Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Side 32
32
Helcjarblað I>V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
Árni í
bakgarðinum, þar
sem hann fer að
eigin sögn oft til
að liugsa.
„Árni hefur ekki
mikið pólitískt nef
og tekur að
minnsta kosti ekk-
ert tillit til
pólitíkur þegar
kemur að störfum
hans hjá bankan-
um. Lýsandi fyrir
þetta er til dæmis
yfirtaka Búnaðar-
bankans á
SPRON.“...Póli-
tískt viðkvæmari
menn hefðu
kanuski veigrað
sér við að taka
þann slag."
Maðurinn
bak við bindið
Á þvíer engirw vafi að Árni Tómasson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, hefur mátt vinna fgr-
ir kaupinu sínu síðustu vikur. Bankinn hefur
tenqst, annaðhvort íbakgrunni eða sem Igkil-
spilari, að minnsta kosti þremur umdeildum
og stórum málum sem borið hefur hátt í fjöl-
miðlum og umræðunni ísumar. DV fjallar um
persónuna Árna ínærmgnd og skoðar meðal
annars ástæður þess að hann hafnaði upphaf-
lega bankastjórastöðunni, hvort og hverniq
pólitík hefur áhrif á ákvarðanatöku hans,
mátar lífshlaup Árna við ameríska drauminn
og sviptir hulunni af FH-bananum.
Árni tók við starfi bankastjóra hjá Búnaðarbankan-
um fyrir um 15 mánuðum og má með sanni segja að
undanfarnar vikur hafi verið eldskírn hans í starfi,
að minnsta kosti hvað varðar þátttöku í áberandi
ágreiningsmálum frammi fyrir alþjóð. Hann er sonur
Tómasar Árnasonar, fyrrverandi ráðherra og seðla-
bankastjóra, löggiltur endurskoðandi, hefur verið
kallaður baunateljarinn en mikið fleira vita margir
ekki um þennan hægláta og ákveðna mann.
Hver er Árni Tómasson?
Ráðherra kveðinn í ltútinn
Skipan Árna í stöðu annars bankastjóra Búnaðar-
bankans um mánaðamótin febrúar-mars 2001 kom
mörgum mjög á óvart enda nafn Árna ekki meðal
hinna hefðbundnu í hattinum þegar „stöðubarátta“ á
vettvangi ríkisins er annars vegar. Ráðning Árna átti
sér ákveðna forsögu sem Morgunblaðið greindi frá í
áhugaverðri fréttaskýringu á sínum tíma.
Talsverðar væringar höfðu verið með Valgerði
Sverrisdóttur, ráðherra bankamála, og bankaráði
Búnaðarbankans. Tveir af þremur bankastjórum
Búnaðarbankans voru að láta af störfum. Valgerður
vildi nota tækifærið og annars vegar fækka banka-
stjórum úr þremur niður í einn en hins vegar skipa I
þá stöðu Eirík S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóra KEA
og góðvin að norðan. Bankaráðið var á annarri skoð-
un, vildi í fyrsta lagi ekki fækka bankastjórunum
nema niður í tvo og í öðru lagi sætti það sig ekki við
kandídatinn sem Valgerður tefldi fram. Miklar svipt-
ingar urðu milli Valgerðar og bankaráðsmanna bak
við tjöldin og leikin var refskák mikil. Hún endaði í
talsverðum illindum milli Valgerðar og einstakra
bankaráðsmanna, sem ekki voru vinir fyrir, og mifli-
göngu frammámanna í Framsóknarflokknum þurfti
til að lægja öldumar. Mitt í þessum hráskinnaleik um
lausa stólinn stungu aðflar innan Búnaðarbankans
sjálfs óvænt upp á Árna Tómassyni sem þá hafði ver-
ið endurskoðandi bankans um nokkurt skeið. Hug-
myndin hlaut góðar viðtökur hjá bankaráðinu og þeg-
ar maðurinn sem endanlega hafði úrskurðarvald um
hina pólitísku ráðningu - Halldór Ásgrímsson -
reyndist tillögunni hlynntur neyddist Valgerður til
að draga í land. Stóllinn var Árna ...
„Nei, taldi“
... en vildi Árni stólinn? Að sögn viðmælenda helg-
arblaðsins hafnaði Árni stöðunni að minnsta kosti
einu sinni, sennilega oftar, þegar haft var samband
við hann fyrst.
„Það var lagt hart að honum og legið í honum að
taka stólinn. Þrýstingurinn var mikill og frá topp-
mönnum sem ekki er vanir að sætta sig við neitun,“
sagði einn, samstarfsmaður Árna til margra ára.
Annar viðmælandi hefur sömu sögu að segja en tek-
ur fram að ekki komi sér á óvart að Árni hafi þegið
stöðuna á endanum.
„Þetta er ein af toppstöðunum í þjóðfélaginu og
eðlilegt að hún freisti metnaðarfulls manns eins og
Árna. Ég er miklu frekar hissa að hann skyldi hafa
færst undan I fyrstu.“
Það er samdóma álit viðmælenda blaðsins að
ástæða þess að Árni hafi hafnað bankastjórastólnum
fyrst í stað hafi verið sú að þá var nýlega um garð
genginn samruni endurskoðunarskrifstofunnar Lög-
giltir endurskoðendur, þar sem hann var meðeigandi,
við aðra skrifstofu undir merkjum Deloitte & Touche.
Vegna samrunans taldi Árni sig vera skuldbundinn
hinu nýja fyrirtæki og samstarfsmönnum að fylgja
því úr hlaði. Svo fór þó að Árni þáði bankastjórastöð-
una eftir að hafa ráðgast við samstarfsfólk sitt.
Ástæðan fyrir hiki Árna við þessar aðstæður rim-
ar ágætlega við það mat viðmælenda blaðsins að
hann sé traustur maður, samviskusamur og áreiðan-
legur í samstarfi. Upp í hugann kemur það sem Bret-
arnir hafa kallað „sound“ - sjá: „sound chap!“ - og
þykir meðal eftirsóknarverðustu mannkosta sem for-
kólfar í viðskiptum og stjómmálum þar í landi geta
búið yfir.
„Að öðrum ólöstuðum einn traustasti maður sem
ég hef unnið með,“ vitnaði einn fyrrum samstarfs-
maður.
Samkvæmt heimildum blaðsins hefur samstarf
Árna og hins bankastjórans, Sólons Sigurðssonar,
verið með ágætum og ekki fer neinum sögum af sam-
starfsörðugleikum milli hans og Valgerðar Sverris-
dóttur, þótt hún hafi vissulega róið að því öllum
árum að annar maður vermdi stólinn.
Álirifamikill bróðir
Árni fæddist 1955 og er því 47 ára að aldri. Hann
ólst upp í Kópavoginum og á enn heima þar. Tómas
Árnason, faðir hans, var áberandi persóna í þjóðlíf-
inu, alþingismaður, ráðherra og seðlabankastjóri um
margra ára skeið. Eldri bróðir Árna er Eiríkur Tóm-
asson, lagaprófessor með meiru og einn helsti áhrifa-
maður Framsóknarflokksins, auk þess vinur og trún-
aðarmaður bæði Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs
Oddssonar og einn helsti lögfræðilegi ráðgjafi Fram-
sóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar. Þeirri sögu
heyrðist fleygt við blaðið að Árni hafi sem barn lagt
það í vana sinn að leggia stafsetningarþrautir fyrir
eldri bróður sinn sem nánast alltaf hafi stafsett orðin
rétt. Fór það mjög í keppnisskapið á yngri bróðurn-
um, en nóg var af því og er enn að sögn þeirra sem
þekkja, hvort sem er á golfvellinum eða í starfi. 1
æsku er honum annars lýst sem yfirveguðum og
skörpum strák sem lagði afar hart að sér í námi.
„Það er mjög eftirminnilegt hvað hann var alltaf
einbeittur. Hann var prakkari, ekki hrekkjóttur, ekki
einu sinni stríðinn. Hann var settlegur krakki, alltaf
svolítið fullorðinslegur eftir aldri. Og er það nú enn!“
segir einn æskuvina Árna sem kemur starfsframi
hans ekki á óvart.
Ameríski draumurinn ... og þó?
Árni kynntist konu sinni, Margréti Birnu Skúla-
dóttur, í Menntaskólanum við Hamrahlíð en þaðan
útskrifaðist hann 1975. í Háskóla íslands nam hann
viðskiptafræði. í skóla minnist fólk Árna sem mjög
góðs nemanda sem krafðist skýringa kennaranna
þangað tfl hann hafði hlutina algerlega á hreinu. Eft-
ir útskrift varð hann löggiltur endurskoðandi og hóf
störf hjá skrifstofu sem hann vann hjá allar götur
þangað tfl hann varð bankastjóri, þótt nafnið breytt-
ist tvisvar og stofan stækkaði með samruna við aðr-
ar stofur.
Það vekur athygli þegar lífshlaup Árna er skoðað
að það virðist, á yfirborðinu að minnsta kosti, mjög
klippt og skorið - „streit“ á vondu máli. Árni þýtur
upp skólakerfið með eftirtektarverðri elju og dugnaði
og nær góðum árangri. Hann kynnist eiginkonunni í
menntaskóla, útskrifast, verður endurskoðandi og
starfar hjá sama fyrirtækinu í rúma tvo áratugi áður
en hann verður bankastjóri. Klifur metorðastigann
hratt og örugglega - varð meðeigandi eftir 6 til 7 ára
starf hjá fyrirtækinu, sem er fáheyrt - og endar sem
stjórnarformaður. Þrjú börn, einbýlishús í úthverfi
(eða ígildi þess!), á fullu í golfinu, veiðir lax. Allur
pakkinn. Aflt virðist frekar átakalaust, engar beygj-
ur, krókaleiðir eða pyttir á ferlinum, svo sjáanlegt sé.
Einhver myndi segja ameríski draumurinn holdi
klæddur. Með einni undantekningu þó:
„Ég veit að það þótti athyglisvert þegar hann var í
þeim prósess að verða meðeigandi að hann var aldrei
gráðugur í peninga,“ segir einn viðmælandi okkar.
„Árni hefur aldrei gengið fyrir peningum, beygir sig
ekki eftir þeim og lætur ekki auðveldlega að stjórn
neins.“
Harka og heiðarleild
Ef draga á saman það sem viðmælendur blaðsins
höfðu að segja um almenn karaktereinkenni Árna
myndi það hefjast á orðunum traustur, áreiðanlegur
og ákveðinn.
„Árni gerði aldrei neitt á bak við mann og var fljót-
ur að vinna sér traust og trúnað samstarfsmannanna.
Hann hefur mikla leiðtogahæfileika og er dálítið
skapmikill þannig að það var ekki óþekkt að það
slægi í brýnu milli manna. En alveg sama hversu