Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Page 44
trimm
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 ■ lV
Mikið álag og
; heilbrigður líkarni
Bókin Ekkert stress - hagnýt-
| ar leiðbeiningar fyrir þá sem
| starfa undir álagi - fjallar um
| það hvernig vei-jast má stressi
og miklu álagi. I inngangi er
reyndar tekið fram að ekki sé
nauðsynlegt að vera stressaður
| til að lesa bókina. „Bókin er
fullt eins skrifuð fyrir fólk sem
| vill beita jákvæðum aðferðum
við að ná tökum á lífi sínu og
| fólk sem vill læra að bregðast
Ivið miklu álagi.
Við kynnum bókina Ekkert
stress hér á síðunni vegna þess
að einn kafli hennar fjallar um
það hvemig hægt er að halda
líkamanum heilbrigðum og
hæfum til að takast á við
streitu. Þar er fjallað um atriði
eins og hvemig maður tekur
eftir líkamlegum einkennum
streitu - hvemig temja megi
sér heilsusamlegt mataræði -
hvemig leggja megi niður
óheilsusamlega siði og hvemig
þjálfa megi upp úthald og lip-
urð.
í bókinni em talin upp nokk-
ur einkenni streitu, eins og
hröð öndun (erfiðleikar við að
ná andanum), þurr munnur og
háls, sveittir lófar, hitatilfmn-
ing, spenntir vöðvar og melt-
ingartruflanir.
Þá segir: „Með hinu líkam-
lega streituviðbragði er líkam-
inn einfaldlega að búa sig und-
ir tafarlausar aðgerðir. Hinar
| mörgu lífeðlisfræðilegu breyt-
ingar gera líkamanum kleift að
| bregðast umsvifalaust við utan-
aðkomandi ógnun.“
En kaflinn um heilbrigðan
Ílíkama og streitu er aðeins einn
af átta köflum bókarinnar þar
sem tekin eru fyrir atriði eins
og skipulag, timastjómun, leið-
| ir til slökunar og fleira.
Ekkert stress er bók sem
stendur undir þeirri ætlan höf-
unda að kynna hagnýtar leið-
beiningar fyrir þá sem starfa
undir álagi.
Ekkert stress. Höf.: Peter E.
Makin og Patricia A. Lindley.
Páll Pálsson þýddi og staðfærði.
Útgefandi er Framtíðarsýn ehf.
Á frummálinu heitir bókin
: Positive Stress Management.
1 ISBN 9979-845-44-9.
Er trimm eitthvað fyrir konur?
- var spurt fyrir sautján árum
Trimmið eða markviss líkamsrækt er svo sem
ekkert nýtt fyrirbæri, þó stundum finnist manni
svo. Við höfum eftir föngum kynnt nýjar bækur
um trimm og líkamsrækt hér á síðunni. Bókin
sem við segjum frá að þessu sinni kom út í Bret-
landi árið 1979, hjá Pan Books. Hún heitir The
Complete Jogger og höfundur er Bruce Tulloh.
Þrátt fyrir að sautján ár séu síðan bókin kom út
er enn hægt að hafa full not af lestri hennar fyr-
ir þá sem skokka sér til heilsubótar og ánægju og
þá ekki síður fyrir hina fjölmörgu sem langar til
að byrja en hafa enn ekki látið verða af því. Efn-
isuppbygging er einföld, þægileg og byggist eink-
um á því að settar er fram spurningar sem síðan
er svarað. Einn kafli bókarinnar fjallar til dæmis
um skokk fyrir konur og þar er efírfarandi spurn-
ingum svarað: - Geta konur gert allt það sem
karlar geta? - Svarið var kannski ekki eins aug-
ljóst árið 1979 og í dag. í bókinni er svarið reynd-
ar já og auk þess er konum bent á ýmis atriði
sem þeim eru fremur i hag en körlum hvað skokk
áhrærir. Rannsóknir og þróun í íþróttum á síð-
ustu árum hafa auk þess leitt í ljós að mismunur
á árangri afreksfólks í íþróttum eftir kynferði
minnkar stöðugt. Þá er spurt hvort konur hafi
gagn af því að skokka. Hvaða áhrif skokk hafi á
útlit kvenna. Hvort konur hafi eitthvert sérstakt
gagn af skokki (þá væntanlega umfram karla) -
Er ráðlegt fyrir þungaðar konur að skokka? Svar-
ið er jákvætt en að sjálfsögðu með ýmsum fyrir-
vörum. - Hve fljótt eftir barnsburð má byrja að
skokka á ný? - Hvaða áhrif hafa mánaðarlegar
blæðingar á skokk og hvemig skal bregðast við?
Síðasta spurning þess kafla bókarinnar sem helg-
aður er konum fjallar um val þeirra á hlaupa-
skóm. Er þá miðað við konur sem almennt hafa
gengið á skóm með háum hælum með tilheyrandi
misþyrmingu fótanna.
Bókin The Complete Jogging hefur þolað
sautján ára aldur harla vel og stendur að því er
best verður séð enn fyrir sínu, enda efni hennar
öfgalaust og framsetning einfóld og létt.
Katy Hafsteins, einkaþjálfari íWorld Class:
Afskrifuð rúmlega tvítug
með ónýta hryggjarliði
- sannur árangur í líkamsrækt kemur innan frá og er aðeins á ábyrgð hvers og eins
„Þegar þeir sem ég er að kenna
gera sér grein fyrir því að þeir bera
einir ábyrgð á eigin líðan og ár-
angri, en hvorki ég sem er að leið-
beina þeim né nokkur annar, þá
finnst mér sigurinn unninn. Þegar
fólk gerir sér grein fyrir að raun-
verulegur árangur líkamsþjálfunar,
hvort sem hún er stunduð í likams-
ræktarstöð eða annars staðar, bygg-
ist ekki aðeins á þriggja mánaða
púli en síðan megi gefa sér lausan
tauminn aftur og taka aftur upp
fyrri lífhætti og ósiði. Heldur bygg-
ist hún á því að breyta lífsháttum
sínum innan frá og varanlega,"
sagði Katy Hafsteins í viðtali við
DV. Um rúmlega ellefu ára skeið
hefur hún stundað einkaþjálfun og
lengst af á Líkamsræktarstöðinni
World Class.
Katy hefur meðal annars lengi
séð um þjálfun flestra þeirra
stúlkna sem tekið hafa þátt í fegurð-
arsamkeppni íslands en sagðist vera
að hætta því enda kannski skiljan-
legt eftir tíu ára starf.
- En er það svipað að þjálfa upp-
rennandi fegurðardrottningar og
aðra?
„Að sumu leyti, nema þjálfun og
uppbygging fyrir slíka keppni
stendur skemur yfir. Kannski má
líta á það starf eins einhvers konar
skúlptúrvinnu. Maður reynir að ná
því besta fram hjá hverjum einstök-
um keppanda, reynir að laga hlut-
föll og byggingu eins og kostur er
hjá hverri og einni. Einkaþjálfunin
byggist hins vegar á lengri tíma og
þar sjáum við auðvitað ekki fyrir
okkur neina keppni, nema þá
keppnina sem lifið sjálft er.“
- En hvað er einkaþjálfun?
„Hér í World Class og á flestum
öðrum líkamsræktarstöðvum skilst
mér líka, eiga allir kost á leiðbein-
ingum sérþjálfaðra leiðbeinenda.
Þeir sem kjósa að leita til einka-
þjálfara fá þó auðvitað markvissari
og fjölbreyttari þjálfun. Þá getur
bæði verið að einn einstaklingur sé
hjá mér eða þá lítill hópur. Við setj-
um okkur markmið í byrjun til að
stefna að og eins og ég sagði áður
legg ég áherslu á að fá nemendur
mína til að skilja að árangurinn og
ábyrgðin á honum liggur hjá þeim
sjálfum. Ég er aðeins leiðbeinandi.
Mest áhersla á öndun
og einbeitingu í byrjun
í byrjun er áherslan mest á önd-
un og einbeitingu og það að fá við-
komandi til að skilja að þessi tvö at-
riði eru m.a. grundvallaratriða sem
leitt geta til hámarksárangurs. Ár-
angur hvers og eins byggist á dýpt
þeirrar einbeitingar sem hann legg-
ur í starfið. Við getum vel sagt að
þetta sé eins og að læra að ganga.
Þegar þú hefur lært það þá kanntu
það alla ævi. Að fara í líkamsrækt
byggist að mörgu leyti á uppgjöf.
Uppgjöf fyrir því að maður finni að
maður vÚl og verður að breyta til.
Maður vill og verður að laga ein-
hverja skekkju í lífinu. Einhverja
skekkju sem maður oftast veit þó
ekki hver er en gerir sér þó grein
fyrir að er fyrir hendi. Ég tel að há-
marksárangur í líkamsrækt sé m.a.
fólginn í því að finna að árangurinn
kemur að innan. Líkamleg uppbygg-
ing fylgir auðvitað en sú andlega
uppbygging sem þessu fylgir er
grundvallaratriði sem fylgir manni
lífið á enda,“ sagði Katy.
- En hvernig stóð á því að Katy
Hafsteins fór að sjálf að stunda lík-
amsrækt?
„Sem barn var ég alltaf mjög virk
og þurfti mikla útrás og var bæði í
handbolta og frjálsum íþróttum.
Tólf ára gömul varð ég fyrir slysi og
afleiðingar þess tóku sig upp þegar
ég var rúmlega tvítug. Þá varð ég
svo slæm í baki að ég gat mig lítið
hreyft og venjuleg heimilisstörf eins
og að ryksuga voru mér ofraun.
í dag amar ekkert
að már
Ég fór í rannsókn hjá beinasér-
fræðingi sem komst að þeirri niður-
stöðu að tveir neðstu hryggjarlið-
imir væru ónýtir og við því væri
ekkert að gera. Ég reyndi að taka
þetta réttum tökum og fór meðal
annars í æfingar hjá lömuðum og
fötluðum. Ég upplifði þetta allt
þannig að skilaboð alls kerfisins til
mín væru þau taka það rólega og
„stimpla" mig meira og minna út úr
lífinu."
„En þannig fór ekki,“ sagði Katy.
„Tengdamóðir mín hafði spurnir af
japönskum nuddara sem sagður var
hafa náð góðum árangri við að
Umsjón
Ólafur Geirsson
hjálpa fólki með „ólæknandi" bak-
veiki. Hún fékk mig til að fara til
hans.
I örstuttu máli þá get ég lýst með-
ferðinni hjá honum þannig að hann
hafi brotið mig niður og síðan hjálp-
að mér við að byggja mig upp aft-
ur,“ sagði Katy.
„í dag amar ekkert að mér. - Ég
veit að ef ég hefði ekki fengið þessa
hjálp væri ég að öllum líkindum al-
gjör öryrki, sem jafnvel gengi að-
eins fyrir sjálfsvorkunn og
verkjapiÚum. í stað þess er ég heil-
brigö og upplifi það að ég ber
ábyrgð á eigin lífi, að svo miklu
leyti sem það er hægt. í starfinu
reyni ég að miðla þessari reynslu
minni ásamt þekkingu sem ég hef
aflað mér til þeirra sem tii mín
leita. En þeir sjálfir - aðeins þeir
stjórna og undir þeim er árangur-
inn kominn - kennarinn leiðbeinir
aðeins.