum sé. Það misrétti sem við- gekkst áður hafi skapað mjög ójafha samkeppnisstöðu og þeir vörubíl- stjórar, sem hafi haft allt sitt i lagi, hafi átt ójafnan leik gagnvart þeim sem svindluðu markvisst á þunga- skattsmælum og fengu að komast upp með það. Þessi svik hafi sums staðar verið öflum augljós nema viðkomandi yfirvöldum. „Ég heyri þessar tölur nefhdar eins og þú. Hins vegar er Vegagerð- in eftirlitsaðfli og við sjáum aldrei peningana," segir Sigurður Hauks- son, deildarstjóri þjónustudefldar Vegagerðarinnar, sem annast eftir- lit með og álestur á þunga- skattsmælum. Sigurður segir að skýringin á verri heimtum skatts- ins áður geti verið tvíþætt: Annars vegar hafi menn betur komist upp með undanskot en einnig kunni að vera að þeir hafi getað fengið meiri ívflnanir um skil á skattinum hjá sýslumönnum en hægt er hjá skattayfirvöldum. „Við höfum ekki áreiðanlegar töl- ur fyrir þessu þannig að ég get ekki staðfest neinar upphæðir. Hins veg- ar má segja að kerfið í heild sinni hafi batnað tfl muna. Menn mæta Sighvatur Bjarnason: Ég skil vel áhyggj- ur starfsfólks - þurfum tíma til aö sanna okkur „Ég skil vel áhyggjur fólksins og þær eru mjög eðlilegar. Það væri eflaust það sama uppi á teningn- um hér ef einhver stærri ætlaði að gleypa okkur. Öfl reynsla af sam- einingum undanfarin ár er þannig að sá stærri hefur gleypt þann minni. Reynslan hefur því ekki verið jákvæð fyrir þá minni,“ seg- ir Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar í Vestmannaeyjum, um samein- inguna við Meitilinn í Þorláks- höfn. Sighvatur segir að sameiningin nú sé frábrugðin öðrvun samein- ingum og því þurfi Þorlákshafnar- búar ekkert að óttast. „Við teljum að við höfum ann- arra hagsmuna að gæta en mörg önnur fyrirtæki og að okkur beri skylda til að ganga um þetta mál eins og menn. Ég tel að menn muni binda sig til að halda áfram fullri starfsemi í Þorlákshöfn enda engin ástæða tfl annars. Við þurf- um bara tíma tfl að sanna okkur. Það er þó aldrei hægt að tryggja neitt í sjávarútvegi því við vitum ekki hvað gerist á morgun,“ segir Sighvatur. Hann segist vera sammála þeirri niöurstöðu Talnakönnimar að bréf i Meitlinum hafi verið of lágt metin. „Niðurstaða Talnakönnunar er of lág að mínu mati. Gengi bréfa í Vinnslustöðinni er 3,10 sem styður þá kenningu," segir Sighvatur. Hann segist ekki fallast á það viðhorf að Meitillinn sé vanmet- inn inn í sameininguna. „Það er alls ekki rétt að Meitill- inn sé vanmetinn inn í sameining- una. Það er verið að tala um upp- lausnarverð fyrirtækja en það er alveg ljóst aö það leysir enginn upp fyrirtæki eins Meitflinn og Vinnslustöðina," segir Sighvatur. -rt Pær Sandra og Klara, sem báöar eru sjö ára, voru aö sippa þegar DV átti leiö um. Þær eru báöar nemendur í Grunnskóla Porlákshafnar og sögöu hvergi betra aö eiga heima en í „Höfninni". DV-mynd BG Þróunarsjóöur gekk frá sölu hlutabréfa í Meitlinum í gær: Hlutabréf Meitilsins vanmetin - segir Benedikt Thorarensen, fyrrum framkvæmdastjóri „Fyrirtækið er stórlega vanmetið inn í þessa sameiningu og ég mun á hluthafafundi á morgun mót- mæla þessari sölu. Ég er algjörlega andvígur þessu framsali aflaheim- ilda til Vestmannaeyja," segir Benedikt Thorarensen, fyrrum framkvæmdastjóri Meitilsins í Þor- lákshöfn og einn hluthafa, um fyr- irhugaða sameiningu Meitilsins og Vinnslustöðvarinnar sem væntan- lega verður samþykkt á hluthafa- fundi í dag. Benedikt er sonur stofnanda Meitilsins, Egfls Thorarensens, og starfaði aldarfjórðung sem fram- kvæmdastjóri. Hann segir ljóst að staða fyrirtækisins sé miklu betri en lögð er til grundvallar samein- ingu. Eins og DV skýrði frá í gær er hrein eign Meitilsins aö upp- reiknaðri kvótaeign og aö frádregn- um skuldum rúmur milljarður króna. Eigendur Meitflsins fyrir sölu bréfanna voru Þróunarsjóður með 26,6 prósent, Útvegsfélag sam- vinnumanna með 19 prósent, Olíu- félagið hf. með 18 prósent, Vátrygg- ingafélag íslands með 14 prósent, Ölfushreppur með 13 prósent og Ljósavík hf. með 2 prósent. Að auki eru 20 smærri hluthafar. Hlutur Þróunarsjóðs var seldur á 119 millj- ónir króna en væri fyrirtækið gert upp í dag yrði fjórðungshlutur á bflinu 250 til 300 milljónir króna. Það er því ljóst að gerð hafa verið góð kaup í bréfunum. Talnakönnun gerði úttekt á fyrirtækinu og þar kemur íram að eðlilegt gengi bréfa Meitilsins sé um 1,9. í gær gekk Þróunarsjóður form- lega frá sölu bréfanna og segir framkvæmdastjóri sjóðsins að ekki hafi verið eftir neinu að bíða. „Það var enginn lagalegm- grundvöllur til að bíða lengur með sölu bréfanna. Við erum með álit tveggja virtra lögmanna þar sem segir að allt sé með eðlflegum hætti hvað varðar söluna," segir Hinrik Greipsson, framkvæmdastjóri Þró- unarsjóðs. Hluthafafundur verður haldinn í Þorlákshöfn í dag þar sem áform eru um að ákveða sam- einingu viö Vinnslustöðina í Vest- mannaeyjum. Þar fer fyrirtækið á genginu 0,7 inn í Vinnslustöðina. Ekki er búist við öðru en samein- ingin verði samþykkt þar en vitað er að einhverjir munu þó halda uppi andófi gegn sameiningunni. -rt Þú getur svarað þessari spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Ji 1 Nel 2 Er réttlætanlegt að selja vatn á veitingastöðum? j rödd FOLKSINS 904 1600 betur í álestur en verið hefur og öll mngengni í kerfinu er mun betri en var og virðing fyrir því miklu meiri,“ segir Eggert Hilmarsson, defldarstjóri hjá ríkisskattstjóra. Eggert segir að í nýjum álagning- ar- og innheimtm-eglum, sem tóku gfldi sl. vor, sé heimild til að áæfla þungaskatt á þá bíleigendur sem ekki færa akstursbók og ekki mæta í álestur. Á atvinnubíla, sem ekki er mætt með, er strax áætlaður 32 þús- und km akstur en á venjulega dísfl- fólksbíla eru áætlaðir 8 þús km. Þungaskattur á hvern ekinn km á stórum 10 hjóla vörubil er kr. 24,71. Af dráttarbíl með festivagni, sem ber 44 tonn, þarf að greiða um £4 krónur á hvern ekinn kílómetra. i f stuttar fréttir I Nýtt bókasafn Nýtt útibú Borgarbókasafns, Foldasafn, var opnað með við höfn í kjallara Grafarvogs kirkju í gær. Kostnaður vegna framkvæmda síðustu tveggja | ára og framlags á næsta ári ei | rúmar 100 milljónir. GSM-útboð Samgönguráðuneytið hefúr jj ákveðið að auglýsa fljótlega eft- ir umsóknum um eitt leyfi tfl starfrækslu GSM-farsimaþjón- i ustu en Póstur og sími hefur tfl | þessa haft einkaleyfi á þessari starfsemi. Samið við Færeyinga Fyrir áramót er stefnt að því að undirrita nýtt samkomulag milli Færeyja og íslands um samvinnu og samskipti land- ! anna á sviði ferðamála. Ný lyfjareglugerð Umhverfisráðuneytið hefur í sett reglugerð um notkun lyfjá I og meöferð á sýningar- og í keppnishrossum. Óheimilt verður að láta hest taka þátt f j keppni eða sýningu hafi honumi j verið gefið lyf. Kuml og haugfé Ríkisstjórnin hefur ákveðið | að verja 2,5 milljónum króna til j að styrkja rannsóknir vegna endurútgáfu ritsins Kuml og j haugfé, doktorsritgerðar Krist-i j jáns Eldjárns, fyrrum forseta. i Áttatíu ár voru liðin í gær frá | fæðingu Kristjáns. Áburðarverksmiðja seld j Þá ákvað ríkisstjómin í gæi j aö Ábm-ðarverksmiðjan í Gufu | nesi verði seld, að tillögu einka- j væðingamefndar. Guðrún á móti Guðrún Helgadóttir, fymnri j þingmaður, lét bóka nýlega í j Tryggingarráði að hún væri al- ‘ farið á móti riftun líffæra- ! skiptasamningi við Sa- > hlgránska-sjúkrahúsiö í Sví- ! þjóö. Bylgjan greindi frá þessu. -bjb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.