Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
21
DV
Helgarblað
Rosie O’Donnell:
Komin út úr skápnum
Rosie O’Donnell er einn vinsæl-
asti spjallþáttastjóri í Ameríku
næst á eftir Oprah Winfrey. Donn-
ell stjórnar sínum eigin þætti og
er gríðarlega vel þekkt.
Allt sem slíkt fólk gerir opinber-
lega eða í sínu einkalífi verður
umfjöllunarefni fjölmiðla. Donnell
er móðir tveggja ættleiddra barna
og býr með annarri konu sem heit-
ir Kelli Carpenter.
Nú er það orðið opinskátt í Am-
eríku að þær deila ekki bara með
sér íbúð heldur deila rúmi og kyn-
hneigð því Donnell og Carpenter
eru lesbískar. Þetta þykja allnokk-
ur tíðindi og verða til þess að
Donnell er í annarri stöðu en áður
og sumt sem hún segir verður lagt
út á annan veg.
Stutt er síðan Donnell varð tíð-
rætt um að helsti draumaprins
hennar væri Tom Cruise. Nú velta
menn vöngum yfir því hvort þetta
hafi verið úthugsað yfirvarp eða
kannski vísbending um að Cruise
tilheyrði einnig sama hópi og
Donnell.
Aðrir láta sér fátt um þessar
fréttir fmnast og segja að kyn-
hneigð Donnell sé eitt verst varð-
veitta leyndarmál í bandarískum
skemmtanaiðnaði og hafi verið á
allra vitorði árum saman að hún
hneigðist til kvenna.
Rosie O’Donnell
Hún hefur ákveðið að koma út úr
skápnum.
Hófsama leikkonan
sýnir nýja hluta:
Opinberun
Halle Berry
Halle Berry
hefur hingað tll
verið talin verið
hófsöm í sýning-
um á brjóstum
sínum í kvik-
myndum. Þegar
tökur voru á
Swordfish fór
hún fram á gífur-
lega háar upp-
hæðir fyrir að
sýna á sér brjóst-
in, raunar eina
milljón dollara fyrir hvort stykki.
Þegar kom að því að leika í mynd-
inni Monster’s Ball sem hún er til-
nefnd til óskarsverðlauna fyrir var
hún öllu viljugri í opinberun lík-
ama síns. Eftir þvi sem leikstjóri
myndarinnar segir varð að klippa
nokkuð mikið af ástaratriðum út úr
myndinni, þar á meðal ástaratriði
með Halle og Billy Bob Thornton.
Halle leikur konu fanga en Billy
Bob er í hlutverki rasisks fanga-
varðar.Leikstjóri myndarinnar,
Marc Foster, segir að hann hafi
þurft að slást við kvikmyndaeftirlit
í Bandaríkjunum til að hún yrði
ekki bönnuð. í nýlegu viðtali segir
hann að hann hafði þurft að leggja
mikið á sig til að sannfæra eftirlits-
menn um að atriðið væri nauðsyn-
legt fyrir framvindu myndarinnar.
Halle Berry
Sýnir hold á
Skrímslaballinu.
James Woods:
Yill
hálshöggva
hryðju-
verkamenn
Leikarinn
James Woods
hefur ekki verið
mikið i sviðsljós-
inu undanfarin
misseri enda
ekki verið í áber-
andi hlutverkum
í vinsælum kvik-
myndum. Hann
gekk gersamlega
fram af mjög
mörgum með
harkalegum um-
mælum sinum ”
fyrir skömmu þegar hryðjuverka-
menn voru til umræðu.
„Það er aðeins ein leið til að
stöðva hryðjuverkamann og það er
að höggva af honum hausinn. Ef við
höfum minnsta grun um að eitt-
hvert land hýsi hryðjuverkamann
þá skal það land þurrkast af yfir-
borði jarðar."
Þessi ummæli Woods þóttu mörg-
um frekar harkaleg og sérstaklega
fóru þau fyrir brjóstið á talsmanni
araba í Bandaríkjunum sem þykir
kannski ekki sérkennilegt. Jean
Abinader, sem er í forsvari fyrir Ar-
abísku stofnunina, sagðist vona að
Woods væri aftur farinn að taka lyf-
in sín.
James Woods
Hann hefurgeng-
iö fram afmörg-
um meö ummæl-
um sínum.
2002 hjólalínan er komin
Gerðu góð kaup - Sama verð og í fyrra
S* KLEIN
Handcrafted Science'
ORNiNNP'
STOFNAÐ 1925
Skeifunni 11, Sími 588 9890
Söluaöilan Útisport, Keflavík - Hjólabær, Selfossi - Sportvep Akureyri
Byggingavöruversl-Sauöárkr. Olíufélag Crtvegsmanna Isafiröi
Eðalsport Vestmannaeyjum - Pípó, Akranesi
Opið laugard. 10-16
I Visa- og Euroraðgr.
www.ornmn.is
Njóttu útiverunnar...