Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1999, Síða 61
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999
(föskvinnsla
Halldór Halldórsson, framleiðslustjóri Suðurness, ásamt þremur pólskum stúlkum sem starfa þar við fiskvinnslu.
DV-myndir Arnheiður
6^
Við vefstólinn
/önduð bók af glæstum vefnaðarferli |
Guðrúnar Vigfúsdóttur prýdd
hundruðum litmynda
og alþýðulist Litla-Árskógsbræðra
KOMIN AFTUR I FLESTAR BÖKABUÐIR
TILVALIN JOLAGJOF
Góðanótt!
„Vinnan er ekki erfið en það hefur
verið erfitt að venjast lyktinni í fiskin-
um,“ segja þau brosandi. Mexhit starf-
aði við skófi'amleiðslu i tlu ár í Kosovo
og var orðinn þreyttur á því og langaði
að breyta til. Þau voru bæði i íslensku-
námi og bömin þeirra tvö ganga í skóla
í Grindavík.
Em í flekasiglingum á sumrín
Takbahadur Gurung, Dammar Jang
og Dev Bahadur em allir frá Nepal og
starfa hjá Haustaki en síðastliðin tvö
sumur hafa þeir stjómað flekasiglingum
niður ár eins og Jökulsá á Fjöilum, Ey-
vindará og Hvítá. Þeim þykir ísland
stórkostlegt land og hafa sennilega séð
það í mörgum myndum á siglingunum.
Langar að búa á íslandi
í framtíðinni
Leszek Serwatko og Maria kona hans
em frá borghmi Womza í Póllandi og
hafa verið á íslandi í tvö ár. Þau vom
fyrst í fiskvinnu á Bíldudal en hafa ver-
ið hjá Þorsteini ehf. í Garðinum síðan í
júni. „Okkur iíkar mjög vel á íslandi og
höfum jafnvel hugsað okkur að setjast
hér að til frambúðar." Þau segja margt
ólíkt hér og í Pólfandi. „Til dæmis veðr-
ið, í Póllandi em vetur miklu kaldari en
rokið er meira héma. Við erum nú á
leiðinni til Póllands í jólafrí en þar búa
bömin okkar tvö sem em fjögurra og
tíu ára. Þau em núna í umsjá ömmu
sinnar en við söknum þeirra mikið og
ætlum að reyna að taka þau til okkar á
næsta ári.“
Leszek var síðustu tíu árin í Póllandi
starfandi leigubílstjóri en María vann á
Philippe, las Laxness allan og
heldur rheð Val.
Takbahadur, Dammar og Dev frá
Nepal.
Mexhit Gaxholli og kona hans,
Teuta.
skrifstofú. Þau segja mikinn mun á
launum hér. „Við getum haft mjög há
laun þegar vinna er mikil og við erum
mjög heppin með vinnuveitendur." Þau
segjast lítið hafa séð af íslandi enn sem
komið er, aðeins þegar þau fóm land-
leiðina frá Bíldudal í Garðinn síðastlið-
ið sumar, en segjast hafa áhuga á að
ferðast meira þegar bömin þeirra era
komin hingað. Þau segja áhugamálin
snúast um að læra íslenskuna vel en
þau vom að ljúka fyrsta áfanga í ís-
lenskunámi.
„Þá höfum við gaman af því að dansa,
hlusta á tónlist og horfa á sjónvarp,"
sagði Leszek.
Gylfi Þorsteinsson rekur ásamt konu
sinni, Margréti Reynisdóttur, fisk-
vinnslufyrirtækið Þorstein ehf. í Garði
en það hefúr nokkra Pólverja í vinnu
hjá sér. „Okkur vantaði starfsmenn og
komumst í samband við Pólverja á
Bíldudal sem réðu sig í vinnu hjá okkur
og við urðum svo sannarlega ekki fyrir
vonbrigðum því þetta em fyrirtaks
starfsmenn," sagði Gylfi.
Sammála Gylfa er Eggert Kjartans-
son, framkvæmdastjóri fiskvinnslufyr-
irtækisins Suðumess hf. í Keflavík.
„Þetta er fólk sem kemur með það að
markmiði að vinna og stendur sig mjög
vel,“ sagði Eggert en hjá honum starfa
Erlent fiskvinnslufólk í Grindavík lærir íslensku. Philippe er lengst til hægri.
nú um tuttugu Pólveijar.
„Ég held að í fæstum tilfellum ætli
fólkið sér að ílengjast á íslandi." Eggert
segist hafa viljað fá Islendinga í vinnu
en þeir bara fáist ekki í fiskvinnslu.
„ímyndin er þannig að fólk sækir í önn-
ur störf. Það er dýrt að þjálfa upp góðan
starfsmann og horfa síðan á eftir honum
í eftirsóknarverðara starf. „Við gemm
ekki neitt betur við útlendinga en ís-
lendinga, það em alveg sömu laun og
sambærileg hlunnindi."
Eggert segir að þrátt fyrir flest já-
kvætt við að hafa údendinga í vinnu sé
tungumálið þröskuldur í samskiptum.
„Það er ekki gott að þurfa að hafa þriðja
aðila til að tala á mÉi ef maður þarf að
tjá sig um alvarleg málefni og mér
fmnst það skipta höfuðmáli að þeir læri
íslensku þannig að þeir hafi að minnsta
kosti lágmarksþekkingu á málinu og
geti tjáð sig sæmilega. Við leggjum
áherslu á það með því að bjóða þeim
upp á íslenskunám sem þeir stunda
núna hjá Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum. Það er umhugsunarefni hversu
fáir Islendingar fara í Fiskvinnsluskól-
ann og sækja nauðsynlega menntun og
þjáifún í fiskvinnslu og ég lít á það sem
mjög alvarlegt mál,“ sagði Eggert. -AG
Vertu vetkomin/n í verslun okkar og fáðu
faglega ráðgjöf um dýnu sem hentar þér.
MörLiiniii 4 • 108 Royls-jnvíL’
Sími: 533 3500 • Fox: 533 3510 • www.maico.is
Við styðjum við bakið á þér!
ÞINN EIG/N STÍlj
Kirsuberjalínan komin aftur T
Mikið úrval af fallegri gjafavöru, kertum T
og jólavöm á góðu verði. Vomm einnig að
fá glæsileg sængurverasett frá Portúgal.