Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 28
28 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Helgarblað DV-MYND ÞOK Mikael Torfason „Ég er ánægöur aö þessi mikla vinna hafi skilaö sér í góöum dómum. Ég er þó oröinn svo brynjaöur aö ef ég fengi slæma dóma fyndi ég eitthvaö jákvætt viö þá - alveg eins og ég reyni aö hanga í því neikvæöa núna. “ Lýg ekki að lesendum Mikael Torfason á eina af athyglisverðustu bókum ársins, Heimsins heimskasti pabbi Mikael Torfason kvaddi sér hljóös í íslenskum bók- menntum með bókinni Falskur fugl árið 1997. í fyrra kom út hjá Forlaginu bókin Saga af stúlku og í ár gaf JPV-forlag út bókina Heims- ins heimskasti pabbi sem af mörgum er talin ein af bestu bókum ársins og er án efa sú athyglisverðasta. Ófrísk eftir Baltasar? Heimsins heimskasti pabbi er kannski fyrst og fremst samtimasaga, reyndar svo mikil samtímasaga að inn í hana fléttast raunverulegar nafngreindar persónur. Til dæmis ásakar Marteinn Máni, stómasjúk- lingur, aðalsöguhetja og sögumaður, konuna sína um að hafa haldið fram hjá sér með Baltasar Kormáki. Mar- teinn útlistar líka skoðanir sínar á Ingibjörgu Sólrúnu og Kolbrúnu Hall- dórsdóttur á hispurslausan og sumir myndu segja, hrottafenginn, hátt. Hefur einhver af þeim sem nefndir eru i bókinni haft samband við þig? „Ég sá Hilmi Snæ á kaffihúsi um daginn en ég tranaði mér ekkert fram. Þaö hvarflaði að mér þegar ég kom út úr flugvélinni frá Kaupmannahöfn aö það væri kannski ekki svo skemmti- legt að hitta þetta fólk. En þetta er nauðsynlegt fyrir trúverðugleika sög- unnar. Það stendur fremst í bókinni að þetta sé skáldsaga. Baltasar, Hilmir og Ingvar eru bara eins og Davíð Oddsson. Við eigum þessa drengi nema þeir stígi út úr samfélaginu og starfinu sínu. Maður „Úlfhildur er bara ein- hver bókmenntafrœðing- ur sem setur hlutina í hápólitískt samhengi. Ég veit ekki hvað hún á við. Er það ekki pólitísk rétt- hugsun að láta móður bregðast í bók?“ hefur séð forsíðumar með þeim. Mað- ur veit ef konurnar þeirra eru óléttar; það koma myndir af því í Séð og heyrt. Það væri ekki hægt að skrifa samtímasögu án þess að þeir kæmu við sögu eða væru í bakgrunninum." Mikael gengur að þessu leyti skrefi lengra en aðrir höfundar og má þar minnast umræðu um leikverkin Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason og Vitleysingana eftir Ólaf Hauk Símon- arson þar sem áhorfendur telja sig þekkja ákveðnar persónur þótt þær heiti öðrum nöfnum. Hvað þetta varð- ar segir Mikael: „Ég lýg ekki aö les- endum.“ Samtíminn svikinn Allar bækur Mikaels hafa fjallað um samtimann. Af því skapast ákveð- in sérstaða því íslenskir rithöfundar hafa oft verið gjarnir á að skrifa sögu- legar skáldsögur. Hvaða gildi heldurðu að bók sem er skrifuð árið 2000 og fjallar um árið 1850 hafi fyrir lesanda árið 2100? „Þær hafa ekkert gildi. Bækur Guð- bergs munu lifa þvi þær eru samtíma- skáldsögur. Bækur Laxness voru sum- ar sagnfræðilegar en þá bjó hér allt önnur þjóð. Sú þjóð leitaði sjálfsmynd- ar sinnar í gegnum sögu. Við erum löngu hætt því. Það fagnaði énginn þegar Thor gaf út sögu sem geröist á Sturlungaöld. Það vissu allir að hann hefði átt að fjalla um sinn aldur, hvemig væri að vera gamall. Hann svíkur það sem höfundur. Margir ís- lenskir höfundar svíkja samtímann með því að fjalla ekki um hann.“ Heldurðu að þeir treysti sér ekki til þess? „Ég veit ekki hvort þeir fatta þetta. Það er samt búið að segja þetta í nokk- ur ár. Thorar Bandaríkjamanna fjalla mest um samtíma sinn og fjórða hver bók er kannski sagnfræðileg. Þetta er sorglegt. Menn eru alltaf að leita eftir virðingu. Thor hefði aldrei fengið bókmenntaverðlaun ef hann hefði fjallað um gamalmenni og hvernig þau upplifa kynlíf, börn og barnaböm. Það er búið að búa til svona bók- menntaverðlaun. Þegar Einar Már komst næst því að skrifa rosalega samtímaskáldsögu, Engla alheimsins, fékk hann enga tilnefningu til ís- lensku bókmenntaverðlaunanna. Hún slysaðist bara á borð útlendinga og þeir sáu að einhver var að fjalla um samtimann á Islandi." Já, bókmenntaverðlaunin Ákvöröun bókaútgefenda að láta eina manneskju ráða tilnefningum í flokki fagurbókmennta hefur vakiö nokkrar deilur. Hvert er viðhorf þitt til íslensku bókmenntaverðlaunanna? „Bókmenntaverðlaun hafa bara slæm áhrif. Þau skipta engan máli nema þann sem fær þau. Verðlaunin eru marklaus þegar það er bara ein manneskja í nefndinni. Þetta er búið til að auglýsa nokkrar bækur og selja þær. Fólk er búið að fatta þetta og það verður ekkert sniðugt að fá þessi verðlaun. Það eru margir búnir að segja þetta ár eftir ár og em farnir að hljóma eins og einhveijir sérvitring- ar, bitrir og beiskir. En núna þegar kom í ljós að ein kona átti að ráða öllu hugsaði fólk: „þetta er rotið“ - eins og það sé eitthvað nýtt.“ Sumir hafa velt því fyrir sér hvers vegna niðurstaða útgefenda varð að velja einn. Mikael veit svarið við því. „Útgefendur eru, eins og höfundar, svo hræddir um að einhver verði reið- ur út í þá. Útgefendur eru eins og börn alkóhólista. Þeir urðu svo hræddir um að ef þeir fengju þrjá eða fjóra í nefnd þá yrðu nefndarmenn ósammála þegar þeir byrjuðu að ræða bækurnar. Þá yrðu nefndarmenn óvinir þeirra sem skipuöu þá í nefnd- ina.“ Pólitísk rétthugsun Þrátt fyrir að dómar um Heimsins heimskasta pabba hafi almennt verið mjög jákvæöir setti Úlfhildur Dags- dóttir spumingarmerki við það að mamman í sögunni hefði bmgðist - henni fannst það ekki sérlega frum- legt. „Úlfhildur er bara einhver bók- menntafræðingur sem setur hlutina í hápólitískt samhengi. Ég veit ekki hvað hún á við. Er það ekki pólitísk rétthugsun að láta móður bregðast í bók? Á ég að biðja mæður landsins af- sökunar? Þetta er bara mgl. Sæti ég uppi með Félag einstæðra feðra ef fað- irinn hefði bragðist? Það er mjög áhrifamikiö þegar móð- ir bregst. Úlfhildur Dagsdóttir á engin böm og hefur ekki hugmynd um það. Mæður sem bregðast era dæmdar af samfélaginu, systrum og mæðmm. Af- staða mín er því frekar femínísk. Ég las einu sinni ritgerð um Sögu af stúlku í Tímariti Máls og menning- ar. Það var gaman að sjá að einhver hafði tekið sér tíma í að lesa bókina. Samt var þetta eitthvað sem ég skildi ekki og átti ekki að skilja; ég var ekki í markhópnum. Ég passaði mig á því að eiga ekki þetta eintak svo ég færi ekki að skoða það. Bókmenntafræðingar eru sýrðir. Ég hitti einn um daginn sem sagði mér að saurpokinn á maganum á stómasjúklingnum Marteini Mána í Heimsins heimskasta pabba væri tákn um það að bera syndir sínar ut- an á sér. Þetta er svo mikið rugl. Það er alltaf hægt að finna svona út. Það var bara þannig að ég var með svona poka og lánaði honum til að gera hann að almennilegri persónu. Það er ekki flóknara en það.“ Gul hús og blá hús Heldurðu aö bókmenntafræðingar haldi almennt að höfundar hugsi sér- staklega um þá og táknfræði ýmissa kenninga þegar þeir setjast við skrift- ir? „Ég held að þeir séu famir að halda það. Þeir átta sig þó ekki á því að þjóðin tekur ekki mark á neinum bók- menntafræöingi. Stærstu gagnrýnend- urnir þessi jólin eru Kolbrún Berg- þórsdóttir og Hrafn Jökulsson sem eru þekkt og em í sjónvarpinu. Fólk er ekki með einhvem bókmennta- fræðing hjá Mogganum á hreinu og les eftir honum. Fyrir utan þá 800 sem kaupa Tíma- rit Máls og menningar og lesa Gyrði þá veit fólk að bókmenntafræðingar ljúga. Þeir fjalla um sögumar í þeim tilgangi að athuga hvort þær eru skrifaðar fyrir þá og þeirra fræði. Al- menningur vill að fólk segi sér hvort bækurnar séu skemmtilegar og góðar svo það geti keypt sér til að lesa.“ Heldurðu að einhverjir höfundar skrifi sérstaklega fyrir bókmennta- fræðinga? „Já. Sumir höfundar eru mjög með- vitaðir um það. Nýjasta bók Gyrðis á að vera „enn eitt púsl í Gyrðisgát- una“. Hann lifir sig alveg inn í hlut- verkið. Hann er með einhverja gátu í gangi: Gul hús og blá hús. Maður sem hjólar að einhverjum vita. - Þetta er ekki um neitt en það er vel gert. Hann kann þetta. Hann á kannski eftir að gera eitthvað sem selst í meira en 800 eintökum og einhver vill lesa. Hann hefur gengist svo upp í hlutverkinu að hann mígur yfir samtímann. Ég held að ég sé heiðarlegri gagn- vart samtimanum og samferðafólki mínu. Þótt ég nafngreini það þá míg ég allavega ekki yfir það.“ Varö fjölskyldumaöur Hvemig fer það saman að vera aggressífur höfundur og íjölskyldu- faðir? „Ég les ekki upp úr bókunum mín- um fyrir bömin mín,“ segir Mikael og glottir við tönn. „Þegar ég eignaðist fyrsta bamið mitt varð ég fjölskyldu- maður og það var einmitt það sem ég þurfti. Þá hætti ég að djamma með vinum mínum og fékk sjálfsaga. Heimilið er umgjörðin sem ég þurfti til að skrifa og gefast aldrei upp. Ég lít ekki á mig sem aggressífan höfund. Það lítur bara þannig út af því að það hefur verið ákveðinn tepruskapur ríkjandi. Það má ekki tala um bækur annarra og allt á að vera svo settlegt. Þess vegna er bara einn í nefndinni sem tilnefndi til ís- lensku bókmenntaverðlaunanna. Ég er greinilega svo naífur að segja hvað mér finnst. Vonandi held ég því áfram og verð ekki hræddur við aö mæta fólki á götu.“ Hangi í því nefkvæða En fyrir uppreisnargjaman höfund hlýtur að vera erfitt að fá góða dóma. „Ég reyni að halda í þetta neikvæða svo ég telji mér ekki trú um að bókin sé algóð. Ég er miklu betur undirbú- inn undir dómana því ég er að koma að utan og hef ekki séð neitt í sjón- varpinu og blöðum. Ég skoðaði ekki bókina í búöinni eða er að bögga út- gefandann minn. Ég er mjög ánægður að þessi mikla vinna hafi skilað sér í góðum dómum. Ég er þó oröinn svo brynjaður að ég ef ég fengi slæma dóma þá fyndi ég eitt- hvað jákvætt við þá - alveg eins og ég reyni að hanga í því neikvæða núna.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.