Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
DV
Skíðamanns-
ins draumur
- um harðræði, langferðir, heita læki, afrifur og leitina að draumnum
Allir skíðamenn eiga sér draum.
Draumurinn snýst um nokkur atriði
sem telja verður meginatriði. Eitt er
glitrandi snjóbreiða eins langt og aug-
að eygir, umkringd i íjarska hvítum
köldum fjöllum sem eru líkt og huiin
feldi. Þykkum hvítum feldi.
Annað er sólskin og þótt vetur sé
þá er næstum alveg logn og það hvíl-
ir yfir náttúrunni þessi einstaka
stillta þögn sem aðeins verður á köld-
um og kyrrum vetrardögum.
Það er alltaf gott færi í draumi
skíðamannsins. Það er hart og gott
rennsli en skíðin marka samt aðeins
fór I jafna hjambreiðuna. Skíðamað-
urinn er á leiðinni eitthvað til fjalla
og hans ferðalag sækist vel og það er
heitt kakó og snúður í bakpokanum
hans.
Þetta er draumur skíðamannsins
og þótt aðstæður séu sjaldnast ná-
kvæmlega eins og hér er lýst þá eru
margh skíðamenn alltaf að leita að
þessum draumi.
Erum við á réttri leið?
Skíöagörpum finnst oftast gaman á ferö þótt veöur séu ekki fullkomin. Hér
er Einar Ragnar Sigurösson, siglingafræöingur ieiöangursins, glaöbeittur á
miöri leiö í Laugar í hvínandi skafrenningi.
Meiri orku
Þegar talað er um skíðamenn í
þeirri grein sem fer hér á eftir er
alltaf átt við þá sem kjósa að ferðast á
gönguskíðum um landið og kæra sig
lítt um troðnar brautir. Þetta er sér-
stakur þjóðflokkur fólks og hann er
sennilega ekki mjög stór.
Skíðaganga er einhver hollasta
hreyfing sem völ er á en hún er jafn-
framt mjög orkuírek og enginn mað-
ur hefur betri matarlyst en sá sem
gengið hefur á skíðum daglangt. Sá
sem gengur rösklega á skíðum brenn-
ir um það bii 800 hitaeiningum á
klukkustund. Það þýðir að skíðamað-
ur sem gengur heilan dag hefur eytt
6-7000 einingum.
Öfundsverðir Akureyringar
Vinsælasta útgáfa skíðagöngu er
að ganga á svokölluöum brautarskíð-
um í troðinni braut eða góðri slóð eft-
ir aðra skíðamenn. Þegar aðstæður
eru góðar má sjá slíkar troðnar braut-
ir á Miklatúni og Laugardal í Reykja-
vik og þær eru alltaf fullar af fólki.
Mai-gir leita einnig í Heiðmörk en á
skógarstígum þar er oft gott að ganga
og sérstaklega er stígurinn með fram
Vifilsstaðahlið vinsæll því þar er
skjól fyrir norðanátt.
Akureyringar eiga sinn Kjama-
skóg næstum inni I bæ. Þar eru alltaf
troðnar brautir fyrir skíðamenn og
þar er alltaf meiri snjór en í Reykja-
vík og sunnlenskh skíðamenn grútöf-
unda félaga sína fyrh norðan.
Þeh sem alast upp í snjóþungum
héruðum verða behi skíðamenn en
Skíðamannsins draumur
Draumur gönguskíöamanns snýst
um sól, snjó oggott færi. Þetta var
allt saman til staöar á þessari mynd
sem var tekin í Bláfjöllunum um síö-
ustu helgi.
aðrir. Þess vegna em flesth bestu
skíðagöngumenn íslands annað hvort
úr Fljótum, Ólafsfirði eða vestan af
ísafirði.
Athvarf flesha skíðagöngumanna í
þéttbýlinu á suðvesturhominu er yf-
irleitt í Bláíjöllum þar sem er troðin
skemmtileg braut og hægt að velja
um misjafnlega stóra hringi. Þegar
snjóalög þykkna og sól hækkar á lofti
má oft sjá stóra hópa fólks að leik á
Hellisheiði um leið og reyndar Mos-
fellsheiði og Skálafelli þvi þá sjaldan
að snjór er nógur eru gríðarlega mörg
tækifæri fyrh skíöagöngumenn í ná-
grenni Reykjavikur. Tiltölulega flatar
víðáttur eins og finna má á heiöunum
kringum Reykjavík eru kjörlendi fyr-
h gönguskíði en slíkh garpar eru
ekki endilega á höttunum efth brekk-
um. Skíðamenn fyrh norðan og vest-
an öfúnda Sunnlendinga mikið af
þessum góðu aðstæðum en hafa vænt-
anlega samúð með þeim í snjóleysinu.
Stöðutákn skíðamanna
Gönguskíði eins og þau sem yfir-
leitt em notuð í troðnum brautum
em grönn og frekar þykk miðað við
hvað þau em mjó. Næsta stig þar fyr-
h ofan era breið skíði og þynnri en
brautarskíði og em með stálköntum.
Þeim er hægt að stýra í talsvert brött-
Loksins, loksins
Hér sést sami hópur loksins kominn í Laugar eftir átta tíma ferö
meö vindinn í fangiö.
Vinsældir Lauganna
Gott dæmi um vel heppnaða veh-
arferð á skíðum væri að ganga frá
Sigöldu sem leið liggur í Landmanna-
laugar efth hefðbundinni slóð. Leiðin
er 23-24 kílómehar og ekki mikill
hæðarmunur og um slétt land að fara.
Auðvelt er að rata þar sem háspennu-
línur visa veginn hluta af leiðinni og
bílaumferð og umferð vélsleða er tals-
verð á þessum slóðum.
Skíðagarpar eru 6-8 tíma að fara
þessa leið með farangur og þykh gott
dagsverk. Síðan mætti morra í heitum
læk í Landmannalaugum um kvöldið
en hinn vinsæli lækur í Laugum er að
jafnaði heitari á vetrum en sumram
vegna lægri grunnvatnsstöðu.
Sá sem hefur legið þar eins og
skata á froststilltu kvöldi í myrkri og
horft upp í stjömubjartan himininn
og látið líða úr sér eftir erfiðan skíða-
dag gleymh því aldrei.
Landmannalaugar draga þess
vegna skíðamenn til sin ár efth ár og
vegna þess að þar er stór upphitaður
skáli í eigu Ferðafélags íslands eru
Laugar án efa vmsælastur viðkomu-
staða alha skíðamanna. Þaðan liggur
leið manna áfram en margh fara
hinn svokallaða Laugaveg milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur á skíðum
þegar snjór er nægur en aðrh demba
sér austur Jökuldali og taka byggð
austur í Skaftártungu.
Það er vinsælt meðal skíðamanna
af þessu sauðahúsi að fara um Kjöl
með viðkomu á Hveravöllum. Fjórar
til fimm dagleiðh em há Blöndu-
vhkjun að Gullfossi ef færi er gott og
er leiðin um 170 kilómehar.
Öllu meira og stærra verkefni er að
ganga Sprengisand á skíðum en það
hafa samt margh gert og er rétt að
reikna með viku til þess.
Langferðir og kjörtími
Nú stendur yfir kjörtími þeirra
sem fara í lengri ferðh á skíðum. Sól
er að hækka á lofti og birtutíminn
orðinn nógu langur til að ferðast
heila daga. Færið er yfirleitt gott
enda harðnar það efth því sem sól-
bráðar gæth meira. Páskar em sér-
stök hátíð í hópi slíkra ferðalanga og
mest er gaman þegar þá ber upp á
hentugan tíma, sem er áður en snjóa
fer að leysa.
Páskamh í ár em á besta tíma en
skíðamönnum er illa viö sumarpáska
þegar krapablár og leysing fer að
hrella ferðamenn til fjalla.
Blessuö Bláfjöllln
Útsýniö af Heiöartoppi í Bláfjöllum er fagurt í góöu veöri. Hér finnst
skíöamönnum gott aö æja meö kakóbrúsa og snúö. Af bílastæöi viö Blá-
fjöll eru um þaö bil þrír kilómetrar aö Heiöartoppi.
OV-MYNDIR RÓSA SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
Fjöll og flmindi
Margir gönguskíöamenn fara í lengri vetrarferöir á gönguskíöum. Hér sést
hópur göngumanna á ferð rétt viö Bjallavaö í byrjun mars ð leiö í Land-
mannalaugar. Veöriö var ekki sérstaklega gott.
um brekkum og fóta sig á mun meha
harðfenni en á brautarskíðum.
Þessi skíði em notuð í lengri ferð-
h utan hoðinna brauta og það er á
þessum skíðum sem skíðagarpar
bregða fyrh sig hinni frægu Þela-
merkursveiflu sem er fom aöferð við
að beygja í bröttu rennsli. Ekkert
finnst þeim sem fara á skíðum um
fjöllin eins glæsilegt og falleg Þela-
merkursveifla og ekkert er efthsótt-
ara stöðutákn í heimi skíðamanna en
kunnátta í slíku.
Stöðutákn skiðamanna eru reynd-
ar fjöimörg og margh í þessum hópi
em haldnh vægu merkjasnobbi, Af
einhverjum ástæðum eru útprjónaðar
norskar peysur og hnéháh skræpótt-
h sokkar sjaldséðh utan Miklatúns
og þættu sennilega frekar hallærisleg-
h á fjöllum þótt þetta sé nánast ein-
kennisbúningur skíðamanna í sum-
um nágrannalandanna.
Þeh sem leggja í langferðh að veh-
arlagi eiga um ýmsa kosti að velja.
Ferðafélögin bjóða upp á ýmsar
páskaferðh og bjóðast jafnvel til að
flytja mat og farangur fyrir fólk. En
þeh sem ferðast á eigin vegum em yf-
irleitt með farangur sinn í poka á
bakinu eða draga hann á efth sér á
svokallaðri púlku sem er léttur far-
angurssleði. Púlka er í raun sérstak-
ur sleði til þessara hluta en flesth
láta sér nægja venjulega snjóþotu.
Það er erfitt að bera meha en 15-20
kíló á bakinu til lengri tima en auð-
velt er að setja 30 kíió á þotuna og sé
færið gott skondrar hún á efth skiða-
manni án þess að hann fmni mikið
fyrh því.