Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 40
40 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 jnærmynd Sr. Gunnar Björnsson í Holti viö Önundar- ýjörð er ekhi lengur starfandi sóknarprestur í Holtsprestakalli. Þetta var kunngjört síödegis á fimmtu- dag meö tilkynningu frá Biskupsstofu. í tilkynning- unni kom fram aö sr. Gunn- ari er veitt þriggja mánaöa leyfi frá prestsstörfum og sett- ur í embœtti sérþjónustu- prests. Gunnar mun í því embœtti sinna kirkjulegum verkefnum samkvæmt nánari ákvöröun biskups. Sr. Gunn- ar mun áfram sitja prests- setriö í Holti en prestsþjón- usta í prestakallinu veröur nú á ábyrgö sr. Agnesar Sig- uröardóttur, prófasts ísa- fjarðarprófastsdœmis. Varpa öndinni láttar Þegar þessi tíðindi spurðust út vörpuðu margir Önfirðingar önd- inni léttar, enda hafa deilur sókna í Holti og á Flateyri við sr. Gunn- ar legið eins og mara yíír byggðar- laginu undanfarin misseri. Keyrði þó um þverbak eftir að opinber Flateyrarkirkja. Nýr prestur mun sinna og séra Gunnar er læstur úti. laus) margt hvert." — „Árni og kona hans hafa að aukavinnu á böllum að leika fyrir dansi, þó hvorugt hafi lært músík. Þykjast þau, að sveitungum finnst, nokkuð merkileg af þessu og vilja láta „heilsa sér á gatnamótum", að því er gárungarnir segja.“ — „Mér virðist einkum ein fjöl- skylda, sem stendur upphaflega fyrir þeim róstum, sem nú hafa látið á sér kræla. Það eru 3 böm míns góða meðhjálpara, Magnúsar Guðmundssonar í Tröð (bróður Gils Guðmundssonar, fyrrum al- þingismanns) og tengdaböm hans. Kona hans er af góðu fólki í Mý- vatnssveit, en mun löngum hafa leiðst hér í fjallaþröng hins vest- firska skammdegis, og enda átt við geðrænan vanda að stríða. Sjálfur hefur Magnús reyndar lagst á sjúkrahús vegna þunglyndis.“ Margt fleira lætur sr. Gunnar frá sér fara i riti sinu sem vakið hefur óskipta athygli um land allt. Ámi Brynjólfsson, tittnefndur í riti sr. Gunnars, segir fólk eigin- lega ekki hafa vitað í fyrstu hvort það ætti að gráta eða hlæja yfir orðum Gunnars. Svívirðingarnar og dónaskapurinn sé þó með svo miklum ólikindum að það segi meira en ailt annað um hugsana- ganginn hjá sr. Gunnari. Hann segir þó að eitt gott hafi komið út úr þessu, en það er að búið sé að sjá fyrir öllu skemmtiefni á næsta þorrablóti í sveitinni. guðsþjónustu þar á næstu mánuðum Gunnar á líka vini Þó þeir séu orðnir æði margir, íbúar Önundarfjarðar, sem vilja ekkert með séra Gunnar hafa þá eru enn margir, sérstaklega á Flat- eyri, sem segjast ekkert hafa út á hann að setja. Eitt sóknarbarna sr. Gunnars á Flateyri tjáði blaða- manni DV aö ástandið væri alls ekki Gunnari að kenna. Það hefði hreinlega verið gerð aðför að hon- um og á sóknarnefndarfund á dög- unum hafi greinilega verið smalað andstæðingum sr. Gunnars. Málið snúist ekki síður um valdabaráttu á Flateyri þar sem helstu frum- kvöðlar í atvinnulífi staðarins til margra ára hafi beitt áhrifum sín- um til að losna við séra Gunnar. Fleiri fylgjendur Holtsklerks taka í sama streng og Þórður Jónsson í Vagninum segir að presturinn sé nú ekki verr liðinn en það að hon- um sé treyst til að gegna embætti umdæmisstjóra Lionshreyfingar- innar á Vestfjörðum. Flestir fylgj- endur sr. Gunnars viðurkenna þó að vandamál hafi verið í samskipt- um við prestshjónin. Það sé þó ekki vegna sr. Gunnars heldur eig- inkonunnar, frú Ágústu. Hún er sögð stjórnsöm í meira lagi og sér- lega óvarkár í orðavali um sveit- unga sína. Kransinum hent Margar sögur hafa líka komist á kreik, sumar sannar og aðrar logn- ar. Ein nýleg saga hefur þó ekki komist á prent fyrr en nú, sem þó er ósönnuð, en gjaldkeri sóknarnefnd- arinnar á Flateyri, Guðmundur Björgvinsson, segir 99,99% líkur á að séra Gunnar eigi þar hlut að máli. Málsatvik voru þau að þriðju- daginn 26. október hugðust Flateyr- ingar og aðstandendur þeirra er fór- ust i snjóflóðinu mikla á Flateyri þann sama dag 1995 halda kyrrðar- stund við minningarstein um þá látnu skammt frá kirkjunni. Var keyptur mikill og fagur krans sem leggja átti við steininn af þessu til- efni. Vegna leiðinlegs veðurs var ákveðið að fresta því að leggja kransinn við steininn en þess í stað var honum komið fyrir á statifl fyr- ir framan gráturnar í kirkjunni. „Þegar ég kom í kirkjuna ásamt öðrum á laugardeginum til að huga að kransinum var hann horfmn af þeim stað sem við skildum við hann. Þegar betur var að gáð fannst kransinn sem troðið hafði verið í svartan ruslapoka og honum hent inn í geymslu eins og hverju öðru rusli. Mönnum féllust hendur yflr þessum verknaði." Guðmundur segir að kransinn hafi veriö á sínum stað um miðjan dag á föstudeginum en hann hafi séð til séra Gunnars í kirkjunni nokkru síðar. Guðmundur viður- kennir að engin rannsókn hafl farið - situr enn sem fastast í Holti og sinnir sárþjónustu varð greinargerð séra Gunnars um meint deilumál sem hann sendi prófasti til kynningar prest- um á svæðinu. Þar lýsir séra Gunnar þeim sem átt hafa í úti- stöðum við hann af mikílli ná- kvæmni, bæði i andlegu og líkam- legu tilliti. ! varnarriti sr. Gunn- ars, sem hann kallar „memorand- um“, er m.a. að finna þessi um- mæli um sóknarbömin: „Stundum hefur mér þótt íbú- amir minna á Amish-fólkið i Bandaríkjunum. Þetta er harðdug- legt bændafólk (Ámi Brynjólfsson á Vöðlum reyndar pasturslítill, óduglegur til vinnu og hálfheilsu- Forseti Islands og Margrét Danadrottning eru meöal þeirra sem heimsótt hafa prestshjónin í Holti í Önundarfiröi. DV-mynd GVA fram á þessu máli og enginn verið sakfeOdur en erindi um málið hafi veriö sent biskupi. Líkumar bendi samt eindregið á klerkinn í Holti. Ástæðu þess að prófasturinn, sr. Agnes Sigurðardóttir, var fenginn til að halda þessa kyrrðarstund seg- ir Guðmundur vera þá að sr. Gunn- ar hafi ekki ansað erindum og ekki látið ná í sig. Heimsóknir bannaðar DV hefur einnig itrekað reynt að ná sambandi við sr. Gunnar í því augnamiði að gefa honum tækifæri til að koma skoðunum sínum á frcunfæri en sjaldnast hef- ur verið svarað í símann í Holti. Þegar svarað hefur verið hefur sr. Gunnar þvertekið fyrir að eiga orðastað við blaðamann eða að láta neitt eftir sér hafa. Þá lagði hann blátt bann við að blaðamað- ur heimsækti hann að Holti síð- astliðinn miðvikudag. Þó sr. Gunnar Bjömsson hafi nú verið settur í nýtt embætti, og þar með vikið úr embætti sóknar- prests, þá er framtíð hans enn óráðin. Hann hefur æviráðningu sem prestur og skipun biskups er aðeins til þriggja mánaða. Um ára- mótin á kæmnefnd að ljúka sínu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.