Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 8
8 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 Útlönd Fallnir bræöur syrgöir Þrír palestínskir bræður farast í sprengingu Öflug sprenging varð í gær þremur palestínskumönnum að bana 1 Jabalya-flóttamannabúðunum á Gaza- svæðinu auk þess sem flmm aðrir slösuðust alvarlega. Sprengjan mun hafa sprungið inni í tveggja hæða íbúðarhúsi og var svo öflug að veggir herbergisins rifnuðu út. Að sögn palestínskra stjórnvalda voru hinir látnu bræður, allir félagar í Fatha-hreyflngu Yassers Arafats og lýst sem friðsömum borgurum og voru þeir særðu úr sömu fjölskyldu. Engar staðfestar fréttir höfðu í gær borist um orsök sprengingarinnar, en að sögn sjónarvotta virtist sem hún hafi sprungið óvænt og að einn bræðranna, sem grunaður er um græsku, hafl ætlað að nota hana gegn ísraelum. Pútín Rússlandsforseti Bandaríkjamenn vöruöu Pútín í gær viö aögerðum gegn skæruliöum innan landamæra Georgíu. Bandaríkjamenn vara Rússa við Philip Reeker, talsmaður banda- riska utanríkisráðuneytisins varaði Rússa í gær við hemaðaraðgerðum gegn tsjetsjenskum skæruliðum innan landamæra Georgíu og sagði að bandarísk stjómvöld litu það alvarleg- um augum ef Rússar virtu ekki rétt- indi og landmæri landsins. Aðvörunin kom eftir að Pútín Rúss- landsforseti hafði í gær varað Samein- uðu þjóðirnar við því að Rússar myndu gripa til nauðsynlegra ráðstaf- ana til að verja sjálfa sig ef Georgíu- menn gerðu ekkert til þess að hindra starfsemi tsjetsjenskra skæruliða inn- an landamæra Georgíu. Siðustu fjóra mánuðina hafa bada- riskir hermenn dvaðið í Georgíu, þar sem þeim var ætlað að aðstoða her þeirra i baráttunni gegn skæruliðum, en með litlum árangri. Rússar hafa átt í ófriði við skæru- liðahópa aðskilnaðsinna múslíma í Tsjetsjeníu allt frá árinu 1994 og hafa rússnesk stjómvöld ásakað Georgí- menn fyrir að láta skæruliðum eftir landsvæði í hinu stjómlausa Pankisi- skarði þaðan sem þeir stundi árásir á rússnesk landssvæði. Stjórnvöld í Georgíu segja aftur á móti að ástandið í skarðinu sé komið í eðlilegt horf eftir að hafa sent þang- að um eitt þúsund hermenn til að reka skæruliðana á brott. DV Flórída í Bandaríkjunum: Þrír menn í haldi vegna gruns um hryðjuverk — Gengilbeina á veitingastaö heyrði þá ræða um sprengjur Lögreglan i Flórída í Bandaríkjun- um handtók í gær þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa ætlað að standa að hryðjuverkum. Mennimir voru eltir uppi og stöðv- ar af lögreglu í suðurhluta ríkisins, eftir ábendingu frá gengilbeinu á veit- ingastað í nágrannaríkinu Georgiu, en hún hvaðst hafa heyrt þrjá grun- samlega menn af arabískum uppruna ræða það sem hún taldi vera ráða- gerðir um hryðjuverk. Hún sagði lögreglunni að hún hetði heyrt einn þeirra tal um að Banda- ríkjamenn hefðu syrgt 11. september og að þeir myndu aftur syrgja þann 13. september. Rannsóknarlögreglan í Georgíu sendi strax út aðvörun til allra lög- reglustöðva í nágrenninu og óskaði eftir því að leit yrði þegar hafin af bíl- um mannanna, sem gengilbeinan hafði gefið greinargóða lýsingu á auk skráningarnúmera. Sprengjuleitartæki Lögreglan notaði nýjustu tækni viö sprengjuleit í bílunum. Ónefndur aðstoðarlögeglustjóri stöðvaði bílana um miðnætti að stað- artíma í gær, eftir að tilkynnt hafði verið um að annar þeirra hefði ekið framhjá vegatollskýli án þess að borga. Eftir að hafa stöðvað bílana á vestur-austur þjóðveginum í nágrenni Everglades-þjóðgarðsins í Flórída var viðkomandi vegi lokað á meðan hand- taka og rannsókn fór fram og var hon- um haldið lokuðum fram eftir degi í gær. Engar sprengjur fundust í bílunum, en að sögn talsmanns lögreglunnar voru kennsl strax borin á mennina og er rannsókn málsins enn í fullum gangi. Mennimir munu allir hafa lagt fram lögleg dvalarleyfi í Bandaríkjun- um og þegar síðast fréttist höfðu eng- ar ákærur verið bomar fram. Að sögn lögreglunnar hafa nokkur svipuð tilfelli komið upp á síðustu dögum en öll hafa þau verið byggð á misskilningi. REUTER&MYND Göran greiðir atkvæði Spennandi þingkosningar fara fram í Svíþjóö á morgun, en samkvæmt síöustu spám stefnir íjafna baráttu milli Jafnaöarmannaflokks Görans Perssons forsætisráöherra og fylgisflokka hans annars vegar og hægri- og miöflokkanna hins vegar. Hér á myndinni sjáum viö Persson skila atkvæöi sínu í póstkosningu í gær. Bush segist efast um að Saddam samþykki kröfur SÞ Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær efast um það að Saddam Hussein muni koma til móts við kröfur Bandaríkjamanna til að koma í veg fyrir fyrirhugaðar hem- aðaraðgerðir gegn írökum. Þetta kom fram þegar Bush fundaði með forystumönnum Afríkiríkja í New York í gær og sagði Bush byggja þessa skoðun sína á þvi að Saddam hefði þegar þráast við í ellefu ár. „í ellefu löng ár hefur Saddam hunsað allar fram komnar kröfur alþjóðasamfélagsins og i raun gefið Sameinuðu þjóðunum langt nef,“ sagði Bush og ítrekaði kröfu sína um að Sameinuðu þjóðirnar settu írökum tímamörk til að samþykkja skilyrðislausar kröfur Öryggisráðs- ins. „Tímamörk ekki lengri en daga eða vikur, en ekki mánuði eða ár. Bush sagði að næstu skref yrðu Bush Bandarikjaforseti J ellefu löng ár hefur Saddam huns- aö allar fram komnar kröfur alþjóöa- samfélagsins og í raun gefið Samein- uöu þjóöunum langt nef, “ segir Bush. að ræða við utanríkisráðherra þeirra þjóða sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráðinu, sem eru Rússar, Kínveijar, Frakkar og Bretar og hófust þeir fundir í gær. Bretar eru eina þjóðin sem hing- að til hefur ljáð máls á einhliða að- gerðum og má því ætla að róðurinn verði Bandaríkjamönnum erfiður. Tariq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra íraks, fordæmdi í gær kröfur Bandaríkjamanna á alsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um að vopna- eftirlitsnefndinni yrði aftur hleypt inn í landið og sagði það ekki leysa neinn vanda. „Við höfum slæma reynslu af vopnaeftirlitinu og að ganga að skilyrðislausum kröfum Bandaríkjamanna kemur ekki til mála,“ sagði Aziz. „Er það kannski viskulegt að reyna eitthvað aftur sem ekki hefur gengið upp,“ bætti Aziz við. Fuglafriðland í hættu Náttúruyfirvöld í Suður-Afríku kölluðu í gær saman neyðarfund vegna yfirvofandi hættu á miklum olíuleka úr ítölsku flutningaskipi sem strandaði nálægt heimsþekktu friðlandi fugla við austurströnd landsins í fyrradag. Skipið, sem ber nafnið Jolly Rubino, er þegar farið að leka olíu en ekki enn vitað hve mikill lekinn er. Stjórnvöld hafa ekki aðeins áhyggjur af olíulekan- um þvi meðal farms er fullur gámur af hættulegu eiturefni. Kærður fyrir manndráp Harry Schmidt, bandariskur or- ustuflugmaður sem fyrr á árinu varð fyrir því að skjóta fyrir mis- skilning flugskeytum að kanadískri hersveit í Afganistan, með þeim af- leiðingum að fjórir liðsmenn sveit- arinnar létu lífið, hefur verið ákærður fyrir manndráp. Það er bandaríski flugherinn sem ákærir, en Schmidt er einnig kærður fyrir vanrækslu við æfingar og að fara ekki eftir settum reglum sem gilda um það hvenær skjóta má og hvenær ekki. Musharraf gagnrýndi í blaðinu i gær sögðum við frá því í myndatexta að Hamid Karzai, forseti Afganistans, sem ávarpaði allsherjar- þing Sameinuðu þjóð- anna í fyrradag, hefði notað tækifærið til þess að gagnrýna fýrirhugaðar kosn- ingar í Kasmír. Það er ekki rétt því það var Pervez Musharraf, forseti Pakistans, sem varaði við því í ávarpi sínu að kosningamar myndu aðeins stuðla að áffamhaldandi óróa í hérað- inu. Hann sagði þær ekki hafa neinn tflgang þar sem niðurstöðunum yrði örugglega hagrætt og því engin lausn á vandanum. Ný skjálftatækni Nýr radartæknibúnaður, sem komið verður fyrir í gervihnetti á braut umhverfis jörðu, gefur jarð- vísindamönnum góðar vonir um að hægt verði að fylgjast nákvæmlega með hreyfingu jarðskorpunnar og þar með sjá fyrir jarðskjálfta. Áður treystu vísindamenn á skynjara á jörðu niðri en nýi búnaðurinn mun gefa þeim mun nákvæmari upplýs- ingar um væntanlega skjálfta. Sænskir kratar óhressir Jafnaðarmenn í Svíþjóð eru í öng- um sínum aðeins degi fyrir kosningar eftir að fréttir bárust um að hrekkja- lómar hefðu falsað nöfn yfir áttatíu flokksfélaga þeirra, þar á meðal tveggja ráðherra, á umsóknir um fé- lagslegar bætur sem sendar voru fé- lagsyfirvöldum á Netinu. Talsmaður flokksins sakar hægrimenn um það sem hann kallar skemmdarverk og til- gangurinn sé aðeins að skaða flokk- inn stuttu fyrir kosningar. Bhutto ekki með Pakistönsk kosn- ingayfirvöld hafa úr- skurðað að Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ekki að bjóða sig fram í kom- andi þingkosningum sem fram fara í októ- ber. Úrskurðurinn er byggður á því að Bhutto hafi ekki mætt fyrir rétt þegar hún var dæmd fyrir spillingu að henni fjarverandi. Breski herinn æfir Breski herinn hóf i gær æfingar yegna fyrirhugaðra aðgerða gegn írökum og var fyrsta æfingin, sem um sex þúsund hermenn tóku þátt í heima fyrir, fólgin f h ' her- gögn tii haf1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.