Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Síða 9
9
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
DV_____________________________________________ Útlönd
Igor Ivanov.
Ivanov reynir að
miðla málum
Igor Ivanov, utanríkisráöherra
Rússlands, er nú staddur í Seoul í
Suður-Kóreu þar sem hann hitti þá
Kim Dae-jung forseta og Choi Sung-
hong utanríkisráðherra á fundi í gær
áður en hann heldur til Pyongyang,
höfuðborgar Norður-Kóreu, til fundar
við þarlenda ráðamenn í dag. Tilgang-
ur ferðarinnar er að ræða samskipti
Kóreu-ríkjanna og mögulega aðstoð
Rússa við að létta á spennunni milli
þeirra eftir sjóorrustuna í síðasta
mánuði þar sem 5 sunnanmenn og
meira en 20 norðanmenn létu lífið.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu sendu
stjórnvöldum í Suður-Kóreu í fyrra-
dag simskeyti þar sem þau harma at-
burðinn og vonar Ivanov að það muni
verða til þess að hægt verði að taka
upp viðræðurnar sem hafnar voru
milli Kóreuríkjanna með þátttöku
Bandaríkjanna og Japans.
Ivanov mun í viðræðum sínum við
leiðtogana leggja áherslu á að koma
aftur á lestasamgöngum milli ríkj-
anna en að eigin sögn telur hann það
mjög mikilvægt skref í sáttaferlinu.
Leiðtogar Kóreuríkjanna hittust
síðast á fundi í Pyongyang árið 2000
en mistókst þá að ná sáttum.
Viagra getur
bjargað börnum
Stinningarpillan Viagra og börn er
nokkuð sem fólk setur ekki í hvers-
dagslegt samhengi en nú getur orðið
breyting þar á. Danskur hjartalækn-
ir, Jöm Carlesen, heldur því nefiii-
lega fram að Viagrataflan geti hjálpað
börnum sem þjást af sjaldgæfum
lungnasjúkdómi (PPH). Hann styður
álit sitt með tilvitnun í fjölda rann-
sókna sem gerðar hafa verið víða um
heim.
Sjúkdómurinn herjar á um tíu
Dani á ári, einkum konur á fertugs-
aldri, og lýsir sér í of háum blóðþrýst-
ingi í lungum. Áður fyrr var sjúk-
dómur þessi banvænn en í dag er af-
leiðingum hans haldið í skefjum með
tækjabúnaði.
Carlesen, sem reynt hefur Viagra-
töfluna á þremur sjúklingum með góð-
um árangri, segir að engin ástæða sé
lengur fyrir sjúklingana til að notast
við óþægilegan tækjabúnað ef ein lítil
tafla gerir sama gagn. Hann leggur til
að enn frekari rannsóknir verði gerð-
ar á virkni lyfsins gegn sjúkdómi
þessum.
Börn hafa fengið lyfið á nokkruni
sjúkrahúsum í heiminum með góðum
árangri. En á barnadeild danska Rík-
isspítalans hefur aðeins einu barni
verið gefið lyfið án þess að verulegur
bati hafi orðið við lyfjagjöfina. -GÞÖ
Bush hótar að
beita lagasetningu
REUTERS-MYND
Elísabet Bretadrottnlng á Samveldisleikum
Elísabet Bretadrottning heilsaöi í gær upp á keppendur á Samveldisleikunum sem nú fara fram í Manchester í
Englandi. Hér á myndinni ræöir drottningin viö ásrölsku hlaupadrottninguna Cathy Freemans.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
varaði i gær bandaríska þingið við
því að takmarka völd nýs öryggis-
málaráðuneytis sem sérstaklega er
ætlað að fara með öryggismál innan-
lands og lét að því liggja að hann
myndi beita lagasetningu ef með
þyrfti til að ná fram vilja sínum áður
en lögin verða lögð fyrir bandaríska
þingið sem kemur saman seinna í
haust.
Bush sendi þessi skilaboð tO þings-
ins aðeins degi eftir að allsherjar-
nefnd hafði samþykkti lög með 12 at-
kvæðum gegn 5, sem munu neita for-
setanum um völd til þess að takmarka
réttindi þeirra 170 þúsund starfs-
manna sem ráðgert er að ráöa til
starfa hjá áðurnefndu öryggismála-
ráðuneyti.
„Stríðstímar eru ekki rétti timinn
til þess að takmarka vald forsetans í
viðleytni hans til að vernda banda-
ríska þegna,“ sagði Bushæn lagapakk-
inn, sem er sniðinn að vilja
demókrata sem ráða meirihlutanum í
þinginu, gerir ekki ráð fyrir neinum
Bush Bandaríkjaforsetl.
undanþágum frá gildandi lögum og
reglum hvað varðar réttindi opin-
berra starfsmanna, að sögn
demókrata til að vernda sjálfsögð rétt-
indi tilvonandi starfsmanna.
„Ég er ekki að fara fram á völd tO
þess að brjóta á fólkinu heldur aðeins
að tryggja það að völd forsetans verði
ekki takmörkuð. Ég sætti mig ekki
við lagasetningu þingsins sem dregur
úr völdum forsetans og takmarkar
möguleika á að ná settum markmið-
um í baráttunni gegn hryðjuverkum
þegar hagsmunir þjóðarinnar eru í
veði,“ sagði Bush sem finnst laga-
pakkinn ekki nógu sveigjanlegur.
Sérstaklega er hann ósáttur með
ráðningar á starfsfólki en þar vOl
hann að ráðuneytið fái frjálsar hend-
ur tO þess að ráða og reka fólk að eig-
in vOd. „Það gerir ekki annað en að
tryggja betri árangur þess í starfi,"
sagði Bush sem virðist ákveðinn í að
koma sínu í gegn með einum eða öðr-
um hætti.
Demókratinn Josep Lieberman, sem
leiddi vinnuna í aOsherjarnefndinni,
sagðist hissa á viðbrögðum forsetans
þar sem hann hefði fengið 90% af því
sem hann vOdi. „Það voru skiptar
skoðanir um málið í nefndinni og þetta
er niðurstaðan sem mér finnst vel
ásættanleg," sagði Lieberman.
Fjórir ísraelar féllu í hefndar-
árás í nágrenni Hebron
Palestínskir byssumenn skutu í
gær fjóra ísrealska landnema tO
bana í tveimur aðskOdum fyrirsát-
um í nágrenni bæjarins Hebron á
Vesturbakkanum.
Þrír hinna látnu voru úr sömu
íjölskyldunni og var þar um að
ræða foreldra og barn sem voru
saman í öðrum bOnum og fullorð-
inn karlmann sem var í hinum bOn-
um.
Árásin er gerð í kjölfar loftárásar
ísraelsmanna í Gaza-borg á mánu-
daginn þar sem flmmtán manns
féUu og þar á meðal háttsettur for-
ingi í vopnuðum armi Hamas-sam-
takanna sem þegar hótuðu grimmi-
legum hefndum.
Fyrstu hefndaraðgerðir litu síðan
dagsins ljós strax í gær þegar palest-
ínskir byssumenn skutu ísraelskan
rabbía tU bana þar sem hann var á
Fallnlr trúbræður syrgðlr.
ferð í bifreið sinni nálægt bænum
QalqUiya á Vesturbakkanum.
Að sögn talsmanna Hamas var
þar aðeins um að ræða fyrstu við-
brögð við árásinni á Gaza og er ísra-
elsher nú í viðbragðsstöðu þar sem
óttast er að gripið verði tU enn frek-
ari og grimmUegri aðgerða gegn
ísraelskum borgurum.
Fyrr í gær var einn Palestínu-
maður skotinn tO bana nálægt bæn-
um QalqUiya þegar israelskir her-
menn gerðu húsleit á svæðinu. Að
sögn palestínskra öryggisvarða fékk
maðurinn skot í höfuðið þar sem
hann sat við eldhúsborðið í íbúð
sinni.
Talsmaður vopnaðs arms Hamas-
samtakanna skýrði frá því í gær að
nýr foringi hefði verið valinn í stað
Salah Shehada, sem féU í Gaza-
árásinni á mánudaginn, en ekki var
getið um nafn hans af öryggisástæð-
um.
Markovic tvísaga
Rade Markovic,
fyrrum yfirmaður
j| júgóslavnesku leyni-
þjónustunnar í for-
setatíð Slobodans
MUosevics, sagði í
gær að forsetinn fyrr-
verandi bæri enga
ábyrgð á stríðsglæp-
unum í Kosovo. Þetta er í mótsögn við
það sem hann sagði í vitnaleiðslum
fyrir stríðsglæpadómstólum í Haag
fyrr um daginn en þar hélt hann því
fram að MUosevic hefði daglega fengið
skýrslur um aðgerðir hers og lögreglu.
Nauögari í lífstíöarfangelsi
23 ára gamaU Suður-Afríkumaður
var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi
eftir að hafa verið fundinn sekur um
nauðgun á níu mánaða gömlu stúlku-
barni. Atburðurinn mun hafa átt sér
stað á heimUi bamsins og mun mað-
urinn, sem heitir David Potse, hafa
verið unnusti móðurinnar. Móðirin,
hin 17 ára gamla Lya Booysen, viður-
kenndi við réttarhöldin að hún hefði
orðið vitni að nauðguninni en haldið
henni leyndri. Lögreglan komst fyrst
á sporið eftir DNA-rannsókn en halði
áður yfirheyrt Potse þegar málið var
fyrst tU rannsóknar vegna tengsla
hans við móðurina.
Nóvemberliöi handtekinn
Gríska lögreglan
handtók í gær, enn
einn meðlim skæru-
liðasamtakanna 17.
nóvember og er
hann sá fjórtándi í
röðinni sem hand-
tekinn er, grunaður
um aðUd að samtök-
unum. Um er að ræða ónafngreindan
mann á fímmtugsaldri sem sagður er
hafa verið helsti samstarfsmaður Al-
exandros Giotopoulos, stofnanda sam-
takanna, sem handtekinn var fyrr í
mánuðinum. Samtökin eru sökuð um
að hafa staðið að morðum á meira en
20 manns á síðustu 27 árum og þar á
meðal erlendum sendiráðsmönnum,
en fyrsta fórnarlambið mun hafa ver-
ið CIA-foringinn Richard Welch sem
starfaði við bandaríska sendiráðið í
Aþenu.
Eldgos í Kongó
Eldgos hófst í gær í eldfjaUinu
Mount Nyamuragma i Alþýðulýðveld-
inu Kongó, í aðeins 20 kUómetra fjar-
lægð frá borginni Goma, sem varð Ola
úti í öðru eldgosi í janúar sl. Að sögn
yíirvalda er um kröftugt gos að ræða
og mun gossúlan hafa náð um 100
metra i loft upp þegar síðast fréttist,
auk þess sem kvikurennsli var mikið
beggja vegna gígsins, tU norðurs og
suðurs. íbúar nærliggjandi byggða
voru í gær ekki taldir í bráðri hættu,
en með áframhaldandi gosi er óttast
að akurlendi á aUt að 20 kUómetra
svæði kringum þetta 3000 metra háa
fjall geti lent undir hrauni.
Engum aö kenna
Vladimir Ustinov,
aðalsaksóknari
Rússlands, staðfesti í
gær að elds-
neytisleki úr tundur-
skeyti hefði orsakað
sprengingarnar sem
urðu til þess að
kjarnorkukafbátur-
inn Kursk sökk til botns með aUri
áhöfn, aUs 118 manns, sem aUir létust.
Ustinov sagði að nákvæm rannsókn
sérfræðinga hefði leitt það i ljós að
lekinn úr tundurskeytinu hefði orsak-
að sprenginguna sem kom af stað
keðjusprengingum sem rifu göt á
skrokk bátsins. Engum sé um að
kenna og enginn verði dreginn tU
ábyrgðar.
Flýja skattana heima fyrir
Stjórnvöld í Kaliforníu, ríkasta og
fjölmennasta ríki Bandarikjanna,
hafa tUkynnt að þau muni ekki eiga
viðskipti við fyrirtæki sem ekki borga
skatta og skyldur tU ríkisins. Þessi tU-
kynning kemur í kjöU'ar þess að fjöldi
bandarískra fyrirtækja hefur á und-
anförnum mánuðum flutt aðsetur sitt
tU svokaUaðra skattaparadísa, eins og
Cayman-eyja og Bermuda, tU að forð-
ast skattheimtuna heima fyrir.