Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Side 52
60 SÝÍðsljÓS________________
Pamela Anderson oq Tommy Lee
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
Eldast óvirðulega
Það berast stöðugt hinar kátlegustu fréttir af
gáfnaljósunum Pamelu Anderson og Tommy Lee
og þeirra hjónabandi sem allur heimurinn fylgist
með sundur og saman. í nýlegu viðtali segir
strandvarðagellan frá því að nú hafi þau loksins
róast niður og komið einhverju skipulagi á líf sitt.
— „Ég veit að það er rétt ákvörðun hjá mér að vera
áfram með honum,“ segir Pammy litla, „en samt
hef ég það á tilfinningunni að ég þurfi að láta
hendur standa fram úr errnurn." Hún viðurkenn-
ir aö hún sjái þau Tommy fyrir sér eldast saman.
„Ég verð öll hrukkótt i ruggustól með húðflúrið
lekandi niður eftir ökklunum. Þannig sé ég okkur
Tommy fyrir mér. Gömul, tannlaus á bekk með
húðflúrið og allt draslið, enn haldandi að það sé
eitthvað varið í okkur.“
Jæja, þau hafa þá eitthvað til að hlakka til.
Pamela Anderson.
56
mmmmllmttm
Tveir upplýslii
Jólavetnn og snjókarl,
tilbúnir í útiveru.
■
IIIPSI*
Inniljósascría
35 jólaljós
198 kr.
2.450 kr.
Upplýslar garð
jólasveinn
70 sm hár.
3,750 kr.
Sogskalar
fyrir Ijósaseríur
í glugga 20 stk.
195 kr.
Utiljósasería
80 jólaljós og straumbreytir.
980 kr.
Grenibunt 500g
245 kr.
/cr&iK. ■ *
...
I
Grenilengjur 288 sm
395 kr.
Fallegir
blómvendir
frá 495 kír.
REYKJAVIK
STEKKJARBAKKA 6 • R]
mISSlr SÍMI 540 3300
Skemmtilegt jólaskraurfgarðinn.
Lýsandi jólasveinn, snjókarl og 2 jólatré.
4.590 kr.
í Garðheimum,
stœrstu verslunar-
miðstöð á landinu með
garðyrkju-og gjafavörur
gefur að líta fjölbreytt úrval
af afskornum blómum, pottablómum, íslensku
handverki og allt til að gera fallega og
óvenjulega jólastemningu á heimilinu
og í garðinum. Og nú höfum við opnað
jólatrjáaskóginn. Velkomin í GARÐHEIMA.
Opið:
Mánud. til laugard.
kl. 9-21
Sunnudaga
kl. 10-21
Nóg að gera
Keanu Reeves
hefur nú verið
valinn til að leika
aðalhlutverkið í
kvikmyndinni
„Fishing for
Moonlight" sem
fjallar mn verð-
bréfasala sem
bjargar ungri stúlku úr hórukassa
og lendir með því upp á kant við
rússnesku mafíuna. Keanu hlýtur
að vera nokkuð spenntur fyrir hlut-
verkinu vegna þess að hann þarf að
troða upptöku á henni með skó-
horni á milli upptöku á Matrix 2 og
Matrix 3.
Það byrjar gæfulega
Það mætti halda
að nú væri Jerry
Seinfeld geislandi
af lukku, nýtrúlof-
aður maðurinn.
En því miður var
nú bónorðið ekki
eins rómantiskt og
menn kynnu að
halda. Heimildir segja að Seinfeld hafi
ekki dottið i hug að bera upp bónorð
fyrr en eftir að hann og vinkonan,
Jessica Sklar, hefðu lent í alimikilfeng-
legu rifrildi og hún virðist hafa sagt
honum að eta það sem úti frýs. Bónorð
var eina leiðin fyrir Seinfeld til að ná
henni aftur og nú er undirbúningur
fyrir brúðkaupið í fúllum gangi.
Einkennileg stúlka að taka manni
sem hefúr sýnt af sér slíka framkomu
að hún hefur shtið sambandinu.
Kannski hún haldi að hann verði eitt-
hvað skárri þegar hann verður kom-
inn í hjónabandið.
Elle Macpherson.
Hvílíkir vinir
Framleiðendur Friends-þáttanna,
eða Vina, eru sagðir himinlifandi yfir
því að hafa náð ofurfyrirsætunni og
leikkonunni Elle Macpherson til að
leika í þessari yflrgengilega vinsælu
þáttaröð. En það eru ekki allir að-
standendur þáttanna jafh hoppandi og
skoppandi af gleði. Kvenkynið er til
dæmis sagt afar áhyggjufullt yflr því
að hafa ofúrfyrirsætu í hópnum.
í þáttunum leikur Elle stúlku sem
flytur inn til Joes sem leigjandi eftir að
Chandler flytur til Monicu og það líð-
ur ekki á löngu áður en rómantíkin fer
að blómstra. Það er sagt að Melissa,
kærasta Matts LeBlanc sem leikur
Joey, sé þó áhyggjufyllst af öllum og
eyðir Matt nú ómældri orku í að koma
henni í skilning um að hún þurfi eng-
ar áhyggjur að hafa af upptökum á ást-
arsenunum sem verða fljótlega teknar
upp.
Áhyggjur leikkvennanna í þættin-
um, Courtney Cox Arquette (eins og
hún vill nú láta kalla sig), Lisu
Kudrow og Jennifer Aniston sem eru
meðal glæsilegustu kvenna í sjón-
varpsheiminum, snúast um að þær
komi til með að líta út fyrir að vera of
hversdagslegar í samanburði við kon-
una sem hefur fengið viðumefnið „The
Body“ eða „Líkaminn." Illar tungur
segja að þær beiti nú öllum ráðum til
að fá framleiðandann til að draga úr
fegurð Elle með því aö láta hana vera
í pokalegum fótum og halda fórðun-
inni í lágmarki.
Yndislegt að eiga svona vini.