Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 LlV ★ 22 ★ w unglingar ■ ...... 1 Jónas Breki Magnússon, 16 ára íshokkíspilari: Sá yngsti í arafokk „Mig langar rosalega til að fara út og læra þetta bet- ur, þá annað hvort til Svíþjóðar, Finn- lands eða Kanada. Ég ætla að reyna- að fara bráðlega sem skiptinemi og reyna að komast í eitt- hvert lið þarna úti,“ sagði Jónas Breki Magnús- son, 16 ára, sem í íshokkí. „Ég æfi 6 sinnum í viku, að meðal- tali 1-2 klst. í stundað hefur ís- hokkí frá 10 ára aldri. Hann hefur spilað með fs- hokkífélaginu Björninn síðan það var stofnað fyr- ir 6 árum og spilar nú með unglingaflokki fé- lagsins, 17-18 ára. Jónas hefur einnig verið í meist- araflokki félagins undanfarin 4 ár og var reyndar yngsti leikmaðurinn í heiminum sem spilað hefur með meist- araflokki, auk þess sem hann er í unglingalandsliði íslands Jónas Breki æfir íshokkí 6 sinnum í viku, ýmist á svell- inu eða í tækjasal. Hann byrjaði að spiia með meist- araflokknum fyrir fjórum árum og var þá yngsti leik- maðurinn í meistaraflokki f heiminum. senn. Þetta er bæði hröð íþrótt og skemmtileg og henni fylgir mikil spenna," sagði Jónas. Flokkurinn sem Jónas byrjaði í 10 ára gamall hefur unnið hvert ein- asta mót sem hann hefur tekið þátt í og strákarnir hafa ver- ið íslandsmeistarar öll árin. Nú eru þeir í unglingaflokknum 17-18 ára og núverandi íslandsmeistarar. Um síðustu helgi spilaði Jónas með meistaraflokknum á móti Akureyri og gerði þrjú mörk af fjórum fyrir Björninn. Það dugði þó ekki til að vinna leik- inn. Jónas er nýkominn úr fyrstu keppnisferð sinni til útlanda þar sem hann keppti 1 tveim leikjum á móti Skotlandi og einn leik á móti heimaliði frá Glasgow. „Svo erum við að fara aftur út í mars til að keppa á Evrópumóti. Mótið er hald- ið i Júgóslavíu og það getur vel ver- ið að einhver okkar landsliðsstráka fái tilboð frá keppnisliði úti en liðin eru alltaf með útsendara á slíkum mótum.“ -ingo fii hliðin Misstu foreldra sína í hörmulegu flugslysi í júlí: Geta ekki grátið út sorgina Bræðumir Evan, sextán ára, og Logan, þrettán ára, misstu báða foreldra sína í flugslysinu þegar Flight 800 hrapaði á leið til París- ar. Þangað til hafði líf strákanna verið bjart en móðir þeirra, Peggy Price, var starfsmaður United Airlines og fað- ir þeirra, Dennis Price, var fram- kvæmdastjóri. Þau bjuggu í sex herbergja villu og strákarnir voru mjög íþróttalega sinnaðir. Lif þeirra hefúr ver- ið langt í frá auðvelt frá slysinu en þeir hafa enn þá ekki getað grátið foreldra sína. Þeir eru ekki uppfullir sektarkenndar og reiði yfir dauða for- eldra sinna og segja að ekki skipti máli hvemig foreldrarnir dóu. Sú vitneskja færi þeim ekki aftur foreldrana. Drengimir segj- ast vissulega syrgja foreldra sína mikið og sakna þeirra. „Þetta er svo ótrúlegur atburður að það er alls ekki hægt að ímynda sér hvernig það er að missa foreldra sína. Það hjálpar að reyna að kom- ast í gegnum hversdagslífið,“ segir Evan eldri bróðirinn. Strákamir búa enn þá í húsi foreldra sinna en afi þeirra og amma hafa nú tekið yfir forræði þeirra. Þau yfirgáfu heimili sitt Littleton til þess að hugsa ui strákana. Þeir láta sér einnig umj hugað um gömlu hjónin og reyi að láta þau hafa sem minnst fyr Evan og Logan eftir að þeir uröu munaðarlausir. sér en afi þeirra er 79 ára og amma þeirra er 75 ára. „Okkur líður illa yfir því að dóttir þeirra skyldi deyja og þau þurfi aftur að búa með ungling- um,“ segir Evan. Strákamir hafa ekki reynt að leita sér sálfræðilegrar hjálpar og- hafa afi þeirra og amma ekk: reynt að fá þá til þess. Dagur B. Eggertsson: Hressilegar rökræður eru í uppáhaldi ■ Dagur B. Eggertsson, lækna- nemi við HÍ, hefur mikiö verið i fjölmiðlum undanfarið en hann er höfundur skýrslu sem náms- mannahreyfingarnar sendu frá sér varðandi Lánasjóð íslenskra námsmanna. í skýrslunni em alvarlegar afleiöingar Lána- sjóðslaganna frá 1992 dregnar fram. Fullt nafn: Dagur B. Eggerts- son. Fæðingardagur og ár: 19. júní 1972. Eiginkona: Lára Samira Benjnouh. Böm: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Læknanemi við HÍ og annast vísindaumfjöllun á Rás 1. Laun: Fara eftir afköstum hveiju sinni. Áhugamál: Þjóðmál, bóklestur og íþróttir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Að eiga í hressi- legum rökræðum. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Innihaldsleysi. Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur. Uppáhaldsdrykkur: Gott létt- vín. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Vanda Sigur- geirsdóttir, knattspyrnukona og landsliðsþjálfari. Uppáhaldstlmarit: Skírnir og Læknaneminn. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Isahella Rossellini. Ertu hlynntur eða andvígur Dagur B. Eggertsson er höfundur skýrslu sem námsmannahreyfingarnar sendu frá sér varðandi LÍN. ríkissfjórninni? Ég tek afstöðu til mála, ekki flokka. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Vacláv Havel. Uppáhaldsleikari: Ingvar Sig- urösson. Uppáhaldsleikkona: Kristbjörg Kjeld. Uppáhaldssöngvari: Megas. Uppáhaldsstjómmálamaður: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Uppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Elgurinn í Dýraglensi og Grettir. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir. Uppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: Þrír Frakkar hjá Úlfari. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég byrjaði á ævisögu séra Áma Þórarinssonar um síðustu jól, ætli ég ljúki henni ekki um þessi jól. Hver útvarpsrásanna þykir þér best? Rás 1 ber af. Uppáhaldsútvarpsmaöur: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir. Hvaöa sjónvarpsstöð horfir þú mest á? Ríkissjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hemmi Gunn. Uppáhaldsskemmtistað- ur/krá: Café List. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fylkir (í Árbæ). Stefhir þú að einhverju sér- stöku i framtíðinni? Að ljúka námi, fara út í lönd og verða að betri manni. Hvað gerðir þú í sumarfrí- inu? Ég tek mér afar sjaldan sumarfrí en fæ vonandi að glíma við eitthvert spennandi verkefni. -ingo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.