Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 19
LAUGARDAGUR 27. JÚLf 2002 H&lQarhlað X>V inum en þær eru á svo miklu dýpi aö þaö er vonlaust aö komast að þeim. Það er mjög merkilegt að sjá hvernig þorskurinn syndir upp og niður eftir strýt- unni, manni finnst maður vera á hvolfi þarna,“ segir Héðinn. í myndabunkanum vekja fallegar selamynd- ir, teknar við sellátur i Hindisvík á Vatnsnesi, einnig athygli og aödáun enda teknar í ðtrúlegri nálægð. „Selir eru afskaplega forvitnir en það er nú frekar lítið um það að verið sé að kafa í sellátur. Ég veit ekki annað en þeir séu hættulausir enda er það nú þannig með flest dýr áð þau eru alveg meinlaus nema þeim finnist að það sé ráöist á þau. Menn hræðast mest steinbítinn en ég hef aldrei heyrt um að hann hafi bit- iö menn,“ segir Héöinn. Veiðir rauðmaga ofan á brauð Spurður um flakakafanir á íslandi segir Héðinn að ekki sé mikið um það þar sem ekki sé svo mikið af flökum við ísland, allavega ekki svo vitað sé. „Olíuskipið E1 Grillo, sem sökk í seinni heimsstyrj- öldinni á Seyðisfirði, liggur á tæplega 50 metrum og svo er á Sundunum skipið Sigurjón á 25 metrum sem var sérstaklega sökkt fyrir björgunarsveitirnar til æf- inga, þangað kíkjum við sportkafararnir einnig. Svo er sykurskipið, rétt fyrir utan Álftanesið, og það dreg- ur nafn sitt af sykurfarmi sem það var að flytja til landsins. Það brotnaði alveg í spað og liggur á við og dreif á 12-13 metra dýpi,“ segir Héðinn. Hann bætir við að svo sé alltaf mikið rætt um að kafa í Goðafoss þó svo að enginn leiðangur hafi enn verið farinn þangað að honum vitandi en það verkefni sé mjög spennandi. Héðinn bendir á að kafarar séu oft spurðir hversu djúpt þeir hafi kafað, en í hans augum skiptir dýptin engu máli heldur upplifunin. Sportkafarar séu ekkert að sækjast eftir því aö fara mjög djúpt þar sem mest sé að sjá á 3-18 metra dýpi. „Þar fyrir neðan fer að verða minna að sjá, nema það sé eitthvað sérstakt eins og skipsflak eða eitthvað álíka sem maður er að sækja í. Eftir því sem farið er \<3 dýpra er minna ljós og gróður þrífst ekki í ljósi. Dýr þrífast best í gróðri þannig að þegar komið er niður á 30 metra er ekkert að sjá nema dauðar skeljar og einn og einn karfa,“ segir Héðinn. Persónulega finnst Héðni skemrntilegast að kafa á næturnar því þá er allt annað líf að sjá en á daginn. „Þá er maður bara með eitt ljós og skoðar mjög lítinn hring í kringum sig. Ég hef mjög gaman af því að skoða þetta smáa líf, og eyði oft heilli köfun í bara nokkra fermetra þar sem ég fylgist t.d. með krabba og hvaö hann er að gera,“ segir Héðinn. Skemmtilegasta köfunin sem hann hefur farið í var einmitt næturköf- un í Kaplagjótu í Vestmannaeyjum. „Það var stórkost- leg köfun sem leið eins og skot. Ég hef aldrei séð eins mikið af kolkröbbum en ég held að þetta sé eini stað- urinn á landinu þar sem hægt er að ganga að þeim vísum.“ Það kemur einnig fyrir að Héðinn fari í sérstakar veiðiferðir. Hann hefur farið og tínt skel fyrir veit- ingahús en einnig finnst honum gott að fara og ná sér í einn og einn rauðmaga ofan á brauð. „Rauðmaginn er svakalega góður reyktur ofan á brauð. Hann er svo spakur að hann hreyfir sig ekki þó maður syndi að honum þannig að það er bara hægt að tína hann upp eins og maður sé að tína ber,“ segir Héðinn og hlær. Hann segir að mikið sé kafað á Suðurnesjunum. Vin- sælt sé hjá sportköfurum að skreppa suður í Straums- vík eftir vinnu því þar sé alltaf mikið líf. Um helgar er fínt að skreppa í Flekkuvík á Keilisnesi, eða á bryggjuna í Garði. „Veðrið verður að vera þokkalegt svo hægt sé að fara út í því ef það er mikill öldugangur er svo mikið rót á botninum að skyggnið er ekki mikið og það er náttúrlega ekkert gaman. Það er þó vel hægt að velja köfunarstaði eftir vindátt. Ef það er norðannátt get- um við farið upp á Kjalarnes, í suðvestanátt er það strandlengjan og Straumsvík og svo er alltaf gott skyggni á Þingvöllum, þannig við erum minna háð veðráttunni en margur heldur," segir Héðinn. Fjársjóðir á hafsbotni Talið berst að því hvað þurfi til vilji maður prófa að kafa. Héðinn segir að einu kröfurnar sem hann geri til nemenda sinna séu að þeir séu í almennt góðu líkamsástandi. Hann hefur verið með alls konar fólk í köfunarskólanum hjá sér þar sem kennt er eftir hinu alþjóðlega PADI-kerfi. „Erlendis þekkist það að fólk með hina ýmsu líkamlegu fötlun kafi, jafnvel fólk með engan mátt í fótunum," segir Héðinn sem tekur kennsluna í litlum skrefum og lætur nemendurna verða örugga um það sem þeir eru að gera áður en næsta skref er tekið. Enginn fer út í sjó fyrr en hann er búinn með bóklegt nám og æfingar í sundlaug. Hvað varðar kostnaðinn við að stunda köfun þá er hann lítill. Það kostar að fara á námskeið og koma sér upp búnaði en eftir það er kostnaðurinn enginn og ef vel er farið með búnaðinn getur hann enst í mörg ár. „Það er hár stofnkostnaður en það kostar ekkert að stunda sportið, samanber að í Sportkafarafélaginu hafa oft verið blankir skólastrákar sem hafa alltaf get- að farið að kafa þótt þeir hafi ekki efni á því að fara í bíó,“ segir Héðinn. Eins og áður er komið fram fór Héðinn sjálfur ekki að læra köfun fyrr en fyrir tæpum fjórum árum, þá 33 ára að aldri, og hefur síðan tekið kennararéttindi í greininni og eytt ómældum tíma í kafi. Áður en hann lét af því verða að skella sér á köfunarnámskeið hafði þessi draumur lengi blundað með honum, eða allt frá því að hann var unglingur að alast upp á Raufarhöfn. „Það var nú svo skrýtið með það að ég er alinn upp við sjó, pabbi var svona trillukarl þannig að maður þekkti sjóinn vel enda var ég sjálfur að vinna á sjó sem unglingur. Sjóinn þekkti ég hins vegar bara ofan- sjávar þannig að það var mjög skrýtið að koma loks neðansjávar. Að sjá allt það sem var þar um að vera, allt þetta líf og þetta umhverfi sem var alltaf svo ná- lægt manni en samt svo fjarri. Það var bara ótrúlegt," segir Héðinn. Þannig lýsa nemendur hans einnig þessarri upplif- un, heimurinn undir vatninu er allt annar, litirnir eru undarlegir, þögnin mögnuð og að sjá þaraskóginn sem bærist um er ógleymanlegt. „Fólk getur farið á sædýrasafn og séð fiska í búrum en það er ekki það sama og sjá þá í sínu náttúrulega umhverfi," skýtur Héðinn inn í. Hann viðurkennir að auðvitað sé einnig heilmikil spenna fólgin í því að geta átt það á hættu að rekast á fjársjóð, ekki endilega gimsteina og gull- stangir, heldur eitthvað sem enginn hefur áður fund- ið eða séð. „Hver veit svo sem nema maður rekist einhvern daginn á gullskipið sem hefur verið leitað hvað mest að?“ segir Héðinn glottandi en heldur áfram öllu al- varlegri: „Ég legg mikla áherslu á það að vera áhorf- andi þegar ég er að kafa. Viö eigum ekki að tæta í öllu og tína eitthvað til þess að koma með það upp. Við erum gestir á þessu svæði og eigum að haga okkur eftir því. Það tók mig mjög langan tíma að koma mér af stað og láta drauminn um að prófa þetta rætast. Það er eiginlega það eina sem ég sé eftir í dag, að hafa ekki byrjað fyrr á því að kafa,“ segir Héðinn að lok- um. -snæ DV-mynd Sigurður Jökull Héðinn Ólafssou rekur köfunarskólann Kafarinn.is en auk þess að kenna íslendingum að njóta köfunaríþróttarinnar fer hann með túrista inn í ís- Ienskan neðansjávarheim. „Ég hef aldrei upplifað það að þeim sem prófa að kafa sjálfir finnist þetta ekki æðislegt. Þessi heimur kernur öllum skemmtilega á óvart,“ segir Héðinn. Hverastrýtan í Eyjafirði er einstök á heimsmælikvarða. Slíkar strýtur finnast reyndar annars staðar í heiininum en þær eru á svo miklu dýpi að það er vonlaust að komast að þeim. Skrautfiskar og kórallar sjást ekki við íslandsstrendur en það er þó nóg líf að finna í íslenskum sjó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.