Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Page 59
LAUGARDAGUR 23. MARS 2001
67 > ~
DV
EIR á laugardegi
Sturla. Einar. Vilhjálmur.
Norðvestur-
bandalagið
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins á
norðvesturhominu ganga ekki allir að
þingsætum sínum vísum eftir kjör-
dæmabreytingima sem gerð verður
fyrir næstu alþingiskosningar. Nýtt
Norðvesturkjördæmi rúmar ekki
nema hluta þeirra þingmanna sem nú
sitja og því hafa þeir Sturla Böðvars-
son, Einar K. Guðfinnsson og Vil-
hjálmur Egilsson bundist bandalagi til
sóknar fyrir eigin sætum og ætla að
skilja þau Einar Odd Kristjánsson,
Guðjón Guðmundsson og Sigríði Ingv-
arsdóttur (arftaka séra Hjálmars Jóns-
sonar) eftir úti í kuldanum. Fellur
bandalagið í misgóðan jarðveg í
flokknum. (Framhald).
Jón fyrir Jón eftir
Rakaði yfir-
varaskeggið
Jón Baldvin HannibafsSon, sendi-
herra í Washington, hefur rakað af
sér yfirvaraskegg sem lengi hefur
verið aðalsmerki hans. Hefur rakst-
urinn vakið þó nokkra athygli í Was-
hington og skiptar skoðanir um ágæti
rakstursins. Gamlir félagar sem
heimsótt hafa sendiherrann þekkja
hann vart fyrir sama mann - í útliti.
Landssöfnun
skilar sér
Á næstu fimm árum verður þvi fé
sem safnaðist í landssöfnun til
styrktar krabbameinssjúkum í
marsmánuði í
fyrra deilt út á
margvíslegan
hátt - 15 milljón-
um á ári. Alls
söfnuðust um 80
milljónir króna
og koma þær til
skiptanna að frá-
dregnum kostn-
aði. Að sögn Guð-
rúnar Agnars-
dóttur, læknis og
talsmanns söfn-
unarinnar, verða nú ráðnir sálfræð-
ingur og félagsráðgjafi til að vera
krabbameinssjúkum og aðstandend-
um þeirra innan handar, nám-
skeiðahald verður eflt, stutt við end-
urhæfingu á Landspítala, svo og við
bakið á aðildarfélögum Krabba-
meinsfélagsins á landsbyggðinni,
þar sem reynt verður að ráða starfs-
menn. Þá fer ákveðin fjárhæð í
heimahlynningu krabbameins-
sjúkra í Skagafirði en þar er um til-
raunaverkefni að ræða. Þá hefur
verið keypt ný íbúð í Reykjavík fyr-
ir krabbameinssjúka af landsbyggð-
inni en fyrir á Krabbameinsfélagið
funm íbúðir í höfuðborginni með
Rauða krossinum.
Gubrún
15 milljónir á ári
í 5 ár.
Leiðrétting
Vegna langvarandi umræðu um
réttindamál kynjanna skal tekið
fram að karlmenn geta enn fengið
legsteina.
Guörún meö Svalarörin frá Svíþjóö
Sérstakur starfsmaður settur í að blása í rörin til aö finna iekann.
Galli í sendingu frá Tetra í Svíþjóð:
Svalarörin láku
- og neytendur sugu loft - Svalinn frussaðist um allt
„Við fengum gallaða sendingu frá
Tetra í Svíþjóð og gallinn sá að þeir
sjálfir fundu ekki gallann," segir
Guðrún Gunnarsdóttir hjá gæðaeft-
irliti Vífilfells um rör sem fylgja
Svalafernum og láku neytendum að
óvörum. Sugu þeir loft í stað Svala
en sjálfur drykkurinn frussaðist
meðfram. „Vegna þess hve varan er
létt kaupum við mikið magn í einu.
í þessari sendingu voru 5 milljónir
röra og hluti þess gallaöur."
Starfsmenn Vífilfells brugðust
hart við og stóðu frammi fyrir þvi
vali að hætta framleiðslu á Svala
eða taka áhættuna og senda lek rör
á markað. Rörin koma í kössum og
eru 32 þúsund rör í hverjum. Gæða-
eftirlitsmennimir skoðuðu 52 kassa
og fundu þar tvo með lekum rörum.
„Við höfðum sérstakan starfsmann
í þvi að blása í rörin til að athuga
hvort þau væru í lagi en gallinn
lýsti sér í gati við beygjuna á rörinu
rétt áður en harmonikkan byrjar,"
segir Guðrún í gæðaeftirlitinu sem
hefur ekki átt sjö dagana sæla að
undanfórnu. „Við vonum bara að
þetta sé búið og fleiri lek rör fari
ekki í umferð."
Vífilfell á von á nýrri og ógallaðri
rörasendingu frá Tetra í Svíþjóð 9.
apríl og þangað til verða starfsmenn
og neytendur að lifa milli vonar og
ótta um hvort þeir lendi á götóttum
rörum eða heilum. Strax og ný
sending berst verður þeirri gömlu
eytt og farið fram á bætur sam-
kvæmt eðlilegum viðskiptavenjum.
Þeim sem lent hafa í því að fá Sval-
ann yfir sig í stað upp í sig er bent
á að hafa samband við gæöaeftirlit
Vífilfells þar sem allir eru boðnir og
búnir til að aðstoða fólk og leiðrétta
það sem misfarist hefur.
JÓfl
Ólafsson
Plötusnúöur á
Bessastöðum.
Ólafur Ragn-
ar Grímsson
Forsetaveislur
í áskrift.
Kristófer Már
Kristinsson
Evrópufræðingur
meö slagkraft.
Þorsteinn
Joð.
Dýrslegur
í þögninni.
Jón
Böðvarsson
Sköllóttur
þokki.
Markús Örn
Antonsson
Óljóst
endurvarp.
m
m
E5
m
m
L Toppsex-listl Kollu bygglr á grelnd, útgeislun
W og andlegu menntunarstigl þeirra sem
i honum eru. Nýr Ustl næsta laugardag.
Kynlíf í fjölbraut
Nær allir
nemendur
Fjölbrauta-
skólans í Ár-
múla stunda
kynlíf sam-
kvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar sem birt
er í glæsilegu skólablaði þeirra. Nær
því allir skólastrákarnir fá fullnæg-
ingu við samfarir en aðeins um 70
prósent skólastúlknanna. 95 prósent
drengjanna stunda sjálfsfróun, 62 pró-
sent stúlknanna sem hafa mestar
mætur á trúboðsstellingunni við sam-
farir. Strákamir vilja dömuna ofan á
fái þeir að velja.
f
T
Sykursjúk börn í
sumarbúðavanda
- fjárlaganefnd gat lítið hjálpað
Fjárlaganeftid
Alþingis sá sér
ekki fært að verða
við óskum að-
standenda sykur-
sjúkra bama um
þriggja milljóna
króna styrk til
reksturs sumar-
búða fyrir börnin.
í bréfi frá nefnd-
inni felst hún á að
veita börnunum
200 þúsund króna
styrk til sumar-
dvalarinnar. Það
fé hrekkur skammt og því er sumar-
búðadvöl sykursjúku bamanna
stefnt í voða en þau þurfa flest hver
sérstaka umönnun og geta ekki sótt
almennar sumarbúðir.
„Við reynum allt hvað við getum
til að hjálpa fólki sem fær ekki úr-
lausn annars staðar. En ég verð að
skoða þetta mál sérstaklega en get
það ekki nú
vegna þess að ég
ligg veikur í
flensu,“ segir
Ólafur Örn Har-
aldsson, formaður
fjárlaganefndar.
„Ég býð þessu
fólki hins vegar
að koma og hitta
mig strax og ég er
orðinn frískur.“
Sykursjúku
bömin (6-12 ára)
höfðu hlakkað til
að fara í sumar-
búðir í Reykjadal í Mosfellssveit í
lok ágúst en óvíst hvort af því getur
orðið. Nema Ólafur Öm og félagar
hans í fjárlaganefnd hressist. Eða
eins og eitt foreldrið orðaði það:
„Nóg virðist vera til af peningum
þegar verið er að hækka launin hjá
alls kyns nefndarmönnum sem eru
hvorki böm né sykursjúkir."
Ólafur Öm og sumarbúöirnar
Býður aðstandendum sykursjúkra
barna til fundar - allur af vilja gerður.
Þingmenn að störfum
Verkin verða léttari þegar aðstoðarþingmennirnir koma til sögunnar - ef Guð lofar.
Aðstoðarþing-
menn í fæðingu
í tengslum við væntanlega kjör-
dæmabreytingu má gera ráð fyrir
að nýtt og áður óþekkt afl verði til í
íslenskum stjórmmálum; aðstoðar-
þingmenn. Þeir yrðu ekki kjömir
heldur ráðnir af Alþingi til að byrja
með. Samkvæmt tillögum nefndar
undir forsæti Einars K. Guðfínns-
sonar er gert ráð fyrir einum og
hálfum aðstoðarmanni á hverja tvo
þingmenn. Reynslan myndi síðan
skera úr um hvort ekki væri rétt að
hver þingmaður fengi sinn aðstoð-
armann - og þá líklega að eigin vali
líkt og tíðkast hjá ráðherrum. Til-
lögurnar eru nú á borðum for-
manna stjórnmálaflokkanna sem
eiga eftir að taka afstöðu til þeirra.
Verulegur kostnaður myndi fylgja
nýbreytninni en samkvæmt út-
reikningum Hreins Loftssonar
hæstaréttarlögmanns kostar hver
þingmaður þjóðarbúið 37 milljónir
króna á kjörtímabili.
Rétta myndin
DVIHYND HILMAR ÞÖR
A ís
Hófadynur á ísilögðu vatni. Fegurri verða hljóðin ekki.