Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
49
DV
Bílar
DV-myndir Hari
Vespa og
vespa er
sitt hvað
Kostir: Stórt farangursrými,
kraftur, áreynslulaus
akstur
Gallar: Áseta
Hvað dettur manni í hug þegar talað
er um „vespu?“ Jú, sennilega lítil,
kraftlaus mótorhjól sem varla hreyfast
úr stað. Gamlar konur í göngugrindum
geta jafnvel tekið fram úr þeim sum-
um. TMAX-inn frá Yamaha kom því
verulega á óvart því hvem hefði grun-
að að draumurinn um „vespu" sem
hreyfðist úr stað yrði einn góðan dag
að veruleika. Hjólið hefúr alla kosti
„vespunnar": sjálfskiptingima, þægi-
lega ásetu, (svo næstum því er hægt að
hjóla í kjól og hælaháum skóm - ekki
ráðlegt þó, öryggisins vegna) og lágan
jafnvægispunkt svo ég hafði það á til-
fmningunni að hægt væri að setja
komabam undir stýri á þessu hjóli og
það myndi spjara sig. Vélarstærðin er
þó kannski það sem kemur í veg fyrir
YAMAHA TMAX 500
Vélbúnaður:
Vél: 2ja strokka línuvél, vatnskæld
Rúmtak: 499 rúmsentímetrar
Þjöppun: 10,1:1
Ventlar: 8
I Kerti: 2
Blöndunqar: 30 mm
i “ Bensíntankur: 14 lítrar
Gírkassi: Sjálfskipt
Rafgeymir: 14 Ah
HELSTU TÖLUR
Lengd/hæð: 2235/1410 mm
Hjólhaf: 1575 mm
Veghæð: 140 mm
Sætishæð: 795 mm
BURÐARViRKI
■ Framfjöðrun:
Hreyfigeta: 120 mm
Afturfjöðrun:
Hreyfigeta: 120 mm
Frambremsur: 282 mm diskur
Dælur: Ein 2ja stimpla
Afturbremsa: 267 mm diskur
Dæla: Ein
Framdekk: 120/70 14
Afturdekk: 150/70 14
HAGKVÆMNI
Verksmiðjuábyrqð: ' 2 ár
Verð: 985.000 kr.
það að hjól af þessu tagi nái útbreiðslu
meðal þeirra sem velja einfaldleikann
en 500 rúmsentímetra mótor skilar frá
sér 40 hestöflum. Próf á stórt mótorhjól
þarf nefnilega á TMAX hjólið þrátt fýr-
ir að um sjálfskipta „vespu“ sé að
ræða.
Framúrstefnuleg hönnun
Hönnun hjólsins er verulega framúr-
stefnuleg og dálítið „speisuö", eins og
einhverjir myndu segja. Mjúkar en
langar línur og hátt glerið auk ská-
settra framljósa gera hjólið rennilegt og
verulega fallegt. Mælaborðið er einfalt
með öllum helstu mælum, s.s. hraða-
mæli, hitamæli og bensínmæli, auk
klukku, viðvörunarljósa og stafræns
kílómetramælis. Farangursrými
TMAX-hjólsins er 32 lítrar sem þýðir
að vel er hægt að koma aukahjálmi,
innkaupapokanum eða íþróttatöskunni
fyrir undir sætinu án vandkvæða en
farangursrými í bifhjólum er venjulega
lítið sem ekkert. Þá er n.k. „hanska-
hólf ‘ líka á hjólinu og er það nógu stórt
Umboð:
Hestöfl/sn:
SAMANBURÐARTOLUR
Merkúr hf.
40/7000
Snúningsvægi/sn: 46 Nm/5500
Þurrvigt: 197 kg
til að geyma í því símann, húslyklana
og peningaveskið.
Þægilegur akstur
Öll hönnun hjólsins tekur mið af
þægindum fyrir ökumann og farþega
og hár skermurinn og sérstök straum-
línulaga hlíf aö framan brýtur mesta
vindinn svo lítil hætta er á að þreytast
þess vegna en ökumaðurinn og farþeg-
inn sitja nánast i logni í stað þess að
berjast með vindinn í fangið. Sætið er
einstaklega þægilegt, bæði fyrir öku-
mann og farþega, en stuðningspúða við
bakið er hægt að færa fram og aftur.
Sætið sjálft er mjúkt og flnt og farþeg-
inn minn á hjólinu talaði sérstaklega
um það hversu þægilegt það væri. 500
kúbikin og hestöflin 40 skila sér ótrú-
lega vel þrátt fýrir sjálfskiptingu en
hjólið er sprækt af stað á gatnamótum
og engin hætta á að maður sé skilinn
eftir á umferðarljósum. Það var ekki
fyrr en komið var í 80-90 km hraða og
átti að gefa aðeins meira í að í Ijós kom
að sjálfskiptingin tekur dálítið af við-
bragðinu. Hámarkshraði hjólsms er þó
uppgefmn 160 km/klst og uppgefin
hröðun er 7,5 sek. frá 0 í 100 km/klst
þannig að þeir sem vilja njóta einfald-
leika sjálfskiptingarinnar og áreynslu-
lausrar ásetunnar án þess að tapa
krafti mótorhjóla fá nú loks eitthvað
fyrir sinn snúð. Fjöðrun hjólsins er ein-
staklega mjúk og fagmannlega upp-
byggð sem á ekkert skylt við fjöðrunar-
búnað lítilla vespa, sem oft eru hastar,
enda afar þægilegt og lítt þreytandi að
aka hjólinu lengri vegalengdir.
Fyrir mömmur sem þora
Ég velti því lengi fyrir mér hvaða
hóp ég myndi sjá á svona hjóli þar sem
um er að ræða blöndu af stóru bifhjóli
með alvörumótor og vespu og eiginleik-
um þessara tveggja blandað saman.
Notagildið verður dálítið annað fyrir
vikið og þessir venjulegu mótorhjóla-
töffarar þora væntanlega ekki að skipta
yfir í þægindin. Hjólið er hægt að nota
til styttri ferða innanbæjar eða huggu-
legra sunnudagsbíltúra út úr bænum.
Nesti og aukafatnaður verður ekkert
vandamál enda farangursrými nóg. Ég
sé fyrir mér að markhópurinn fyrir
Yamaha TMAX hjólið verði því mömm-
ur sem þora. Helstu gallamir við hjólið
eru ásetan sem er eins og setið sé í
hægindastól með fætur fyrir framan
sig en hún verður samt dálítið skrýtin
þegar maður hefur vanist því að aka
hjóli þar sem ásetan er allt önnur og
nota þarf fætur tO gírskiptinga og
hemlunar. Hún venst hins vegar afar
vel. Sjálfskiptingin tekur dálítið af
„þoli“ hjólsins því þó það sé tiltölulega
snöggt af stað
verður átakið
meira þegar
hraðinn hefur
verið aukinn og
viðbragðið leng-
ist þegar hraða-
talan fer að
nálgast þrjá
stafi. Helstu
kostir eru þægi-
leg áseta, rúm-
gott farangurs-
rými og nægur
kraftur.
-HSH
Notaðir bífar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno Wagon, sjsk.
Skr. 6/99, ek. 26 þus.
Verð kr. 1190 þús.
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 5/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 890 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 5/98, ek. 60 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Vitara JLX, sjsk.
Skr. 4/97, ek. 75 pús.
Verð kr. 1050 þús.
Suzuki Vitara JLX,
Skr. 7/98, ek 7
Verð kr. 970
bsk.
Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 790 þus.
Ford Focus Trend, 5 d., sjsk.
Skr. 1/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Audi A-4, bsk.
Skr. 11/99, ek. 35 þús.
Verð kr. 1670 þus.
Honda CRV, sjsk.
Skr. 9/97, ek. 80 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Toyota RAV-4, 5 d., sjsk.
Skr. 6/96, ek. 76 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---M-------------—
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100