Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
33V
Eymdin blasir víöa viö
Palestínskar mæöur þurfa flestar aö treysta á aöstoö aöþjóölegra
hjálparstofnana, bæöi vegna matarskorts og húsnæöisleysis í kjölfar
aukinna aögeröa ísraelsmanna á heimastjórnarsvæöunum.
Skýrsla bandarísku þróunarhjálparinnar:
Palestínsk börn þjást
af næringarskorti
Ný skýrsla bandarísku þróunar-
hjálparinnar sýnir að vannæring er
orðin mikið vandamál meðal palest-
ínskra bama á heimastjórnarsvæð-
unum á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Hún sýnir einnig að fátækt
fer vaxandi og heilsubrestur er orðinn
viðvarandi vegna matvælaskorts.
Skýrslan verður ekki gerð opinber
fyrr en í byrjun næsta mánaðar en
skelfilegar niðurstöður hennar hafa
lekið út og vakið mikla athygli.
Samkvæmt skýrslunni er næring-
arskorturinn alvarlegastur hjá böm-
um á aldrinum tveggja tO fimm ára og
fram kemur að um 30% Palestínu-
manna eru háð daglegri matvæla-
aðstoð hjálparsamtaka. Þá kemur
fram að um 70% Palestínumanna
þurfa að lifa af 170 krónum á dag.
Vandinn hefur verið sýnilegur
lengi en færst verulega í aukana með
auknum aögerðum Israela, þannig að
nú horfír í algjört neyðarástand með
sama áframhaldi.
Marhnútakeppni á hafnarsvæðinu, sjóstangaveiöi.
Útimarkaður í tjaldi. Fjölbreytilegar söluvörur, fjöldi seljenda.
Leikborg á hátíöarsvæöi. Sprell og tívolí.
Tónleikar á palli, hljómsveitin BIG CITY.
Barna- og unglingadagskrá meö Valgeiri Skagfjörð
og Helgu Möller: Söngvakeppni, Kántrýdansar og fleira.
Kántrýdansanámskeið í íþróttahúsinu, kennari Jóhann Örn Ólafsson.
Kántrýdanskeppni á palli.
Skemmtidagskrá á palli. Hinn eini og sanni Björgvin Halldórsson.
Hinar íslensku Surprimes.
Línudansbali í íþróttahúsinu. Stjórnandi Jóhann Örn Ólafsson.
Dansleikur á palli, Hljómsveitin 17 vélar.
Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar.
Dansleikur í Kántrýbæ, Hljómsveit Harðar G. Ólasonar og
kóngurinn sjálfur Hallbjörn Hjartarson.
12:00 - 17:00 Útimarkaður í tjaldi. Fjölbreytilegar söluvörur, fjöldi seljenda.
12:00 - > > Leikborg á hátíðarsvæði. Sprell og tívolí.
13:30 - 14:30 Gospelmessa á palli. Óskar Einarsson og hljómsveit ásamt kirkjukór
Hólaneskirkju og söngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur.
14:30 -16:30 Skemmtidagskrá á palli: Kántrýdansasýning. Kóngurinn sjálfur
Hallbjörn Hjartarson með hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar.
GeirmundurValtýsson og Helga Möller ásamt stórsveit. Velgeir Skagfjörð,
Jonny King og fleiri.
15:00 - 19:00 Kántrýdansanámskeið í íþróttahúsinu, kennari Jóhann Öm Ólafsson.
21:00 - 22:30 Uppákomur á palli, frjáls aðgangur trúbadora og annarra
tónlistarmanna úr hópi gesta.
22:30 - > > Söngstemming á hátíðarsvæði með Geirmundi Valtýssyni.
23:00 - > > Varðeldur.
23:30 - > > Fiugeldasýning.
24:00 - 01:30 Tónleikar á palli, Hljómsveitin 17 vélar.
23:00 - 03:00 Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
24:00 - 05:00 Dansleikur í Kántrýbæ, Hljómsveit Harðar G. Ólasonar og
kóngurinn sjálfur Hallbjörn Hjartarson.
Aðgangur: kr. 3.900,- ^ ^
Dagsverð: kr. 1.500,-
Ókeypis er fyrir börn
12 ára og yngri.
23:00 - > > Opið í Kántrýbæ, Maggi og Villi ríöa á vaðið.
16:00 - > > Leikborg opnuð á hátíðarsvæði. Sprell og tívolí.
22:00 - 02:00 Tónleikar á palli, Hljómsveitin BER.
23:00 - 03:00 Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveitin BIG CITY.
23:00 - 03:00 Dansleikur í Kántrýbæ, Maggi Kjartans,
Villi Guðjóns og Helga Möller sjá um fjörið.
EIMSKIP
_, _ -rn
iJQ^mín
Kynnir á Kántrýhátíð 2002
er Valgeir Skagfjörð
Skagstrendingur hf.
. L?-,,
■
: : - —J V V x
Sorgarstund
Sænskar skýrslur benda til aö 65 börn
á aldrinum 0-15 ára hafi veriö myrt þar
í landi á árunum 1990-1998.
Foreldrar komast
upp með að
myrða börnin sín
Átta til tíu böm, á aldrinum frá
fæðingu til sextán ára, eru myrt af
foreldrum sínum á hverju ári í Nor-
egi eftir þvi sem Arne S. Brothne,
yfirdeildarlæknir á barnadeild Ul-
leválsjúkrahússins heldur fram.
Meira en helmingur foreldranna
kemst upp með morðin.
Um sextíu smábörn, á aldrinum
frá fæðingu til þriggja ára, deyja
óvænt á hverju ári í Noregi. Af
þeim eru auðsjáanlega eitt til tvö
myrt. Oftast standa foreldrar fyrir
drápunum og hljóta dóma fyrir
verknaðinn. í þremur tO fjórum til-
vika til viðbótar bera lik bamanna
áverka, sem benda til þess að á þau
hafi verið lagðar hendur, án þess
þó að nokkur sé dreginn til ábyrgð-
ar. Ástæðan er að dauðsfóllin eru
ekki rannsökuð tH hlitar og lögregla
ekki köUuð tU.
Engar nákvæmar tölur eru tU í
Noregi um barnamorðin en
Brothne styðst við tölfræði frá Sví-
þjóð. Hún sýnir að eitt af hverjum
hundrað þúsund bömum er myrt. í
könnununum kemur einnig fram að
áttatíu prósent barnanna, sem faUa
fyrir hendi foreldra sinna, eru yngri
en fimm ára. Fjörutíu prósent eru
tveggja ára og yngri og tuttugu pró-
sent eru á aldrinum fimm tU sext-
án ára.
Arne Brothne segir að oft geti
verið erfitt að segja tU um hvort
bam hafi verið kæft eða það dáið af
öðrum orsökum. Hann segir að eðli
málsins samkvæmt sé aUtaf við-
kvæmt að rannsaka barnadauða og
læknar og hjúkrunarfólk segi ekki
aUtaf frá grun sínum um óeðlUegan
dauðdaga af ótta að hann sé hugsan-
lega reistur á röngum forsendum.
Staöreyndir um
misþyrmingu barna:
1 Svíþjóð voru 923 kærur um mis-
þyrmingu bama á aldrinum 0-6 ára
lagðar fram árið 2001.1 langflestum
tUvikanna voru það foreldrar eða
aðrir íjölskyldumeðlimir sem stóðu
að baki misþyrmingunum. Skýrslur
Svíanna benda tU að 65 böm á aldr-
inum 0-15 ára voru myrt í landinu á
áranum 1990-1998.
• 75% bamanna voru sjö ára og
yngri.
• 88% bamanna voru myrt af
öðru eða báðum foreldrum sínum. í
hinum tUvUíunum var um systkini
eða aðra sem börnin þekktu að
ræða.
• Því yngra sem barnið var því
líklegra var að móðir þess væri
morðinginn.
• í nánast öUum tilvikum áttu
morðin sér stað á heimUum bam-
anna.
• í flestum tUvikum voru bömin
kæfð.
• í um helmingi tilfeUanna
framdi morðinginn sjáUsmorð eftir
voðaverkið.
• Algengustu orsakir voöaverk-
anna voru geðsjúkdómar, afbrýði-
semi eða sambúðarerfiðleikar.
-GÞÖ
(Heimildir: Aftenposten)