Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 30
30 Helgarblac) 33 "V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 Þú missir aldrei námshæfileikann Jóhanna Kristjónsdóttir var að- eins tvítug þegar hún skrifaði söguna Ást á rauðu Ijósi. Sagan þótti fjörug og listilega skrifuð og seldist upp á örskömmum tíma. Nú hefur bókin loksins ver- ið gefin út aftur og DV ræddi við Jóhönnu um bókina djörfu og til- ganginn með endurútgáfunni. Ástæða þess að Jóhanna ákvað að skrifa skáld- sögu var ekki sú hún þyrfti endilega að fá útrás fyr- ir sköpunargáfuna. Hún hafði alltaf ætlað sér að skrifa bók einhvern tímann en Ást á rauðu ljósi var skrifuð af mjög praktískum ástæðum. Jóhanna var nýbúin að kaupa íbúö á Lindabraut ásamt eigin- manni sínum Jökli Jakobssyni en hún var ekki full- frágenginn. Til að eiga fyrir pússningunni settist Jóhanna fyrir framan ritvélina og skrifaði. Hagnað- urinn af sölu bókarinnar dugði ekki eingöngu fyrir pússningunni heldur líka rafmagni og pípulögnum. Núna hefur bókin verið endurútgefin og enn er ástæðan aö nokkru leyti praktísk. Jóhanna er að fara i meistaranám í Damaskus í Sýrlandi en eins og kunnugt er hefur hún lagt stund á arabískunám undanfarin ár. Ef allt gengur vel stefnir Jóhanna að þvi að fara í októberlok og enn virðist bókin ætla að bjarga henni þvi hún rokselst. Jóhanna fer ekkert í grafgötur um að bókin ræður úrslitum hvort hún kemst eða ekki. „Já, ég ligg ekki á því og fólki finnst það mjög skemmtilegt. Einkum finnst konum þetta jákvætt en samt er eftirtektarvert að í áskrifenda- hópnum eru karlar ámóta margir,“ segir Jóhanna og fær sér væna sneið af smjörköku. Ertu að reyna segja umhverfinu eitthvað? „Nei, ég er aðallega að segja sjálfri mér að ég get það sem ég ætla mér að gera,“ segir Jóhanna. „Ég er búin aö komast að því að maður missir ekki náms- hæfileikana um þrítugt og því ætti ég ekki þá að fara í mastersnám ef mig langar til þess? Mér finnst að konum séu allir vegir færir hvort sem þær eru um tvítugt eða sextugt." Jóhanna var komin á sextugsaldur þegar hún sagði starfi sinu á Morgunblaðinu lausu og fór til Egyptalands í nám. Hún segir að ákvörðunin hafi ekki alltaf mætt skilningi hjá fólki. „Ein vinkona mín spurði: „Hvernig þorir þú þessu? Missir þú ekki öll réttindi?" Auðvitað þarf ég peninga en krakkarnir mínir eru uppkomnir og ég ber engan kostnað af þeim. Þvi skyldi ég ekki bara skemmta mér, sérstaklega af því að ég get það? Og mér finnst alveg sérstaklega skemmtilegt að Ást á rauðu ljósi virðist ætla gera mér kleift að fara í framhalds- nám.“ Sagan átti ekki að vera djörf Ást á rauðu ljósi fjallar um efnilegan listamann sem heitir María Sjöfn. Hún á vingott við piltinn Þorkel sem er að ljúka stúdentsprófi. Þau dreymir um að fara til Frakklands í framhaldsnám en ýmis ljón eru á veginum. Móðir Maríu er drykkjusjúk- lingur og hefur átt erfiða ævi. Móðir Þorkels er rík ekkja sem er ekki sátt við tilvonandi tengdadóttur sína. Höfundur sögunnar er Hanna Kristjánsdóttir. Ég spyr Jóhönnu af hverju hún hafi notað dulnefni. „Það var einfaldlega vegna þess að ég var svo feim- in,“ útskýrir Jóhanna og heldur síðan áfram: „Ég gat ekki hugsað mér að koma fram undir eigin nafni en síðan ákvað ég, eða reyndar voru það nú Jökull og Ólafur Jónsson, starfsbróðir hans á Tímanum, sem ákváðu að ég kæmi fram.“ Þú segist hafa verið feimin en svo skrifarðu djarfa bók. Varstu aldrei á nálum þegar þú vannst aó henni? „Ég ætlaði aldrei að skrifa djarfa bók,“ fullyrðir Jóhanna og hlær. „Það er svo fjarri þvi að þetta hafi veriö eitthvað meðvitað. Ég ætlaði bara að skrifa sögu sem vonandi yrði skemmtileg og það hvarflaði ekki að mér að það væri eitthvað í henni sem myndi sjokkera fólk. Á hinn bóginn þegar bókin var kom- in út og fólk var farið að lesa hana þá varð mér órótt, ekki sist gagnvart foreldrum minum og ekki síöur tengdaforeldrum mínum.“ Og urðu foreldrar þínir og tengdaforeldrar hneykslaöir? „Nei, alla vega fóru þeir þá mjög hljótt með það,“ svarar Jóhanna. „Ég man eftir samræðum á milli mömmu og tengdó þar sem mamma sagði, og ég held að það hafi veriö í gríni: „Hún er nú lagleg móðir söguhetjunnar. Það er vonandi að fólk haldi ekki að Jóhanna sé að lýsa móöur sinni.“ Og þá sagði tengdamamma: „Ja, ekki er þaö nú skárri út- reið sem tengdó fær!“ En þær virtust taka bókinni vel og ég hafði engar fyrirmyndir að persónunum í bókinni nema ef vera skyldi málverkasalinn, Hag- barður Jónsson. Ég hugsa að Guömundur á Mokka- kaffi hafi verið fyrirmyndin að Hagbarði. Á þessum tíma var Mokkakaffi nýr staður og Guðmundur leyfði oft ungum listamönnum að sýna hjá sér sem var ekkert sjálfsagt á þessum tíma.“ Seiglaii saineiginleg með Maríu Þú átt ekkert sameiginlegt með aöalsöguhetjunni Maríu Sjöfn? „Ég er nú ekki viss um það,“ segir Jóhanna og hikar í smástund áður en hún svarar spurningunni. „Ég var töluvert lífsreynd um tvítugt. Ég átti mann og tvö börn og hafði tekið stúdentspróf árið eftir að ég gifti mig, sem var mjög fátítt á þessum árum. Líklega á ég þessa seiglu sameiginlega með Maríu. Annars finnst mér voðalega mislukkað þegar fólk er að segja að það sé svona en ekki hinsegin. Ég er alltaf aö sjá það betur og betur að þegar fólk er að lýsa sjálfu sér er það fyrst og fremst að segja hvern- ig það vill að aðrir sjái það.“ Þegar ég las bókina fékk ég það á tilfinninguna að María Sjöfn vœri sífellt aó fórna sér fyrir Þorkel. Ef þú vœrir að skrifa skáldsögu í dag, myndir þú láta konuna fórna sér svona fyrir karlmanninn? „Nei, örugglega ekki,“ segir Jóhanna. „Að vísu verður þetta ekki almennileg fórn í lokin því Þor- kell bregst öðruvísi við en hún átti von á. Ég held að það sé mjög ríkt í konum að fórna sér og það er kannski vegna þess sem við eigum erfitt uppdráttar. Sennilega var ég líka fórnfúsari þegar var yngri.“ Mér skilst að það hafi verið til annar lokakafli á bókinni sem ákveðið var aö nota ekki. Hvernig var sá kafli?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.