Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Qupperneq 57
JLlV LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
Netvædd landakort
Landakortabækur eru mesta
þarfaþing en því miður vilja þær
úreldast með árunum. Fyrir
skömmu kom ein af betri kortabók-
um heimsins út á vegum National
Geographic Society og er þetta sjö-
unda útgáfa bókarinnar. Það þykir
þó sæta enn meiri tíðindum að bók-
in hefur verið sett á Netið en stofn-
unin vinnur nú að uppsetningu
eins öflugasta kortavefs heims. Vef-
urinn er nánast fuilbúinn og hægt
að finna hann á slóðinni
www.national-
■
geography.com/mapmachine. Það
verður keppikefli þeirra sem ann-
ast vefmn að uppfæra landakort
eins oft og þörf þykir i framtíðinni.
Þá er mælt með því að þeir sem
eiga eldri útgáfur af Atlasnum eða
aðrar gamlar kortabækur einfald-
lega hlaði niður nýjum kortum þar
sem það á við og setji inn í bækur
sínar.
Fflar leika fótbolta
Filum á
Taílandi
er margt
til lista
lagt og eitt
afþvíertil
að mynda
að leika
knatt-
spymu.
Kúnstir fíl-
anna hafa
griðarlegt aðdráttarafl meðai hund-
raða þúsunda ferðamanna sem
heimsækja landið ár hvert. Á dög-
unum héldu Taílendingar svo ár-
lega fílahátíð þar sem 250 fílar voru
látnir sýna gestum og gangandi
hvert hlutverk þeirra hefur verið í
gegnum aldimar. Annars hefur
þessi stærsta skepna, sem gengur á
jörðinni, einkum það hlutverk í
dag að skemmta ferðamönnum en
enn munu innfæddir þó nota dýrin
til erfiðisverka
Indlandsferð í ársbyrjun
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, SPRON, hefur gert samn-
ing við Samvinnuferðir-Landsýn
um átta daga ferð til Nýju Delhi á
Indlandi í byijun næsta árs. Gull-
debet- og Veltukorthöfum SPRON
bjóðast hagstæð kjör. Verðið er frá
79.800 krónum á manninn. Þeim
bjóðast einnig svokölluð Ferðalán.
Ferðin er ekki eingöngu hugsuð
fyrir viðskiptavini bankans en sé
ekki greitt með kortum frá SPRON
kostar ferðin frá 89.800 krónum.
Þetta mun verða í fyrsta sinn
sem flogið er í beinu leiguflugi frá
íslandi til Indlands. Flogið er frá
Keflavík til Delhi 11. janúar og aft-
ur heim 19. janúar. Frá Delhi er
hægt að komast í ferðir til Jaipur
og Agra; en þar ein stórkostlegasta
bygging í heims; Táj Mahal.
Heilagleikínn fer með heils-
una
•Jerúsalem
reynist mörg-
um ferðamann-
inum ofviða
vegna hins trú-
arlega mikil-
vægis í sög-
unni. Þekktur
er svokallaður
Jerúsalem-sjúkdómur sem leggur
um 200 ferðamenn á ári hverju. Hin-
ir sjúku fara bókstaflega yfir um
þegar þeir dvelja í borginni og oft á
tíðum eru einkennin sú að þeir teija
sig vera persónur úr Biblíunni.
Olifúfjall og staður krossfestingar-
innar á Golgata eru algengustu stað-
imir þar sem fólk veikist. Á Kfar
Shaul sjúkrahúsinu í norðvestur-
hluta horgarinnar eru læknar vanir
að takast á við þennan vanda og að
þeirra sögn eru flestir útskrifaðir
eftir fáeina daga í meðferð.
.
ferðir
Á daginn, meðan birta leyfir, er farið í gönguferöir, bæöi léttar og svo aðrar
meira krefjandi. Má þar nefna gönguferð inn í Tungur, upp á Réttarfell og ef
til vill upp á Útigönguhöfða.
Áramót með ferðafélaginu Útivist:
Brennur, flugeldar
og blysför
Ferðafélagið Útivist mun nú sem
endranær fagna nýju ári í Básum. í
skálum Útivistar er gistirými fyrir
áttatíu manns og hefur ávallt verið
fullbókað í þessa ferð. Að sögn Guð-
fínns Pálssonar er miðasalan komin
í fullan gang og ekki áður verið
seldir jafnmargir miðar á þessum
tíma.
Áramótaferðin stendur í fjóra
daga. Farið verður úr bænum að
morgni 30. desember og komið í bæ-
inn síðla dags 2. janúar árið 2000.
„Það er alltaf fjölbreyttur hópur
fólks sem kemur í þessa ferð. Sumir
eru fastagestir en allir eiga það sam-
eiginlegt að hafa áhuga á útiveru og
vilja skemmta sér utan við ys og þys
þéttbýlisins á þessum tímamótum.
Við gerum margt til að gestum okk-
ar líði vel og skreytum skálana hátt
og lágt,“ segir Guðfinnur.
Kvöldvökur eru fastur liður á
kvöldin og þá safnast fólk saman
við söng og aðra skemmtan. Fjörugt
fólk spilar á hljóðfæri, stjómar
fjöldasöng og allir leggja eitthvað til
málanna til að gera kvöldin sem eft-
irminnilegust. „Á gamlárskvöld
kveikjum við að venju í stórri
brennu þar sem allir safnast saman,
kveðja gamla árið og fagna því nýja.
Auk þess verður heljarmikil flug-
eldasýning. Á nýárskvöld er fyrir-
huguð blysfor á einhvern heillandi
stað en sú ákvörðun verður tekin
síðar.“
Á daginn meðan birta leyflr er
farið í gönguferðir, bæði léttar og
svo aðrar meira krefjandi. Má þar
nefna gönguferð inn í Tungur, upp á
Réttarfell og ef til vill upp á Úti-
gönguhöfða. -aþ
Píramídarnir í Giza:
Leigðir út fyrír stórfé
Nýaldarsinnar flykkjast nú til Eg-
yptalands sem aldrei fyrr. Ástæðan er
sú að það mun í tísku að koma saman
til hugleiðslu í hinum 4500 ára gömlu
píramídum. Að sögn munu um fjöru-
tiu hópar að meðaltali sækjast eftir
inngöngu í píramídana en það kostar
stórfe að taka þá á „leigu.“ Bara stað-
festingargjaldið er 100 þúsund krónur
og siðan kostar sjö þúsund á mann og
öll herlegheitin standa yfir í þijár
klukkustundir.
Nýaldarsinnar og aðrir
píramídavinir eru þó tilneyddir að
hverfa frá um miðjan mánuð því þá
verður píramídunum lokað fram yfir
nýár. Búist er við þúsundum ferða-
manna á svæðið á gamlárskvöld, en þá
mun franski tónsnillingurinn Jean-
Michel Jarre stjóma stórtónleikum
fyrir utan píramídana.
65
Síðir ekta pelsar.
Verð aðeins kr. 135.000.
Aldamóta / jóladress.
Handunnin gjafavara í úrvali.
Opið virka daga kl. 10-18,
laugard. I0-I5,sunnud. 13-15.
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen.
Sími 588 4545.
GlcesUegar
haðvöntr
Fáanlegar í stáli og gylltu
VIÖ atyfijum vlA bakltt á þéH
alkar MjMg virkir^T ój
viskíbörnin?
1
í* N - % - - '5 ■
Fæst í öllum betri
Flugleiðir búnir að
leysa 2000-vandann:
f
Aramótaflug
fellt niður
Flugleiöir tilkynntu í vikunni að
undirbúningi vegna 2000-vandans í
tölvum og tækjabúnaði félagsins væri
lokið. Unnið hefur verið að lausn máls-
ins frá árinu 1997 og fjöldi tölvukerfa
verið endumýjaður á tímabilinu.
Flugleiðir hafa líkt óg fjöldi annarra
alþjóðlegra flugfélaga, ákveðiö aö felia
niður flug um næstu áramót. Ástæðan
er einfaldlega sú að eftirspum eftir
flugi um þau merku tímamót er í lág-
marki. Á gamlársdag er áætlað að fjór-
ar þotur félagsins komi til íslands úr
áætlunarflugi frá Evrópu og að morgni
nýársdags er áætlað að sex þotur fé-
lagsins fljúgi til ýmissa áfangastaða í
Evrópu.
Sófar . stólar . svefnsófar
Alma Clara 158.000,- kr.
Hornsófi, 230 cm x 230 cm.
höfðatúni 12 105 reykjavík
sími 552 6200 552 5757
ser
nus
Igögn