Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 71
IJV LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
afmæli
111 hamingju með afmælið 5. desember
90 ára
Líney Bentsdóttir, Vogatungu 45, Kópavogi.
80 ára
Ámi Guðjón Jónasson, Heiðmörk 13, Hveragerði. Jórunn Lilja Magnúsdóttir, Boðaslóð 6, Vestmannaeyjum. Sigríður Anna Sigurðardóttir, Smyrilsvegi 29, Reykjavík.
75 ára
Gunnar Símonarson, Holtsgötu 35, Reykjavík. Ursula María Valtýsdóttir, Reynimel 82, Reykjavík.
70 ára
Fríða Ingvarsdóttir, Árlandi 1, Reykjavík. Ólafur Þ. Ingimundarson, Engihjaila 19, Kópavogi.
60 ára
Agnar Magnússon, Amarhrauni 47, Hafnarfirði. Herdís Heiðdal, Aifheimum 22, Reykjavík. Hrafnkell Sigurjónsson, Hraunbæ 72, Reykjavík. Ólafur Tryggvason, Dverghamri 32, Vestmannaeyjum.
50 ára
Guðjón Hjartarson, Sandbakka 1, Höfn. Helga Erlendsdóttir, Faxaskjóli 4, Reykjavík. Jóhanna Björnsdóttir, Augastöðum, Reykholti.
40 ára
Anna Karlsdóttir, Botnahlíð 31, Seyðisfirði. Ari Eggertsson, Eystri-Þurá 1, Selfossi. Berglind Jóna Ottósdóttir, Grundarstíg 5, Sauðárkróki. Friðgerður Guðmimdsdóttir, Norðurbraut 41, Hafnarfirði. Guðmundur Pálmi Ásmundsson, Suðurgötu 124, Akranesi. Helen Hreiðarsdóttir, Hlíðarbyggð 44, Garðabæ. Óli Þór Kjartansson, Mávabraut 2c, Keflavík. Sesseija Rita de Cassia Silva, Vallarhúsum 14, Reykjavík. Snorri Jóhannsson, Álfaskeiði 78, Hafnarfiröi.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
550 5000
vilberg Guðnason
Vilberg Guðnason ljósmyndari,
Strandgötu 43, Eskifirði, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Vilberg fæddist á Eskifirði og ólst
þar upp. Hann lærði Ijósmyndun
hjá Sveini Guðmundssyni, ljós-
myndara á Eskifirði, og stundaði
nám í teikningu og undurstöðu fyr-
ir ljósmyndun við Iðnskólann í
Reykjavík 1945-46.
Að námi loknu fluttu Vilberg aft-
ur til Eskifjarðar 1946 og hefur síð-
an stundað þar ljósmyndun á eigin
vegum í meira en hálfa öld. Hann
hefur tekið mikinn fjölda manna- og
fjölskyldumynda á Eskifirði og víð-
ar á Austfjörðum og fjölda bekkja-
mynda fyrir skóla, einkum Eiða-
skóla og skólann á Hallormsstað, en
einnig fyrir skóla í Neskaupstað og
á Seyðisfirði. Þá hefur hann mikið
stundað eftirtökur eftir eldri mynd-
um. Hann hóf að taka litmyndir
1978.
Vilberg á mikið safn af götu- og
mannlífsmyndum af Austfjörðum
frá því á árum áður og fjölda mynda
af skipum og bátum frá tímum síld-
aráranna.
Vilberg lék með Lúðrasveit Eski-
fjarðar í tvö ár og Lúðrasveitinni á
Neskaupstað í fjögur ár.
Fjölskylda
Eiginkona Vilbergs er Fanney
Guðnadóttir, f. 7.7. 1917, húsmóðir.
Hún er dóttir Guðna Þorleifssonar,
kaupmanns á Eskifirði, og Maríu
Tómasdóttur húsmóður.
Systkini Vilbergs: Hjalti Guðna-
son, f. 9.7.1912, nú látinn, húsasmið-
ur á Eskifirði; Guðni Sigþór Guðna-
son, f. 8.11. 1926, nú látinn, hljóð-
færaleikari í Reykjavík; Steinunn
Guðnadóttir, f. 30.8. 1930, húsmóðir
á Egilsstöðum.
Foreldrar Vilbergs voru Guðni
Jónsson, f. 26.7. 1891, húsasmiður á
Eskifirði, og k.h., Guðný Pétursdótt-
ir, f. 4.11.1891, húsmóðir.
Sveinn Viðar Jónsson
Sveinn Viðar Jónsson
rafvélavirkjameistari, Máshólum 8,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Sveinn Viðar fæddist í
Bolungarvík og sleit þar barnsskóm
sínum. Hann nam í Barnaskóla
Bolungarvíkur en fluttist suður yfir
heiðar til Reykjavíkur árið 1955 og
starfaði i Sunnubúðinni í Mávahlíð.
Sveinn hóf nám í rafvélavirkjun
við Iðnskólann í Reykjavík 1959.
Hann var samhliða námi í vinnu
hjá Segli. Eftir nám starfaði hann
m.a. við Síldarbræðsluna á
Hjalteyri og í Búrfellsvirkjun.
Sveinn starfaði síðar hjá fyrirtæki
Hauks og Ólafs í sex ár en rak síðan
eigið fyrirtæki, Rafvélaverkstæði
Sveins Viðars, í tuttugu og fimm ár.
Frá 1995 hefur Sveinn starfað hjá
Orkuveitunni.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Auður
Sigurborg Vésteinsdóttir, f. 29.8.
1939. Þau gengu í hjónaband 12.8.
1962. Foreldrar Auðar voru Elín
Guðbrandsdóttir, f. 1.8. 1914 í
Reykjavík, d. 16.9. 1996, afgreiðslu-
kona, og Vésteinn Guðmundsson, f.
14.8.1914, á Hesti í Önundarfirði, d.
15.1. 1980, efnaverkfræðingur og
forstjóri Kísiliðjunnar við Mývatn
um árabil.
Börn Auðar og Sveins eru Elín, f.
25.2. 1963, útsendingarstjóri á Stöð
2, en eiginmaður hennar er
Sigmundur Ernir Rúnarsson, f. 6.3.
1961, skáld og aðstoðarfréttastjóri
og eiga þau Birtu, f. 29.8. 1990,
Rúnar f. 13.3. 1992, og Emi, f. 24.4
1996, en fyrir á Sigmundur Eydísi
Eddu, f. 4.1. 1985, og Odd, f. 17.2.
1987; Hrönn, f. 23.3. 1967,
fjármálastjóri hjá P. Samúelssyni
ehf. - Toyota, en eiginmaður
hennar er Bergsveinn Sampsted, f.
15.5. 1966, framkvæmdastjóri ísl.
getspár og eiga þau Svein, f. 24.1,
1995, og Alfons, f. 6.4. 1998; Auður
Ýr, f. 14.12. 1974, nemi í
sjávarlífeðlisfræðum við University
of Maryland en sambýlismaður
hennar er William Mc.Donald
Johnston 3rd, f. 15.1. 1974,
markaðsfræðingur; Ásgeir Öm, f.
5.1. 1976, d. 22.10. 1994.
Systkini Sveins era Guðmunda,
Glæsileg og vönduð bók um Reykjavík:
r
A vit nýrra alda
- í samvinnu við M2000-nefnd borgarinnar
í tilefhi þess að Reykjavík er ein
menningarborga Evrópu árið 2000 gefa
ARCTIC BÆKUR út glæsilega og vand-
aða bók um Reykjavík. Bókin er gefm
út i samvinnu við M2000-nefnd Reykja-
víkurborgar.
Yflrskrift bókarinnar er Eldur, jörð,
loft og vatn og er hún myndskreytt
fjölda mynda eftir Ragnar Th. Sigurðs-
son ljósmyndara. Ari Trausti Guð-
mundsson, jarðeðlisfræðingur og rit-
höfúndur, ritar meginmál. Bókin er
144 blaðsíður og mun hún koma út á
ensku, dönsku og þýsku auk móður-
málsins. -hól
Ljósin tendmð á Ráð-
hústorgi Akureyrar
DV, Akureyri: _____________________
Akureyringar fá eins og undan-
farin ár að gjöf stórt jólatré frá
Randers, vinabæ Akureyrar í Dan-
mörku. Tréð verður eins og venju-
lega á Ráðhústorgi og verða ljós
þess tendruð í dag.
Dagskráin hefst kl. 15.30 með leik
Lúðrasveitar Akureyrar, þá syngur
kór Akureyrarkirkju jólalög og
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
og Sigurður Jóhannesson, konsúll
Dana, flytja ávörp. Kl. 16.15 verður
kveikt á ljósum jólatrésins og að því
loknu syngur kór Menntaskólans
nokkur jólalög og jólasveinar koma
í heimsókn. -gk
f. 1922, gift Kristjáni
Pálssyni, d. 1998, en
þau eignuðust sex
börn; Gísli, f. 1923, d.
1989 en kona hans var
Gyða Antoníusdóttir,
d. 1991, og eignuðust
þau fimm börn en
hann átti eina dóttur
áður; Guðbjörg
Kristín, f. 1925, d. 1926;
Guðbjörg, f. 1927 en
hennar maður var
Kristján Trömberg, d.
1969 og áttu þau fimm
börn en seinni maður
hennar var Kristinn
Finnbogason, d. 1991, og eignuðust
þau fimm börn; Óskar, f. 1928, en
hans kona er Elsa Friðriksdóttir og
eiga þau fjögur börn auk þess sem
hann átti eina dóttur áður; Áslaug,
f. 1929, en hennar maður var
Jóhannes Guðjónsson, d. 1985, og
eignuðust þau fimm börn; Jóhann
Líndal, f. 1930, en kona hans er Elsa
Gestsdóttir og eiga þau fimm börn
en hann átti eina dóttur áður; Alda,
f. 1935, gift Ingibergi Jensen en þau
eiga fjögur böm; Herbert, f. 1936, d.
1985, en hans kona var Steinunn
Felixdóttir og eignuðust
þau tvö börn; Sigurvin,
f. 1937, kvæntist
Halldóru Guðbjörns- ^
dóttir en þau skildu, þau
eignuðust sjö börn.
Foreldrar Sveins Viðars
voru Lína Dalrós
Gísladóttir, f. í
Bolungarvik 22. 9. 1904,
d. 14.12. 1997, og Jón
Ásgeir Jónsson, f. 9.7.
1911 á ísafirði, d. 1.10.
1996.
Ætt
Foreldrar Línu Dalrósar voru >
Gísli Jónsson á Tindum í
Tungusveit í Strandasýslu og
Elísabet Guðmundsdóttir frá Meira-
Hrauni í Skálavík.
Jón Ásgeir var sonur hjónanna
Jóns Jónssonar vélstjóra og
Ástríðar Guðbjartsdóttur. Hann ólst
upp á Bolungarvík og sótti sjó
þaðan á meðan heilsa leyfði.
fréttir
Vitni óskast að tveimur árekstrum
Sveinn Viöar Jónsson.
Lögreglan 1 Reykjavík lýsir eftir
vitnum að tveimur árekstrum frá
því síðastliðinn mánudag. Um hálf-
fjögur varð árekstur þriggja bifreiða
er var ekið í austur á móts við
þrengingu við Laugaveg 123. Þar
mun hvít fólksbifreið hafa ekið í
þrengingunni í veg fyrir aðra. Lög-
reglan þarf að ná tali af ökumanni
þessarar bifreiðar.
Þá varð árekstur á gatnamótum
Grensásvegar/Hæðargarðs og Álm-
gerðis um þrjúleyti á mánudag. Þar
var um að ræða MMC Pajerojeppa
sem ekið var suður Grensásveg og
Ford Sierra sem var ekið vestur
Hæðargarð. Umferðarljós eru þama
á gatnamótunum og greinir öku-
menn á um stöðu umferðarljósanna
er áreksturinn varð.
Þeir sem hafa orðið vitni að þess-
um árekstrum vinsamlega snúi sér
til lögreglunnar í Reykjavík.
Notaðu vísifingurinn!
www.irisir.is