Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Side 48
56
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
Hátíðarstemning í Hamborg
Ferðir íslendinga til ýmissa stór-
borga í nágrannalöndunum á vik-
unum fyrir stórhátíðarnar hafa
færst mjög í aukana á undanfömum
árum. Straumurinn hefur ef til vill
legið mest til borga á Bretlandseyj-
um, Dublin, Edinborgar, Glasgow,
Newcastle eða Lundúna. Þar ræður
miklu að verðlag er þar hagstætt og
margt að skoða.
Aðrar borgir í Eyrópu njóta
einnig vinsælda hjá íslendingum,
eins og þýska stórborgin Hamborg.
Sagt hefur verið um Þjóðverja að
enginn kunni betur að halda upp á
jólin en þeir. Þeir sem hafa komið
til Hamborgar í desember taka ör-
ugglega undir þá skoðun. Því er
einnig haldið fram að almennt sé
gott að versla í Hamborg því Þjóð-
verjar leggi metnað sinn í að fram-
leiða gæðavörur og þýsk vörumerki
era þekkt um allan heim.
Þjónusta Flugleiða hefur aukist
mjög á þessari leið og yfir vetrar-
tímann er flogið tvisvar á dag til
Hamborgar alla daga vikunnar
nema laugardaga, en þá er flogið
einu sinni. Flogið er frá íslandi
klukkan 9.35 á morgnana og síðari
vélin fer 14.35. Komið er við í Kaup-
mannahöfn. Flugleiðir eru með
samninga við fjölda hótela í Ham-
borg og eru farþegum innan handar
þegar ganga þarf frá gistingu.
@.mfyr:Eplaskífur og eðalvin
Það fylgir því sérstök stemning
að versla í Hamborg á siðustu vik-
unum fyrir jól. Á hverju götuhomi
eru smáveitingastaðir þar sem hægt
er að kaupa mat eða drykk sem er
sérstaklega tengt jólunum. Eplaskíf-
ur, jólapylsur, heitt rauðvín eða
jólaglögg er ómissandi þáttur í jóla-
versluninni hjá íbúum Hamborgar.
Göngugötumar Mönckebergstrasse
og Spitalerstrasse eru með mikið af
þannig verslunum en þær eru
reyndar víðast hvar í verslunar-
hverfum borgarinnar.
Margar götur í Hamborg eru und-
ir þaki og þar þarf ekki að hafa
áhyggjur af snjó eða kulda. Helstu
verslunargötumar í Hamborg era
Jungfemstieg þar sem er að finna
nánast óteljandi verslanir með sér-
vörur. Frá Jungfernstieg liggja
margar yfirbyggðar smærri götur,
eins og til dæmis Grosse Bleichen,
og er þar hægt að finna margar
skemmtilegcU’ gjafavörur frá þekkt-
um vöruframleiðendum. Gatan
Colonnaden er einnig yfirbyggð,
með fjölda smáverslana sem selja
ekki bara nýjar vörur heldur einnig
gamlar. Þar er til dæmis heimsfræg
pípuverslun sem sennilega er með
mesta úrval veraldar af útskornum
pípum.
Tískufataverslanir era á næstu
grösum. Á homi Colonnaden og Fe-
hlandstrasse er skemmtileg verslun
sem heitir því sérkennilega nafni
„Bitch“. Sú verslun sérhæfir sig í
Flugleiðir fljúga tvisvar á dag alla daga vikunnar nema laugardaga til Ham-
borgar í Þýskalandi.
Elstu hlutar Hamborgar eru með skemmtilegum þröngum
strætum þar sem finna má margar skemmtilegar versian-
ir eða veitingastaði.
fríkuðum fötum frá sjötta áratugn-
um og er mjög vinsæl. Fötin úr
þeimi verslun eiga vinsældum að
fagna hjá yngri kynslóðinni. Á
Gánsemarkt er að ftnna margar
tískverslanir fyrir ungt fólk, eins og
Replay Country Store (gallabuxur af
öllum stærðum og gerðum) og Coco
Cigar.
Ef kaupa á finu merkin þá era
merkjaverslanirnar mikið í kring-
um Marriott-hótel borgarinnar í
Neue ABC Strasse. Yves Saint
Laurent, Chan-
el, Joop, Mul-
berry og fleiri
merki er þar
að finna á
betra verði en í
mörgum öðr-
um stórborgum
Evrópu.
Góður
málsverður
Að lokinni jóla-
verslun er upp-
lagt að setjast
niður á góðum
veitingastað,
hvíla lúin bein
og kitla bragð-
laukana. Frá-
bær veitinga-
staður og jafn-
framt frekar
ódýr er Rat-
weinskeller í
kjallaranum
undir ráðhúsi
borgarinnar.
Ef menn hafa
litlar áhyggjur
af peningaút-
gjöldum er
stutt í aðra
dýrari matsölu-
staði sem allir
hafa fengið
gæða vottun
Michelin-hand-
bókarinnar
kunnu.
Þeirra á meðal
eru Cöllns
Austerstuben í
G r o s s e
Backerstrasse,
Marinas og
Prince Freder-
ic Room í Hotel
Abtei. La Mer í Hotel Prem, franski
staðurinn Le Canard og Landhaus
Scherrer era allir úrvals veitinga-
staðir og eru á götunni Elbchaus-
seen.
Annar úrvalsstaður með franska
eldhúsið er L’Auberge Francaise í
stúdentahverfinu og þýskan úrvals-
mat má snæða i Krameramtstuben
við St. Michel-kirkju. Þar í kring
eru margir elstu hlutar Hamborgar
með skemmtilegum söfnum og lista-
galleríum. -ÍS
Listin að pakka létt
Þeir ferðamenn eru til sem fara aldrei með farangur með sér til útlanda.
Eftir að hafa bókað sig inn á hótel eru helstu nauðsynjar einfaldlega keypt-
ar til noktunar á staðnum. En þessi tegund ferðamennsku hlýtur
að teljast til öfga.
Öfgarnar í hina áttina eru þær að fara utan með stútfulla
ferðatösku af gömlum fótum og jafnóðum og fotin eru notuð er
þeim hent og ef ekki er mikið keypt í staðinn er hægt að koma
heim aftur með léttari ferðatösku en lagt var af stað með.
Hvorar tveggja þessara öfga ganga þó út á að minnka óþæg-
indin af því að vera með fyrirferðarmikinn farangur. Fátt er
meira pirrandi en að dröslast langar leiðir með fiöldann allan af
ferðatöskum.
Til þess að auka enn frekar á pirringinn tíökast sá siður í
mörgum löndum að leigubílstjórar eða þjónar vilja fá sérstakt
gjald fyrir að veita aðstoð. Ef oft þarf að nýta þannig aðstoð geta
verulegir fiármunir farið í hana.
og lítinn sjúkrapakka. Ekki má heldur gleyma gengisskráningu gjaldmiðils
þess lands sem dvalið er í.
Víkuskammtur
Brýnar nauðsynjar
Þeir sem era orðnir hundleiðir á því að dragast með fyrirferð-
armikinn farangur ættu að setja sér ákveðnar grandvallarreglur.
Fyrst skal telja ákveðnar nauðsynjar sem ávallt verða að vera
með í fór:
Taka skal með lítinn lás með lyklum svo hægt sé að læsa
hirslum og búa til sína eigin öryggishirslu, sandala sem
þola vætu til nota í sturtu eða við sundlaugina, eitthvað
af tómum plastpokum utan um óhreina tauið eða ann-
að sem til fellur, eins og til dæmis matvæli.
Bréfservíettur, eldspýtur, varasmyrsl og nauðsyn-
legustu snyrtigræjur, en þó engan óþarfa. Regnslá
sem hægt er að grípa til í úrhellisrigningu, vasahníf
(helst með tappatogara og skærum), skordýrafælu,
því skordýrin leynast víða, aukagleraugu eða -linsur
Skynsamur ferðamaður tekur aldrei meira af fötum með sér en notuð eru
á einni viku. Ástæðulaust er að taka með sér 21 par af nærfotum og
sokkum fyrir þriggja vikna ferð. í velflestum löndum heims er hægt að
komast í peningaþvottahús fyrir lítið fé, jafnvel láta þvo á hótelinu
þar sem dvalið er, ef það er ekki of dýrt.
Ef sú þjónusta er of dýr og þvottahús hvergi í nágrenninu er hægt
að þvo fötin í baðinu á hótelinu eða vaskinum og nota sjampó til
þvottanna. Gott er að hafa föt sem krampast lítið eða föt sem láta
ekki mikinn lit við þvott.
Mikilvægt er að nota tösku af réttri stærð undir farangurinn.
Nauðsynlegt er að hún sé gjömýtt svo að menn séu ekki að
ferðast með mikið tómarúm með sér. Gæta skal að því að
óhrein föt taka minna pláss en hrein föt og því myndast oft
pláss í töskunum fyrir hluti sem bætt er við á ferðalaginu.
í neyðartilvikum má kaupa viðbótartösku sem gerir þó
ekki meira en að rúma aðeins það sem bætist við.
Að lokum eitt ráð:
Reynið að hafa handfarangur í flugvélum sem minnst-
an. Fátt fer meira í taugarnar á fólki en samferðamað-
urinn sem er að bögglast við að reyna að troða allt of
stórum „handfarangurstöskum” í farangursgeymslurn-
ar og enda með því að sitja með þær í fanginu við hlið-
ina á - þér! ÍS
Það er kúnst að pakka létt því það fer mikil orka í að
dröslast með mikinn farangur. DV-mynd ÞÖK
41 flugvöllur
Kínversk stjómvöld hafa til-
kynnt að 41 nýr flugvöllur verði
byggður í landinu á næstu 5-15
árum til þess að mæta aukinni
flugumferð. Bylting hefur orðið
í samgöngumálum í landinu á
undanförnum árum og Kínverj-
ar búast við að þjóna 100 millj-
ón farþegum á hverju ári um
aldamótin. Ef áætlanir þeirra
standast eykst flugumferö um
14 af hundraði á hverju ári
fram til aldamóta.
Mannfæð
Aukinn straumur ferða-
manna til Asíu hefur ekki bara
jákvæðar hliðar í för með sér
heldur einnig neikvæðar. Hjá
| velflestum flugfélögum álfunn-
ar stefnir í ófremdarástand
vegna fiölgunarinnar. Fjölgun
starfsfólks í flugþjónustu hefur
engan veginn fylgt auknum
straumi ferðamanna og það hef-
ur komið niður á þjónustu og
flugöryggi. Undanfarin ár hefur
meðalfiölgun flugferða í Asíu-
löndum verið á milli 8 og 9 af
hundraði á hverju ári.
Bændur mótmæla
Það er ekki bara í Frakklandi
sem umferð hefur verið teppt
vegna verkfallsaðgerða. Grískir
bændur lömuðu meira og
minna allt vegakerfi landsins í
liðinni viku til þess að leggja
áherslu á kröfur sínar um
hærra verð fyrir afurðir sínar.
Þeir notuðu dráttarvélar til að
setja upp vegatálma á flestum
aðalvegum landsins.
Væntanleg verkföll
Segja má að skelfingarástand
sé í uppsiglingu I Grikklandi.
Bændur hafa staðið í verkfalls-
aðgerðum og fiöldinn aflur af
starfsstéttum í landinu hóta
verkfallsaðgerðum. Meðal
þeirra eru kennarar, byggingar-
verkamenn, opinberir starfs-
menn, fangaverðir og toll-
heimtumenn.
Vægurvetur
Á sama tíma og íslendingar
upplifa kaldasta nóvembermán-
uð í manna minnum búa
Moskvubúar við óvenjumildan
vetur. Frá því mælingar hófust
i Moskvu fyrir 117 árum hefur
alltaf fest snjó í borginni fyrir 1.
desember en það hefur ekki
gerst í ár. Spáð er áframhald-
andi hlýindum fyrstu vikumar
í desember.
?:íí
Mikil snjókoma
Fjölmargir aðilar í ferðaþjón-
ustu í Ölpunum fagna því mjög
að óvenjumikið hefur snjóað
þar í vetur. Neikvæðu hliðarn-
ar á snjókomunni era hins veg-
ar þær að hætta á snjóflóðum er
mikil og víða hefúr verið lýst
yfir hættuástandi í hlíðum sem
eru meira en 1.400 mefra yfir
sjávarmál.