Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 9
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 9 DV Fréttir íslensk ull í hættu vegna mengunar í Hveragerði DV-MYND EVA HREINSDÖTTIR Bíður hreinsunar Jóhann Tr. Sigurðsson (t.v.) framkvæmdastjóri og Sigmundur Bergur Magnússon, fv. ullarþvottastjóri, við örlítinn hluta afpokum með ull sem bíður hreinsunar í stööinni. Réttir eru hafnar víða um land og rúningur fjárins hjá bændum um allt land. Líklega vita fáir að aðeins ein ull- arþvottastöð þjónustar sauðfjárbændur landsins. Það er Istex hf. í Hvera- gerði,en sú stöð á ekki beinlínis upp á pallborðið þar vegna mengunar sem starfsemin veldur á viðkvæmum stað í blómabænum. I Varmána renna tugir og hundruð tonna af óhreinindum ár- lega. Svo kann að fara að þessi eina ull- arþvottastöð landsins verði lögð niður. Það yrði áfali fyrir sauðijárbændur því íslensk uli hyrfi alfarið af heimsmark- aði, útflutningur mundi ekki borga sig. Við stööina starfa að staðaldri 12 manns úr Hveragerði og er hún því stór og mikilvægur vinnustaður. Menguð náttúruperla Varmá rennur í gegnum Hveragerði og ölfus og er af mörgum talin ein af náttúruperlum landsins. Silungsveiði er ailnokkur í ánni og þar eru nokkrir „baðstaðir", litli fossinn við klettinn Baulu, nokkru ofan við frárennsli ullar- þvottastöðvarinnar, er einna vinsælast- ur og i góðviðri hoppa krakkamir af Baulu ofan í hylinn sem þar hefur myndast, ærslast og leika sér. Umræður hafa verið að undanfómu um mengun árinnar, annars vegar vegna skólplagnar frá Hveragerðisbæ og hins vegar frá ullarþvottastöðinni. Árið 1988 birtist skýrsla Mengunar- vama Hollustuvemdar ríkisins um Varmá, þar sem segir m.a. að mengun í ánni megi fyrst og fremst rekja tO frá- rennslis ullarþvottastöðvar Sambands- ins og frárennslis frá skólpþró. Segir þar m.a. eftirfarandi: „Frárennsli ullar- þvottastöðvarinnar er helsti mengunar- valdurinn hvað varðar COD og gmgg- þurrefni. Það þýðir að þegar þvottaefn- in fara í ána og brotna niður, taka þau til sín súrefhi, sem getur svo takmark- að lífsskiiyrði í ánni. Enn fremur sýna mælingar að ammóníak sé í hættulegu magni fyrir lífríkið. Ullarþvottastöðin á hins vegar ekki sök á háu kólí- og saur- kólígerlamagni í ánni“. Nú hefúr verið tekin í notkun ný skólphreinsistöð neð- an við Suðurlandsveg við Varmá og er því sá hluti mengunarinnar leystur. Heilbrigðiseftirlit ríkisins hefur ít- rekað við forráðamenn ullarþvotta- stöðvarinnar að endurbóta sé þörf hvað varðar frárennslismál. Stöðin er rekin með bráðabirgðaleyfi á meðan verið er að athuga málin en viðræður eru í gangi milli fulltrúa ullarþvottastöðvar- innar, heilbrigðiseftirlits, stjómvalda og Hveragerðisbæjar um framtíð stöðv- arinnar. Dauðadómur Guðjón Kristinsson, framkvæmda- stjóri ístex, sagði að ljóst væri að óráð- legt væri að halda áfram rekstri núver- andi stöðvar vegna staðsetningar henn- ar en svæðið í grennd við hana hefur verið skipulagt sem íþrótta- og útivist- arsvæði. Þar að auki þyrftu flutninga- bifreiðar að aka í gegnum íbúðahverfin. Guðjón sagðist helst telja að stöðinni yrði lokað á þessum stað og sótt yrði um lóð við nýju skólphreinsistöðina hjá Varmá. Telja má víst að ef loka ætti ullar- þvottastöðinni jafhgilti það dauðadómi fyrir ullarbændur í landinu. Ullina þyrfti þá að flytja tO útlanda og selja á heimsmarkaðsverði og dygði það engan veginn fyrir kostnaði. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra sagði fyrir skömmu í ræðu, þar sem fjallað var um mengun Varmár, að honum væri mjög í mun að halda þess- ari síðustu uOarþvottastöð gangandi og mundi leggja sitt af mörkum tO þess aö reksturinn héldi áfram. Víst er að Hver- gerðingum er mikið í mun að stöðin verði starfrækt. 200 tonn af óhreinindum á ári Að sögn Jóhanns Tr. Sigurðssonar verksmiðjustjóra faOa árlega tO um 900 tonn af óhreinni uO hér á landi og skipt- ist hún í 630 tonn af haustuO, 300 tonn af vetraruO og 10 tonn af sumaruO. Eft- ir þvott er uOarmagnið rúm 700 tonn. í því eru um 200 tonn af óhreinindum sem eru þvegin úr uOinni. Þar af eru um 20 tonn hreinsuð með ryksíum fyr- ir þvott og um 160 tonn losuð úr setþró sem fráveituvatnið fer i gegnum. Jó- hann sagði, að framleiðandi sápunnar fuOyrði að hún brotni niður um að lág- marki 90%. Nú er verið að vinna uO frá þvi í nóv- ember í fyrra og í mars á þessu ári. Há- annatími hefst yfirleitt um mánaðamót- in nóvember-desember, en aðalrún- ingstími er í nóvember og febrúar. -eh DV-MYND SH Nám úr fjarlægö Líneik Anna Sævarsdóttir á skrifstofu FNA í verkalýðshúsinu á Fáskrúðsfirði. Á annað hundrað \ námi heima fyrir Fimmtudaginn 12. september var opnuð í verkalýðshúsinu á Fáskrúðs- firði starfsstöö Fræðslunets Austur- lands, skrifstofa og vinnuaðstaða þar sem stýrt er meðal annars háskóla- námi sem á annað hundrað Austfirð- ingar taka þátt í eftir leiðum nútíma- tækni. Sem dæmi um nám sem býðst í fjarkennslu er rekstrarfræði frá Há- skólanum á Akureyri, nám leikskóla- kennara og hjúkrunarfræði. Frá Há- skóla Islands má nema íslensku í fiar- námi. Stutt símenntunamámskeið, t.d. fyrir verkstjómendur, er á döfmni, einnig tölvunámskeið, stutt matreiðslu- námskeið á HaOormsstað, matreiðsla á vUlibráð, sem er afar vinsælt námsefiii. Nýráðinn framkvæmdastjóri FNA, Líneik Anna Sævarsdóttir, og EmU Bjömsson, sem er verkefnisstjóri FNA, kynntu gestum starfsemina og buðu upp á kaffi og tertur í tOefni þessa merka áfanga sem án efa mun verða lyftistöng mennta á Fáskrúðsfirði. Á síðasta skólaári stunduðu 140 manns nám á háskólastigi á vegum FNA og er gert ráð fyrir svipaðri aðsókn á þessu skólaári. Þá má einnig nefha að yfir 1.000 þátttakendur vora á hinum ýmsu námskeiðum sem FNA stóð fyrir á síð- asta ári. -SH , f • M Barnaföt á fáheyrðu verði - merkjavara Osh-Kosh - Confetti - Calvin Clein - Simple kids Sportfatnaður og sportskór - merkjavara Sundfatnaður á börn og konur O'neil og Speedo O'neil og Cintamany, úlpur og buxur 66° norður Mikið úrval á ótrúlegu verði Opið í dag, kl. 10-18 Sunnudag 11-18 Mán.-fös. 11-18 Lokum sunnudagskvöld 22. september

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.