Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Page 9
DV LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
9
skák
Lánið lék ekki við Uhlmann á HM öldunga:
Tapaði drottningu og heimsmeistaratitli
Rússneski stórmeistarinn Alexei
Suetin náði því að verða heims-
meistari á gamalsaldri. Hann hrós-
aði sigri á heimsmeistaramóti öld-
unga, 60 ára og eldri, sem fram fór í
Bad Liebenzell í Þýskalandi. Mótið
hefur vakið talsverða athygli í skák-
dálkum heimsins, enda láta nöfn
margra meistaranna sem þar tefldu
kunnuglega í eyrum. Einn Islending-
ur var meðal keppenda á mótinu,
Ingvar Ásmundsson, skólastjóri Iðn-
skólans í Reykjavík, og náði hann
mjög góðum árangri, 10. sæti af 180
keppendum.
Umsjón
Jón L. Árnason
Suetin hélt upp á 70 ára afmælið
meðan á mótinu stóð, þann 16. nóv-
ember sl. Hann var úrskurðaður sig-
urvegari á stigum en hann hlaut
jafnmarga vinninga og Anatoly -
Lein, Bandaríkjunum, og Lettinn
Klovans. Suetin var útnefndur stór-
meistari 1965 og á næstu árum náði
hann góðum árangri á alþjóðlegum
vettvangi. Eftir það helgaði hann sig
skákskrifum en eftir hann liggja fjöl-
margar bækur um skák, jafnt um
byrjanir, miðtöfl og endatöfl. Suetin
er íslendingum að góðu kunnur en
hann dvaldi hér á landi um tveggja
mánaða skeið sumarið 1981 við
skákþjálfun. Ein bóka hans, „Þrjú
skref frá meistara til stórmeistara",
hefur komið út á íslensku. Suetin og
Tigran heitinn Petrosjan voru mikl-
ir mátar. Suetin var m.a. aðstoðar-
maður Petrosjans í einvíginu við
Bobby Fischer 1971, þegar Fischer
ávann sér rétttil þess að skora á
heimsmeistarann Spasskíj.
Síðasta umferðin á mótinu var
gríðarlega spennandi. Suetin átti í
höggi við þýska stórmeistarann
kunna Wolfgang Uhlmann, sem
hafði hálfs vinnings forskot á næstu
menn. Á öðru borði glímdu Lein og
Vasjukov en ásamt Uhlmann hafa
þeir yljað íslenskum áhorfendum
um hjartarætur með þátttöku sinni
á Reykjavíkurmótunum. Lettinn
Klovans átti í höggi við rússneska
stórmeistarann Krogius, sem þekkt-
ur er fyrir skrif um sálfræði skák-
borðsins, auk þess sem hann var
lengi frammámaður í sovésku skák-
hreyfmgunni.
Suetin náði snemma kverkataki á
Uhlmann, sem beitti eftirlætisbyrj-
un sinni, frönsku vöminni, þó með
slökum árangri í þetta sinn.
Uhlmann lenti þar að auki í tíma-
hraki. En hann er háll sem áll og
var næstum búinn að jafna stöðuna,
þegar hann gleymdi sér eitt andar-
tak. Allt í einu fór drottningin fyrir
lítið og þá var ekkert annað að gera
en að gefast upp.
Sálfræðin kom Krogius ekki að
gagni, sem steinlá fyrir Klovans. Eft-
ir það beindust allra augu að tafli
Leins og Vasjukovs. Fram kom við-
sjárvert endatafl, þar sem Lein tókst
á endanum að kreista fram sigur.
Með því móti komst hann upp að
hlið Suetins og Klovans að vinning-
um. Til að skera úr um sigurvegara
þurfti að grípa til stigaútreiknings. í
fyrstu umferð datt Klovans úr lest-
inni en Suetin og Lein voru hnífjafn-
ir. í næstu urnferð hafði Suetin bet-
ur og þar með var hann úrskurðað-
ur sigurvegari en Lein sat eftir með
sárt ennið.
Þetta er í sjötta skipti sem heims-
meistaramót öldunga fer fram, en
Þjóðverjar hafa ávallt séð um móts-
haldið. Næsta mót er þó fyrirhugað
i Portúgal að ári.
Hvítt: Alexei Suetin
Svart: Wolfgang Uhlmann
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5
Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. a4
Rbc6 8. Rf3 Da5 9. Bd2 Bd7 10.
Bb5 f6 11. De2 fxe5 12. Rxe5!
Rxe5 13. Dxe5 Bxb5 14. c4 Db6 15.
dxc5 Dxc5 16. cxb5 0-0 17. Dxe6+
Kh8 18. 0-0 Rf5 19. Hael Rd4 20.
De5 Dc4 21. c3 Rf5 22. Bcl h6 23.
Ba3 Hf6 24. Be7 Rxe7 25. Dxe7 h6
26. Hdl Haf8 27. De3 Hc8 28. Hd3
Dxa4 29. Hxd5 Dc4 30. Hfdl HfPB
31. Hld3 Hce8 32. Dd2
32. - Da2!
Skemmtilegur leikur, þar sem 33.
Dxa2 er auðvitað svarað meö 33. -
Hel mát.
33. h4 He4??
Svartur skeytir því engu, þótt
hvítur sé nú búinn að „lofta út“ og
eftir...
34. Dxa2
... gafst hann upp.
Kristján atskákmeistari
Reykjavíkur
Kristján Eðvarðsson sigraði á at-
skákmóti Reykjavíkur, sem fram fór
í Gerðubergi um síðustu helgi. Tafl-
félagið Hellir, Reykjavík, stóð fyrir
mótinu. Kristján hlaut 6 vinninga af
7 mögulegum, varð hálfum vinningi
fyrir ofan Jón Viktor Gunnarsson,
sem hreppti einn 2. sætið. Þriðja
sætið kom í hlut Andra Áss Grétars-
sonar, sem fékk 5 v., Gunnar Björns-
son fékk 4,5 v. og þeir Davíð Kjart-
ansson, Bergsteinn Einarsson, Bragi
Þorfmnsson og Gunnar Örn Har-
aldsson fengu 4 v.
Guðmundar Arasonar
mótið
Alþjóðlegt skákmót, sem kennt er
við Guðmund Arason, fyrrverandi
forseta Skáksambands íslands verð-
ur haldið í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði dagana 13. - 21.
desember. Mótið er einkum ætlað
ungum og upprennandi skáksnill-
ingum og er að verða fastur liður í
tilverunni fyrir jólin.
Keppendur verða þrjátíu, þar af
um þriðjungur erlendis frá. Þeirra
þekktastir eru alþjóðlegu meistar-
arnir Raetsky, Rússlandi, Dunning-
ton, Turner og Martin, Englandi,
Bjarke Kristensen, Danmörku, Blees
og Bruno, Hollandi, og Engquist,
'Svíþjóð. Stigahæstir heimavarnar-
liðsins verða Jón G. Viðarsson, Guð-
mundur Gíslason, Sævar Bjarnason,
Björgvin Víglundsson, Jón Viktor
Gunnarsson og Áskell Örn Kárason.
Mótið verður í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði og verða
tefldar 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi.
brídge
Ólympíumótið á Rhodos 1996:
Gæfan var með Indónesum
Flestum er í fersku minni glæsi-
legur árangur íslenska landsliðsins
á Ólympímótinu á Rhodos, þegar
liðið náði þeim fráfæra árangri að
komast í átta liða úrslit.
Andstæðingar íslendinga voru
Indónesar og að margra dómi áttu
íslendingar síst verri möguleika á
að komast i undanúrslitin. Það fór
hins vegar á annan veg og reyndar
virtust Indónesar aldrei vera í
hættu með leikinn. Þeir byrjuðu vel
og juku forskot sitt jafht og þétt, þar
til þeir unnu með miklum mun.
Eitt örlagaríkt spil í fyrstu lotu
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
einvígisins hefði ef til vill getað
breytt gangi leiksins, en þar missti
Jón Baldursson af góðu tækifæri til
þess að refsa Indónesunum.
Jón hefur á undanfórnum árum
verið einn af bestu bridgespilurum
* G
m 10987
* 763
* 98652
* KD9865
64
* DG842
* -
* Á1043
* ÁK532
+ ÁK
* ÁD
heimsins og margir bridgedálkahöf-
undar hafa þess vegna gripið þetta
spil á lofti. Og eins og komist var að
orði í mótsblaðinu, þá spilaði Jón
spilið kæruleysislega, sem alls ekki
er að venjast af honum.
En skoðum þetta örlagaríka spil.
N/A-V
í lokaða salnum sátu n-s Sacul og
Karwur, en a-v Þorlákur og Guð-
mundur:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1* 2 4
pass pass dobl pass
3 * pass 3 G pass
4 v pass 4 * pass
5 * pass 6 * dobl
pass pass pass
Laufopnun suðurs var sterk og
Indónesarnir komust í ágæta
slemmu. Það var hins vegar galli á
gjöf Njarðar, því slemman var i öf-
ugri hendi. Þetta notfærði Guð-
mundur Páll sér og útspilsdoblaði.
Þorlákur hlýddi og Guðmundur
trompaði laufdrottninguna í fyrsta
slag. Síðan varð sagnhafi að gefa
slag á spaða eða tromp - einn niður
og 100 til Islands.
í opna salnum sátu n-s Jón og
Sævar gegn gömlu refunum Lasut
og Manoppo:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1 * 1 ♦
pass pass dobl 24
3 * pass 3 G pass
pass dobl pass pass
4 * dobl pass pass
4 * dobl redobl pass
pass pass
Laufið var líka sterkt hjá Sævari
og tígulsögn Manoppos sýndi ann-
aðhvort hjarta og lauf eða tígul og
spaða. Hann stökk síðan í tvo spaða
til þess að sýna auka spilastyrk, eða
þannig. Doblin hjá Lasut voru ekki
til fyrirmyndar, þótt hann slyppi
með skrekkinn.
Lasut spilaði út spaða, Jón drap á
ásinn og trompaði strax spaða. Það
virðist engin hætta í spilinu og Jón
spilaði illu heilli laufi og svínaði
drottningunni.
Þar með hrundi spilið, því
Manoppo trompaði, spilaði spaða,
sem Lasut trompaði. Síðan kom
lauf, trompað og spaði trompaður.
Jón hafði því gefið fjóra slagi á
tromp - einn niður. Það voru 200 til
Indónesa, sem græddu 3 impa á
spilinu.
Það er augljóst að ef Jón tekur
tvisvar tromp þá vinnur hann sex
og græðir 16 impa.
$ hte I
Síðumúla 37 »108 Reykiavík
Simi 588 2800 • Fax 568 7447
Endursölustaðir: Eyjaradíó - Vestmannaeyjum, Metró - Akureyri, Tölvuvæðing - Keflavík,
Hátíöni - Höfn, Snerpa - ísafirði, Verslunin Hegri - Sauðárkróki
GoldStar
símabúnaður
GoldStar GT-9500
Þráðlaus sími fyrir heimili og fyrirtæki, með
innbyggt símtæki í móðurstöð og innanhúss-
talkerfi milli allt að þriggja þráðlausra síma
og móðurstöðvar.
Grunnpakki:
Móðurstöð með einum þráðlausum síma og öllum
fylgihlutum. ^ kr 25 900 .stgr
Auka þráðlaus sími:
Þráðlaus sími með fylgihlutum.
Verð kr. I l.900.stgru.
GoldStar
GS-635
Símtæki með hátalara og
endurvali.
Sérstaklega falleg hönnun.
Litir Rauður grænn og Ijós
grár
Verð kr. 4.900.-stgr.