Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 3
I : Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði verið velkomin í dag, laugardag, fagnar Hrafnista í Hafnarfirði 25 ára afmæli sínu og býður þér upp á kaffi, kakó og meðlæti á milli kl. 14:00 og 17:00. í tilefni dagins verður kynnt nýtt leiguhúsnæði við Hrafnistu í Hafnarfirði - ails 64 íbúðir í tveimur húsum - sem er sérhannað með þarfir 60 ára og eldri í huga. Nú þegar hefur verið lokið við gerð tveggja af þeim 64 íbúðum sem um ræðir og verða þaer til sýnis fyrir þig og þína í dag. Húsin tvö verða fullkláruð n. k. desember og mars. íbúðir húsanna eru í fjórum mismunandi stærðum og eru flestar tveggja og þriggja herbergja. Kappkostað er að gera íbúðirnar sem veglegastar og mikið lagt upp úr því að þær séu bjartar, rúmgóðar og opnar. í báðum húsunum er lyfta og innangengt er úr bílageymslu í bæði húsin og Hrafnistuheimilið. Þá geta væntanlegir íbúar fengið keypta ýmis konar þjónustu frá Hrafnistuheimilinu. k jarðhæð húsanna er samkomusalur sem ibúarnir geta notað og snýr hann að skjólgóðu útivistarsvæði. Þá er innangengt úr bilageymslu inn i bæði húsin sem og Hrafnistuheimilið. Frekari upplýsingar um leiguibúðirnar er hægt að fá hjá Sjómannadagsráði í síma 585-9301, hjá Hrafnistu í Hafnarfirði í síma 585-3000 og hjá Hrafnistu í Reykjavík í síma 585-9500. ibúðirnar eru flestar tveggja og þriggja herbergja og koma í f]órum mismunandi stærðum:86 fermetra, 98 fermetra, 114 fermetra og 146 fermetra, með sameign. Ymis konar þjónustu frá Hrafnistu í Hafnarfirði er hægt að fá keyþta og óneitanlega er það kostur að geta búið við það öryggi sem Hrafnistuheimilin eru margrómuð fyrir. Raðherbergin em stór til að mæta þörfum hreyfihamlaðra og þar eru rennihurðir i stað hefðbundinna hurða. Sturtubotnar eru felldir í gólf, gólfin eru með öryggisdúk og veggir eru flisalagðir. Hægt er að oþna miili svefnherbergis og stofu með stórri rennihurð. Eikar-þarket er á gólfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.