Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 T>V
föðtal
„Held til Dubai eftir viku"
- Karl Gunnlaugsson í annað skipti í eyðimerkurrallinu
Karl Gunnlaugsson akstursíþróttamaður.
Karl Gunnlaugsson er kappi sem
lengi hefur verið viðloðinn mótor-
sport og þá sérstaklega á mótorhjól-
um. í fyrra keppti hann í einni erf-
iðustu rallkeppni sem þekkist í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um og lenti þar í 29. sæti. I ár ætlar
hann að taka þátt aftur, enda orðinn
sjóaðri um hvað keppnin snýst
núna. DV-Sport og Vísir.is hafa lagt
sig í líma við að fylgjast með ís-
lenskum akstursíþróttamönnum á
erlendri grund og munu fylgjast sér-
staklega með þessari keppni. Meðai
annars mun verða hægt að fylgjast
með keppninni og gengi Kalla á
Vísi.is og skoða þar myndir úr
keppninni sjálfri. Við tókum Karl
tali í tilefni af utanferð hans og
spurðum hann aðeins út keppnisfer-
ilinn og keppnina sjálfa.
- Hvemig byrjaði þetta allt sam-
an?
Upp úr stofnun Sniglanna árið 1984
byijaði ég fljótlega að keppa á mótor-
hjólum. Ég byijaði í kvartmílu og náði
fljótt að beijast um toppsætin og náði
mér í verðlaunasæti af og til.
- Þú varst einu sinni valinn akst-
ursíþróttamaður ársins, fyrir hvað
var þaö?
Það var árið 1991 en ég hafði orðið
íslandsmeistari i kvartmílu árið áður.
Ég var þá búinn að keppa á vélsleða-
mótum yfir veturinn, kvartmílu og
sandspymu yfir sumarið. í byijun
keppnistímabilsins lenti ég í því að
slasast iila á fæti í sandspymu og lá á
spítala í fjórar vikur. Rúmri viku eftir
að ég útskrifaðist af sjúkrahúsinu var
ég svo kominn aftur í keppni sem ég
vann á nýju íslandsmeti. Þessi árang-
ur varð svo til þess að ég var valinn
þetta árið.
- Hvenær byijaðir þú á að keppa
erlendis?
Ég var við nám í Englandi 1988 og
bjó þá rétt hjá Branch Hatch-kappakst-
ursbrautinni. Þar kynntist ég keppnis-
stjóranum á brautinni, James Parker,
og hann var duglegur við að aðstoða
mig og útvegaði fyrir mig keppnisleyfi
og fleira sem ég þurfti og leyfði mér að
prófa. Sumarið 1988 keppti ég í fimm
vikur og einnig sumarið á eftir. Ég
náði reglulega verðlaunasætum í
flokki nýliða bæði
sumrin. Upp úr þessu varð svo til
keppnisliðið „Team Iceland" sem sam-
anstóð af mér sjálfum, Unnari Már og
Steina Tótu. Við fóram fyrst út 1994 en
náðum besta árangri okkar 1995, sem
var annað sæti í Pemprey í Wales yfir
heildina og þá í keppni við atvinnu-
menn. Sú keppni er sex klukkustunda
þolaksturskeppni á malbiki og frægir
kappar eins og Mike Hailwood og fleiri
höfðu unnið áður.
- Hvernig kom þessi keppni í
Dubai tU?
Prins Mohamed er sjálfur rallöku-
maður og ákvað sjálfur að koma á rall-
keppni í heimalandi sínu 1991, þar sem
hann taldi landið henta vel undir „Ail
terrain“-keppni eins og þessa. Fyrsta
árið vom 17 keppendur og vakti
keppnin nokkra athygli, sérstaklega
hjá frændum hans í Dubai sem fengu
bakteríuna og hafa aðstoðað hann við
keppnina síðustu ár. Sem dæmi um
uppgang keppninnar keppa nú í ár 155
tæki, mótorhjól, jeppar og trukkar.
- Þessi prins sem heldur hana
er víst einn af ríkustu mönnum í
heimi, er það ekki?
Hann á víst alveg nóg af pening-
um, enda eru Sameinuðu fursta-
dæmin eitt rikasta land í heimi.
Prinsinn sjálfur á umboð fyrir Phil-
ip Morris og Ford fyrir utan allan
olíuauðinn.
- Þeir eyða miklum tíma og
peningum í þessa keppni, er það
ekki?
Jú, svo mikið er víst. Allt frá byrj-
un var takmarkið að gera þessa
keppni að best skipulögðu mótor-
sportskeppni í heimi 1 þessum flokki
og það hefur tekist siðastliðin þijú ár
í röð. Laðar hún að næstmesta fjölda
keppenda fyrir utan París-Dakar-
keppnina og umbúnaðurinn er alveg
svakalegur. Keppnisstjómin er með
átta stykki Super Puma-þyrlur undir
lækna og tökulið og á eftir keppend-
um koma sex Hummer-bílar frá hern-
um sem eftirfarar. Herinn sér um
mest skipulagið á keppninni sjálffi.
Þeir setja upp tjaldbúðir í eyðimörk-
inni fyrir keppendur sem telja hátt í
1000 manns með aðstoðarliði. í tjald-
borginni eru klósett, þvottaaðstaða,
sundlaug og veitingastaður á stærð
við fótboltavöll, með öllu tilheyrandi.
- Þú kepptir
þarna í fyrra og
lentir í 29. sæti.
Getur þú sagt okk-
ur aðeins frá
keppninni?
Ég renndi nokkuð
blint í sjóinn í fyrra
en haföi samt góða
hugmynd um
hvernig keppnin
væri. Hitinn var þó
erfiðastur í keppn-
inni sjálfri, enda
maður ekki vanur
hátt í 40 stiga hita í
svona erfiðri
keppni. Þá bjargaði
það mér að vera
með tveggja lítra
vatnskút á bakinu
sem ég gat drukkið
úr á ferð. Það var
hins vegar ekki eins
erfitt að keyra í
sandinum og ég
hafði búist við en
samt voru nokkrir
mjög erfíðir kaflar á
leiðinni. Ég fékk
svo matareitrun á þriðja degi,
þannig að ég ætla að passa mig
núna. Ég hélt samt áfram eftir lækn-
isskoðun og náði að klára þá
keppni.
- Þetta er dýrt gaman, er það
ekki? Hvernig lætur þú enda ná
saman í þessu?
Ég er í góðu sambandi við KTM-
verksmiðjumar, sem hafa útvegað
mér keppnishjól, KTM 660 Rallye
SP. Þeir hafa einnig séð um að
koma öllum málum á hreint þarna
úti. I ár hafa svo komið inn í þetta
ýmis fyrirtæki til aðstoðar.
- Að lokum, hvar seturðu
markið í ár?
í fyrra var ég með rásnúmer 37 og
lenti í 29. sæti. Ég fékk rásnúmer 26
núna og ef ég held því verð ég
ánægður en maður er að etja kappi
við menn eins og heimsmeistara í
endúró og motorkrossi, auk sigur-
vegara úr París-Dakar-keppnunum.
Einnig eru þarna margir lands-
meistarar en maður reynir bara að
gera sitt besta og eitt er víst að mað-
ur er betur undirbúinn undir
keppnina heldur en í fyrra. -NG
%am breytingar
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í Ijós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi á
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
1. verðlaun:
United-sími með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir veröa sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 538
c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 538
Við ætlum að gefa honum flugvél f jólagjöf.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir getraun
númer 536 eru:
1. verðlaun: Aðalsteinn Einarsson, Fjarðargötu 40,470,
Þingeyri.
2. verðlaun: Jón Ragnar Jónsson, Grandavegi 45.
Reykjavík.
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Rainbow Six.
2. Danielle Steel: The Klone and I.
3. Dick Francls: Field of Thirteen.
4. Ruth Rendell: A Sight for Sore
Eyes.
5. Sebastian Faulks: Charlotte Grey.
6. James Patterson: When the Wind
Biows.
7. Elvi Rhodes: Spring Music.
8. Charlotte Bingham: The Kissing
Garden.
9. Nlcholas Evans: The Loop.
10. Jane Green: Mr Maybe.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of Devonshire.
2. Chris Stewart: Driving over
Lemons.
3. Tony Adams o.fl.: Addicted.
4. Anthony Beevor: Stalingrad.
5. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
6. Bill Bryson: Notes from a Small
Island.
7. John Gray: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
8. Richard Branson: Losing My
Virginity.
9. Slmon Wlnchester: The Surgeon
of Crowthorne.
10. Tony Hawks: Around Ireland with
a Fridge.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Dlck Francls: Second Wind.
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Danlelle Steel: Granny Dan.
4. Roddy Doyle^A Star Called Henry.
5. Penny Vincenzl: Almost a Crime.
6. Ruth Rendell: Harm Done.
7. laln Banks: The Business.
8. Jlll Cooper: Score!
9. Kathy Reichs: Death Du Jour.
10. Ellzabeth George: In Pursuit of
the Proper Sinner.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Alex Ferguson: Managing My Life.
2. John Humphrys: Devil's Advocate.
3. Simon Slngh: The Code Book.
4. Bob Howitt: Graham Henry;
Supercoach.
5. Brlan Keenan o.fl.: Between
Extremes.
6. Lenny McLean: The Guv'nor.
( Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anlta Shreve: The Pilot's Wife.
2. Tom Clancy: Rainbow Six.
3. Penelope Fltzgerald: The Blue
Rower.
4. Arthur Golden: Memoirs of a
Geisha.
5 Judy Blume: Summer Sisters.
6. Patricia Cornwell: Point of Origin.
7. Rebecca Wells: Divine Secrets of
the Ya-Ya Sisterhood.
8. Margaret Truman: Murder at
Watergate.
9. Sldney Sheldon: Tell Me Your
Dreams.
10. Taml Hoag: Still Waters.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Robert C. Atkins: Dr. Atkins’ New
Diet Revolution.
2. Frank McCourt: Angela's Ashes.
3. John Berendt: Midnight in the
Garden of Good and Evii.
4. Mlchael R. Eades o.fl.: Protein
Power.
5. John E. Sarno: Healing Back Pain.
6. Jared Diamond: Guns, Germs and
Steel.
7. Sebastian Junger: The Perfect
Storm.
8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves
9. William L. Ury: Getting Past No.
10. Gary Zukav: The Seat of the
Soul.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patricla Cornwell: Bláck Notice
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Mellssa Bank: The Girl’s Guide to
Hunting and Fishing
4. Jeffery Deaver: The Devil’s
Teardrop.
5. Tim F. LaHaye: Assasins.
6. Catherine Coulter: The Edge.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Suzanne Somers: Suzanne
Somers’Get Skinny on Fabulous
Food.
2. Mitch Albom: Tuesdays with
Morrie.
3. Christopher Andersen: Bill and
Hillary: The Marriage
4. Bill Philips: Body for Life.
5. H. Lelghton Steward o.fl: Sugar
Busters.
6. Sally Bedell Smlth: Diana, In
Search of Herself.
( Byggt á The Washington Post)