Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 36
44 Helcjarbloð H>V LAUGARDAGUR 27. JÚLf 2002 Sakamál________________ Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson Kvöldveislan breyttist í blóðuga martröð Löqreglan rakti slóð Brooks til tötraleqs gistiheimilis íLondon. Við leit fannst haqla- bqssa oq sérfræðinqar lögreqlunnar gátu staðfest að um morðvopnið frá ráninu í Barn veitinqastaðnum árinu áður væri að ræða. Veisla á hverjum degi! Þetta voru einkunnar- orð eigenda Barn veitingastaðarins í Eastend i London. En nóvembernótt eina 1972 breyttist gleðin í blóðuga martröð. Eigendurnir, hjónin Bob og Muriel Patience, lokuðu veitingastað sínum og slökktu ljósin um hálftvöleytið aðfaranótt 4. nóvember. Ásamt tví- tugri dóttur sinni, Beverly, héldu þau inn í íbúð sína bak við veitingastaðinn með tekjur kvölds- ins, um 100 þúsund íslenskra króna, í peninga- kassa. Á sama augnabliki breyttist vel heppnað kvöld í ólýsanlega martröð. Á ganginum að íbúðinni biðu fjölskyldunnar tveir menn með afsagaðar haglabyssur. Annar þeirra tók peningakassann af Muriel, sem var skelfingu lostin, og heimtaði lyklana að peningaskápnum. í honum voru um 100 þúsund krónur í reiðufé. Þegar Bob Patience hikaði greip annar ræn- ingjanna púða úr sófa, hélt honum fyrir byssu- hlaupinu og beindi vopni sínu fyrst að Beverly og síðan að Muriel. „Hvora á ég að skjóta fyrst, dóttur þína eða konuna þína?“ spurði raeninginn. „Ég held ég skjóti konuna,“ sagði hann og í sömu andrá heyrðist skothvellur. Muriel rak upp vein áður en hún hneig niður með skotsár á höfði. Bob fleygði lyklunum fyrir fætur ræningjanna. Þeir létu innihald peningaskápsins í léreftspoka á meðan Bob flýtti sér til að koma konu sinni til UTBOÐ F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskaö eftir tilboöum í knattspyrnuvelli við Fossaleyni 1. Helstu magntölur eru: •Flutningur jarövegs innan svæöis: 20.000 m Buröarlagsfylling: 9.000 m Jarðvegsdúkur: 19.000 m Grasþakning: 9.700 m Malarsvæöi: 8.600 m Drenbarkar og lagnir: 1.300 m Gróðurmold: 1.500 m Giröing: 700 m Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 12. ágúst 2002, kl. 11.00, á sama stað. FAS 75/2 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavik-Sími 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang: isrSrhus.rvk.is hjálpar. Eftir að ræningjarnir höfðu tæmt pen- ingaskápinn og lagt ránsfeng sinn í bíl Bobs Pati- ences bundu þeir hann og dóttur hans við stóla og skutu þau í fæturna. Síðan óku ræningjarnir á brott. Sonurinn uppgötvaði blóðbaðið Það var sonur Bobs, David, sem uppgötvaði blóðbaðið. Fórnarlömbunum þremur var í skyndi ekið á sjúkrahús. Þar tókst að bjarga lífi feðginanna en Muriel Patience lést án þess að komast til meðvitundar. Þetta grófa rán vakti alls staðar hörð viðbrögð, einnig í undirheimum London. Þar var einkum eitt nafn á vörum manna, George Ince. George var enginn engill. Afbrotaferill hans var langur og hafði hann oft gerst sekur um of- beldi og árásir. Á þessum tíma var hann grunað- ur um stórfellt skartgriparán. En George Ince hafði hins vegar aldrei drepið neinn né misþyrmt einhverjum alvarlega. En einhvern tíma verður allt fyrst, var mat lög- reglunnar. Bob Patience benti á nokkra mögulega árásar- menn í myndasafni lögreglunnar. Enginn þeirra var George Ince. Beverly benti hins vegar tvisvar sinnum á Ince og það var lýst eftir honum. Lög- reglan hafði varla hafið leit að honum þegar hann gaf sig sjálfur fram. Hann mætti á lögreglu- stöðina í fylgd lögmanns síns. Hann vísaði allri vitneskju um hið blóðuga rán á bug. En nú hafði einnig Bob Patience bent á Ince sem annan hinna seku. George Ince var ákærður fyrir morðið á Muri- el Patience og réttarhöldin í Chelmsford urðu að skrípaleik. Ince hellti sér yfir dómarann og reifst við lögmann sinn sem hann rak síðan. Kvaðst hann ekki þurfa neinn verjanda. Kviðdómendur voru ráðþrota. Þeir brutu heil- ann í sjö klukkustundir en komust ekki að sam- komulagi. Rétta varð á ný yfir Ince viku seinna. Það var skoðun dómarans að Ince hefði tekið sönsum. Hann hafði fengið nýjan verjanda, og vitni sem umturnaði öllum réttarhöldunum. Vitnið var Dolly Kray sem var gift hinum al- ræmda glæpamanni, Charlie Kray. Charlie sat þá í fangelsi ásamt bræðrum sínum, Ronnie og Reg. Ótrú eiginkona glæpamanns Það fór kliður um réttarsalinn þegar hin ljós- hærða Dolly Kray sagði í vitnastúku að Ince heföi verið með henni aðfaranótt 4. nóvember þegar morðið var framið. Verjandinn benti á þá hættu sem Dolly Kray stofnaði sjálfri sér í með því að bera vitni. Og það var ekki að ástæðu- lausu. Dagblöðin greindu frá því að Charlie Kray hefði fengið æðiskast í fangelsinu vegna hjúskap- arbrots eiginkonunnar. Og hann hafði lagt rúm- ar tvær milljónir króna til höfuðs George Ince. í þetta sinn tók það kviðdómendur tæpa klukkustund að komast að niðurstöðu. George Ince var sýknaður við mikinn fögnuð viðstaddra. Skálað var í kampavíni fyrir utan dómhúsið þar sem Ince lýsti því yfir að hann og Dolly hygðust nú byrja upp á nýtt. En fyrst ætlaði hann að drekka sig almennilega fullan. Scotland Yard hafði orðið fyrir álitshnekki og varð nú að hefja rannsókn sína á byrjunareit á ný. Útlit var fyrir að hálfs árs rannsókn hefði ver- ið til einskis. Spurningin sem menn urðu að spyrja sig var þessi: Úr því að George Ince var ekki morðinginn hver var hann þá? Muriel Patience var skotin í höfuöið Gortaði af því að eiga liaglabyssu Þegar útlitið var sem svartast birti óvænt til. Þann 15. júní 1973 gaf sig fram maður að nafni Peter Hanson og játaði hann á sig rán. Kvaðst hann hafa starfað með náunga sem gortaði af því að eiga haglabyssu og að hafa myrt konu með henni. Maðurinn hét John Brook og fórnarlamb hans var sennilega Muriel Patience. Lögreglan rakti slóð Brooks til tötralegs gisti- heimilis i London. Við leit fannst haglabyssa og sérfræðingar lögreglunnar gátu staðfest að um morðvopnið frá ráninu í Barn veitingastaðnum árinu áður væri að ræða. Stuttu síðar handtók lögreglan einnig mann að nafni Nicholas John- son sem viðurkenndi þátt sinn í ráninu. Johnson sagði að Brook hefði verið höfuðpaurinn. í janúar 1974 kom málið fyrir rétt í Chelms- ford. Brook, sem var vel klæddur og sjálfsörugg- ur, kom miklu betur fyrir en Ince hafði gert. Um skeið leit út fyrir að hann gæti snúið á kerfið. Brook fullyrti að Nicholas Johnson og Ince hefðu verið á veitingastaðnum og að Ince hefði hleypt af. Sagði Brook að Johnson hefði greint sér frá þessu morguninn eftir morðið. Kvaðst Brook hafa hvatt Johnson til að gefa sig fram. Vonir um frelsi urðu að engu En vonir Brooks um að ganga úr réttarsalnum sem frjáls maður urðu að engu þegar Beverly Patience steig upp í vitnastúkuna. Hún var spurð að því hvort hún gæti bent 'á manninn sem myrti móður hennar og skaut á hana sjálfa og föður hennar. Beverly svaraði föl og svolítið hik- andi: „Það er hann sem situr á ákærubekknum." Meira þurftu kviðdómendur ekki. John Brook var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Muriel Patience og Nicholas Johnson var dæmd- ur í 10 ára fangelsi fyrir sinn þátt í glæpnum. George Ince gat ekki verið viðstaddur þegar hann var endanlega sýknaður. Hann sat í fang- elsi fyrir fyrrnefnt skartgriparán og var ekki lát- inn laus fyrr en 1980. Nú starfar hann sem leigubílstjóri og hefur ekki komist í kast við lögin á ný. Hann og Dolly Kray eru hamingjusamlega gift.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.