Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
Villeroy&Boch
á annarri hað Kringlunnar / Sími 533 1919
asijókum
desember
sviðsljós
Erfingi Body Shop-veldisins:
Vill ekki sja peningana
Ásamt móöur sinni á góöri stund.
„Ég þarf ekki á neinu að halda.
Ef ég erfði eitthvað af peningum
fjölskyldunnar mundi ég gefa þá
alla frá mér,“ sagði Samantha, 26
ára, önnur tveggja erfingja Body
Shop-stórveldisins sem móðir
Samkeppni
um útilistaverk í Garðabæ
í tilefni þess að í ár eru 20 ár liðin síðan Garðabær fékk
kaupstaðarréttindi, efndi bæjarstjóm Garðabæjar til
samkeppni um gerð útilistaverks.
Samkeppninni er nú lokið og tóku þátt í henni myndlistar-
mennimir, Anna Sigríður Sigurj ónsdóttir, Brynhildur
Þorgeirsdóttir, Hallsteinn Sigurðsson, Jóhanna Þórðardóttir
og Þórir Barðdal.
Bæjarstjóm og menningarmálanefnd Garðabæjar efaa nú til
sýningar á tillögum keppenda.
Sýningin verður haldin, dagana 30. nóvember til 12. desem-
ber n.k. í yfirbyggðum miðbæ Garðabæjar, gengið inn um
austurenda göngugötu.
Sýningin er opin á verslunartíma og er öllum heimill ókeypis
aðgangur.
hennar, Anita Roddick, á heiðurinn
af. Hinn erfinginn er stóra systir
Samönthu, 28 ára gömul.
Samantha, sem gekk í opinberan
skóla, hefur valdið forríkri móður
sinni miklu hugarangri en hún
stundar nú nám í grasalækningum í
Kanada. Hún gengur um illa til fara,
í lörfum eins og betlari, og á ekkert.
Hún sefur á dýnu á gólti pínulítillar
íbúðar sem hún leigir og er alþakin
vegglistaverkum.
„Okkur er talin trú um að pening-
ar skipti öllu máli. Ég get ekki rétt-
lætt það að eyða peningum í óþarfa
á meðan fólk er að deyja úr næring-
arskorti. Auðæfi eru nátengd frægð
og þegar fólk öðlast hana missir það
tökin á lífi sínu sem yfirleitt hefur
einungis eymd í för með sér.“
Hin 54 ára gamla mamma hennar
er farin að halda að hún hafi brugð-
ist í uppeldinu. „Ég verndaði þær
aldrei frá raunveruleikanum og
held jafnvel að ég hafi gengið of
langt. Ég hvatti þær til að ferðast á
meðan þær væru ungar en eftir að
hafa séð hvemig kerfið er misnotað
hafa þær fullorðnast alltof fljótt.
Börnin mín koma sjálfsagt til með
að segja að ég hafi verið ómöguleg
móðir. Ég eldaði t.d. aldrei en lagði
áherslu á að fá þær til að hlæja frek-
ar en allt annað.“
Hin lörfum klædda Samantha sem
neitar aö taka viö peningunum.
Irina Crease frá Þýskalandi er Barbísjúk:
Safnar Barbídúkkum og
klæðir sig eins og Barbí
Irina Crease, 32 ára
blondína frá Þýska-
landi, er gjörsamlega
Barbisjúk og fyllilega
sátt við það þó að eig-
inmanninum hafi ekk-
ert litist á blikuna í
fyrstu. Það er ekki nóg
með að Irina safni
Barbídúkkum í tonna-
tali heldur klæðir hún
sig eins og Barbídúkka
frá árinu 1964, á háum
hælum, með hvítt
veski og í sérsaumuð-
um kjól með Bar-
bísniðinu frá þeim tíma.
Varla þarf að taka fram að greiðslan
er að sjálfsögðu í stíl.
mmc.
.
6
Síðustu ár hefur skátahreyfing'm selt sígrcen
eðaltré, í haesta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
10 ára ábyrgð Eldtraust
í*. 10 stcerðir, 90-370 cm u Þarf ekki að vökva
Stálfótur fylgir íslenskar leiðbeiningar
Ekkert barr að ryksuga Traustur söluaðili
Truflar ekki stofublómin Skynsamleg fjárfesting
ÐALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
©ffl
„Eg var
fimm ára
þegar sá
fyrstu Barhí-
dúkkuna og
ég hef verið
ástfangin af
henni allar
götur síðan,“
segir Irina.
Irina á stórt
og verðmætt
safn af Barbí-
dúkkum, Barbí
sjálfri, Ken, Skipp-
er, Midge og hinum
persónunum svo að nemur tugum
milljóna króna. í æsku lék hún sér i
Barbíleik með mömmu sinni, lét
Barbí fara í erfiðar líkamsæflngar
og ballettskóla og móðuramman
saumaði föt á Barbí fyrir þær
mæðgur. Þegar Irina giftist banda-
ríska kaupsýslumanninum Frank
Creaser, þá 17 ára gömul en hann
57, skildi hún Barbísafnið sitt eftir
heima í Þýskalandi.
Á barbídögum í stórverslun smit-
aðist hún svo aftur af áhuganum og
áður en hún vissi af var heimili
hennar troðfúllt af Barbí. Aumingja
Frank vissi ekkert hvað hann ætti
að gera með 17 ára eiginkonu sem
keypti Barbí hvar sem hún kom.
Smám saman uppgötvaði Irina hins
vegar að hún gæti eignast verðmætt
safn og nú prýða Barbídúkkurnar
alla veggi á heimilinu.
Irina lét þó ekki staðar numið við
dúkkukaupin. Hún varð að eignast
Barbífót á sjálfa sig og lét því sér-
sauma og hanna fyrir sig fatnað í
samræmi við Barbítískuna 1964.
Þessu skartar Irina á stórhátíðum,
Barbísýningum og við hentug tæk-
ifæri.
„Mér finnst gaman að líta út eins
og Barbí. Þær eru svo fallegar og fá
mig til að fmnast ég vera orðin lítil
stelpa aftur,“ útskýrir hún.
Irina safnar Barbidúkkum og fyliir allar hillur á heimili sínu. Hún hefur þó
ekki látiö staöar numið viö söfnunina heldur látiö sérsauma á sig Barbím-
únderingu sem er í samræmi viö Barbitískuna áriö 1964.