Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Side 46
*54
karkafíi
-
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 DV
- DV gluggar í bókina sem var skrifuð í óleyfi um umdeildasta mann íslands
>
í nýútkominni bók Guðna Jó-
hannessonar sagnfræðings um Kára
Stefánsson og íslenska erfðagrein-
ingu kemur margt fróðlegt fram um
umdeildasta mann íslands sem gæti
orðið landsins ríkasti maður ef
draumar hans um skráningu ÍE á
amerískum hlutafjármarkaði ná að
rætast.
Sennilega er Kári Stefánsson
skýrastur í vitund þjóðarinnar þeg-
ar skrifað var undir risasamning ís-
lenskrar erfðagreiningar við sviss-
neska lyfjarisann Hoífmann-
LaRoche. Athöfnin fór fram í
Perlunni mánudaginn 2. febrúar
1998. Kári mundaði pennann fyrir
hönd ÍE en Jonathan Knowles fyrir
Hoffmann-LaRoche. Milli þeirra sat
Davíð Oddsson forsætisráðherra. í
baksýn stóð brosmildur hópur
starfsfólks íslenskrar erfðagreining-
ar og blossar fréttaljósmyndaranna
skullu á þeim eins og stjörnuhrap.
Það sem Davíö lagði til málanna fyr-
ir utan það að vera nokkurs konar
siðameistari þessarar hátíðlegu at-
hafnar, var að hann lofaði að ríkis-
stjórn íslands myndi gera allt sem í
hennar valdi stæði til þess að hjálpa
Islenskri erfðagreiningu og
Hoffman-LaRoche að ná markmið-
um sinum.
Kári og Davíð plötuðu
þegnana
Þeir Davíð og Kári voru saman í
Menntaskólanum í Reykjavík seint
á sjöunda áratugnum og mynduðust
talsverð tengsl milli þeirra. Kári
var þá i fylkingarbrjósti þeirra stúd-
enta sem þóttu hvað róttækastir og
það má segja að hann og Davíð hafi
blekkt þegna sína þegar Davíð bauð
sig fram til embættis inspector
scholae, forseta Framtíðarinnar fyr-
ir hönd „kommaklíkunnar". Þeirri
klíku stýrði Kári og var framboðinu
var stefnt gegn ættarveldi „yfirstétt-
arinnar" í Framtíðinni en mótfram-
bjóðandi var Þorvaldur Gylfason
Gíslasonar og mátti hann lúta í gras
gegn Kára og Davíð. Kári hefur síð-
ar lýst eftirleiknum svo að Davíð
hafi varpað sauðargærunni líkt og
Castró og ekki reynst vera sá
Kári Stefánsson, stofnandi Is-
lenskrar erfðagreiningar, er einn
umdeildasti maöur sinnar sam-
tíöar. Nú er komin út bók um
hann og fyrirtækið sem er rituö
óþökk hans.
vinstri róttæklingur sem hann
lést vera í kosningabaráttu.
Kári lék keisarann
Leiðir þeirra félaga skárust
einnig í víðfrægri sýningu
Herranætur veturinn 1968-69 þar
sem Davíð lék Bubba kóng í
samnefndu leikriti. Þetta hefur
oft verið rifjað upp þegar menn
hafa viljað draga líkingu milli
konungshlutverks Davíðs í
menntaskóla og leiðtogahlut-
verks hans í lifinu. Það vita
færri að Kári Stefánsson lék
einnig í Bubba kóngi og fór þar
með hlutverk Rússakeisara sem
að lokum svipti Bubba kóng
veldissprotanum. Kári fékk þann
dóm fyrir túlkun sína á einvald-
inum að hann væri „afkáralegur
en ofurhlýlegur."
Þannig er greinilega margt
likt með þeim félögum Davíð og
Kára og þegar þeir sátu í Kringl-
unni hlýtur þeim að hafa verið
hugsað til þeirra gömlu góðu
daga þegar þeir deildu og drottn-
uðu í Menntaskólanum í Reykja-
vík.
Bækur í leyfisleysi
umbáða
Það er enn eitt sem Kári og Dav-
íð eiga sameiginlegt og eru einu ís-
lendingarnir sem geta hreykt sér af
því. Um þá báða hefur verið skrifuð
bók eða ævisaga án þeirrar sam-
vinnu eða samþykkis. Davíð varð
talsvert á undan þegar Eiríkur
Jónsson blaðamaður reit ævisögu
hans í leyfisleysi árið 1989. Sú bók
sem hér er vitnað til um Kára eftir
Guðna Jóhannesson sagnfræðing er
10 árum seinna á ferðinni.
í bókinni Kári í jötunmóð er gerð
dálítil tilraun til að komast undir
skrápinn á persónunni Kára Stef-
ánssyni og vitnað til ýmissa skólafé-
laga hans. Af því má ráða að Kári
hafi verið stríðinn svo jaðrar við ill-
kvittni og uppivöðslusamur í skóla,
frekur
Hálfgerð idjót
í læknadeild
Kári situr á milli Davíös Oddssonar forsætisráðherra og fulltrúa svissneska lyfja-
fyrirtækisins Hoffman-La Roche þegar samstarfssamningur ÍE og Hoffman var
undirritaöur í Perlunni. Kári og Davíö brölluöu margt saman í MR.
fylginn sér og hrokafullur. Hann
þótti og þykir skemmtilegur sögu-
maður, „hæfilega lyginn, kann að
fylla í eyðumar“, gæddur talsverðri
sköpunargáfu sem hefur birst í ljóð-
um, lausavísum og drögum að
skáldsögu.
Jú, endilega læknir
Kári Stefánsson varð stúdent vor-
ið 1970 og hefur ítrekað sagt söguna
af því að hugur hans hafi alls ekki
staðið til þess að læra læknisfræði.
Skráning hans í læknadeild varð
með þeim hætti að hann sat með
Stefáni Karlssyni, vini sínum, að
sumbli og entist samdrykkja þeirra
fram undir morgun. Stefán sagði
Kára að hann færi í bítið upp í Há-
skóla til að skrá sig í læknadeild.
- Kemur þú ekki með?
- Jú, endilega, svaraði Kári og ör-
lög hans voru ráðin.
Kári klári berst við
læknadeildina
Kári átti eftir að kalla veruna í
læknadeild myrkasta tímabil ævi
sinnar. „Próf eru uppfinning and-
skotans," hefur hann sagt. Þegar
líða tók á námið lenti Kári í um-
talsverðum útistöð-
um við kennara
sína, fyrst við
Margréti
Guðnadótt-
ur. Þar
mættust
stálin
stinn þegar Kári vildi fá undanþágu
til þess að taka próf hjá Margréti
þótt hann hefði ekki lokið tilskyld-
um verklegum áfanga. Deilur þess-
ar fóru um borð félags læknanema
og alla leið til Háskólaráðs. Að lok-
um fékk Kári vilja sinum framgengt
og tók sérpróf á Þorláksmessu en
Margrét vék sér undan því að prófa
hann sjálf. Þetta mun hafa verið í
eina skiptið á 40 ára ferli Margrétar
sem hún lenti í slíkum kröggum
með nemanda.
Aftur lék Kári sama leikinn í lok
námsins þegar hann mætti ekki í
verklegan áfanga en vildi fá að taka
próf engu að síður. Hann dúxaði
með því að fá 8,5 en fékk i kaupbæti
talsverðar óvinsældir skólafélaga
sinna sem mislíkaði sérstaða hans
og sérviska. Þarna staðfesti Kári
hve harður námsmaður hann er
enda gæddur „storkandi gáfum“
eins og Jóhann Axelsson, læknir
hefur sagt. Gáfur draga fram hroka
í fari sumra enda var Kári stundum
auknefndur „klári“ í sérstökum tón
í menntaskóla.
Kári hefur síðar sagt að læri-
meistarar hans í læknadeild hafi
verið vonlausir í besta falli „hálf-
gerð idjót“. Svo virðist sem þarna
hafi Kári sýnt sínar verstu hliðar og
lagt á þessum námsárum grunninn
að andstöðu læknastéttarinnar við
siðari tíma áformum hans um
gagnagrunn og framfarir. Margir
þeirra sem fara mest gegn íslenskri
erfðagreiningu voru samtíða höfuð-
paurnum í skóla og hafa engu
gleymt.
Síðustu og mikilvægustu undan-
þáguna fékk Kári síðan eftir loka-
próf þegar hann fékk að sleppa við
héraðsþjónustuna sem hefur verið
og er ómissandi þáttur í menntun
ungra lækna á íslandi þótt það sé
fremur óvinsælt. Þessa undanþágu
veitti landlæknir 1977 til þess að
Kári kæmist í tæka tíð til náms í
Bandaríkjunum en gegn loforði um
að Kári lyki héraðsþjónustu þegar
að loknu sémámi. Þessir svardagar
voru undirritaðir í votta viðurvist
og það eina sem Kári á eftir er að
standa við loforðið.
Þangað leitar Kári sem
hann er kvaldastur...
Kári átti glæstan feril við nám og
störf í Bandarikjunum bæði í Chicago
og Harvard. Hann lærði, kenndi,
stjórnaði rannsóknum og ritaði i virt
tímarit eins og Nature, Science og
Lancet svo nokkur séu nefnd. Þrátt
fyrir alla velgengnina sótti heimþrá á
hann og aðra fjölskyldumeðlimi og
hann leitaði stöðugt eftir því að kom-
ast í eitthvert það starf hér heima sem
hann gæti sætt sig við og nýtt hæfi-
leika sína. Hann hefur sjálfur lýst
þessu svo:
„...við pössum langbest inn í um-
hverfi þessa kalda, harða og blauta
kletts sem heitir ísland - þrátt fyrir að
hér virðist fólk ekki gera neitt annað
sér til skemmtunar en að kasta skít
hvert í annað.“
Stríðið heldur áfram
Tilraunir Kára til þess að komast
heim áður en hann kom til þess að
stofna íslenska erfðagreiningu ein-
kennast af tveimur tilraunum sem
hvorug varð til þess að afla honum
mikilla vinsælda meðal starfs-
bræðra sinna.
Fyrra tilvikið var þegar Kári
vildi 1983 fá sérfræðileyfi á íslandi í
taugalækningum með taugameina-
fræði sem undirgrein. Læknadeild
HÍ kom í veg fyrir að hann fengi
leyfi fyrir taugameinafræðinni. Það
tók Kára eitt og hálft ár með sam-
felldum bréfaskriftum og brigslum
og verndun fúskara og hefnigimi að
fá leyfið loksins í gegn. í þessu máli
endurspeglaðist sú keppnisharka
sem gerir allt sem Kári tekur sér
fyrir hendur að baráttu upp á líf og
dauða. Þetta er maður sem hrindir
taflborði í gólfiö ef hann er með
glataða stöðu frekar en að tefla til
enda.
Síðara tilvikið var þegar Kári var
árið 1993 ráðinn sem forstöðumaður
Tilraunastöðvar HÍ á Keldum en
Kári var kominn til Harvard þeg-
ar þetta gerðist og sá böggull
fylgdi skammrifi að hann vildi
halda starfi sínu við Harvard
áfram jafnframt því að reisa
Keldur úr rústum. Svo virtist