Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
niiy
Fréttir
Fimm aðilar staðfestu áhuga á kaupum:
Hverjir vilja ríkisbankana?
Þeir fimm aðilar sem hafa sótt
um að kaupa hlut ríkisins í Lands-
bankanum eða Búnaðarbankanum
koma víða að úr íslensku viðskipta-
lífi. Meðal umsækjenda um kaupin
má sjá allt frá sjávarútvegsfyrir-
tækjum til banka og frá olíufyrir-
tæki til kaupfélags.
Bjórverksmiöjur og banki
Meðal þeirra sem lýst hafa yfír
áhuga á kaupum að minnsta kosti
pórðungshluta í ríkisbönkunum er
íslandsbanki. Hann hefur áður lýst
yfir áhuga sínum á því að fjárfesta í
samkeppnisbönkunum tveimur.
Fjórir aðrir aðilar sitja um hit-
una. Feðgamir Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor Björg-
ólfsson hafa ásamt Magnúsi Þor-
steinssyni staðfest áhuga sinn. Þeir
voru reyndar hvatamenn að því að
bankamir fóru á sölu þegar þeir
uppljóstraðu um áhuga sinn við
einkavæðingarnefnd fyrir
skemmstu.
Feðgamir auðguðust meðal ann-
ars á bjórverksmiðjunni Bravo í
Rússlandi og eru leiðandi hluthafar
í Pharmaco.
Björgólfur , Ólafur
Guðmundsson. Olafsson.
Forn frægð SÍS
Þriðji aðilinn sem staðfesti áhuga
sinn á margt að sækja til gamla SlS-
veldisins. Þar má meðal annars flnna
Samvinnulífeyrissjóðinn, Samskip hf.,
og Ker hf., sem er í raun ekkert ann-
að en Olíufélagið hf. sem á Esso-bens-
ínstöðvarnar, svo eitthvað sé nefnt. í
sama hópi er Eignarhaldsfélagið Sam-
vinnutryggingar, Eignarhaldsfélagið
Andvaki, sem er einn eigenda Vá-
tryggingafélags íslands og tvö fyrir-
tæki frá Sauðárkróki: Fiskiðjan Skag-
firðingur og Kaupfélag Skagfirðinga.
Flest þessi fyrirtæki búa við ágætisaf-
komu. Skagfirðingur er rekinn með
230 milljóna króna hagnaði og Ker hf.
með 378 milljóna króna hagnaði. Sam-
Þóröur Valur
Magnússon. Valsson.
skip töpuðu hins vegar tæpum 250
milljónum á síðasta ári, en Olíufélag-
ið á helming hlutafjár í fyrirtækinu.
Huldumenn úr Gildingu
Fjórði hópurinn sem vili ríkisbank-
ana á þegar drjúgan hlut í Búnaðar-
bankanum. Meðal annarra í þessum
hópi eru fyrrverandi eigendur Gild-
ingar, sem eignuðust hlut í Búnaðar-
bankanum þegar þeir seldu fyrirtæk-
ið í hendur bankans. Þórður Magnús-
son, fyrrverandi stjórnarformaður
Gildingar og forsvarsmaður fjárfesta-
hópsins hefur ekki viljað gefa upp
nöfn einstakra aðila. Sjálfur er hann
núverandi stjórnarformaður Ölgerð-
arinnar Egils Skallagrímssonar. Af
þeim fjárfestum
sem stóðu að Gild-
ingu má nefna
Þorstein Vilhelms-
son, fyrrum Sam-
herjamann, Jón
Helga Guðmunds-
son, forstjóra
Byko og stjómar-
meðlim í Samtök-
um atvinnulífsins
og Áma Odd Þórð-
arson, sem er sonur Þórðar og stóð að
Gildingu með honum.
Norðanmenn í Kaldbak
Fimmti fiárfestahópurinn sem vill
næla sér í bita af rikisbanka er að norð-
an. Hlutafjáreigendur í Fjárfestingafé-
laginu Kaldbak em fyrst og fremst
Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri (KEA),
sjávarútvegsrisinn Samheiji og Lífeyr-
issjóður Norðurlands. Kaldbakur á tæp
9 prósent i Samherja, en aftur á Sam-
herji tæp 17 prósent í Kaldbaki. Þá á líf-
eyrissjóðurinn rúm 13 prósent en KEA
ber höfuð og herðar yfir aðra með rúm-
um helmingshlut sínum. Þess ber að
geta að Samherji hagnaðist um milljarð
á fyrsta ársf órðungi 2002. -jtr
Eiríkur S.
Jóhannsson.
Reykjavík:
Harður arekstur
við Hlemm
Mjög harður árekstur varð á of-
anverðri Hverfisgötu á móts við
Hlemm um klukkan átta í gær-
kvöldi.
Tildrög slyssins munu þau að
Audi-bifreið var ekið á miklum
hraða upp Hverfisgötu í austurátt.
Á móts við Hlemm fataðist
bilstjóranum aksturinn með þeim
afleiðingum að hann hafnaði á
jeppabifreið, sem var lagt í
bílastæði. Jeppinn hentist síðan á
annan bil þannig að alls lentu þrír
bílar í súpunni.
Mildi þykir að ekki ekki urðu
alvarleg slys á fólki en loftpúðar í
Audi-bílnum sprungu út við höggið.
Bílamir eru mikið skemmdir ef
ekki gjörónýtir. -sbs
Harður árekstur
Audi bifreiöinni vargefiö inn og útkoman varö svakaleg, en alls þrír bílar lentu í súpunni. Góöu heilli uröu hins vegar
engin slys á fólki en lögregla og slökkviliö voru viö öllu búin þegar þau komu á vettvang.
Björn Ingvarsson fékk Pioneer-hljómtæki frá Bræðrunum Ormsson:
Set Ragga Bjarna undir geislann
„Þetta eru mjög finar græjur, með
geislaspilara, útvarpi og öllu. Sonur
minn, sem er meira inni í þessu en
ég, er mjög ánægður með græjum-
ar. Ég spila sjálfur ekki mikið, helst
Ragga Bjarna og svoleiðis, en ég er
mjög ánægður með þetta,“ sagði
Björn Ingvarsson, Otrateigi 3,
Reykjavík, við DV. Þá hafði hann
veitt forkunnarfinum Pioneer-
hljómtækjum frá Bræðrunum
Ormsson viðtöku úr hendi Jóhönnu
M. Ólafsdóttur, þjónustuveri DV.
Bjöm hefur verið áskrifandi að
DV í mörg ár og segist ánægður
með blaðið. Hann segist lesa allt i
því en fletti einna fyrst upp á íþrótt-
um og fréttum af Formúlu-
kappakstrinum.
Áskrift Björns að DV hefur nú
fært honum fyrirtaks hljómtæki. En
hann er ekki einn um að vera hepp-
inn. Fimm heppnir áskrifendur
voru dregnir úr áskrifendapotti DV
á fimmtudag. Auk Bjöms fengu þau
Þórunn Kristjánsdóttir, Lágholts-
vegi 9, Reykjavík, og Guðni Magnús
Björnsson, Álfaskeiði 86, Hafnar-
firði, Pioneer-hljómtæki frá Bræðr-
unum Ormsson.
Pitsuveislu fyrir 8 frá Pizza Hut
fengu síðan þau Halldór Bjarni Mar-
íasson, Eiðsstöðum, Blönduósi, og
Þórunn Ólafsdóttir, Túngötu 23,
Grindavík.
Þrír bílar eftir
DV er í sannkölluðu sumarskapi í
allt sumar. í hverri viku verður
dregið úr hópi áskrifenda DV og
munu einn til fimm heppnir áskrif-
Haraldur Magnússon
B.Sc. (bons) Ostcopathy
Osteopathy á íslandi
Hef nýlokið 4 ára námi við The British School of
Osteopathy og hef hafið störf hjá heilsumið-
stöðinni Heilsuhvolli.
Osteopathy (hrygg- og liðskekkjufræði) er likams-
meðhöndlunarkerfi sem greinir og meðhöndlar
hina ýmsu líkamlegu verki gegnum vöðva- og
liðkerfi líkamans.
Osteopathy meðhöndlar vöðva- og liðvandamál,
Heilsuhvoll svo sem bak-, háls- og axlarverki.
Upplýsirtgar og timapantanir í síma 846 3380
Hepplnn áskrifandi
Björn Ingvarsson tekur viö Pioneer-hljómtækjum frá Bræörunum Ormsson úr
hendi Jóhönnu M. Ólafsdóttur, þjónustuveri DV.
endur vinna margs konar vinninga,
eins og sjónvörp, DVD-spilara,
heimabíókerfi, tölvur, fartölvur,
hljómtæki, stafrænar tökuvélar,
pitsuveislur o.fl.
Alls verða fjórir bílar dregnir úr
áskriftarpotti DV. Splunkuný
Toyota Corolla hefur þegar verið af-
hent heppnum áskrifanda en hinir
bílamir þrír verða dregnir út 20.
ágúst, 20. september og 20. október.
Hvaða bílar það verða verður kynnt
síðar.
DV vill verðlauna þá sem safna
áskriftum að blaðinu. Hver sá sem
safnar að minnsta kosti 5 áskrifend-
um að DV mun fá 14 tomma Aiwa-
sjónvarp að launum, með íslensku
textavarpi, A/V-tengi, Euroscart-
tengi og fullkominni fjarstýringu.
Fyrsta sjónvarpið er þegar farið til
ötuls áskriftasafnara, Söndru Dagg-
ar Vatnsdal, 13 ára stúlku í Reykja-
vík.
Þeir sem vilja safna 5 áskrifend-
um geta fengið sérstök eyðublöð á
afgreiðslu DV, Skaftahlíð 24, eða
hringt i síma DV, 550 5000, og beð-
ið um að fá eyðublöðin send heim.
-hlh
j£us jj£ AjíiyarÍLJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.49 22.52
Sólarupprás á morgun 04.21 03.41
Síödegisflóð 20.35 13.26
Árdeglsflóö á morgun 08.53 01.08
Kólnar er líður á kvöldið
Norðan og norðvestan 8-10 m/s og
kólnar með deginum, fyrst á
Vestfjörðum. Norðvestlæg átt 8-13
og rigning eða skúrir norðan- og
vestanlands á morgun, en léttskýjað
að mestu með Suðaustur- og
Austurströndinni.
‘jfsót.'ií> íl JJJL/iJUJJ
Víða léttskýjað
Suðvestan 5-8 m/s og léttskýjað með
köflum víða um landið. Hiti á bilinu
9 til 18 stig, hlýjast austan- og
norðaustanlands.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
Hit« r Hiti 7° Hiti 69
til 18° tii 14° ti! 14°
Vtndur; 5-8»]/s Vindur: 5-8 m/s Víndur: 5-8 m/s
Fremur hæg breytileg átt og stöku skúrir á Hægt vaxandl austan- og norðaustanátt Útlit fyrir norðvestlæga átt og vætu um
yíö og drelf. og fer að rigna, mest allt landið.
Áfram fremur fyret á Fremur kalt í
hlýtt í veöri. austuretröndinnl. veðrl áfram.
Hægt kólnandi.
«- t£ *
1 Vindftraðí
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
ílfl1
AKUREYRI léttskýjaö 14
BERGSSTAÐIR skýjað 12
BOLUNGARVÍK alskýjaö 11
EGILSSTAÐIR mistur 15
KIRKJUBÆJARKL. skúr 12
KEFLAVÍK úrkoma 11
RAUFARHÓFN alskýjaö 10
REYKJAVÍK skýjaö 11
STÓRHÖFÐI skúr 10
BERGEN skýjaö 14
HELSINKI skýjaö 20
KAUPMANNAHÖFN rigning 16
OSLÓ skýjaö 21
STOKKHÓLMUR 20
PÓRSHÖFN ringing 13
ÞRÁNDHEIMUR rigning 14
ALGARVE heiöskírt 30
AMSTERDAM léttskýjaö 21
BARCELONA 26
BERLÍN alskýjað 18
CHICAGO mistur 24
DUBLIN skýjaö 17
HAUFAX skýjaö 16
FRANKFURT alskýjaö 18
HAMBORG alskýjaö 18
JAN MAYEN skúr 11
LONDON hálfskýjaö 23
LÚXEMBORG skýjaö 19
MALLORCA skýjað 29
MONTREAL alskýjað 20
NARSSARSSUAQ skýjaö 8
NEW YORK skýjaö 19
ORLANDO háifskýjaö 26
parIs skýjaö 23
VÍN skýjaö 22
WASHINGTON alskýjað 19
WINNIPEG heiöskírt 18