Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Side 24
DV-mvndir E.Ól.
24
H & Iga rb loö 3Z>"V' LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
© ® •
Nýtt sjónarhom á
bijóstin
Alltaf þurfa konur að vera að
vekja athygli á þessum blessuðu
brjóstum sínum. í staðinn fyrir að
ganga áfram í flegnum bolum eins
og hafa verið sérlega vinsælir á
djamminu hér á íslandi getur
kvenkynið þó loksins farið að gefa
nýtt sjónarhorn á þessi djásn sín.
Þverrifa í stað flegins hálsmáls er
frábær hugmynd frá Scherrer fas-
hion house.
Það bætist jafnt oq þétt á andlitsmálningu
leikkonunnar Arndísar Hrannar Egilsdóttur yfir
daginn, og á kuöldin getur hún verið orðin nokkuð
skrautleq. Á sumrin seqist leikkonan samt mála
sig lítið, en dökkur varaHtur oq þung auqnmáln-
ing tekur völdin á veturna. Þessa daqana heldur
Arndís siq að mestu niðri íIðnó, með sólarpúður á
brinqu oq kinnum, þar sem æfinqar á leikritinu
Beyqlurnar standa yfir. Að leikritinu stendur hóp-
ur kvenna sem skrifar sjálfur leikritið en það er
María Reyndal sem leikstýrir hópnum. Beyqlurnar
hafa verið duqleqar við að auglýsa sig ískemmti-
legum „sketsum“á Skjá einum að undanförnu, en
áhorfendur þurfa víst að bíða fram til 30. ágúst til
þess að berja verkið auqum á leikhúsfjölunum.
Sólarpúður frá Lancoiné
---„í sumar hef ég mikið notað Star
ÍwSMV Bronzer sólarpúðrið frá Lancomé. Það
má nota það bæði á andlit og líkama og er það með svona smáveg-
is gliti í. Þetta er fínasta púður og svona á sumrin finnst mér fínt
að nota það í staðinn fyrir venjulegt púður ofan á dagkrem.“
BLautur augnslíuggi
„Méi- finnst flnt að koma við í snyrtivörudeild
Hennes & Mauritz þegar ég er erlendis. Ég kaupi ,«
gjarnan augnskugga i ýmsum litum þar, enda eru
þeir mjög flnir og fást á skít og kanil. Þessa dagana nota
ég mikið blautan augnskugga þaðan sem ég keypti í London og kall-
ast Champagne. Hann er svona kampavínsgylltur á litinn.“
Dölíkur varalitur
„Ég er hrifnust af varalitum í brúnum tónum. Þessa dagana
nota ég mikið varalit frá Dior sem kallast Diorifice nr. 15 og
er hann svona „jassíbrown“. Á sumrin nota ég
ljósari varaliti en á veturna og þá sleppi ég
varablýantinum sem ég nota alltaf með
þessum dimmu dökku litum.“
Vanillulylít frá Fralddandi
„Vinkona mín gaf mér glas af frönsku vanilluilmvatni
sem kallast „Des filles a la vanille" sem hún keypti í lítilli
verslun París og finnst mér það afskaplega gott. Ég hef
nú þegar klárað tvö glös og er á þvl þriðja núna og er
strax farin að kvíða því að það klárist. Ilmvatn þetta
fæst nefnilega ekki á íslandi, allavega ekki eftir þvi
sem ég best veit og veit ég hreinlega ekki hvað ég
geri þegar ég stend uppi með tómt glas.“ r
Dior liandáburður
„Þar sem ég er nú komin yfir þrítugt ákvað ég
nýlega að fjárfesta í handáburði, enda er notkun slíks
áburðar bara hluti af því að eldast. Handáburðurinn sem
varð fyrir valinu er frá Dior og finnst mér hann afskaplega
góður, þó að ég hafi svo sem ekki mikinn samanburð af
öörum tegundum. Ég hef voða gaman af því að bera hann á
mig.“
r
PaUíettur í andHtið
Gallapilsin hafa slegið í gegn í
sumar og virðist sem gallaefnið
muni halda velli í vetur. Þessa
pönkuðu blússu er hægt að kaupa í
franska tískuhúsinu Dior og minn-
ir hún óneitanlega á risavaxna
slaufu. Takið eftir hinni sérstöku
andlitsförðun þar sem pallíettur
eru látnar móta mynstur, bara gam-
an að prófa þetta á djammið en
hingað til hafa pallíetturnar verið á
flíkunum en ekki húðinni.
Vetrar-
tískan
2002-2003
Sumarútsölurnar standa nú
sem hæst þar sem síqauna-
blússur og smárósótt rýkur
út á hálfuirði. Stóra spurn-
ingin núna er sú; hvað
uerður eiqinlega ítísku í
uetur? Miðað uið það
sem hátískuhönnuðirnir
hafa uerið að kgnna að
undanförnu er það ým-
islegt en þó eru ýmsar
skemmtileqar nýj-
unqar sem konur
geta hlakkað til að
ganga í. Helgar-
blaðið kgnnti sér
nokkrar af þeim.
Upp með buxumar
Járnbelti hafa verið vin-
sæl á gallapils og -buxur
og hafa þau fengist víða í
vískum tískuverslunum. Nýjung í
línu eru járnaxlabönd en þessi eru frá brasilíska
hönnuðinum Ellus. Spurning hvort axlaböndin verði
eins vinsæl og beltin.
Naldii án
nektar
Þessi
perlusaumaða
skyrta er frá
Jean Paul
Gaultier.
Skemmtileg
hönnun þar sem
kvenmannslíkam-
inn er viðfangsefn-
ið. í fjarlægð virðist
sem maður sé nak-
inn í þessari skyrtu
þar sem perlurnar
móta brjóst og geir-
vörtur. Gæti verið gam-
an að mæta í þessu á
árshátíðina og vekja eft-
irtekt Takið eftir naflan-
um á bindinu, hér er eng-
um smáatriðum gleymt og
kæmi ekki á óvart ef ásaum-
uð væru handleggjahár á
ermunum einnig ... Frábær
skyrta fyrir íslenskt vetrar-
veður sem býður ekki alltaf
upp á það að vera fáklæddur, í
þessari skyrtu er maður hins
vegar nakin án nektar.
...kíkt í snvrtibudduna
V