Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 50
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 "58 I Engin ástæða til að sökkva Eyjabökkum ókeypis -13 milljarða tap af væntanlegri virkjun. Eyjabakkar metnir einskis virði í útreikningum Halldór Laxness sagði einhvers staðar aó íslend- ingar vœru þrœtugjarnir en mest gefnir fyrir orö- hengilshátt og tittlingaskít og þegar einhver legði raunveruleg rök til mál- anna setti menn hljóða og þeir fœru hjá sér. Hagfrœðingar hafa reiknað út hvað eftir ann- v að að sýnt sé að tap verði af Fijótsdalsvirkjun en þaó virðast fáir vilja taka mark á málflutningi af því tagi. „Ég vil nýta náttúruna þegar það er skynsamlegt. Ég lagði ekki mat á verðmæti Eyjabakka í útreikning- um mínum því ég kann það ekki. Ég geri mér ekki grein fyrir þvi hve mikils virði þeir eru en það er eng- >in ástæða til að sökkva þeim ókeyp- is - hvað þá að borgað sé með þeim eins og mér sýnist allt stefna I núna.“ Þannig farast Sigurði Jóhann- essyni hagfræðingi orð þegar DV vildi fræðast nánar um afstöðu hans til væntanlegrar Fljótsdalsvirkjun- . ar. : Sigurður er 38 ára gamall hag- fræðingur, sonur Jóhannesar Zoega fyrrverandi hitaveitustjóra í Reykjavík og Guðrúnar Benedikts- dóttur konu hans. Hann lærði hag- fræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk prófi þaðan 1987. Hann var m.a. ritstjóri Vísbendingar um hríð en hélt síðan utan tii doktorsnáms við Kent State University í Banda- ríkjunum og er að ljúka doktorsrit- gerð sinni um þessar mundir. 13-11 milljarðatap Sigurður skrifaði grein í tímarit- ið Frjálsa verslun fyrir skömmu þar sem hann reiknaði út arðsemi vænt- anlegrar Fljótsdalsvirkjunar. Sigurður komst, í sem skemmstu máli, að þeirri niðurstöðu að miðað við þann stofnkostnað sem Lands- virkjun áætlar og miðað við það verð sem rafmagn er nú selt á til stóriðju verði 13 milljarða tap af byggingu virkjunarinnar. í forsendum hans er miðað við að rafmagn verði selt á 88 aura hver kílówattstund sem er það meðalverð sem stóriðja greiddi í fyrra. í grein sinni í Frjálsri verslun segir Sigurð- ur m.a. Mikil áhætta tekin „Aðaláiitaefnið er hvaða ávöxtun- arkröfu eigi að nota. Opinberar framkvæmdir í Bretlandi hafa verið núvirtar með 6% ávöxtunarkröfu en Alþjóðabankinn gerði lengi kröfu um 7% arð til framkvæmda sem hann lánaði til. Einnig sést stund- Sigurður Jóhannesson hagfræðing- ur hefur reiknað út aö 13 milljarða tap verði af byggingu Fljótsdals- virkjunar. Hann segist viija nýta náttúruna þegar það er skynsam- legt. um 5% ávöxtunarkrafa. Krafan er vegið meðaltal af vöxtum af lánum sem í boði eru og óskum um ávöxt- un eigin fjár. Óvissa um rafmagns- sölu á seinni endingarárum Fljóts- dalsvirkjunar sem lesa má úr yfir- lýsingum iðnaðarráðherra, ýtir ávöxtunarkröfunni upp á við. Engin ástæða er til að gera lítið úr þessari óvissu. Minna má á að árið 1991 var Blönduvirkjun fullbúin en enginn vissi hvað átti aö gera við hana. Þá má nefna að Landsvirkjun tekur á sig töluverða áhættu með því að láta orkuverð sveiflast með verði á áli. Ef ríki og sveitarfélög taka ábyrgð á lánum fyrirtækisins verð- ur að bæta við kostnaði af því. Hér er gert ráð fyrir að stofn- kostnaður Fljótsdalsvirkjunar, spennistöðva, lína og annars sem henni fylgir sé 25 milljarðar króna. í tölunni eru vextir á virkjunar- tíma. Hins vegar eru ekki taldir með 3 milljarðar sem þegar hafa far- ið í rannsóknir og annan undirbún- ing. Þar sem búið er að eyða þessum peningum hafa þeir ekki áhrif á það hvort virkjað verður. Landsvirkjun telur rekstrar- kostnað 0,7% af stofnkostnaði vatns- aflsvirkjana á ári en hærra hlutfall af línum og öðrum búnaði. í dæm- unum hér á eftir er rekstr- arkostnaður 0,8% af heildarfjárfest- ingunni. Landsvirkjun afskrifar stíflur, veitur og önnur mannvirki á 60 árum en vélbúnað og spenni- stöðvar á 30 árum. Orkugeta Fljóts- dalsvirkjunar er 1.250 GWst. á ári. Útkoman er að 10 milljarða tap verði af fjárfestingunni, um 240 þús- und krónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu í Reykjavík (að ótöldum 3 milljörðum sem þegar hefur verið varið í undirbúnings- kostnað). Rafmagnsverð til stóriðju þyrfti að hækka um tæp 60% frá meðalverði ársins 1998 ef virkjunin á að bera sig. Orkuverðið yrði þá 140 aurar á kwst. Ef undirbúnings- kostnaður er talinn með fer .tapið í 13 milljarða. Orkuverð þarf að fara yfir 150 aura á kwst. til þess að fá inn fyrir honum lika.“ 1 þessum útreikningum Sigurðar hefur iðnaðarráðherra gagnrýnt að hann gefi sér að orkugeta Fljótsdals- virkjunar sé 1.250 GWst. sem sé of lítið. Hið rétta sé 1.400 GWst. Um þetta segir Sigurður: „Það er ekki rétt að ég gefi mér þessa forsendu. Töluna fékk ég frá Landsvirkjun eins og reyndar allar upplýsingar sem ég byggi útreikn- inga mína á fyrir utan vextina. Finnur Ingólfsson og Jón Krist- jánsson tönnlast á því að „hagfræð- ingar“ gefi sér allar forsendur og velji þær sem koma illa út fyrir virkjunina. Þetta er alvarleg ásökun en alröng. Það sem gerðist er að Landsvirkjun breytti mati sínu í 1.400 GWst. Ég hef ekkert vit á virkj- anaverkfræði og þetta er áreiðan- lega rétt hjá þeim. Ef ég breyti mínum útreikningum 240 þúsund á fjögurra manna fjölskyldu Virkjunin kostar 25 milljarða Fékk allar tölur frá Landsvirkjun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.