Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Page 12
12
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
Gunnar Gunnarsson, sárfræðingur í veirurannsóknum, um fjölgandi inflúensutilfelli:
Einangrun
„Einangrun er eini hugsanlegi möguleikinn
til þess að sleppa alveg við inflúensuna. Þá
forðast fólk snertingu við aðra sem geta borið
veiruna á milli. Það eru fæstir sem leggja það
á sig,“ segir Gunnar Gunnarsson, sérfræðing-
ur á veirurannsóknardeild. Á hverju ári
leggst fjöldi fólks í rúmið sökum inflúensufar-
aldurs sem herjar á vetuma. Leitað var ráða
hjá Gunnari um hvað hægt væri að gera til
þess að sleppa við þessa hvimleiðu árlegu in-
flúensu.
„Ein leið til þess að forðast inflúensuna er
að láta hólusetja sig en bóluefnið hefur verið
á markaðnum frá því í október. Það inniheld-
ur veiklaðar inflúensuveirur, bæði A- og B-
tegundina,“ segir Gunnar.
Að sögn Gunnars eru aukaverkanir af bólu-
efninu yfirleitt mjög vægar eða engar. Helst er
að fólk finni eymsli við stungustaðinn og fái
vægan roða.
Fjögur ný inflúensutilfelli af svokölluðum
stofni B hafa greinst í nóvember en eitt tilfelli
af inflúensustofni A greindist um síðustu
helgi.
Tllfellum fjölgar
„Tilfellunum er að fjölga og við emm rétt
að byrja að greina þau. Við höfum heyrt um
mikil veikindi meðal fólks að undanfórnu.
Mér finnst líklegt að verulegur hluti þeirra
veikinda orsakist af inflúensuveirum. Ég tel
að það sé miklu algengara heldur en við vit-
um um að fólk veikist af inflúensunni. Það
em ekki tekin sýni úr öllum sem hafa fengið
svona flensueinkenni," segir Gunnar.
Fólk leitar ekki til læknis í öllum tilfellum
og ekki eru alltaf tekin sýni úr þeim sem leita
læknis. Þess vegna reynist svo erfitt að telja
tilfellin nákvæmlega.
eini möguleikinn til að sleppa
Inflúensa A
á hverju ári
Gunnar Gunnarsson, sérfræðingur á veirurannsóknardeild, segir að inflúensan leggist sérstak-
lega hart á eldra fólkiö og því sé ráölagt aö láta bólusetja sig.
„Oft eru einkennin meiri af inflúensu A
heldur en inflúensu B. Inflúensa B hefur ekki
greinst hérna frá því veturinn 1992-1993 en in-
flúensa A gengur hér yfirleitt á hverju ári
með lítillegum breytingum frá ári til árs,“ seg-
ir Gunnar.
Að sögn Gunnars er engin skýring á því af
hverju inflúensan kemur alltaf á sama tíma.
Hún kemur alltaf að vetri til á norðurhveli
jarðar og einnig að vetri til á suðurhveli. Hún
gengur meira og minna allt árið í hitabeltinu.
„Venjulegustu einkennin eru hiti sem getur
verið frá 38-40 stig og slappleiki og bein- og
vöðvaverkir ásamt höfuðverk. Kvefeinkennin
geta komið eftir tvo til þrjá daga og verða
meira áherandi þegar hitinn fer að lækka,“
segir Gunnar. @.mfyr:Smit í gegnum úða frá
öndunarfærum
Talið er að inflúensan smitist fyrst og
fremst í gegnum úða frá öndunarfærum. Al-
gengast er að fólk sé veikt í tvo til þrjá daga
en stundum getur það verið veikt lengur, eða
allt upp í ijóra til sjö daga.
Landlæknisembættið sendi í haust út frétta-
tilkynningu þar sem ráðlagt var hverjir
skyldu láta bólusetja sig. Það var fólk sem
komið var yfir sextugt þvi veikin leggst sér-
staklega hart á eldra fólkið. Einnig er fólki
með undirliggjandi sjúkdóma, til dæmis
hjarta-, æða- og lungnasjúkdóma, ráðlagt að
láta bólusetja sig. Ekki er sérstaklega mælt
með því að bólusetja börn nema þau séu veik
fyrir því þetta stendur yflrleitt stutt yflr.
„Það hefur ekki verið sýnt fram á að matar-
æði, vítamín og hvítlaukur hafi neitt að segja
til þess að varna smiti,“ segir Gunnar.
-em
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Dlck Francls:
Come To Grlef.
2. Terry Pratchett:
Maskerade.
3. John Grisham:
The Runaway Jury.
4. Rob Grant:
Backwards.
5. Danlelle Steel:
Flve Days In Paris.
6. Ellzabeth George:
In the Presence of the Enemy.
7. Nlck Hornby:
Hlgh Rdellty.
8. Wllbur Smith:
The Seventh Scroll.
9. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
10. Catherlne Cookson:
The Obsesslon.
Rit almenns eölis:
1. Btll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Andy McNab:
Immediate Actlon.
3. B. Watterson:
There’s Treasure Everywhere.
4. Carl Glles:
Glles 50th.
5. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
6. Gary Larson:
Last Chapter and Worse.
7. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are
Ifrom Venus.
8. Davld Wild:
Frlends: The Book.
9. Paul Wllson:
A Llttle Book of Calm.
ÍIO. Prlvate Eye:
Best of Private Eye Annual.
Innbundnar skáldsögur:
1. Terry Pratchett:
Hogfather.
2. Tom Clancy:
Executlve Orders.
3. Maeve Binchy:
Evening Class.
4. Dlck Francls:
To the Hllt.
5. Patrlcla D. Cornwell:
Cause of Death.
I
Innbundin rit almenns eölis:
1. R. Harris, M. Leigh & M. Leplne:
True Animal Tales.
2. Jack Charlton:
Autoblography.
3. Francls Gay:
The Friendship Book.
4. Dave Sobel:
Longitude.
5. Hertogaynjan af York & J. Coplon:
My Story.
(Byggt á The Sunday Times)
Hiyllingsmeistarinn
heimakær vinnufíkill
Metsöluhöfundurinn Step-
hen King hefur sent frá sér
margar nýjar skáldsögur á
þessu ári og þær rokseljast all-
ar. Talið er að prentaðar hafi
verið um 170 milljónir eintaka
af bókum hans. Þær hafa ver-
ið þýddar á 32 tungumál og
gefnar út í fjölmörgum lönd-
um, allt frá Islandi til
Indónesíu.
Á þessu ári hafa birst eftir
hann skáldsögumar „Desper-
ation“ og „The Regulators",
sem hann samdi undir dul-
nefninu Richard Bachman, og
röð sex skáldsagna undir sam-
heitinu „The Green Book“.
Allar fóru þessar hækur beint
á metsölulista vestan hafs og
austan.
King hefur sent frá sér 32
metsölubækur (þar af sex und-
ir nafninu Bachman en þeim tvífara
sínum lýsir hann sem „Stephen
King án samvisku") en titlar verka
hans eru alls 44. Hann hefur samið
mörg kvikmyndahandrit. Nýjasta
kvikmyndin nefnist „Thinner“ en
einnig er verið að endurgera „The
Shining" fyrir sjónvarp.
Heimakær
vinnufíkill
Stephen King er sagður afar
heimakær og mikill vinnufíkill. í
borginni Bangor í Maine í Banda-
ríkjunum, þar sem hann á heima, er
fullyrt að King taki sér einungis frí
frá ritstörfum örfáa daga á ári.
Hann skrifar jafnvel þegar hann er
Stephen King.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
á ferðalögum, hvenær sem hann
finnur auða stund.
Maine er heimabyggð Kings og
þar gerast flestar sögur hans. Hann
settist að í Bangor seint á áttunda
áratugnum og býr þar í stóru húsi;
herbergin eru 23 og stór garður í
kring með rimlahliði. Þar hýr hann
ásamt fjölskyldu sinni (börnin eru
þrjú) og skrifar flesta daga af mikl-
um móð.
Betts bókabúðin í Bangor er
miðstöð aðdáenda Kings. Þar
er hægt að kaupa bækur hans
i flestum útgáfum, þar á með-
al frumútgáfurnar banda-
rísku, og alls konar minja-
gripi sem tengjast höfundin-
um og bókum hans.
„Vil rugla líf
ykkar"
Breskur blaðamaður fylgdist
nýverið með King er hann
hélt fyrirlestur í háskólanum
í Orono í Maine og skýrði frá
því í blaði sínu að King hefði
gert mikla lukku með yfirlýs-
ingum sínum.
„Ég hef engan áhuga á að
rugla ykkur í ríminu, ég vil
rugla líf ykkar,“ sagði hann
við háskólanemana. „Ég vil fá ykk-
ur til að gleyma stefnumótum, láta
kvöldverðinn brenna við og heima-
vinnuna eiga sig. Ég vil fá ykkur til
að segja eiginkonunni að fara í
kvöldgöngu í rómantísku tunglsljós-
inu með tenniskennaranum á bað-
ströndinni í Waikiki svo að þið fáið
næði til að lesa nokkra kafla í við-
bót. Ég vil hafa ykkur í svitakófi!"
Sumar bækur Kings hafa verið
bannaðar í bókasöfnum í Bandarikj-
unum og Kanada. Hann vísaði því á
bug að slík ritskoðun væri til að
vernda börnin. „Ég segi krökkunum
alltaf að flýta sér á næsta bókasafn
eða í næstu. bókabúð til að komast
að því hvað það sé sem hinir full-
orðnu vilja koma i veg fyrir að þeir
lesi.“
Metsölukiljur
Bandaríkin
I
Skáldsögur:
1. Nicholas Evans:
The Horse Whisperer.
2. Tonl Morrison:
Song of Solomon.
3. Mary Higgins Clark:
Sllent Nlght.
4. Dean Koontz:
Intenslty.
5. Mlchael Crichton:
The Lost World.
6. Jonathan Kellerman:
The Web.
7. David Baldaccl:
Absolute Power.
8. Anonymous:
Prlmary Colors.
9. Robln Cook:
Contagion.
10. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
11. Nora Roberts:
From the Heart.
12. John J. Nance:
Pandora’s Clock.
13. Ollvia Goldsmlth:
The Rrst Wlves Club.
14. Steve Martlnl:
The Judge.
15. Rosemary Rogers:
A Dangerous Man.
i
Rit almenns eðlis:
1. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
2. Mary Plpher:
Revlvlng Ophelia.
3. Jonathan Harr:
A Clvll Action.
4. Barbara Klngsolver:
High Tide In Tucson.
5. Al Franken:
Rush Llmbaugh Is a Blg Fat Idiot.
6. Mary Karr:
The Liar’s Club.
7. Howard Stern:
Mlss Amerlca.
8. Dava Sobel:
Longltude.
9. Thomas Cahill:
How the Irish Saved Clvllizatlon.
10. MTV/Melcher Medla:
The Real World Diaries.
11. Hillary Rodham Clinton:
It Takes a Village.
12. Ellen DeGeneres:
My Polnt... And I Do Have One.
13. Ann Rule:
A Fever in the Heart.
14. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
15. Betty J. Eadie & Curtis Taylor:
Embraced by the Llght.
(Byggt á New York Times Book Review)