Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Side 71
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Tilvera
75
DV
Kasparov:
Spáir í skák Hannesar Hlífars
Gary Kasparov fjallaði um skák
Hannesar Hlífars Stefánssonar og
Viktors Bologans úr 1. umferð og taldi
að Hannes hefði átt að sætta sig við
jafntefli í eftirfarandi stöðu.
Kasparov segir á heimasiðu sinni:
„Hér hefði Hannes átt að leika 29.
bxa6 og sætta sig við jafntefli. Mér
finnst 29. bxa6 Bxe4 30. De2 vera
staða Hannesi töluvert í hag. Svo seg-
ir Kasparov að eftir 29. Bc4 Rc5 30.
Db2 a5 hafi svartur unnið vegna betri
peðastöðu. Eins og glöggir lesendur
muna benti ég á vinningsleið fyrir
Hannes daginn eftir skákina i DV sem
síðan stórmeistararnir Þröstur Þór-
hallsson og Helgi Áss Grétarsson hafa
tekið dyggilega undir. Vinningsleið-
ina fann ég á meðan skákin var tefld
úti í Nýju Delhi. 31. Dxe5 Hér fmnst
mér 31. Rxe5 ekki vera siðri leikur í
vinningsstöðu, 31. -Rxa4 32. Dd4 Rc3
33. b6! De7 34. Rg4 með illvigum hót-
unum. 31. -Dxe5 32. Rxe5 Bxe4 33.
Rd7 Rxd7 34. Hxd7 Bc2 35. b6 b3 36.
Hxf7 Þessum leik gaf ég spurningar-
merki að ósekju eins og Þröstur Þór-
hallsson og Þorsteinn Þorsteinsson
hafa bent á. Þeir notuðu þó aðalhug-
mynd mína sem hægt er að útfæra
öðruvísi líka! Vinningsleið mín er 36.
b7 b2 Mikið peðakapphlaup! Peða-
staða hvíts reynist umtalsvert betri.
37. Bxf7+! Kh8 38. Ba2 blD 39.
Bxbl Bxbl 40. Hc7 Bf5 41. g4 Be6
42. Hc6 og hvítur vinnur vegna hót-
unarinnar 43. Ha6 einfaldasta vinn-
ingsleiðin er 42. -Hb8 43. Hxe6 Hxb7
44. Ha6 og vinnur. En Hannes er enn
á réttri leið. 36. -b2 37. Ha7+?? Hér
vinnur 37. Hc7+ Kh8 38.Ba2 blD
(eða Hb8 39. b7!) 39. Bxbl Bxbl 40
b7 og sama staða er komin upp og í
vinningsleið minni. Þorsteinn Þor-
steinsson, markaðstjóri RÚV og góður
skákmaður, fór með upplýsingamar
frá mér í íþróttaþátt hjá Bjama Fel.
kl. 11.30 og spáðu þeir réttilega Hann-
esi sigri. Síðan í hádegisfréttum RÚV
varð Bjarni að tilkynna að Hannes
hefði tapað. Það gerði hann eftir 37. -
Kh8 38.Ba2 Hb8! Vinningsleikur en
annaðhvort hefur mér farið fram eða
Kasparov aftur í skáklistinni nema
hvorutveggja sé.
Sending af himnum ofan
En það er verið að tefla um FIDE-
heimsmeistaratitil í Indlandi. Vinn-
ingsskákir Anands koma sem sending
frá guðunum enn þá. En nú fer mót-
spyrnan að harðna úr þessu.
Hvítt: Viswanathan Anand (2762)
Svart: Bartlomiej Macieja, (2536)
Caro-Kan, Nýju-Delhí 07.12. 2000
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4.
Rxe4 Rd7 5. Bc4 Rgf6 6. Rg5 e6 7.
De2 Rb6 8. Bb3 h6 9. R5f3 a5 Hér
hefur Þröstur Þórhallsson leikið 10.
c3 sem er ekki lakari leikur.10. a4 c5
11. Bf4 Bd6 I skák á milli Tals og
Petrosjans, tveggja fyrrverandi heims-
meistara. 1973 lék Tal 12. Be5 og tap-
aði um síðir. 12. Re5 0-0 13. Rgf3
Rbd5 14. Bg3 Dc7 15. dxc5 Dxc5 16.
0-0 b6 17. Hfdl Ba6 18. c4 Had8.
Allt þetta er vel þekkt og þessa
stöðu haföi Anand á móti enn einum
fyrrverandi heimsmeistara, Anatoly
nokkrum Karpov, í spilavíti í Monte
Carlo 1994. (Skákgagnabankar segja
marga söguna ef menn nenna að gá!)
Þá lék Anand 19. Rd3 og tapaði. En nú
kemur endurbótin á glæsihóteli í
Nýju Delhi. 19. Rd4 Bxe5 20. Bxe5
Rb4 21. Rb5 Bxb5 22. cxb5 Hxdl+
23. Hxdl Hc8? Það er deginum ljós-
ara að hér verður svartur að leika 23.
-Rbd5. Eftir 24.Bxd5 Rxd5 25. Dg4
g6 stendur hvítur betur. En um hvað
ætli hinn ungi Pólverji hafi verið að
hugsa? 24. Bxf6 gxf6
Jafnvel ég hefði fómað höndum og
leikið síðan því sem Anand lék. Það
kemur gkkert annað til greina í stöð-
unni, það sést úr flugvél í lendingu í
Nýju-Delhí.
25. Bxe6 fxe6 26. Dxe6+ Kh8 27.
Dxf6+ Kg8 28. De6+ Kh8 29. Dxh6+
Kg8 30. De6+ Kh8 31. h3 HfB 32.
Dh6+ Kg8 33. Dg6+ Kh8 34. Dg3 Dc2
35. Hd4 1-0
Ætli Eyjólfur fari ekki
að hressast?
Topalov tapaði fyrri skákinni svo
það var að duga eða drepast tO að
komast i bráðabanann. Útkoman varö
mjög skemmtileg skák.
Hvítt: VeselinTopalov (2707)
Svart: Alexei Dreev (2676)
Drottningarbragð, Nýju-Delhi 07.12. 2000
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.Rc3
e6 5. Bg5 h6 Þessum leik er leikið til
að komast hjá öllum rannsóknunum í
Botvinnik-árásinni sem byrjar með 5.
-dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5
9.Rxg5 hxg5 10. Bxg5 Rbd7 sem hef-
ur verið rannsakað í fleiri áratugi af
fleiri skákmönnum en nokkurt annað
byrjunarafbrigði í víðri veröld. 6.
Bh4 dxc4 7. e4 g5 8. Bg3 b5 9. Be2
Bb7 10. Re5 Bg7 Þröstur Þórhallsson
lék hér 10. -Bb4 11. f3 Rh5! og vann
glæstan sigur á móti Ivans Sokolovs á
Reykjavíkurskákmótinu 1998.11. h4
Rbd7 12. Dc2 c5 13. hxg5 cxd4
Staðan líkist fjörinu á dansgólfmu
með Stuðmönnum í Atlavík og Ringo
Starr forðum daga! 14. Rxb5 Rxe4 15.
Rxc4 Rxg3 Skiljið þið núna hvað ég
meina? 16. Rbd6+ Kf8 17. Rxb7 Dc7
18. fxg3 Dxb7 19. 0-0 d3? Eftir 19. -
Db4 er staðan mjög flókin, of flókin
fyrir mig. 20. Dxd3 Re5 21. Rxe5
Db6+? Eina vonin var 21. Bxe5 22.
g6 f6 23. Bf3 Db6+ 24. Khl og hægt
er að slá frá sér? 22. Hf2 Bxe5
Að yflrsjást næsti leikur hvíts í
útreikningunum er einhvers konar
hitabeltissjúkdómur. Nú hrynur
allt! 23. Df3! f5 24. Dxe8+ Ke7 25.
Df3 hxg5 26. Hdl Kf6 27. Bc4 g4
28. Dd3 Kg5 29. Hel Dc5 30. b4
Dd4 31. Hxe5 Dal+ 32. Hfl Dxe5
33. Dd2+ Kg6 34. Hel. 1-0.
Heimsmeistaraeinvígið
á Indlandi
Meðan Gary Kasparov, fyrrverandi
heimsmeistari FIDE og sinna eigin
“samtaka“ sleikir sárin eftir einvígið
við Kramnik einhvers staðar á mér
alls ókunnum stað og Vladimir
Kramnik nýtur lífsins sem öflugasti
skákmaður heims er teflt af miklu
kappi um heimsmeistaratitil FIDE í
Nýju-Delhí á Indlandi. 16 manna úr-
slitunum lauk í gær og Viswanathan
Anand hefur lokið sínum einvígjum
ávallt fyrstur, hann hefur haft svart i
fyrri skákinni og samið fljótlega um
jafntefli og síðan hafa andstæðingar
hans verið óvenju samvinnuþýðir og
lagst á stokkinn fljótlega i miðtaílinu.
Pólverjinn ungi var þakklátur fyrir
kennslustundirnar fáu og sagðist vera
feginn að þurfa ekki að tefla lengur,
þetta hefðu verið erfiðar viðureignir
og hann hefði náð lengra en hann
bjóst við. Hann hefur tímann fyrir
sér, 23 ára gamall. Anand er sem sagt
kominn í 8 manna úrslit og mætir þar
núverandi heimsmeistara FIDE, Alex-
ander Khalifman, sem ekki hefur átt
eins náðuga daga og teflt erfiðar og
strembnar viðureignir. Hann lagði
Brasilíumanninn í löngu endatafli
Skákþátturinn
sem hann (Khalifman) tefldi ekki
beint í anda endataflssérfræðinga á
borð við Vassily Smyslov, fyrrverandi
heimsmeistara, en vann þó samt að
lokum. En Khalifman gæti engu að
síður velgt Anand vel undir uggum,
Anand hefur varla þurft að tefla al-
vöruskák ennþá á mótinu og svo von-
ast ein billjón Indverja eða svo til að
hann verði heimsmeistari. Erfitt er að
vera spámaður í eigin fóöurlandi. En
á Indlandi gilda víst önnur lögmál en
víða annars staðar.
Morozevich var sleginn út af æsku-
vini sinum, Vladislav Tkachiev, sem
nú teflir fyrir hönd Frakka. Móri vildi
ekki næstum því jafna stöðu(?), fórn-
aði eöa lék af sér peði og tapaði
hróksendataflinu. Það fengust aðeins
úrslit í 3 einvigum af 8 og þurfti því
að grípa til bráðabana í 5 viðureign-
um. Michael Adams reyndist vandan-
um vaxinn og vann öruggan sigur á
Peter Svidler. Grischuk hinn ungi sló
sömuleiðis Ehlvest örugglega út í
bráðabananum. Shirov átti í óvenju-
litlum erfiðleikum með Gelfand og
vann einnig örugglega. Og elsti kepp-
andinn Boris Gulko haföi ekkert til
vamar öruggri taflmennsku Bareevs.
Topalov og Dreev háðu æsilega viður-
eign og þar endaði engin skák með
jafntefli. í bráðabanaum vann Topa-
lov 2 síðustu skákimar og komst
þannig áfram.
A-hópur:
1. Bartolmiej Macieja, Póllandi - Vis-
hwanathan Anand, Indlandi 0,5-1,5
2. Alexander Khalifman, Rússlandi -
Rafael Leitao, Brasilíu, 1,5-0,5
3. Michael Adams, Englandi - Peter
Svidler, Rússlandi, 1-1 bráðabani 1,50,5
4. Alexei Dreev, Rússlandi - Veselin
Topalov, Búlgaríu 1-1, bráðabani 1-3
B-hópur:
1. Alexander Morozevich, Rússlandi
-Vladislav Tkachiev, Rússlandi 1-1,
bráðabani 0,5-1,5
3. Alexei Shirov, Spáni - Boris Gelf-
and, ísrael, 1-1, bráðabani 1,5-0,5
4. Evgeny Bareev, Rússlandi - Boris
Gulko, Bandarik., 1-1, bráöabani, 1,50,5
í 8 liða úrslitum tefla því saman:
A-hópur:
Vishwanathan Anand - Alexander
Khalifman
Michael Adams - Veselin Topalov
B-hópur:
Vladislav Tkachiev - Alexander
Grischuk
Alexei Shirov- EvgenyBareev
í
TÖ LVUBORÐ
PG STPLL
20% afsláttur af
öllum borðstofusettum
og sófaborðum til jóla.
í Míru
30% afsláttur af
postulíni og glösum.
'^Bæjarlínd 6, sími 554 6300
www.mira.is
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Lindargata
Klapparstígur
Garðabær
Hegranes
Blikanes
Haukanes
Mávanes
Sendlar óskast
Reykjavík
Laufásvegur
Miðstræti
Blesugróf
Jöldugróf
Hjallavegur
Kambsvegur
Gnoðarvogur
á blaðadr. DV eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
►| Upplýsingar í síma 550 5000