Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 35
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
Helgarblacf DV
43
i
þess að þær fari í slíka aðgerð. Það var t.d. ein hjá mér í
morgun sem ég sagði við að mér fyndist hún ætti ekki að
gera þetta, hennar brjóst væru það faileg að svona aðgerð
myndi ekki gera neitt fyrir hana,“ segir Sigurður.
- Segirðu það virkilega við stúlkur?
„Auðvitað, ég verð að vera sannfærður um að ég sé að
eyða minni kunnáttu og æfi í eitthvað sem er til gagns.
Sumar fara út hálfóánægðar með þetta álit mitt en svo
eru aðrar sem hafa komið af því þær vita að ég eigi það
til að segja þetta. Oftast eru þær hins vegar búnar að
ákveða að þær ætli í þetta og því miður eru þær ekki að
koma til þess að leita ráða,“ segir Sigurður. Hann bend-
ir á að það sé vel hægt að fjarlægja efnið ef maður sjái
eftir öllu saman eftir nokkur ár. „Þá lítur brjóstið í meg-
inatriðum eins út og fyrir aðgerðina. Það er sem sagt
hægt að snúa til sama lands aftur en þá hefurðu bæði
haft af því kostnað, óþægindi af aðgerðinni og situr svo
uppi með ör,“ segir Sigurður. Hann bætir við að silíkon-
ið valdi ekki tognun á brjóstinu þannig að það verði eins
og tómrn- tepoki þegar það er fjarlægt.
„Það er mjög sjaldan að fólk sem er algjörlega hugsun-
arlaust um sitt útlit leiti eftir lýtaaðgerðum. Það er aftur
á móti mjög algengt að maður þurfi að labba að speglin-
um og reyna að fá viðkomandi til þess að útskýra fyrir
sér hvað það sé sem hann er óánægður með. Væntingar
eru oft ekki í samræmi við það sem fólk heldur að mað-
ur geti gert og þá reynir maður að telja manneskjunni
hughvarf. Þó að það sé tæknilega framkvæmanlegt þýðir
ekki að það sé endilega skynsamlegt að gera það. Það er
svona afstaða sem þróast með manni eftir því sem mað-
ur er lengur í þessu,“ segir Sigurður.
Hann bendir einnig á að hugarfarsbreyting hafi átt sér
stað varðandi svona aðgerðir á þeim tíma sem hann hafi
verið í faginu sem sést best á spumingunum sem hann
fær frá sjúklingum sínum. Áður hafi verið mjög algengt
að fólk hafi spurt hann hversu langt veikindafrí það gæti
fengið út á þetta. í dag er sú spuming alveg horfm en fólk
spyrji frekar hvenær það geti mætt aftur í líkamsrækt-
ina og byrjað aftur i vinnu. Það fmnst honum vera já-
kvæð þróun.
Að hans sögn em flestar konur sem gangast undir
bijóstastækkunaraðgerðir í dag á aldrinum 25-35 ára.
Aldurinn spannar samt allt frá lögráða og upp að fimm-
tugu. Flestar konur sem til hans koma em búnar að velta
aðgerðinni fyrir sér í eitt til tvö ár áður en þær koma í
viðtal. „Þetta er mjög yfírvegað yfirleitt þegar þær koma
og þær eiga þá kannski vinkonu sem er búin að fara í
þetta líka,“ segir Sigurður. Eftir viðtal er ákveðinn að-
gerðardagur ef þær vilja stíga það skref. Viku fyrir að-
gerð þurfa þær svo að staðfesta að þetta sé raunverulega
það sem þær ætla að gera. „Það kemur enginn í viðtal í
dag og í aðgerð á morgun. Fólk er látið fara heim og spek-
úlera í hlutunum," segir Sigurður.
Klofnar varir heilla
Eins og fram kom hér í upphafi þá era það ekki bara
brjóstastækkanir og andlitslyftingar sem Sigurður fæst
við. Auk þess að sinna fegrunaraðgerðum á Læknastöð
Glæsibæjar starfar Sigurður á Landspítalanum ásamt
fjórum öðrum lýtalæknum, þeim Rafni Ragnarssyni,
Ólafr Einarssyni, Guðmundi Már Stefánsson og Jens
Kjartansyni. Þar fást þeir við aðgerðir sem snúa að upp-
byggingu brjósta eftir krabbamein, brunasár, krepptar
hendur, klofnar varir og góma, svo fátt eitt sé nefht.
„Það er styrkur deildarinnar hvað við fimm erum með
breitt áhugasvið og getum kallað hver á annan í erflðum
verkefnum og verið saman við aðgerðir," segir Sigurður
sem segist vera ánægður með að vera aldursforsetinn í
þessum góða hópi.
„Þegar ég kom heim úr námi lá spítalastarf sem lýta-
læknir ekki á lausu nema maður gæti jafnframt starfað
sem almennur skurðlæknar. Þannig að framan af mínum
ferli var ég einnig starfandi sem almennur skurðlæknir
á vöktum, takandi botnlanga, magasár og annað slíkt.
Siðastliðin 10-15 ár hef ég hins vegar getað einbeitt mér
að því sem ég hef mestan áhuga á og tel mig geta gert
best,“ segir Sigurður. Á starfsferlinum hefur hann kom-
ið víða við. Hann lauk námi sínu í Bandaríkjunum, fimm
ára námi i almennum skurðlækningum og þremur áram
í lýtalækningum. í fjögur ár starfaði hann svo sem lýta-
læknir í Suður-Kaliforniu.
„Mjög margir af okkur sem byrjum í lýtalækningum
heillumst af því að gera við klofnar varir af því að þar er
svo sláandi árangur. Þegar ég var síðast úti í Bandaríkj-
unum, í San Diego, hafði ég mikið af slíkum aðgerðum á
minni könnu. Ég var í samstarfi við háskóla þar og við
fórum oft í sjálfboðaferðir til Mexíkó. Það er mikil fátækt
þama og maður sá hversu gott starf maður var að gera
fyrir þá einstaklinga sem nýttu sér þetta. Svona aðgerð-
ir breyta reyndar engu í þjóðfélaginu en fyrir lækni er
það sannkölluð lifsfylling aö sjá árangur af slíku starfi,"
segir Sigurður sem fór einnig til Guetemala þegar hann
var í námi og sinnti þar álíka aðgerðum. „Svona aðgerð-
ir heilla mig en staðreyndin er sem betur fer sú að það
em ekki mörg svona tilfelli á íslandi," segir Sigurður.
Stráltar með bijóst
Sigurður er greinilega sáttur með ævistarfrð enda lik-
lega draumastarf hvers karlmanns aö fá að vera innan
um konubrjóst alla daga, eða hvað?
„Brjóst em og verða yndi karlmanna. Þau eru það
fyrsta sem veitti okkur sælu og huggun sem ungbömum.
Já, ég verð að játa að ég er í draumastarfi þar sem ég er
ánægður með þaö að vera að vinna við lýtalækningar, en
það hefur ekkert með það að gera að til mín leiti aðallega
konur," segir Sigurður og hlær. Hann segir að það sem
sé hvað mest jákvætt við starfið sé að hann fái til sín fólk
á stofuna sem er að fara að gera eitthvað jákvætt fyrir sig
og það er gefandi að geta tekið þátt í því.
En myndi hann sjálfur geta hugsað sér að leggjast und-
ir hnífinn?
„Já, ég held t.d að aðgerð á efri augnlokum sé mest gef-
andi aðgerð sem maður getur gert fyrir karl eða konu.
Karlar sem hafa þreytulegt útlit af því að efri augnlokin
em farin að síga koma gjaman og láta laga það og fá
mjög góðan árangur," segir Sigurður. Hann bendir
einnig á að karlmenn fari líka í andlitslyftingar, fitusog
og eymaaðgerðir.
„Því miður heldur fólk oft að við getum gert meira en
við getum. Sérstaklega hvað varðar fitusogið. Það er eng-
in megrunaraöferð. Það þýðir ekkert fyrir einstakling
sem er mjög feitur að ætla að sjúga alla fltuna bm-t, fitu-
sog er bara notað á staðbundna fitu. Fitusog getur einnig
verið góð lausn fyrir unga stráka sem fá konubrjóst. Það
er mikið feimnismál að vera 15-16 ára gamall og vera það
feitur að maður sé með brjóst," segir Sigurður.
Þau eru greinilega ófá vandamálin sem Sigurður hef-
ur leyst, enda kemur það fyrir að honum sé heilsað á
fömum vegi og þakkað fyrir. „Ég heilsa hins vegar ekki
að fyrra bragði, það er nú yfirleitt heppilegra að ég bíði
eftir því að mér sé heilsað, segir Sigurður sem segist ekki
geta labbað í gegnum Kringluna án þess að sjá talsvert af
sínum kúnnum. „Það er ekki beinlínis þannig að konur
klappi mér á öxlina á veitingastað og segi: „Takk fyrir
bijóstin, Sigurður,“ en sem betur fer fær maður að njóta
sinna verka með þægilegri framkomu viðkomandi ef
maður hittir hann á fomum vegi,“ segir Sigurður og
brosir. -snæ
Sannleikurinn um silíkon
- svona ganga brjóstastækkanir til
Bijóstastækkanir era
yfirleitt ekki gerðar
,Si nema á lögráða einstak-
lingum. Viðkomandi
mætir i viðtal og skoðun
og pantar síðan tíma fyr-
ir aðgerð. Viku fyrir að-
gerð þarf að staðfesta að
aðgerðin sé virkilega
eitthvað sem óskað er
eftir. Þegar að aðgerð
kemur er viðkomandi
svæfður og brjóstið
deyft. Sjúklingur fer
heim samdægurs og
mætir í eftirlit tveim til
fjóram dögum seinna. Að meðaltali era konur eina til tvær
vikur að ná sér að fúllu eftir slíka aðgerð. Nú eru aðallega
notuð silíkoninnlegg við bijóstastækkanir og er saltvatnið á
hraðri útleið þar sem slikir púðar eiga það til að leka. Púð-
inn er yfirleitt settur á bak við brjóstvöðvann. Hættumar við
brjóstastækkanir eru þrenns konar: 1) Sýkingarhætta eins
og við allar skurðaðgerðir. 2) Doði getur myndast í bijósti en
er yfirleitt ekki viðvarandi og er afar sjaldgæft. 3) Bijóst get-
ur orðið óeðlilega hart þar sem líkaminn litur á púðann sem
aðskotahlut og reynir að losa sig við hann. 7-8% kvenna sem
fara i brjóstastækkun fá hart brjóst sem er hægt að laga með
annarri aðgerð. Si-
likonbrjóst springa
ekki í flugi eða köfun.
Þau gætu hugsanlega
sprungið í bílslysi, t.d
ef bein stingst inn í
þau. Ef silikonpúði
springur helst silíkon-
ið á sínum stað en lek-
ur ekki um allan lík-
amann. Silíkon hefur
engin áhrif á brjósta-
gjöf og er ekki krabba-
meinsvaldandi. Si-
líkonbrjóst geta verið
alveg eins viðkomu og
venjuleg brjóst, viðkoman fer eftir því hversu mikill bandvef-
ur myndast í kringum púðann. Aðgerðin skilur alltaf eftir
sig ca 4 cm ör sem er þó er oftast lítt sjáanlegt. Örið er ann-
aðhvort á mörkum geirvörtu og húðar, eða i grób undir
brjóstinu.
Fegrunaraðgerðir era allar greiddar að fullu af viðkom-
andi en ekki hinu opinbera heilbrigðiskerfl.
Lolo Ferrari á að hafa verið með heimsins stærstu brjóst
en hún var inikill aðdándi silíkonaðgerða. Ilún dó í þrí-
tug að aldri. Brjóstamál heniiar var þá 177,5 cm.