Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1999, Page 44
48
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 JJV
viðtal
Ferðast um
landið í
tæp 50 ár
- Pátur Þorleifsson er einn fremsti örnefnasér-
fræðingur iandsins
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
ömefnum og þess háttar, alveg frá
þvi aö ég fór að ferðast um ísland
um 1950. Ég hefi lagt mig talsvert
eftir þessu og hef enn gaman af
því,“ segir Pétur Þorleifsson ferða-
garpur í samtali við DV.
Pétur hefur árum saman verið
þekktur fyrir gríðarlega yfirgrips-
mikla þekkingu sína á íslenskum
ömefnum. Margir muna einnig eftir
því þegar hann kom fram í sjón-
varpsþætti hjá Hemma Gunn um
miðjan seinasta áratug og svaraði
þar spurningum um íslensk örnefni
og náttúru.
Pétur hefur ásamt Ara Trausta
Guðmundssyni sett saman bók sem
heitir Fólk á fjöllum og Ormstunga
gefur út. Þar er sagt til vegar á 101
fjall á íslandi, leiðinni á fjallið gefin
nokkurs konar einkunn á nokkra
mælikvarða og kort og ljósmynd
fylgir hverri lýsingu. En hafa þeir
ferðast mikið saman
Höfum einu sinni gengið
saman
„Ég man ekki hvenær ég kynntist
Ara Trausta. Við höfum einu sinni
gengið saman á fjall og það var á Ei-
ríksjökul. Þetta var Ferðafélagsferð
fyrir svona 20 árum eða þar um bil.
Ég man eftir honum í þessari ferð
því hann var duglegur. En við fór-
Nýir sambyggðir kæli- og
frystiskáparfrá Siemens.
Þeirgerastvart betri!
Hátíðartilboð!*
235 Ikælir, 1051
Hxbxd = 186x
éé SMITH &
Wnorland
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
KG 36V20
KG 31V20 - [Sjí
1981 kælir, 1051
Hxbxd = 170x
KG 26V20
1981 kælir, 65
Hxbxd = 150
Umboðsmenn um land allt!
Pétur Porleifsson er af mörgum talinn fróðasti maður landsins um örnefni. Fjall hefur verið nefnt eftir honum.
um ekki í neinar fjallgöngur sér-
staklega vegna bókarinnar. Við höf-
um farið allar leiðimar sem lýst er,
annaðhvort annar eða báðir.“
Pétur segir að hugmyndin að bók-
inni sé nokkurra ára gömul og hafi
oft verið rædd af þeim félögum. Það
var hins vegar ekki látið til skarar
skríða fyrr en útgefandi fékkst og
þá tók við mikið verk við að velja
fjöllin því Ari og Pétur hafa gengið
á mörg fleiri fjöll en þau 101 sem er
lýst í bókinni.
„Við settum fyrst saman lista sem
síðan átti eftir að taka miklum
breytingum. Við reyndum að hafa
fjöll í öllum landshlutum með en
þaö eru reyndar ekki mörg á Vest-
fjörðum og Austfjörðum í bókinni.
Þetta mótaöist af ýmsum þáttum."
Skjaldbreiður í uppá-
haldi
Pétur segist helst ekki vilja gera
upp á milli fjallanna sem lýst er í
bókinni en viðurkennir þó með
semingi að Skjaldbreiður hafi löng-
um verið hans uppáhaldsfjall.
„Ég hef áreiðanlega komið þang-
að upp svona 20 sinnum. Fyrst eftir
að ég fór að ferðast var þetta fjall í
miklu dálæti hjá mér. Þarna er
óskaplega gott útsýni til allra átta
og tignarlegt umhverfi.“
Pétur hefur ferðast mikið um ís-
lenska jökla og fariö meira en 20
langar ferðir á Vatnajökul. Hann
hefur árum saman verið virkur í
Jöklarannsóknarfélagi íslands og
tekið þátt í smíða fimm skála félags-
ins sem hefur verið komið fyrir á
Vatnajökli og Langjökli.
„Það má kannski segja að Vatna-
jökull og fjöllin í nágrenni hans,
sérstaklega Öræfajökull, séu það
svæði sem ég hef mest dálæti á að
ferðast um. Ég hef oft komið á
Hvannadalshnúk, bæði af jöklinum
og neðan úr byggð.
Það er svoleiðis með ísland. Það
eru ákveðin svæði sem toga mann
til sín aftur og aftur."
En hefur Pétur komið á alla staði
á íslandi?
„Það má kannski segja það en það
eru þó margir staðir sem ég tel að
ég eigi eftir að heimsækja, þó ekki
væri nema til að sjá yfir.
Frumkvöðlar á vál-
sleðum
Pétur var meöal þeirra fyrstu sem
fóru að stunda vélsleðaferðir á ís-
landi i kringum 1970. Fyrsta ferðin
hans á vélsleða var á Vatnajökul og
þar sat hann aftan á sleða hjá Har-
aldi Haraldssyni sem í dag er oft
kenndur við Andra.
„Haraldur var áhugasamur og
harður ferðamaður."
Pétur er hættur að ferðast á
vélsleða, hefur ekki átt slíkt áhald í
10 ár og á ekki jeppa. Það kemur
samt ekki í veg fyrir að hann ferð-
ist.
„Ég ferðast mikið einn nú orðið.
Ég starfaði með Flugbjörgunarsveit-
inni í 10 ár frá 1965 til 1975 og þar
var hópur sem ég ferðaðist mikið
með.
Ég er hrifinn af tækninni en hún
er samt aldrei annað en hjálpartæki
við að ferðast. Mér finnst ferðalagið
ekki hefjast fyrr en maður er laus
við bílinn.“
En hafa ferðavenjur fólks ekki
breyst mikið síðan Pétur byrjaði á
sínum ferðum?
„Jú, blessaður vertu. Nú gengur
þetta allt út á bílinn. Fólk fer helst
ekki út úr bíl nema til þess að grilla
á kvöldin. Hér áður fyrr hitti maður
færra fólk á fjöllum en það voru
fleiri ferðamenn. í dag eru ekki
nema svona 10% þeirra sem eru á
ferð á fjöllum alvöru ferðamenn.
Þetta er mest eitthvert fólk sem veit
ekkert hvar það er og þekkir ekki
stærstu Qöll og er ekkert að ferð-
ast.“
Pétur segist hafa mætt hópi
vélsleðamanna á fjöllum sem voru
að verða bensínlausir en vissu ekk-
ert hvar næsta bensíntank var að
fmna.
„Þekkingu fólks á örnefnum held
ég að fari aftur með hverju ári sem
líður. Þetta er þvi satt og fólk veit
ekki hvers það fer á mis því Tómas
hafði sannarlega rétt fyrir sér þegar
hann sagði að landslag væri lítils
virði ef það héti ekki neitt.
Fjall nefnt eftir honum
Pétur er meðal fárra íslendinga
sem fjall hefur verið nefnt í höfuðið
á og má segja að það sé nokkurs
konar fálkaorða og virðingarvottur
við ferðamennsku hans. En hvar er
fjallið?
„Það heitir Péturshom og er inni
í Langjökli. Haraldur Matthíasson,
kennari á Laugarvatni, gaf því nafn
og sagði að það væri best að nefna
það í höfuðið á mér þvi enginn hefði
komið þar oftar en ég.“
Pétur hefur ekki látið þar við
sitja því hann hefur einnig setið
hinum megin við borðið og búið til
nokkur ömefni á fáfomum slóðum
sem engin heiti hafa verið á.
„Ég get nefnt ísalón í Þórisdal
syðri og Hryggjavatn í miðdal Þóris-
dals sem ég hef geflð nafn og jökul-
tungu sem gengur niður í átt að
Þjófadölum í austanverðum
Langjökli nefndi ég Leiðarjökul."
-PÁÁ
OpiðlaugardagfrákHO-20
ogsunnudagfrákl. 14 -18
ICiaBHQIEli
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKGRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100