Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1999, Page 39
JL>V LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999
ursins hófst sumarið 1952 þegar
Jack D. Ives og Harry Gleave, þá
námsmenn í fyrrnefndum háskóla,
könnuðu aðstæður fyrir ráðgerðar
rannsóknir. Gengu þeir þá meðal
annars frá Bæjarstaðarskógi um
Kjósareggjar og vestur fyrir Þumal
til að fá fullvissu um góða leið upp
á Vatnajökul með klyfjar. Var ætl-
unin að setja upp tjaldbúðir norðan
Miðfellstinds og vinna verkefnin
þaðan. Sumarið eftir, upp úr miðj-
um júní 1953, kom til Fagurhóls-
mýrar flokkur átta námsmanna og
tveggja kennara frá Nottinghamhá-
skóla. Það ár stunduðu 26 erlendir
námsmenn jöklarannsóknir hér á
landi. Svo dapurlega vildi til að þrír
þeirra týndu lífi; einn drukknaði í
Eiríksfellsá í Vestur-Skaftafells-
sýslu en hinir, breskir námsmenn,
týndust á Öræfajökli.
Leiðangursmenn héldu til Skafta-
fells þar sem þeir fengu að hafast
við í Selinu fyrstu dagana meðan
aðstæður voru kannaðar. Fljótlega
voru settar upp bækistöðvar, önnur
var í Bæjarstaðarskógi en hinni var
komið upp um 2,5 kílómetra inni á
hjarnbreiðunum norður af Mið-
fellstindi, í 1200 metra hæð. Til
þessa fengu leiðangursmenn þyrlu
lánaða frá vamarliðinu á Keflavík-
urflugvelli og voru búðirnar komn-
ar upp 12. júlí. Eftir það hófust
rannsóknir leiðangursins að fullu.
Gerðar voru veðurfræðilegar athug-
Emir á jöklinum, fylgst var með
bráðnun jökulbreiðnanna og mæld-
ur skriðhraði Morsárjökuls. Leið-
angursmenn gengu mikið um svæð-
ið og könnuðu jöklana umhverfis
Skaftafell og jaðra þeirra, gerðu
m.a. uppdrátt af Morsárjökli. Oft lá
leiðin á milli tjaldbúðanna í Bæjar-
staðarskógi og uppi á jökli. Var þá
oftast gengið eftir Kjósareggjum og
á jökli meðfram brún Miðfellseggj-
arinnar í bækistöðina á jöklinum.
Þeir gengu á alla hnúka á Miðfell-
seggjum að Þumli frátöldum. Fóru
þeir einnig niður i Kjós, vestan við
Miðfellstind og niður á Morsárjök-
ul, austan hans. Ives, ásamt Ian
Harrison, gekk niður allan Skeiðar-
árjökul og tók sú ferð um 22 tíma.
Einnig fór Harrison að öllum líkind-
um á Færnestindana, einn eða
fleiri. Óvist er á hvaða tinda hann
gekk og hvort hann hefur farið á
hina bröttustu, einungis víst að
hann fór Færneseggjarnar af
Blátindi vestur á tindana. Hann
týndist á Vatnajökli skömmu síðar
og einu haldbæru vísbendingamar
em á myndum sem hann tók á
göngu sinni og sýna útsýni vestur á
Skeiðarárjökul.
Dauðinn bak við Miðfell
Þurrviðrasamt og kyrrt var þann
tíma sem hópurinn stundaði rann-
sóknir sínar á jökli, allt fram í
ágúst. Þá gekk yfir kuldakast og
norðanrok með snjófjúki svo grán-
aði í fjallabrúnir. Ekki urðu þó
óhöpp í tjaldbúðunum á jöklinum
vegna veðursins og fljótlega upp úr
þvi var hafíst handa við að búast til
heimferðar. Áður en af því varð
óskuðu tveir nemanna, Ian Harri-
son, 23 ára, og Anthony Prosser, 21
árs, eftir að ganga á Hvannadals-
hnúk og reyndist það auðsótt mál.
Að morgni 6. ágúst gengu þeir frá
tjaldbúðunum norðan Miðfellstinds
og stefndu í átt að Hermannaskarði
en þar höfðu þeir áætlað að tjalda.
Höfðu þeir meöferðis mat tíl 5-7
daga, tjald, mannbrodda og ísaxir
auk 70 metra nælonlínu. Tveir leið-
angursmenn, Jim Exley og Chris
Leahy, urðu eftir í tjaldstað og
hugðust bíða þeirra. Sáu þeir það
síðast hvar félagar þeirra gengu í
góðu veðri í átt að skarðinu. Um há-
degi settist þokuslæðingur á Öræfa-
jökul og næstu daga gekk á með
slyddubyl. 10. ágúst slotaði veðrinu
en næstu daga var kaldur blástur á
jöklinum en þó ekki stöðugt.
Hinn 16. ágúst héldu nemamir
sem biðu í tjaldbúðunum viö Mið-
fellstind til byggða og tilkynntu að
ekki hefði spurst til piltanna. Dag-
inn eftir var björgunarflugvél frá
Keflavík flogið yfir jökulinn í góðu
skyggni en hún varð einskis vör.
Skýringin blasti við á
jöklinum
tf
Á leiö á Miöfellstind.
Ragnar Stefánsson í Skaftafelli
tók þátt í fluginu yfir jökulbreiðum-
ar og er lýsing hans eftirfarandi:
„Síðan var flogið fyrir norðan
Miðfell og stelht fyrir norðan Hrúts-
fjail. Þegar við fórum að sjá yfir
jökulinn norður af Skaftafellsjökli
blasti við augum okkar sjón sem ég
mun seint gleyma, því nú virtist
ráðin gátan um þá félaga og hvað
um þá hafði orðið. Jökullinn var
þarna all sléttur og þakinn nýsnævi
en langar krappar dældir eða rákir
sem í fljótu bragði líktust skiða-
brautum, en bara mörgum sinnum
breiðari og dýpri, voru þama á víð
og dreif. Flestar höfðu þær stefhu
frá Skaftafellsjökli eða upptökum
hans til norðausturs. Ekki þurfti
um að spyija hvað þetta var, hér
var um hyldýpis spmngur að ræða
sem lokast hafði yfir af snjó um
stundarsakir í bylgusunni sem kom
bókarkafli
og gekk yfír jökulinn rétt áður en
þeir félagar lögðu upp í þessa feigð-
arfor. Nú var snjórinn mjög víða
farinn að falla ofan í þær og þar
blöstu sprunguopin nú við manni,
myrk og ógnandi.“
Hinn 18. ágúst hófst svo leit ís-
lenskra leitarmanna undir stjóm
Sigurðar Þórarinssonar jarðfræð-
ings og var sex manna sveit send á
Öræfajökul sama morgun. Þeir
höfðu ekki erindi sem erfiði þrátt
fyrir mikla yfirferð um jökulinn.
Þessi hörmulegi atburður varð sorg-
legur endir á einstakri ævintýraferð
Bretanna. Jack Ives og aðrir leið-
angursmenn komu samt aftur vorið
1954 og dvöldu að nýju á sama
svæði.
Gefum
okkur Öllum betri framtíð
i m w •*•
t
3
Ert þú aflögufær
fyrlr þlll hl utsklpti
Gott úrval, gleðilegt verð, skemmtilegt umhverfí.
kemur í heimsókn
kl. 15.00 laugardag
og sunnudag.
Hann rabbar við börnin
í gamla hestvagninum
sínum í jólalandinu.
Grenibúnt 500 g
245kf. 175 kr.
Grenilengjur 288 sm
395 kr.
Labbi kynnir diskinn sinn
Leikur að vonum
sunnudaginn kl. 16
151-175 sm
176-200 sm
201-250 sm
yf ir 250 sm
2.990 kr.
3.750 kr.
4.490 kr.
5.450 kr.
Hyasintur
1. flokkur
Hyasintur
145 kr. stk.
3 Hyasintur í körfu
495 kr.
MUð úrvai af skrevtingareini
Hyasintuskreytinar
frá 495 kr.
Opið:
Mánud. til laugard.
kl. 9-21
Sunnudaga
kl. 10-21
GARÐHEIMAR
STEKKJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300
Gott iólatijáaúrval.
Hý sending!
Verðsprengja!
Normannsþinur
126-150 sm 2.250 kr.