Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Qupperneq 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 DV Til heiöurs látnum Fétagi í samtökum Yassers Arafats skýtur úr byssu sinni upp í toftiö í göngu tii minningar um alla þá sem hafa falliö í átökum viö ísraela. Skotbardagar veikja friðarvonir Skotbardagar á Vesturbakkanum og dauöi Palestínumanns á Gaza í gær uröu til að veikja enn frekar vonir manna um að hægt verði að semja um frið fyrir botni Miðjarðar- hafsins áður en Bill Clinton lætur af embætti Bandaríkjaforseta eftir hálfan mánuð. Gilead Sher, skrifstofustjóri Ehuds Baraks, forsætisráðherra ísraels, ræddi við bandaríska emb- ættismenn vestur í Washington síð- degis í gær og fundur var áformað- ur með Clinton síðar. Sher lýsti því yfir í gær að hann ætti ekki von á að Clinton tækist að höggva á hnút- inn sem friðarviðræðurnar eru komnar í. Vatnsskortur ger- ir lífið leitt í Kína Vatnsskortur í norðurhluta Kína er orðinn svo gífurlegur að stjóm- völd hafa ákveðið að veita vatni úr hinu mikla Yangtze-fljóti tólf hundruð kílómetra leið til að bjarga því sem bjargað verður á þurrka- svæðunum þar sem helstu ár hafa þomað upp. í blaðinu International Herald Tribune segir að með þessu séu yf- irvöld að viðurkenna að þurrkarnir í norðurhluta landsins séu ekki af náttúrunnar völdum heldur sé um að kenna eyðingu skóga og öðrum mannanna verkum. Það mun taka heilan áratug að grafa skurðina til að veita Yangtze norður á bóginn og að minnsta kosti tvö hundruð þúsund manns verða fluttir frá heimilum sínum vegna framkvæmdanna. Lionel Jospln Virt franskt dagblaö sagöi í gær aö franski forsætisráöherrann ætlaöi aö seg/a af sér snemma á næsta ári en því var vísaö á bug. Jospin ekkert á afsagnarbuxum Aðstoðarmenn Lionels Jospins, forsætisráðherra Frakklands, sögðu í gær að ekkert væri hæft í fregnum um að hann ætlaði að segja af sér snemma á næsta ári og einbeita sér að því að sigra í forsetakosningun- um sem verða haldnar í marsmán- uði eða maí. Dagblaðiö Le Monde hafði eftir heimildarmönnum sínum sem standa forsætisráðherranum nærri að Jospin vildi hafa óbundnar hend- ur þegar nær drægi kosningunum. Fastlega er búist við aö Jospin muni bjóða sig fram gegn Jacques Chirac, núverandi forseta, þótt hann hafi ekki lýst því yfir enn. Skýrsla umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna: Talsverð geisla- mengun í Kosovo Prófanir sem umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna gerði sýna að umtalsverð geislavirkni er á þeim stöðum í Kosovo þar sem NATO beitti vopnum með rýrðu úrani. Þýska dagblaöiö TAZ greindi frá því í gær að átta staðir af ellefu sem kannaðir voru í nóvember hafi reynst að hluta töluvert mengaðir. Blaðið sagði að úranryk og ósprungnar sprengikúlur hefðu fundist og vitnar í bráðabirgða- skýrslu umhverfisstofnunarinnar sem dagsett er 29. desember 2000. Sprengikúlur með úrani á oddin- um voru notaðar til að rjúfa gat á brynvarin farartæki Serba, eins og skriðdreka. NATO er undir miklum þrýstingi frá stjómvöldum í nokkrum ríkjum Evrópusambandsins vegna fullyrð- inga um að rýrt úran, sem notað var í vopnum NATO, hefðu valdið dauða nokkurra friðargæsluliða á Gæsluliöi í Kosovo ítralskur friöargæsluliöi sinnir skyldustörfum sínum í bænum Pec í Kosovo. Háværar kröfur eru um aö NATO kanni hvort sprengikúlur meö rýröu úrani hafi valdiö bæöi sjúk- dómum og dauöa hjá gæsluliöum. Balkanskaga eða sjúkdómum sem hafa verið kallaðir „Balkanskaga- heilkennið". Kastljósinu var beint að sjúkdóm- inum eftir að fréttist að sex ítalskir hermenn, sem höfðu gegnt herþjón- ustu í fyrrum Júgóslavíu, hefðu fengið hvítblæði og dáið eftir að þeir komust í snertingu við notuð skotfæri. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins stóð í gær við viðvaranir forseta síns, ítalans Romanos Prod- is, um hættumar af úransprengikúl- unum. Ekki vom þó allir á einu máli um skaðsemi þeirra á heilsu manna. Bresk stjómvöld sögðu til dæmis að engar vísbendingar væru um að vopnin, sem NATO notaði, hefðu haft heilsuspillandi áhrif á breska friðargæsluliða. Rúmlega 40 þúsund úransprengj- ur voru notaðar í átökunum í Bosn- iu og Kosovo. Grænfriöungar mótmæla kjarnorku Félagar í umhverfisverndarsamtökunum Greenpeace mættu meö hauskúpugrímur fyrir andlitunum í mótmælastööu fyrir utan umhverfisverndarstofnunina í Santiago, höfuöborg Chiles, í gær. Tilefni mótmælanna er væntanleg sigling bresks skips meö mjög geislavirkan úrgang fyrir Hornhöföa, syösta odda Suöur-Ameríku, um miöjan janúar. Harold Shipman kann að hafa myrt 297 sjúklinga sinna: Einhver afkastamesti fjölda- morðingi sem sögur fara af Breski raðmorðinginn og heimil- islæknirinn Harold Shipman myrti hugsanlega 297 sjúklinga sína, að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem bresk stjórnvöld sendu frá sér í gær. Læknirinn er því einhver af- kastamesti íjöldamorðingi sem sög- ur fara af. Shipman hefur þegar verið sak- felldur fyrir að myrða fimmtán eldri konur með því að sprauta í þær heróíni. í skýrslunni segir að hundruð annarra sjúklinga hafi orð- ið fómarlömb mannsins sem hefur hlotið viðurnefnið Dauði læknir. „Miöað við svipaðar læknastofur voru dauðsfóllin sem Shipman stað- festi 297 fleiri," sagði prófessorinn Richard Baker, höfundur skýrsl- unnar. Baker sagöi á fundi með frétta- mönnum að hann hefði rannsakað dánarvottorð og umsóknir um lík- Dauöl læknir Breski heimilislæknirinn Harold Shipman er meöal afkastamestu raömoröingja sem sögur fara af. brennslu frá Shipman og að á grundvelli þeirra teldi hann að' Qöldi sjúklinga Shipmans sem létust við dularfullar aðstæður væri frek- ar 236. Þá eru með taldir fimmtán sjúklingarnir sem hann hefur verið sakfelldur fyrir að myrða. Bamabarn eins fómarlambsins sagði í gær að Shipman ætti að játa á sig glæpina. „Sumar fjölskyldumar vita ekk- ert hvað þær eiga til bragðs aö taka. Þær geta ekki snúið sér neitt,“ sagði Jane Ashton Hibbert í samtali við BBC. „Ef hann viðurkenndi sekt sína yrði þetta allt miklu auðveld- ara fyrir fjölda fjölskyldna." Miðað við þær tölur sem eru i skýrslunni er Shipman næstur á eft- ir Pedro Armando Lopez frá Kól- umbíu sem er mesti fjöldamoröingi sögunnar. Hann er talinn hafa myrt 300 ungar stúlkur. Nyrup vinnur á IfeffSÉIitei'íl Danskir jafnaðar- I menn hafa bætt við \ J sig 2,5 prósentustig- L 4 um eftir nýársræðu B - AI Rasmussens forsæt- w \ isráðherra og J hrókeringar hans á ' ™ ■ ■ stjóminni þremur dögum fyrir jól. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skoðana- könnun sem gerð var fyrir danska viðskiptablaðið Borsen. Laxeldismenn reiðir Skoskir laxeldismenn em æfir yf- ir fullyrðingum um að hættulegt magn eiturefna eins og díoxins gæti leynst í eldisfiski. Því er haldið fram í mynd sem sýnd verður i breska sjónvarpinu BBC á sunnu- dag. Laxeldismenn segjast vissir um að framleiðsla þeirra sé i háum gæðaflokki. Hlustaði ekki á páfa Jóhannes Páll páfi hefur látið hafa eftir sér að Bill Clinton, fráfar- andi Bandaríkjaforseti, sé eini þjóðarleiðtoginn sem hann hafi ekki getað átt samræður við. Clinton dáðist bara að fallegum veggmynd- um þegar hann ræddi við páfa í Vatíkaninu en hlustaði ekki, að sögn læknis, á páfa. Umræðan hræddi E-pillunotkun hefur minnkað meðal ungmenna í Vejle í Dan- mörku i kjölfar mikillar umræðu í fjölmiðlum um skaðsemi þessa vin- sæla fíkniefnis. Ákærur í fínu lagi Dómstóll í Moskvu úrskurðaði i gær að ákærur á hendur fjölmiðla- kónginum Vladímír Gúsinskí um flár- svik væru í fullu gildi. Þar með var hnekkt úrskurði annars og lægri dómstóls frá í síð- ustu viku um að ákærumar skyldu niður faUa. Margir telja ákærumar aðfór Kremlverja að tjáningarfrels- inu. Gúsinskí er í haldi á Spáni. Mir skal til jarðar Forsætisráðherra Rússlands und- irritaði í gær tilskipun þess efnis að hin aldna geimstöð Mir skyldi tekin af sporbaug um jörðu og látin falla í sjóinn. Vinirnir með vopnin Nokkrir banda- menn Slobodans Milosevics, fyrrum Júgóslavíuforseta, eru enn með vopnin sem þeim voru af- hent á meðan Milosevic var enn við völd. Að sögn innanríkisráðherra Júgóslavíu er um að ræða sjálfvirka riflla, leyniskytturifQa, gasbyssur og þús- undir skota. Enginn bandamann- anna hefur leyfl til að vera með þessar byssur. Bent á Continental Franskir flugslysarannsakendur sögðu í fyrsta skipti í gær að málm- stykki sem talið er eiga þátt í því að Concorde-þota Air France fórst í flugtaki í Paris á síðasta ári hafi komið úr vél bandaríska flugfélags- ins Continental.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.