Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
Milosevichjónin stjórna eins og Ceausescu:
Rauða nornin og Slátrarinn
Nafn hans þýðir frelsi og nafn
hennar friður. Slobodan Milosevic,
forseti Serbíu, og Mirjana kona hans
þykja ekki hafa staðið undir nöfnum
sínum. Tímaritið Time kallaði
Slobodan Slátrarann frá
Balkanskaga, æðsta prest þjóðar-
hreinsananna. Mirjana, sem er leið-
togi eigin stjómmálaflokks, rithöf-
undur og skyggn, er kölluð Rauða
nornin af mörgum Serbum.
Fréttaljós
á laugardegi
Það er ekki eingöngu vegna þess
að Mirjana þykir lík Morticiu Add-
ams sem gárungarnir bera Milosevic-
fjölskylduna saman við Addamsfjöl-
skylduna, sem varð fræg bæði á sjón-
varpsskjánum og hvíta tjaldinu, held-
ur eiga böm Mirjönu og Slobodan
sinn þátt í því. Sonurinn Marco, sem
er 22 ára, hafði mætur á kappakstri
og tókst að eyðileggja 30 kappakst-
ursbíla á meðan fæstir Serbar höfðu
efni á að kaupa svo mikið sem einn bensín-
lítra. Hann rekur nú einn stærsta nætur-
klúbbinn á Balkanskaga og stundar skuggaleg
viðskipti. Dóttirin Marija, sem er 33 ára, not-
ar pólítísk sambönd sín og stýrir vinsælustu
útvarpsstöðinni í Serbíu. Kærastinn hennar
er dæmdur morðingi sem var náðaður er
hann var búinn að afplána helminginn af
fangelsisdómnum. Lífið getur verið Ijúft í
Serbíu hafi maður réttu samböndin.
Stjórna eins og Ceausescu
Slobo og Mira, eins og forsetahjónin em
kölluð, eru sögð stýra landinu svipað og
Ceausescuhjónin stýrðu Rúmeníu. Mira kem-
ur á framfæri eigin stjómmálaskoðunum í
mánaðarriti sem birtir myndir af léttklædd-
um stúlkum á forsíðu. Hún gefur sér einnig
tíma til að umgangast eiginkonur annarra
stjómmálamanna. Slobo hefur alvarlegri mál
á sinni könnu, eins og hrun fyrrum
Júgóslavíu, auk þess sem hann er talinn eiga
talsverðan þátt í blóðugasta stríði sem háð
hefur verið í Evrópu síðan 1945.
Margir telja Slobo hafa hvatt þjóðernissinn-
aða Serba í stríðinu í Króatíu og Bosníu sem
hófst eftir að ríkjasambandið liðaðist sundur.
En hann átti jafnframt sinn þátt í því að sam-
Slobodan Milosevic Serbíuforseti og eiginkona hans, Mirjana, koma frá því
að kjósa í nóvember. Flokkur forsetans lýsti kosningasigur stjórnarandstöð-
unnar ógildan.
Símamynd Reuter
komulag náðist í fyrra um að binda enda á
stríðið í Bosníu.
Foreldrarnir sviptu sig lífi
Það hafa verið myrkir kaflar í lífi Slobos.
Faðir hans, sem var prestur rétttrúnaðar-
kirkjunnar í Svartfjallalandi, fyrirfór sér er
Slobo var 21 árs. Þegar Slobo var 7 ára framdi
uppáhaldsfrændi hans sjálfsvíg. Þegar Slobo
var orðinn 33 ára og farinn að klífa upp met-
orðastigann hjá kommúnistum hengdi móðir
hans sig. Hún hafði verið kennari.
„Það eru greinilega sjálfsmorðhvatir í höfði
hans,“ segir Dana Draskovic, eiginkona
stjómarandstöðuleiðtogans Vuks Draskovics,
sem stýrir eigin vikuriti og er í samkenpni við
Miru um athygli almennings. „Annars hefði
hann ekki fórnað þúsundum manna í stríðinu
og sýnt samúð eða vott um sársauka. Þau eru
einkennileg að þessu leyti. Konan hans hefur
aldrei heimsótt flóttamenn eða særða her-
menn á sjúkrahúsi. Þau virðast ekki hafa
neinar samúðartilfmningar," bætir Dana við.
í Pozarevac, heimabæ Slobos, muna menn
bara eftir þvi hvað hann var litlaus og mikill
hentistefnumaður. Hann var iðinn í skóla,
forðaðist samneyti við aðra nemendur en
sleikti upp kennara sem voru í náðinni hjá
flokknum. Valdaflkn hans
var þá þegar augljós.
Einkunnasjúk
skólastelpa
Hann hitti Mira fyrst í
desember 1958 þegar sátu í
undirbúningsnefnd ung-
liðahreyfingar Kommún-
istaflokksins fyrir nýárs-
fagnað. Mira var þá 16 ára,
einkunnasjúk skólastelpa
sem grét ef hún var ekki
hæst í bekknum eða fékk
bara 8 í stað 9 eða 10.
Bemska Mira var ákaf-
lega erfið. Ættingjar henn-
ar voru eldheitir kommún-
istar. Sagt var að frænka
hennar hefði verið hjákona
Títós og foreldrar hennar
skæruliðar flokksins á tán-
ingsárunum. Þau hittust
fyrst á leynilegum flokks-
fundi 1941. Ári seinni fædd-
ist Mira úti í skógi. For-
eldrar hennar voru ekki
giftir og sennilega ekki par að því að talið er.
Móðir Miru, Vera Miletic, var ákaflega metn-
aðargjörn og var orðin formaður Kommún-
istaflokksins í Belgrad 17 ára gömul. Hún var
elt eins og dýr og hafði lítinn tíma fyrir dótt-
ur sína - flokkurinn var í fyrirrúmi.
Móðirin tekin af lífi
Fyrstu mánuði ævi sinnar ólu félagar móð-
urinnar Miru upp í skóginum. Það þótti of
hættulegt að fara með hana á heimili afans og
ömmunnar. Árið 1943 var Vera handtekin af
Gestapo og sett í fangelsi. Hún var pyntuð og
ári seinna tekin af lífi. Hún sá litlu dóttur sína
einungis á milli fangelsisrimlanna. Mira hitti
föður sinn fyrst nokkrum árum seinna.
Afi og amma Miru tóku hana að sér eftir lát
móðurinnar. Hjá þeim dreymdi Miru um
framtíð þar sem hún myndi leysa vandamál
heimsins. Hún taldi sig bjargvætt fólksins,
eins og Elena Ceausescu og Eva Peron gerðu.
Leynileg hársnyrting
Mira og Slobo stunduðu bæði nám við há-
skólann í Belgrad, hann var í laganámi og
hún las þjóðfélagsfræði. Þau litu á sig sem
bítnikka. Mira las öll verk Dostojevskis
þrisvar sinnum, líkti eftir Juliet Greco og
klæddist svörtu, lét hár sitt vaxa og skreytti
það með afskornu blómi, oftast gardeníu. Hún
gerir það enn. Eitt af þvi sem hún vandi sig á
var leyndin í sambandi við snyrtingu hársins.
Enginn, að eiginmanninum meðtöldum, mátti
sjá hana bursta hárið. Ævisöguritari hennar
segir að hún hafi brostið í grát er Slobo sá
hana einu sinni bursta hárið.
Hún ákvað
framtíð þeirra
Er dóttirin var fædd bjó unga fjölskyldan í
fjölbýlishúsahverfi í Belgrad. Eina skiptið
sem þau voru í raun aðskilin var þegar Slobo
gegndi herþjónustu í Króatíu. Mira var alveg
miður sín en hann skrifaði henni tvisvar á
dag og hringdi einu sinni í viku. „Bréfberinn
bað um að fá að hitta mig sérstaklega því
hann langaði að sjá konuna sem fékk svona
mörg ástarbréf,“ skrifaði Mira seinna. Þegar
Slobo sneri heim var hún búin að ákveða
framtíð þeirra. Slobo átti að stjórna fólkinu
með hana sér við hlið. Hann fékk vinnu hjá
Tehnogas, fyrirtæki þar sem framkvæmda-
stjórarnir voru útnefndir af kommúnistum og
þar sem þeir sem áhuga höfðu á stjómmálum
fengu reynslu i flokksstarfinu. Hann hækkaði
fljótlega í tign, varð aðalframkvæmdastjóri og
ferðaðist til Ameríku þar sem hann betrum-
bætti enskukunnáttu sína. Það var venjan að
kaupsýslumenn kommúnista dveldu nokkra
daga erlendis eftir að þeir höfðu lokið erindi
sínu þvi það voru einu tækifærin sem þeir
höfðu til að sjá heiminn utan járntjaldsins.
Fyrrum starfsfélagar segja að Slobo hafi skip-
að þeim að snúa heim strax að loknum siðasta
fundi. „Það var vegna Miru. Hún varð alltaf
að hafa hann fyrir augunum," er haft eftir ein-
um þeirra. Eftir átta ár hjá Tehnogas flutti
Slobo sig yfir í ríkisbankann Beobanka. Árið
1984 var hann orðinn þekktur stjórnmáiamað-
ur og þremur árum seinna varð hann leiðtogi
Kommúnistaflokksins.
Hrifinn af rósum
og viskíi
N\TT SÖLUKERFI - Hannað af Úrlausn
Enn meiri þjónusta við kaupendur og seljendur.
Brú - Fasteignasala hefur nú tekið í notkun eitt fullkomnasta
fasteignasölukerfi landsins, HÚSIÐ 4.0, frá Úrlausn/Aðgengi hf.
Kerfið byggir á því sem skiptir öllu máli í fasteignasölu
.... að muna eftir þér.
5333 444
Milosevic féll í kramið hjá Serbum sem
voru óánægðir með pólítíska tómarúmið sem
myndaðist við fráfall Títós 1980. Hann hélt á
lofti kommúnisma og þjóðernishyggju. Þegar
kommúnisminn hrundi varð Mira örvilnuð.
Hún, sem var skyggn að eigin sögn, hélt því
fram að árið 1987 hefði hún séð fram undan
erfiða tíma og dauða Júgóslaviu.
Slobo var kjörinn forseti 1989.
Tveimur árum seinna hófust átökin
í Júgóslavíu. Slobo var við stjórn-
völinn og Mira stóð að baki honum.
Þrátt fyrir orðróm um ríkidæmi,
sem ekki hefur fengist staðfest
hvernig hefur orðið til, berast Mi-
losevichjónin ekki mikið á. Húsið
þeirra í Tolstojstræti er fremur
óhrjálegt að sjá en innandyra eru
leðurhúsgögn og hvítur marmari.
Þar er þó ekki um neinn íburð að
ræða. Slobo hefur mikla ánægju af
rósagarðinum sínum og góðu viskíi.
ÓSKAUSTINN - ný þjónusta fyrir kaupendur jafnt sem seljendur
• OSKALISTINN - Þú lætur okkur vita hverjar óskir þínar eru og við skráurn þær í kerfið sem vinnur fyrir þig og lætur vita
um leið og rétta eignin kemur í sölu. - Þú skoðar og kaupir. Einfaldara getur það ekki verið og þú sparartíma og fyrirhöfn.
• Viltu skipta?QSKMJSTlNíN leysir málið. Við skráum hvers konar eign sem þú ert að leita að og kerfið lætur vita um leið og
slík eign kemur á sölu.
• Viltu selja? Um leið og þú skráir eign þína hjá okkurfer kerfið í gegnum stóran hóp kaupanda áOSKAUSTAIMWiffl.
Eignin þín gæti selst.
* *
• Ef svo er þá hefur þú samband við okkur því það kostar aðeins 4,05* krónur að láta skrá eignina þína hjá okkur.
• Af hverju er þetta svona ódýrt?
• Jú, þú tekur upp símann og hefur samband við okkur, því við erum nefnilega jafn nálægt þér og síminn.
• Við söluskoðum síðan samdægurs þér að kostnaðarlausu.
• Skráir þú eignina í söluskrána okkar fyrir 11. des. þá færð þú 2 ókeypis auglýsingar.
• Skráir þú eignina þína á óskalistann fyrir 11. des. færð þú 1 ókeypis auglýsingu.
* 1 mínúta innbæjarsímtal á dagtaxta.
Ertim við símann í dag, laugardag, og á morgun sunnudag, frá kl. 11
Opið mánudag - tostudag frá kl. 9 - 18.
14.
ÍVrcur H, S\cin>>on hdl.,lögg. fast.
L.ili.i I'.inarsdörtir tramkvænidast.
©0© £9/ 0000
Snorri G. Steinsson sölustjóri
Haraldur K. Öiason >olutnaöur
AuJur Hcóínsdóttit simavarsia
Eins og Addams-
fjölskyldan
Sagt er að verði Slobo endurkjör-
inn forseti geti hann þakkað börn-
unum sínum það. Þau beita áhrif-
um sínum í útvarpinu og í nætur-
klúbbnum sem þau reka og hefur
þeim tekist að afla mikils stuðnings
hjá ungum sósíalistum landsins.
Mira skrifar það sem henni sýn-
ist í dálki sínum í mánaðarritinu.
Hún ,á í ritdeilum við Dönu Dra-
skovic og kalla þær hvor aðra hálf-
vita, bandíta og fleira í þeim dúr.
„Ég held að hún sé orsök allra
vandamálanna í Serbíu," segir
Dana sem hefur áhyggjur af áhrif-
um Miru á Slobo.
Ungur Serbi, sem ekki vill láta
nafns sín getið, bendir á að Vesturl-
önd líti á Milosevicfjölskylduna
eins og Addamsfjölskylduna: hlægi-
lega, fyndna og sjúka. „En þau eru
miklu verri í raun og veru. Það var
gerviblóð í kringum Addamsfjöl-
skylduna. Það flýtur alvörublóð í
kringum Milosevicfjölskylduna."
Byggt á Mail on Sunday og Herald Tribune